Morgunblaðið - 13.01.1995, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
ILLA særður drengur í Grosní hrópar á hjálp, við hliðina á honum er félagi hans, einnig stórslasaður.
Staða Gratsjovs
er talin tvísýn
Moskvu, Grosní, Vín. Reuter.
VJATSJESLAV Kostíkov, aðaltals-
maður Borísar N. Jeltsíns Rúss-
landsforseta, sagði í gær að ekkert
væri hæft í fregnum um að rúss-
neska herráðið yrði tekið undan yfir-
stjórn varnarmálaráðuneytisins og
fært undir beina forsetastjórn. Þetta
væri aðeins ein af mörgum hug-
myndum sem ræddar hefðu verið.
Heimildarmenn telja þó fullvíst að
gripið verði til skipulagsbreytinga
vegna hrakfara rússneska hersins í
Tsjetsjníju og segja stöðu Pavels
Gratsjovs varnarmálaráðherra mjög
veika. Rússar gerðu í gær hörðustu
stórskotaliðsárásir sínar á Grosní
frá upphafi og draga nú saman lið
til iokasóknar gegn borginni.
Þeir sem gagnrýnt hafa hernað-
inn gegn Tsjetsjenum á þeim for-
sendum að honum sé illa stjómað
benda á að alger skortur virðist
hafa verið á sameiginlegri yfirstjóm
sveita landhersins og vopnaðra
sveita innanríkisráðuneytisins, sem
heyra undir yfirmann gagnnjósna-
þjónustunnar. Mikil þörf sé því á
uppstokkun í yfirstjórninni.
Vladímír Sjúmeiko, forseti efri
deildar þingsins og náinn samverka-
maður Jeltsíns, fullyrti á miðviku-
dag að ákvörðun hefði verið tekin
um æðstu völd forseta yfir herráðinu
á fundi Jeltsíns, Viktors Tsjerno-
myrdíns forsætisráðherra og forset-
um beggja þingdeilda. Gangi þetta
eftir yrði það mikil hneisa fyrir
Gratsjov sem á sínum tíma fullyrti
að nokkur hundmð fallhlífahermenn
gætu tekið Grosní á sólarhring og
bælt niður uppreisn Tsjetsjena.
Vopnin skilin eftir
Moskvustjómin gerði misheppn-
aða tilraun til að bijóta á bak aftur
sjálfstæðistilburði Tsjetsjena haust-
ið 1991. Er rússneska setuliðið í
héraðinu yfirgaf það síðan 1992
stjómaði Gratsjov undanhaldi liðsins
og skildi eftir megnið af vopnabún-
aði þess, þ. á m. mikið af skriðdrek-
um og háþróuðum tæknibúnaði sem
liðsmenn Dzhokars Dúdajevs, leið-
toga héraðsins, nota nú gegn innrás-
arliði Rússa.
Dúdajev kom fram opinberlega í
fyrsta sinn í þrjár vikur á miðviku-
dag, hann hélt þá blaðamannafund
í vesturhluta Grosní og hvatti Rússa
til að semja um frið. Rússneska
fréttastofan Interfax sagði í gær
að lest rússneskra brynvagna væri
á leið frá grannhéraðinu Ingúsetíu
áleiðis til Grosní. Stjómvöld í
Moskvu hefðu einnig sent úrvalslið
úr landgöngusveitum flotans, er
haft hefði bækistöðvar á Kyrrahafs-
ströndinni, til Tsjetsjníju. Mönnun-
um væri ætlað að beijast með öðrum
flotasveitum sem sendar hafa verið
á vettvang frá Eystrasalti og Norð-
ur-Rússlandi.
ÖSE miðlar ekki málum
Fulltrúi Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, ÖSE, Ungveijinn
Istvan Gyarmati, sagði í gær að
stofnunin myndi ekki með beinum
hætti reyna að koma á sáttum í
deilu Rússa og Tsjetsjena á þessu
stigi málsins. Bandaríkjamenn sök-
uðu á miðvikudag Moskvustjórnina
um að bijóta reglur ÖSE með fram-
ferði sínu í uppreisnarhéraðinu.
