Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Godal um samninginn við Kanada
Vonandi góð
áhrif á úthafs-
veiðiráðstefnuna
Sfld frá Eyjum til
styrktar Súðvíkingum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
BJ0RN Tore Godal, utanríkis-
ráðherra Noregs, sagði í skýrslu
sinni um utanríkismál, sem hann
flutti Stórþinginu í síðustu viku,
að hann vonaðist til að nýlegur
samningur Kanada og Noregs
um úthafsveiðar hefði góð áhrif
á viðræður á úthafsveiðiráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna.
Hann hnýtti einnig undir rós i
íslendinga fýrir veiðar þeirra í
Smugunni og á Svalbarðasvæð-
inu.
Lagði áherzlu á
viðurkenningu
Kanadamanna
Utanríkisráðherrann sagði að
ríkisstjórn Verkamannaflokksins
legði mikla áherzlu á að tryggja
fiskveiðihagsmuni Norðmanna í
Norðurhöfum. „Hin óábyrga
hegðun, sem fiskimenn frá viss-
um löndum sýna í „Smugunni"
og á fiskverndarsvæðinu við
Svalbarða, er algerlega óviðun-
andi,“ sagði Godal. „Ríkisstjómin
væntir þess að stjórnvöld í við-
komandi löndum muni hjálpa til
við að finna friðsamlega lausn
eins skjótt og hægt er, og hún
er tilbúin að Ieggja sitt af mörk-
um til að það megi takast.“
Godal ræddi um samninginn
við Kanada, sem fjallar um gagn-
kvæman rétt til að framfylgja
fískveiðireglum utan lögsögu
ríkjanna. Hann lagði sérstaklega
áherzlu á viðurkenningu Kanada-
manna á rétti Norðmanna við
Svalbarða, en íslenzk stjórnvöld
hafa mótmælt henni.
„Fullveldisréttur Norðmanna
yfir auðlindum á fiskvemdar-
svæðinu og landgmnninu við
Svalbarða er viðurkenndur í þess-
um samningi," sagði hann. „Við
vonum að samningurinn, sem
fljótlega verður lagður fyrir Stór-
þingið, muni hafa uppbyggileg
áhrif á samningaviðræður á út-
hafsveiðiráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna."
Verður svarað fljótlega
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra afhenti fyrir
skömmu sendiherra Kanada hér
á landi formleg mótmæli ríkis-
stjórnarinnar við viðurkenningu
Kanada á kröfum Norðmanna við
Svalbarða og fór fram á að hún
yrði dregin til baka. Pierre Bec-
hart, upplýsingafulltrúi í kana-
díska sjávarútvegsráðuneytinu,
sagði í samtali við Morgunblaðið
að þarlend stjómvöld hefðu enn
ekki svarað orðsendingu Jóns
Baldvins formlega. Að því væri
hins vegar unnið.
VESTMANNAEYJABÆR ásamt
fyrirtækjum og einstaklingum í Eyj-
um hefur staðið fyrir pökkun á
marineraðri síld í legi sem pakkað
hefur verið í 7.500 pakkningar og
verða þær seldar í verslunum Hag-
kaups á höfuðborgarsvæðinu á
föstudaginn. Öll innkoma af sölu
síldarinnar rennur óskipt til Rauða
kross íslands til styrktar þeim sem
eiga um sárt að binda vegna náttúru-
hamfaranna í Súðavík.
Hörður Adólfsson, bryti í Vest-
manaeyjum, átti hugmyndina að
þessu framtaki og með samvinnu
bæjaryfirvalda, fyrirtækja og ein-
staklinga var því hrint í fram-
ATKVÆÐAGREIÐSLA stendur yfir
þessa dagana meðal félagsmanna í
Félagi íslenskra atvinnuflugmanna
um heimild til stjórnar FÍA um að
boða til aðgerða hjá flugfélaginu
Atlanta.
Tryggvi Baldursson, formaður
FÍA, staðfesti í samtaii við Morgun-
blaðið að atkvæðagreiðslan stæði
yfir og að henni lyki á fimmtudag.
Tryggvi vildi ekki tjá sig frekar um
málið á þessu stigi.
