Morgunblaðið - 24.01.1995, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR LEITAÐI RUSTUM SUÐAVSKUR
wr~ '**
TÓMAR stara húsatóttir í Súðavík og menn freista að bjarga persónuleguym hlutum úr snjónum.
Súðvíkingar leita í rústum húsa sinna
Fólk leitar
að persónuleg-
um munum
ísafirði. Morgunblaðið.
FJÖLDI Súðvíkinga leitaði í
rústum húsa sinna í gær, viku
eftir að snjóflóð féll á bæinn.
Menn leituðu að persónulegum
munum, myndum og gjöfum sem
tengjast minningum hvers og eins.
Frosti Gunnarsson kom til
Súðavíkur í gær í fyrsta skipti síð-
an flóðið féll, en hann og fjöl-
skylda hans sluppu naumlega lif-
andi úr snjóflóðinu. Dóttir hans lá
grafín í flóðinu í um 15 tíma.
Frosti sagði aðkomuna hræðilega
og um margt verri en hann hefði
búið sig undir.
Frosti og Gunnar sonur hans
leituðu í rústum heimilis síns með
aðstoð björgunarsveitarmanna.
Frosti sagðist ánægður með hvað
hann hefði fundið mikið af mynd-
um og myndbandsspólum og væri
þakklátur fyrir að hafa ekki líka
tapað þeim.
Margir fá áfall
Hús Guðmundar Matthíassonar
að Túngötu 1 stendur að mestu
uppi, en er gjörónýtt. Herbergi
sem snúa að fjallshlíðinni eru full
eða hálffull af snjó, útveggir
brotnir eða gengnir til og milli-
veggur milli forstofu og eldhúss
hefur fallið niður og gengið lan-
gleiðina út úr hú'sinu.
Menn frá ísafírði og Súðavík
unnu í gær að því að moka snjó
út úr húsinu, en Guðmundur hefur
sjálfur ekki treyst sér til að skoða
aðstæður í Súðavík. Hann og kona
hans sluppu ómeidd úr flóðinu.
Fyrir marga þýðir ferð til Súða-
víkur annað áfall. Um allt liggja
persónulegir munir fólks, sem
sumt hvert lést í snjóflóðinu. Föt,
bamaleikföng, myndir; allt vekur
þetta upp minningar.
Mynd á rúðu
Sorgarsögumar í Súðavík eru
margar. Einn maður kom í hús
sitt, en snjóflóðið féll við það og
hreif með sér hús nágranna hans.
Honum varð litið út um gluggann.
Þar blasti við mynd af litlu bami
sem lést í snjóflóðinu. Myndin
hafði fokið úr rústunum og límst
á gluggarúðuna.
Sveit frá Slökkviliðinu í Reykja-
vík, sem verið hefur í Súðavík frá
því á þriðjudag, fór heim í gær.
„Ég er nú eiginlega ekki tilbúinn
að fara. Hér er svo margt ógert.
Ég kveð Súðavík með söknuði,"
sagði einn liðsmanna sveitarinnar
skömmu áður en hann fór frá
Súðavík í gær.
Um 40 björgunarsveitarmenn
af höfuðborgarsvæðinu em við
störf í Súðavík og aðstoða heima-
menn við leit í rústunum.
GÍFURLEG eyðilegging hefur orðið á öllu innan
dvra þótt veggir húsanna standi enn uppi.
, _ _ _ Morgunblaðið/Egill Ólafsson
SÚÐVÍKINGAR fóru öðru sinni til Súðavíkur í gær og leituðu að persónulegum
munum í rústum húsa sinna með hjálp björgunarsveitamanna.
Jónatan Ásgeirsson segir að Súðavík verði byggð upp
„ Aðkoman verri en
ég átti von á“
ísafirði. Morgunblaðið.
„AÐKOMAN er verri en ég átti
von á. Eyðileggingin er hreint
ótrúleg," sagði Jónatan Ásgeirs-
son, skipstjóri frá Súðavík, en
hann og hópur Súðvíkinga fór að
vitja um eigur sínar I Súðavík fyr-
ir helgi. Jónatan segir ljóst að
mikið uppbyggingarstarf sé fram-
undan í Súðavík. Hann telur að
það verði að færa stóran hluta af
byggðinni. Það séu fleiri íbúðarhús
óíbúðarhæf en þau rúmlega tutt-
ugu hús sem eyðilögðust eða
skemmdust í snjóflóðunum.
Snjóflóðið féll á íbúðarhús Jón-
atans að Nesvegi 3 og hálffylltist
neðri hæð hússins að snjó. Jónat-
an, sem er skípstjóri á Haffara frá
Súðavík, var á sjó þegar snjóflóðið
féll. Fjölskylda hans komst óslösuð
úr flóðinu.
Jónatan sagðist ekki gera sér
grein fyrir hvað húsið væri mikið
skemmt. Hann telur hugsanlegt
að útveggur, sem flóðið féll á,
hafí gengið inn því að steyptur
milliveggur, sem gengur út frá
honum hafí allur gengið til og eins
og Iosnað frá útveggnum. Hann
sagði að inn í húsinu væri margt
ónýtt. Innihurðir hefðu sprungið
út og gólfefni væru ónýt.
Loftþrýstingur braut
myndaramma
Lilja Ósk Þórisdóttir, eiginkona
Jónatans, sagði að það væri erfítt
fyrir fólk að ímynda sér kraftinn
í snjóflóðinu. Hún nefndi sem
dæmi að rammi utan um málverk,
sem hangir upp í stofunni, hefði
sprungið frá myndinni. Enginn
snjór féll inn í stofuna. Hún sagði
að það virtist sem loftþrýstingur-
inn, sem fylgdi snjóflóðinu, hefði
sprengt rammann upp.
Af þeim 70 húsum, sem voru í
Súðavík, eru 15 gjörónýt og 6 eða
7 stórskemmd. Það er hins vegar
vafasamt að fóik snúi til baka í
þau hús sem næst standa snjó-
flóðasvæðunum. Það er því ljóst
að færa verður stóran hluta af
byggðinni í Súðavík.
Nú þegar rúm vika er liðin frá
snjóflóðunum eru íbúar Súðavíkur
að byija að velta fyrir sér framtíð-
inni. Nær allir búa nú á ísafírði.
Margir hafa hug á að flytja heim
sem allra fyrst. Ekki munu allir
snúa aftur. Þeir sem hafa misst
mest ætla að byrja nýtt líf annars
staðar. Svo virðist sem yngra fólk-
ið sé ekki eins ákveðið í því hvað
það gerir. Þeir sem hafa búið í
Suðavík allt sitt hf eru hins vegar
flestir ákveðnir í því að byggja
Súðavík upp að nýju.
Floti Súðvíkinga fórst
fyrir 30 árum
„Þetta er annað áfallið sem við
Súðavíkingar verðum fyrir. Fyrir
tæpum 30 árum misstum við allan
okkar flota þegar þijú skip Súðvík-
inga fórust með stuttu millibili.
Tvær áhafnir fórust en ein bjarg-
aðist. Allt voru þetta ungir menn.
Við komust í gegnum þær hörm-
ungar og við munum komast í
gegnum þessar hörmungar einnig.
Við munum byggja Súðavík upp
að nýju,“ sagði Jónatan Ásgeirs-
son.