Farþegaþota sprakk á
flugi í Kólumbíu
Níu ára stúlka
fannst lífandi
í mýrlendi
NÍU ára stúlka fannst lifandi við
brak kólumbískrar farþegaþotu af
gerðinni DC-9 sem fórst í innan-
landsflugi í Kólumbíu í fyrrakvöld.
Talið var að allir aðrir sem um
borð voru hefðu farist eða 51 mað-
ur.
Þotan var í eigu flugfélagsins
Intercontinental de Aviacion og var
á leið frá höfuðborginni Bogota til
Cartagena á Karíbahafsströndinni.
Flugmennirnir höfðu ekki gefíð
neitt til kynna sem bent gæti til
þess að við bilun hefði verið að etja.
Ekkert heyrðist til þotunnar eftir
að flugmennirnir óskuðu eftir því
að fá að lækka flugið úr 19.000
fetum í 8.000 fet. Var hún þá að
nálgast áfangastað.
Fullvíst þykir að sprenging hafi
orðið í þotunni á flugi en brak henn-
ar kom niður í mýrlendi skammt
frá bænum Maria La Baja i Bolivar-
héraði, í 550 km ljarlægð frá Bo-
gota.
Talið er að það hafi orðið stúlk-
unni, Erica Delgado, til happs, að
hún kom niður í votlendi. Hlaut hún
aðeins handleggsbrot.
„Hún lá í mýrinni og hrópaði
„hjálp, hjálp“ þegar við nálguð-
umst,“ sagði vinnumaður á
sveitabæ í nágrenni slysstaðarins
sem fann stúlkuna. Foreldrar henn-
ar og bróðir fórust með þotunni.
Mikil leit fór fram í þeirri von
að fleiri farþegar fyndust á lífi.
Leituðu menn á eintijáningum með
luktir en í gær var talið útilokað
að fleiri hefðu komist lífs af.
Hryðjuverk?
Talsmaður kólumbískra flug-
málayfirvalda vildi ekki tjá sig um
hvort hugsanlega hefði verið um
hermdarverk að ræða. Af hálfu al-
þjóðlegra farþegasamtaka og flug-
mannafélaga hefur ástand flugör-
yggismála í Kólumbíu ítrekað verið
gagnrýnt. Þar sé einna hættulegast
i heiminum að ferðast með áætlun-
arflugi vegna ófullnægjandi flug-
umferðarstjórnunar, lélegs flugleið-
sögubúnaðar á jörðu niðri og stöð-
ura brota á öryggisreglum.
Rándýr ullarballi
Canberra. Reuter.
EINN einasti ullarballi, 116 kg, var
seldur á rúmar 63 milljónir ísl. kr.
á uppboði í borginni Geelong í Ástr-
alíu á miðvikudag. Er það hæsta
verð, sem um getur, en um var að
ræða afar fína ull af hreinu og fram-
ræktuðu Merino-fé. Var kaupand-
inn japanskur fataframleiðandi.
Ian Appledore, bóndinn, sem
seldi ullina, trúði ekki sínum eigin
eyrum þegar hann heyrði verðið,
sem boðið var í hana, og stóð
nokkra stund gapandi af undrun.
Bað hann síðan uppboðshaldarann
að endurtaka verðið og það stóð
heima, rúmar 63 millj. kr. „Ég bjóst
ekki við að fara héðan sem milljóna-
mæringur,“ var það eina sem hann
sagði.
Kaupandinn, japanska klæða-
gerðin Aoki International, hefur
keypt ull af Appledore í sex ár og
fötin, sem unnin eru úr ullinni, eru
seld á milljónir kr. Gert er ráð fyr-
ir, að úr ullarballanum verði unninn
fatnaður á 30 manns.
Deilt um afdnf flaksins af Estóníu
Hópur aðstandenda
vill láta bjarga líkum
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
HOPUR ættinga þeirra sem fórust
með feijunni Estóníu í haust hyggst
safna peningum til að láta kafa
niður að feijunni og bjarga þeim
líkum, sem hægt er. Einnig er ætl-
unin að bjarga þeim hlutum, sem
hugsanlega gætu freistað ræningja.