Samningur sá sem gerður var í
kvæmd. Vinnslustöðin lagði til síld,
mannskap og húsnæði til vinnslunn-
ar en nokkur önnur fyrirtæki
greiddu það sem til þurfti, svo sem
annað hráefni, prentun og flutning
til Reykjavíkur. Hagkaup veitir end-
urgjaldslaust aðstöðu til að selja síld-
ina í verslunum sínum og félagar
úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja
munu sjá um dreifingu og sölu síld-
arinnar. Hver pakkning er 400
grömm að þyngd og verð hennar
verður 267 krónur sem er sama verð
og á sígarettupakka. Það verða því
um þijú tonn af síld sem á að selja
á föstudaginn og ef allt selst verður
ágóðinn um tvær milljónir.
kjölfar kjaradeilu FÍA og Atlanta
fyrr í vetur rann út um áramót.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins telja flugmenn í FIA að um
vanefndir á samningnum sé að ræða
og stendur deilan um forgang fé-
lagsmanna í FÍA til starfa hjá Atl-
anta, en flestir starfsmenn flug-
félagsins eru félagsmenn í Fijálsa
flugmannafélaginu.
Boðað hefur verið til fundar með
aðilum málsins í dag að frumkvæði
samgönguráðherra.
Þetta framtak er með samþykki
Rauða kross Islands. Vestmanna-
eyjabær ber ábyrgð á því og mun
bera kostnað vegna þessa ef einhver
verður. Unnið er að því að fá söluna
undanþegna virðisaukaskatti, en ef
það fæst ekki mun Vestmannaeyja-
bær greiða virðisaukaskatt af söl-
unni. Björgunarfélagsmenn frá Eyj-
um verða í verslunum Hagkaups frá
hádegi á föstudag og fram að lokun
við að selja síldina og í samtali við
Morgunblaðið sagði Guðjón Hjör-
leifsson bæjarstjóri í Eyjum að hann
vonaðist til að sölumönnunum yrði
vel tekið.
Týr sótti
sjúkling til
Flateyrar
LÆKNIRINN á Flateyri bað
í gær um að varðskipið Týr
sækti sjúkling til Flateyrar og
flytti hann til ísafjarðar, en
ófært er þar á milli.
Beiðni um flutninginn barst
Landhelgisgæslunni um kl. 15.
Varðskipið kom til Flateyrar
um kl. 19 og fór þaðan um
hálftíma síðar. Tveggja og
hálfs tíma löng sigling er þaðan
til ísafjarðar. Sjúklingurinn
þurfti að gangast undir aðgerð
á sjúkrahúsinu á ísafirði.
Deila komin upp milli FIA og Atlanta
Atkvæðagreiðsla um
heimild til aðgerða
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Norskur snjóflóða-
fræðingur kominn
KARSTEN Lid, yfirmaður norsku
rannsóknarstöðvarinnar um snjó-
flóð, kom hingað til lands í gær-
kvöldi í boði umhverfisráðuneytis-
ins. Lid þekkir til aðstæðna hér á
landi og kom m.a. hingað til lands
eftir snjóflóðið á Neskaupstað
Í974.
Össur Skarphéðinsson umhverf-
isráðherra segir Lid hafa mjög
yfirgripsmikla þekkingu á snjó-
flóðum og snjóflóðavörnum. Össur
kvaðst hafa óskað eftir því að Lid
kæmi hingað til lands til að gefa
sér ráð um hvernig best væri að
standa að endurbótum á snjóflóða-
eftirliti og -vörnum og miðla ís-
lendingum af reynslu Norðmanna
í þeim efnum.
„Við ætlum að skoða gögn um
ýmsa staði þar sem talin er hætta
á snjóflóðum. Ég ætla að heyra
hvað hann getur ráðlagt mér og
mínum sérfræðingum um það efni.
Hann mun einnig eiga viðræður
og samvinnu við Veðurstofu ís-
lands,“ sagði Össur.
Þá hefur umhverfísmálaráð-
herra þekkst boð franska sendi-
ráðsins um að hingað komi til
lands M. Gilles Borrel frá stofnun-
in CEMAGREF, sem er opinber
rannsóknarstofnun sem sinnir
einnig snjóflóðarannsóknum og
-vörnum, staðsett í Grenoble. Ekki
er ákveðið hvenær Borrel kemur
til landsins.
