Morgunblaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 41 STUTT Rannsóknir á sauðfjár- sjúkdómum og alnæmi ÞRIÐJI fundur Vísindafélags ís- lendinga á þessu starfsári verður haldinn í Norræna húsinu miðviku- daginn 25. janúar og hefst kl. 20.30. Guðmundur Georgsson, pró- fessor, flytur erindi sem hann nefn- ir: Um karakúlpestir og alnæmi. Aðgangur að fundum Vísindafé- lagsins er ókeypis og öllum heimill. Fyrirlesari kynnir umræðuefni sitt með þessum hætti: Frumheija rannsókna á svonefndum karakúl- pestum sem bárust til landsins á fjórða áratug þessarar aidar, mun vart hafa órað fyrir því að sú þekk- ing sem þeir öfluðu á eðli þeirra sjúkdóma kynni að koma að notum í baráttunni við einn mannskæðasta faraldur sem nú hrjáir mannkynið. En sú hefur orðið raunin, því veiran sem þeim tókst fyrstum manna að rækta og sýna fram á að veldur karakúlpestum, mæði og visnu, er skyld alnæmisveirunni og margt líkt með þeim sjúkdómum sem þær valda. Lífsferlar visnuveiru og alnæmis- veiru eru það áþekkir að lyf sem ijúfa þann feril hafa áhrif á báðar. Þannig kann karakúlpestin visna í sauðfé að koma að notum við að prófa lyf gegn alnæmi. ATRIÐI úr Konungi ljónanna. Kvikmyndasýn- ing til styrktar Súðvíkingum SAMBÍÓIN hafa ákveðið að hafa sérstakar sýningar í Bíóborginni og í Sagabíó á myndinni Konungur ljónanna, „The Lion King“, til styrktar íbúum Súðavíkur. Sýningarnar verða í dag, þriðju- daginn 24. janúar, kl. 17 og mun allur ágóði renna í söfnunarátakið Samhugur í verki. -----» ♦ ♦---- Þátttaka fatl- aðra í almennu skólastarfi GRETAR L. Marinósson, dósent við Kennaraháskóla Islands, flytur mið- vikudaginn 25. janúar kl. 16.15 fyrirlestur á vegum Rannsóknar- stofnunar Kennaraháskólans. Fyr- irlesturinn nefnir hann: Er raun- hæft að auka þátttöku fatlaðra nemenda í almennu skólastarfi? Það er meginstefna hér á landi, sem í flestum nágrannalöndum, að allir nemendur, án tillits til fötlun- ar, eigi aðgang að almennum grunnskólum. Þetta er nú áréttað af alþjóðlegum samtökum í auknum mæli. Undanfarið hafa sprottið deil- ur um hversu langt skuli ganga í þessu efni í íslenskum grunnskól- um. Er raunhæft að ætlast til þess að hinn almenni grunnskóli geti verið fyrir alla? Umfjöllun sína byggir Gretar m.a. á gögnum frá mörgum ríkjum Bandaríkjanna, Norðurlöndum og Bretlandi þar sem hann kynnti sér þessi mál nýlega svo og á eigin rannsóknum hérlend- is. Eins og fýrr segir er Gretar dós- ent við Kennaraháskóla íslands þar sem hann hefur umsjón með fram- haldsnámi í sérkennslufræðum. Hann er kennari og skólasálfræð- ingur að mennt og hefur fimmtán ára reynslu af grunnskólastarfi. Fyrirlesturinn verður í stofu M- 301 í Kennaraháskóla íslands og er öllum opinn. ------♦ ♦ ♦----- Styrktardans- leikur í Tunglinu PLÖTUSNÚÐAR í Reykjavík ætla að sýna samhug sinn í verki og efna til styrktardansleiks í Tunglinu miðvikudaginn 25. janúar. Allur ágóði miðasölu rennur til Landssöfnunarinnar Samhugur í verki og verður komið fyrir á reikn- ingi söfnunarinnar að morgni fimmtudags. Miðaverð er 500 kr., húsið verður opnað kl. 21 og er aldurstakmark 18 ár. Fjölmargir plötusnúðar leggja málinu lið og má þar nefna; Tommi (Ingólfscafé), Margeir (Rósenberg), Styrmir og Nonni (Berlín), Aki (Tunglið), Nökkvi (Deja Vú), Gunni T.F. (Villti, tryllti Villi), Grétar G., Frímann, Aggi, Þossi, Arnold, Rób- ert, Kiddi B.F., Hólmar og Árni, einnig útvarpsmenn frá FM 957 og X-inu. Einnig munu nokkrir skemmtikraftar líta við. Allir sem að dansleiknum koma gefa vinnu sína og leggur Tunglið til húsnæði endurgjaldslaust ásamt tækjum og starfsfólki. ------» ♦ ♦ Námskeið um breytingar í skattamálum ENDURMENNTUNARSTOFNUN HÍ heldur miðvikudaginn 25. janúar árlegt námskeið um skattamál þar sem kynntar verða nýlegar breyt- ingar á lögum um tekju- og eignar- skatt. Auk þess verður farið yfir helstu breytingar á öðrum lögum sem varða skatta og nokkur atriði sem tengjast framtalsgerð vegna tekjuársins 1994. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa með skatta- og fjármál fyrirtækja að gera. Leiðbeinandi verður Árni Tómas- son, viðskiptafræðingur, endur- skoðandi hjá Löggiltum endurskoð- enum hf. og stundakennari við HÍ. Námskeiðið verður haldið í Nor- ræna húsinu 25. janúar kl. 16-19. ------------» ♦ ♦----- Músíktilraunir verða í mars FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Tónabær mun í mars nk. standa fyrir Músík- tilraunum 1995. Þá gefst ungum tónlistarmönnum tækifæri til að koma á framfæri frumsömdu efni og ef vel tekst til að vinna með efni sitt í hljóðveri. Músíktilraunir eru opnar öllum upprennandi hljómsveitum alls staðar af landinu og veitir innan- landsflug Flugleiða 40% afslátt af flugfari fyrir keppendur utan af landi. Tilraunakvöld verða þijú eins og undanfarin ár. Það fýrsta verður 16. mars, annað tilraunakvöldið verður 23. mars og það þriðja og síðasta 30. mars. Úrslitakvöldið verður svo föstudaginn 31. mars. Margvísleg verðlaun eru í boði fyrir sigursveitirnar en þau veglegustu eru hljóðverstímar frá nokkrum bestu hljóðverum landsins. Þær hljómsveitir sem hyggja á þátttöku í Músíktilraunum 1995 geta skráð sig í Félagsmiðstöðinni Tónabæ. FRÉTTIR Vorönn Skák- skólans SKÁKSKÓLI íslands hefur starfað í húsnæði Skáksambands Islands í Faxafeni 12, Reykjavík, frá hausti 1991. Skólinn skiptist í almenna deild og framhaldsdeild. í almennu deildinni býðst öllum styrkleikaflokkum skákkennsla í byijendaflokki, almennum og fram- haldsflokkum. Einnig er boðið upp á kennslu í kvennaflokki og fullorð- insflokki, og bréfaskóli er starf- ræktur í Skákskóla íslands. Kennarar í almennu deildinni eru alþjóðlegu meistararnir Sævar Bjarnason og Þröstur Þórhallsson og bréfaskólinn er í höndum Braga Kristjánssonar skólastjóra. í framhaldsdeildinni fá úrvals- nemendur kerfisbundna kennslu hjá íslensku stórmeisturunum. Kennarar skólans hafa að auki heimsótt skóla um allt land og teflt ijöltefli og kennt skák, og í janúar- byijun ár hvert stendur skólinn fyrir fjögurra daga námskeiði fyrir úrvalsnemendur af landsbyggð- inni. Námskeiðin á vorönn heijast 30. janúar nk. og eru skráning og allar upplýsingar í síma 689141, fax 689116. Ný fiskbúð við Gullinbrú YNGSTI fisksalinn á landinu, Krist- ján Berg, hefur opnað aðra fiskbúð sína og er hún til húsa við Gullinbrú. Fiskbúðin er opin frá kl. 9.30- 18.30 og er einungis seldur fiskur frá Ólafsvík, Hellissandi og Rifi. Fiskbúðin býður elli- og örörkulíf- eyrisþegum afslátt. --------» ♦ ♦ ■ EDJNBORGARFÉLAGIÐ á íslandi heldur sinn 18. Burn Supp- er í sal Veisluþjónustunnar okkar, Dugguvogi 12, laugardaginn 28. janúar næstkomandi. Samkoman hefst kl. 20. Matur kvöldsins verður með hefðbundnum hætti. Bjór, létt vín og sterkir drykkir verða til sölu á staðnum við vægu verði, svo og óáfengir drykkir. Veislustjóri verð- ur Karl Grönvold. Ræðumaður kvöldsins verður Paul Richardson. Sungið verður dátt undir stjóm Kristjáns Arnasonar. Wilma Young fiðluleikari og Carole McCormick píanóleikari frá Glasgow leika þjóðlagatónlist. Síð- an tekur diskótek og dans við. VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1.5 al 5 0 4.463.096 r\ 4 al 5 r, ^•PIÚS ^ 1$ 5 90.960 3. 4af 5 109 7.190 4. 