Morgunblaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ JMtargnitHftftfí STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. KYRRSTAÐA ROFIN HREYFING sú sem komin er á olíumarkáðinn hér á landi er sterk vísbending um að breyttir tímar og breyttir viðskiptahættir á þessum markaði séu fram- undan. Margir munu ugglaust segja, að tími hafi ver- ið kominn til þess að áratuga kyrrstaða á markaðnum væri rofin, þar sem lítil sem engin samkeppni hefur ríkt, og olíufélögin þrjú hafa skipt með sér markaðn- um, nánast í bróðerni, en Olíufélagið þó verið sýnu stærst, með um 44% markaðshlutdeild. Upphaflega eru það áform hins kanadíska olíufyrir- tækis Irving Oil á liðnu hausti um að reisa hér olíu- birgðastöð og hefja dreifingu og sölu á olíuvörum, sem komu málum á skrið hjá íslensku olíufélögunum. í kjölfar lóðaumsókna Irving Oil fyrir bensínstöðvar í Reykjavík sóttu Skeljungur og Olís um lóðir og síðar ítrekaði Olíufélagið lóðaumsóknir sínar. í síðustu viku lækkaði síðan Olíufélagið olíuverð um 8% og bensínlítrann um 1,10 kr. til 1,30 kr. og hin félögin tvö fylgdu í kjölfarið með olíu- og bensínverð- lækkun. í fréttaskýringu hér í blaðinu í fyrradag kem- ur fram að þessar verðlækkanir olíufélaganna jafngilda um helmingi heildarhagnaðar þeirra á liðnu ári, eða vel á þriðja hundrað milljónum króna. Nýjustu tíðindin, sem iíklega vekja hvað mesta eftir- tekt og hafa í för með sér róttækustu breytinguna á olíumarkaðnum hér á landi, er stofnun Orkunnar hf. síðastliðinn föstudag, sem hefur þann yfirlýsta tilgang að selja eldsneyti á lægra verði en tíðkazt hefur á markaðnum. Skeljungur gengur þar með til liðs við Hagkaup og Bónus, sem ætla að koma á laggirnar ódýrum bensínstöðvum við stórmarkaði sína, og hefur að því leyti samkeppni við sjálfan sig. Hér er um mjög áhugaverða þróun að ræða og for- vitnilegt að sjá með hvaða hætti Olís og Olíufélagið munu bregðast við þessu útspili Skeljungs. Eins verður fróðiegt að fylgjast með því, hver áhrif stóraukinnar samkeppni á milli olíufélaganna verða, bæði að því er varðar markaðinn sjálfan og hag neytenda. DÓMUR KJÓSENDA RANNVEIG Guðmundsdóttir félagsmálaráðherra er ótvíræður sigurvegari í prófkjöri Alþýðuflokksins á Reykjanesi. Rannveig hlaut 4.231 atkvæði í fyrsta sæti listans en Guðmundur Árni Stefánsson, fyrrum heilbrigðisráðherra, 3.403 atkvæði í fyrsta sæti. Þetta prófkjör snerist ekki einvörðungu um hvernig framboðslisti alþýðuflokksmanna fyrir næstu alþingis- kosningar verður skipaður. Þarna var ekki síður um að ræða uppgjör stuðningsmanna Alþýðuflokksins á Reykjanesi við málefni, sem hafa tengzt opinberum störfum Guðmundar Árna Stefánssonar. I greinargerð þeirri, sem Guðmundur Árni lagði fram á blaðamannafundi í september, er hann sagði af sér ráðherraembætti, sagði hann m.a.: „Ég er reiðubúinn eins og allir stjórnmálamenn að lúta dómi kjósenda. í lýðræðislegu þjóðfélagi, í réttarríki, eru sækjendur ekki um leið dómarar ... I mínu kjördæmi, Reykjanes- kjördæmi, verður sennilega viðhaft prófkjör um röð efstu manna á lista Alþýðuflokksins vegna þingkosn- inganna sem fram fara eigi síðar en í apríl næstkom- andi .. . Þá gefst mínum flokkssystkinum og öllum stuðningsmönnum Alþýðuflokksins kostur á því að meta mín störf og kveða upp dóma. Það sama gildir um aðra félaga mína, sem þar munu gefa kost á sér.