Þessi ásetningur gengur þvert á
ætlun sænsku og eistnesku stjórn-
arinnar um að steinsetja flakið, en
láta björgun eiga sig.
Deilur meðal ættingjanna um
hvað gera eigi skipta þeim í tvennt.
Annars vegar eru þeir sem eru sam-
þykkir áætlunum stjórnarinnar um
að steinsetja flakið, án þess að
hreyfa við innihaldi þess. Áætlað
er að það kosti um tvo milljarða
íslenskra króna. Einnig er ætlunin
að setja lög, sem tryggja friðhelgi
skipsins. Hins vegar eru þeir, sem
ekki mega til þess hugsa annað en
að þess verði freistað að bjarga
þeim líkum, sem hægt er að ná í.
Hópur aðstandenda, sem óskar
björgunar, vill að stofnun þeirra,
sem komið var á fót eftir slysið,
sjái um björgunaráætlanir og safni
inn því fé, sem þarf. Sænskt köfun-
arfyrirtæki hefur áætlað að hægt
sé að bjarga um 400 líkum og
muni það kosta um 300 milljónir
íslenskra króna. Einnig óska að-
standendur eftir að bjarga hlutum,
sem gætu freistað ræningja. Ef
stofnunin heldur áætlunum sínum
til streitu stefnir í deilur við stjórn-
völd, sem gætu þá hugsanlega sett
lög, er banna köfun við flakið.
Steinsetningin á að hefjast í rnars
og lagasetning um friðhelgi flaksins
er í undirbúningi.
Díana vill ekki að Camilla
umgangist prinsana tvo
London. Reuter.
DIANA prinsessa hefur heitið
því að Camilla Parker Bowles,
fyrrum ástkona eiginmanns
hennár, Karls prins, taki aldrei
við móðurhlutverki hennar.
Hefur hún lagt bann við því að
prinsarnir dveljist um helgar
hjá Karli sé Camilla þar líka.
Þetta hafði blaðið Today í
gær eftir heimildum innan
bresku hirðarinnar. „Hún held-
ur að frú Parker Bowles sé
óhæf stjúp mamma,“ hafði Sun
eftir öðrum heimildarmanni úr
röðum kóngafólksins.
Camilla og Andrew Parker
Bowles tilkynntu á þriðjudag
að þau myndu sækja um skiln-
að. Gátu fjölmiðlar sér strax til
að hugsanlega myndi hann
binda fljótt enda á hjónaband
þeirra Díönu og þar með opna
fyrir þann möguleika að kvæn-
ast konunni sem hann
hefur þrisvar átt í
ástarsamböndum
með.
í hjónabandi var
Díana sögð ákaflega
afbrýðissöm í garð
Camillu Parker Bow-
les. Nú hefur hún þó
sætt sig við að vin-
skapur þeirra Karls
haldi áfram en muni
gera allt til þess að
halda sonum sínum
frá henni.
Myndi tryllast
„Hún myndi tryll-
ast af bræði ef hún
sæi Karl og Camillu
að leik með drengjun-
um eins og um samhenta og
hamingjusama fjölskyldu væri
að ræða. Slíkt þyldi
hún aldrei,“ sagði vin-
ur hennar í blaðavið-
tali.
í fyrra brást Díana
ókvæða við fréttum
þess efnis að að-
stoðarkona Karls,
Tiggy Legge-Bourke,
gegndi nokkurs kon-
ar móðurhlutverki
fyrir Wilhjálm, sem
er 12 ára, og Harry,
sem er 10 ára, þegar
þeir dveldust hjá föð-
ur sínum. „Þeir eru
synir mínir,“ áminnti
Díana hjálparhelluna.
Blaðið Daily Mail
sagði þó í gær, að
Díana bæri mun
minni kala til Legge-Bourke en
til Camillu.
Díana prinsessa
UTSALA
NYTT
KORTATÍMABIL
Sí beneffon
LAUGAVEGI 97 & SÍMI 55 22 555