Morgunblaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Mestí sam-
runi fyrir-
tækja í
Bretlandi
London. Reuter.
ÓVÆNT 8.9 milljarða punda tilboð
Glaxo Plc, stærsta lyfjafyrirtækis
Evrópu, í Wellcome Plc mun leiða
til mesta fyrirtækjasamruna sem um
getur í Bretlandi ef af verður.
Eftir sameininguna yrði Glaxo-
Wellcome Plc jafnframt stærsta fyr-
irtæki Bretlands að markaðsverð-
gildi — rúmlega 28.5 milljarða doll-
ara virði og stærra en British
Telecom.
Um er að ræða tæplega tvisvar
sinnum hærra tilboð en tilboð það
er leiddi til lyfjafyrirtækjasamruna
SmithKline Beecham Plc upp á 4.5
milljarða punda 1989, mesta sam-
runa í Bretlandi til þessa. Almennt
séð kemst tilboðið næst misheppn-
uðu 13.4 milljarða punda tilboði Sir
James Goldsmiths þegar hann reyndi
að leysa upp tóbaks- og trygginga
risafyrirtækið B.A.T Industries
1989.
Þá kom það tilboð næst 25 millj-
arða dollara kaupum Kohlberg Kra-
vis Roberts á matvæla- og tóbaks-
fyrirtækinu RJR Nabisco 1988 í röð
mestu viðskiptasamninga heims.
Hæsta á þessum áratug
Glaxo/Wellcome tilboðið er einnig
hið hæsta á þessum áratug, en dreg-
ið hefur úr tilboðum, sem voru al-
geng á síðasta áratug, vegna sam-
dráttar.
Samningar náðu hámarki 1989,
þegar gerð voru opinber tilboð upp
á 28.4 milljarða punda í Bretlandi.
Til samanburðar voru gerð tilboð
upp á 9.5 milljarða punda 1994,
þegar fjör færðust í þessi viðskipti.
Að síðasta samruna frátöldum
hefur aðeins einn samningur verið
hærri en 2 milljarðar punda. Hann
var gerður þegar HSBC bauð 3.9
TILBOÐ GLAXO
WELLCOME Pic.
Ef 14,1 milljaröa dollara tilboöi
Glaxoí Wellcome verður tekiö
yröi þaö stærsti samruni
fyrirtækja í Bretlandi
LYF
GLAXO Zantac: Maaalyf.
fSöluhæstaíylfleims,;
Salari:'
%r-
3.8 ma. dollara
Híutláíl afhagnaöi:
Salén:
43%
1.2 ma.dollara
Í
Hlutfall afbagnaöí:
STÁR>$MANNAFJÖLDI'
GlæSfjfe)?
51%
40,024
Wellcome (1993):
AFKOMA
17,571
3.0 ma.
0.5 1.0 1.5 2.0 2.5 dollara
19941..... T—
* I I
1993 I________________I-
I I I
1992 I
1991
I--------------------
, ______j-
1990 (-—■—! | |
j__jGLAXO •IWElLCOME
(1994: tllu mánaöa tölur)
TÍU STÆRSTU LYFJAFYRIRTÆKIN Sala í dollurum
Glaxo Wellcome I0.7ma.
Merck $8.8ma.
Bristol Myers Squibb $6.5ma.
Smithline Beecham $5.2ma.
Hoechst $5.2ma.
Pfizer $5.1 ma.
Johnson & Johnson $4,9ma.
Eli Lilly $4.6ma.
Roche $4.6ma.
Ciba $4.3ma. REUTER
milljarða punda í Midland Bank
1992.
Þá er ekki meðtalin misheppnuð
tilraun upp á 5 milljarða punda til
að sameina S.G. Warburg Group Plc
og Morgan Stanley of the U.S., sem
ekkert varð úr nú fyrir skemmstu.
KVIÐ ASTJORNUN
Einnig þú getur lært að ná tökum
á streitunni, kvíðanum og spennunni
í mannlegum samskiptum
Námskeiðin vinsælu
með árangursmati eru að hefjast.
Upplýsingar um helgar og öll kvöld
ísíma 39109
rlingsson, sálfræðingur
Lokaskrefið stifflð í einkavæðingu Lyfiaverslunar íslands
Síðustu hlutabréf
ríkissjóðs seld
RÍKISSJÓÐUR hefur ákveðið að selja eftirstöðvar hlutafjár síns í
Lyfjaverslun íslands hf. Um er að ræða helming hlutaijárins að
nafnvirði 150 milljónir króna en hinn helmingurinn var boðinn á
almennum markaði í nóvember og seldist þá upp á einum degi til
825 nýrra hluthafa. Bréfin verða sem fyrr seld á genginu 1,34
þannig að heildarsöluverð er alls um 201 milljón.