Stjórnsýsluendurskoðun á embætti sýslumannsins í Keflavík
Gengið var of
langt í spamaði
Þorska-
slátrun í
Neskaup-
stað
SÍÐUSTU daga hefur verið
unnið við að slátra þorski úr
annarri flotgirðingunni sem
Þorskur hf. í Neskaupstað er
með fiskeldi í. Ur girðingunni
komu tæp þrettán tonn af
þorski og var meðalþyngdin um
2,7 kg á fisk og er þá miðað
við aðgerðan fisk með haus.
Mest af fiskinum hafði verið
um eitt ár í eldinu og var honum
ðllum sleppt í flotgirðingarnar
sem undirmálsfiski. Fiskurinn
er allur seldur ferskur úr landi,
flakaður á markað í Bandaríkj-
unum, en fluttur út heill til
Frakklands.
RÍKISENDURSKOÐUN leggur til
að embætti sýslumannsins á Kefla-
víkurflugvelli fái viðbótarfjárveit-
ingu vegna hallarekstrar á síðasta
ári. Stofnunin telur að vel hafí tek-
ist að bæta fjárhagslega rekstur
embættisins á síðustu árum með
aðhaldsaðgerðum, en gengið hafi
verið of nærri embættinu með kröf-
um um sparnað á síðasta ári. Hafi
bæði utanríkisráðuneytið og sýslu-
maðurinn á Keflavíkurflugvelli átt
að gera sér grein fyrir því.
Ríkisendurskoðun hefur nú lokið
stjórnsýsluendurskoðun á embætti
sýslumannsins á Keflavíkurflug-
velli, sem unnin var að beiðni varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins. í niðurstöðum Ríkisend-
urskoðunar segir m.a., að gæsla í
hiiðum sé í lágmarki og jafnframt
sé eftirlit í lögreglubifreið ófull-
nægjandi nema tveir lögreglumenn
séu í bifreiðinni, þar sem örðugt
getur verið að færa sönnur á sekt
eða sakleysi í málum.
Auka ber löggæslu í flugstöð
Ríkisendurskoðun telur að auka
beri löggæslu í flugstöð á kostnað
húsgæslu, sem er á vegum Flug-
málastjórnar. Jafnframt verði
tryggt að enginn flugfarþegi komist
inn á biðsvæði vegna flugs nema
að undangenginni vopnaleit og
tryggt verði að allar aðrar leiðir séu
lokaðar.
Þá vill Ríkisendurskoðun að
mönnun vakta verði fyllri en nú er
og gengið verði út frá að vakthópar
verði ekki verr skipaðir en að um
ein forföll verði að ræða. Þá eru
þjálfunarmál lögreglumanna ekki
talin í nægjanlega góðu Iagi. Koma
þurfi upp aðstöðu í flugstöðinni til
að geyma flugfarþega sem ekki fái
dvalarleyfí hér á landi og bæta
þurfi umgengni og eftirlit með upp-
tækum varningi, sameina geymslu-
staði, senda varninginn oftar frá
embættinu og halda nákvæma skrá
yfir hann. Þá gerir Ríkisendurskoð-
un kröfu um að viðvera sé skráð
með stimpilklukku.
Ríkisendurskoðun telur þörf á að
endurnýja bílaflota embættisins og
fínnur að því að embættið hafí ekki
bílskýli. Þá beri að kanna hvort
leggja eigi niður vegabréfsskoðun
við brottför og hafa brottfararhlið
opið allan daginn, en flugfarþegar
komist gegnum vopnaleit þegar
þeir hafí fengið brottfararspjöld
afhent. Jafnframt verði annað
brottfararhlið opnað oftar og fyrr
en nú sé gert og stefnt að því að
ekki myndist biðraðir við hliðin.
Embætti ekki sameinuð
Loks mælist Ríkisendurskoðun
til, að í stað stöðugrar gæslu í vöru-
skemmu Fríhafnar verði gerðar
talningar öðru hvoru og Fríhöfn
gert að greiða gjöld af hugsanlegri
vöntun. Tollskrifstofa í Grænáshliði
verði lögð niður og þeir tveir starfs-
menn sem þar eru fluttir á skrif-
stofu sýslumanns í Grænási. Nokkr-
ar aðrar skipulagsbreytingar eru
lagðar til, en Ríkisendurskoðun tel-
ur að ekki beri að sameina emb-
ætti sýslumanns á Keflavíkurflug-
velli og embætti sýslumanns í
Keflavík.