“ Úrskurðurinn liggur nú fyrir og hann er ótvíræður. Mikil þátttaka í prófkjörinu staðfestir niðurstöðuna enn frekar. Það er greinilegt að kjósendur Alþýðuflokksins á Reykjanesi sætta sig ekki við þau pólitísku vinnu- brögð, sem Guðmundur Árni varð uppvís að. Prestur Súðvíkinga lagði áherslu á uppby Við niunum reisa líf okkar úr rústum VIÐ munum reisa líf okkar upp úr rústunum. Við munum gera það í samein- ingu af því að við erum sterk þegar við stöndum saman. Þeg- ar hugur og hönd okkar allra leggst á eitt þá er ekki til það verk, sem við getum ekki unnið í sameiningu," sagði séra Magnús Erlingsson, prest- ur Súðvíkinga, við minningarathöfn á ísafirði á laugardaginn um þá sem fórust í snjóflóðunum í Súðavík 16. janúar sl. Minningarathöfnin var áhrifamik- il, þrungin tilfinningum og sorg. Við- staddir voru íbúar Súðavíkur, björg- unarsveitarmenn, ísfirðingar og fleiri, auk forseta íslands, forsætis- ráðherra, utanríkisráðherra og þing- manna Vestfjarða. Talið er að um 800 manns hafi verið viðstaddir minningarathöfnina. Umgjörð athafnariimar, sem fram fór í íþróttahúsinu á ísafirði, var lát- Iaus. Við altarið brunnu 14 kerti til minningar um þá sem létust í snjó- flóðinu. Prestarnir, séra Jakob Hjálmars- son og séra Karl V. Matthíasson, lásu bænir, en séra Magnús Erlings- son flutti huggunarorð. Séra Magnús lagði út af orðum Jesú Krists í Jó- hannesarguðspjalli: „En verið hug- hraust. Ég hef sigrað heiminn.“ „Þessi orð Jesú Krists minna okk- ur á að á bak við krossinn er vonin. Nýtt upphaf. Á páskadagsmorgni reis Jesú upp frá dauðum. Þannig sigraði hann bölið og tortíminguna með upprisu sinni. Hann keypti okk- ur líf með lífi sínu. Þú getur treyst á Jesú Krist. Treyst honum fyrir lífi þínu og ástvina þinna. Drottinn mun vel fyrir sjá. Þegar við deyjum mun Jesús sjálf- ur taka á móti okkur. Hann mun taka okkur í faðminn og leiða okkur áfram inn í eilífðina þar sem er ljós, friður og gleði. Og þar munu ástvin- ir vorir bíða okkar. Og þá verður allt sem fyrr,“ sagði séra Magnús í huggunarorðum sínum. Séra Magnús lagði áherslu á upp- - bygginguna. Hann bað fólk að horfa til morgundagsins, sem færði okkur nýjar vonir og ný tækifæri. „Sjórinn og landið hefur heimtað líf margra af bestu sonum og dætrum þjóðarinn- ar. En við höfum aldrei gefist upp. Og það munum við ekki heldur gera núna. Lífið mun halda áfram.“ Eftir athöfnina gengu Vigdís Finn- bogadóttir, forseti íslands, og Davíð Oddsson, forsætisráðherra, til þeirra Súðvíkinga sem mest misstu í snjó- flóðinu. Forsetinn faðmaði þá að sér og gekk síðan áfram milli manna og tók utan um aðra þá sem misstu ættingja eða vini í flóðinu. Þær hörmungar sem gengið hafa yfir íbúa Súðvíkur hafa þjappað þeim fast saman. Hvar sem Súðvíkingar hittast taka þeir hver utan um ann- an, kyssast eða stijúka hvorir öðrum yfir axlir eða bak. Þeir reyna að styrkja hver annan í sorginni með snertingu. Það sást vel við minning- arathöfnina á laugardaginn. FORSETI íslands, frú Vigdís Fii forsætisráðherra, koma til minn Ellefu hinna látnujarð- settir syðra KISTUR með líkum 11 þeirra sem létust er snjóflóð féll á Súðavík aðfaranótt 16. janúar síðastliðins komu með varðskipinu Tý til Reykjavíkur að morgni sunnu- dags. Staðinn var heiðursvörður þegar kisturnar voru bornar burtu og var fjöldi manns við- staddur til að votta hinum látnu virðingu sína, þar á meðal biskup Islands, herra Olafur Skúlason, fulltrúar Landhelgisgæslunnar, lögreglunnar í Reykjavík og björgunarsveitarinnar Lands- bjargar. Þrjár útfarir verða gerðar frá Dómkirkjunni í Reykjavík, ein þeirra útför systkinanna Aðal- steins Rafns, Krisljáns Núma og Hrefnu Bjargar, önnur er útför Hjördísar Björnsdóttur og dætra hennar Birnu Dísar og Helgu Bjarkar og sú þriðja útfór Sveins G. Salómonssonar, Hrafnhildar Þorsteinsdóttur og sonardóttur hennar og alnöfnu. Útför Haf- steins Björnssonar verður gerð frá Lágafellskirkju í Mosfells- sveit. Einnig verður útför Júlí- önnu Bergsteinsdóttur gerð frá Langholtskirkju, en hún verður jarðsett í Lágafellskirkjugarði. Á föstudag verður Sigurborg Guðmundsdóttir jarðsett í Súða- vík og á laugardag verða Bella Aðalheiður Vestfjörð og Petrea Vestfjörð Valsdóttir jarðsettar í Ogri við ísafjarðardjúp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.