Ákveðið hefur verið að gefa al-
menningi kost á að kaupa bréf á
föstu gengi með sömu kjörum og í
nóvember en þó einungis á tímabil-
inu 26. janúar til 1. febrúar. Þeir
sem keyptu í nóvember geta aðeins
keypt bréf að því marki sem þeir
nýttu ekki leyfileg hámarkskaup á
þeim tíma. Að þessum fimm dögum.
liðnum verða eftirstöðvar bréfanna
seldar í tilboðssölu.
Stefnt er að sem mestri dreifingu
bréfanna meðal almennings og
verður því sala til hvers aðila 500
þúsund krónur að hámarki. Á áður-
nefndu fímm daga tímabili verða
boðin sérstök greiðslukjör. Þannig
verður heimilt að greiða hlutabréf
fyrir allt að 250 þúsund krónur með
fimm jöfnum vaxtalausum greiðsl-
um á tveimur árum, fimmtung við
kaup og síðan fimmtung hverju
sinni á sex mánaða fresti. Gefið
verður út skuldabréf fyrir eftir-
stöðvunum. Kaupendur verða af-
greiddir í þeirri röð sem þeir koma
á hvern söiustað en ekki verður
unnt að senda inn pantanir gegnum
sima eða fax. Aðalsöluaðili bréf-
anna er Kaupþing hf.
Hagnaður 39-47 millj.
Lyfjaverslun íslands rekur aðra
stærstu lyfjaverksmiðju landsins og
framleiðir þar dreypi- og stungulyf,
töflur, vökva, smyrsli og stíla. Fyr-
irtækið er sömuleiðis hið annað
stærsta í lyfjadreifingu og hefur
gert samninga við ýmsa innlenda
umboðsaðila lyfja, hjúkrunarvara
og erlenda framleiðendur. Heildar-
eignir voru bókfærðar 791,3 millj-
ónir í stofnefnahagsreikningi frá
1. júlí en þar af var eigið fé bók-
fært 429,6 milljónir. Eiginfjárhlut-
fall er því 54%. Horfur eru á að
veltan verði rúmlega einn milljarður
á þessu ári eða um fimmtungur
heildsölumarkaðarins. Áætlaður
hagnaður árið 1994 er 62,3 milljón-
ir fyrir skatta en á bilinu 39-47 I
milljónir eftir skatta og arðgreiðslu
til ríkisins.
Globus-
húsið
til sölu
STÆRSTUR hluti af húsnæði Glo-
bus hf. í Lágmúla 5 hefur verið
boðið til sölu á almennum markaði
í framhaldi af þeim skipulagsbreyt-
ingum sem þar hafa verið ákveðn-
ar. Eins og komið hefur fram var
stofnað nýtt hlutafélag um véladeild
Globus undir nafninu Globus-véla-
ver um áramótin en heildsölurekst-
urinn verður áfram hjá gamla hluta-
félaginu. Þá liggur fyrir að fyrirtæk-
ið mun láta frá sér umboð fyrir
Saab, Citroen og Ford bifreiðar.
Þarna er um að ræða tvær 390
fermetra skrifstofuhæðir á 2. og
3. hæð, 1.170 fermetra verslunar
og þjónustuhúsnæði á götuhæð,
1000 fermetra iðnaðarhúsnæði og
1000 fermetra skrifstofuhæð þar
sem nú er birgðageymsla heildsölu-
deildar.
„Fyrirtækið er að láta frá sér
mjög plássfreka starfsemi og hefur
því ekki lengur þörf fyrir allt hús-
næði sitt,“ segir Pétur Guðmund-
arson, stjórnarformaður Globus.
„Þess vegna hefur verið ákveðið
að leita hófanna með að finna kaup-
endur að húsnæðinu. Það er allt
boðið til sölu í þessari lotu nema
sá hluti sem hýsir Globus-vélaver
þ.e.a.s. bakhúsið við Lágmúla 7
sem er 1.600 fermetrar. Þetta er
gert með tilliti til þess að ekki ligg-
ur fyrir hvaða hlutar húsnæðisins
verða eftirsóttastir. Stefnt er að
því að selja allt húsnæðið og Glo-
bus, heildsöludeild, flytji sig um
set. Þó kemur til greina að selja
húsið í einingum. Forráðamenn
Globus hf. ganga til þessara við- |
skipta með opnum huga.“
UTSALAN
er hafin
Allt að 50% af okkar lága verði
Opið mándag-fimmtudag kl. 12.00-18.30
Föstudag kl. 12.00-19.00 og laugardag kl. 10.00-16.00.
ÞORPin BORGARKRINGLUNNI