3af 5 4.285 420 Heildarvinnlngsupphæð: 7.501.306 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR Hljómsveitin Karma á Gauknum HUÓMSVEITIN Karma leikur á Gauki á Stöng í kvöld, þriðjudags- kvöldið 24. janúar. Hljómsveitina skipa Ólafur Þórarinsson, söngvari og gítarleikari, Guðlaug Dröfn Ól- afsdóttir, söngkona, Helena R. Káradóttir, söngur, gítar og hljóm- borð, Vignir Þór Stefánsson, hljóm- borð, Páll Sveinsson, trymbill, og Jón Ómar Erlingsson, bassaleikari. Mótmæla tilvís- anaskyldu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá Félagi ís- lenskra bæklunarlækna: „Heilbrigðismálaráðherra hefur tilkynnt að hann ætli að setja reglu- gerð um tilvísanir. í reglugerðinni yrði tilvísun frá heimilislækni gerð að skilyrði fyrir þátttöku almanna- trygginga í kostnaði sjúklinga við læknishjálp hjá flestum sérfræðing- um. Ekki hefur verið sýnt fram á að reglugerðin munu leiða til sparnaðar í útgjöldum ríkisins nema að því leyti sem útgjöld sjúklinga munu aukast. Hins vegar myndi tilvísanaskylda leiða til mikils óhag- ræðis og tímasóunar hjá læknum og sjúklingum. Almennur fundur í Félagi íslenskra bæklunarlækna, ályktar, að verði tilvísanaskyldu komið á, séu bæklunarlæknar óbundnir af þeim samningi við Tryggingastofnun ríkisins, sem nú er unnið eftir en Tryggingastofnun ríkisins sagði í raun upp frá og með 1. janúar 1994.“ ÍTALSKI BOLTINN Nr. Leikur: Riidin: 1. Milan - Fiorcntina 1 - - 2. Cagliari - Juvcntus I - - 3. Sampdoria - Bari - X - 4. Torino - Gcnoa - X - 5. Padova - Inter I - - 6. Roma - Crcmonesc - X - 7. Foggia - Rcggiana 1 - - 8. Brcscia - Lazio - - 2 9. Fid.Andria - Hdincsc - - 2 10. Ccscna - Viccnza I - - 11. Coscnza - Acircalc I - - 12. Ascoli - Verona - X - 13. Chievo-Como - X - lleildarvinningsupphæöin: 15 milljón krónur 13 réttir: 1.363.530 j kr. 12 réttir: 99.060 J kr. 11 réttir: 8.440 J kr. 10 réttir: 1.950 | kr. 3. leikvika, 21. jan. 1995 Nr. Leikur: Rödin: 1. Shcff. Wcd - Newcastlc - X - 2. Wimbledon - Liverpool - X - 3. Notth For. - Aston Villa - - 2 4. Covcntry - Arscnal - - 2 5. QPR - Norwich 1 - - 6. Ipswich - Chclsca - X - 7. Tottcnham - Man. City 1 - - 8. Lciccstcr - Lccds - X - 9. Evcrton - C. Palacc 1 - - 10. Southampt. - Wcst Ham 1 - - 11. Luton - Wolvcs - - 2 12. Burnley - Rcading - - 2 13. Bristol City - Sltcff. lltd I - - Heildarvinningsupphæöin: 116 milljón krónur 12 réttir: 10 réttir: 968.750 j kr. 14.960 J kr. 1.090 J kr. 290 I kr. er | venð ákveðið að miðstöim 'pí tVÖfaldur fyr&ti * sssílj^ssE :^m!n3uri 5.000 fm verknámshtíB"**^^ ,end- verður í notkun inna,,. I ™ mun fara fram kennsl |ntun reiðslu, framleiðslu I |ekki kjötiðn. Einnig erti’h aði niiðað Ú er um að verði boð’ tap á titgeiínga' um sfarfsnámsbraut, StðinVgLm.:! í^^oglyri^ takanna f M á ár, t.d. Flugleiðir 0" fram, “fhfröa- skrifstofa. söltunar haf, h0g. asta ári, en áþgum fyrir 3%. Veuusiu er nú talinn: auta- ÓlafurG at tekjutn og.ram_ menntainálar: á næsta.dri. :verið aðferðaþjór er nú talin ve%ul [ hagnað at'4e)dú útlitið vcrðí syiþjón- í Iteild er r Verður hann 100 milljónir? Vöxtur og ai^ grein sem undanförnum hennar hefði tv með 2% I vegar í þ: aðeins 1% aratuguntog eftir sjávarútv, mestum gjaldi búið. „AUs he M Þýskir vi SVANIR sem hafast að á Alstervatni í kjama Hamborgar á sumrin eru fluttir til vetrastöðva sinna á bátum en áður þurfa starfsmenn dýragarðsins í ænti við magn- tefnuleysi sem jidum og í and- þekkist víðast ytYur frum- 'Úh launþeg- m. <$a sanian i í ÚYktþjón- ir í þessu en inn segir að nauð- eið samstaða náist in í menntamálum ar. Um sé að rteða atvinnugrein, sem jölbreytni í náms- stuttu starfsnámi láms. Menntun sé fðu enda að í B er íenn ekki ístu. skur egir nnt- um ign- sem töðu nars ýrst ekki lum. man jón- u en ist.“ tuð- ,áist rða- újög fnisG am-J tngs* ;n séí !ð binda fuglana svo að ekki komi til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.