Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Á sjötta milljarð króna til
í sjóði Viðlagatryggingar
Súðavík
Hættu-
ástandi
aflýst
Isafirði. Morgunblaðið.
ALMANNAVARNANEFND
ísafjarðar hefur aflýst hættu-
ástandi í Súðavík, Hnífsdal
og á Ísafirði.
Stillt er í veðri og kalt
þannig að ekki er talin hætta
á að snjóflóð falli. íbúar í 11
húsum í Hnífsdal héldu heim
í gær, en þeir yfírgáfu heim-
ili sín sl. mánudag.
Á SJÖTTA milljarð króna er til í
sjóði hjá Viðlagatryggingu ís-
lands, að sögn Geirs Zoéga, fram-
kvæmdastjóra Viðlagatryggingar,
og því engin vandkvæði á því að
mæta þeim tjónum sem hafa orðið
vegna snjóflóðanna í síðustu viku.
Skoðunarmenn til Súðavíkur
Geir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að skoðunarmenn færu
vestur í Súðavík til að meta tjónið
sem þar hefur orðið jafnskjótt og
sveitarstjórn Súðavíkur teldi
möguleika á því.
„Við höfum hreinlega verið að
bíða eftir því að fá kallið. Það er
afskaplega erfitt að fara til þess
að tala við fólk sem er í sárum,
og við ákváðum í upphafí að við
myndum ekki fara á staðinn fyrr
en minningarathöfn og síðan trú-
lega jarðarför væri lokið,“ sagði
hann.
Byggir á gjöldum almennings
Geir sagði að 5,2-5,3 milljarðar
væru til í sjóði hjá Viðlagatrygg-
ingu íslands, sem stofnuð var fyr-
ir 12 árum síðan upp úr Viðlaga-
sjóði. Viðlagasjóður var settur á
stofn þegar gosið í Vestmannaeyj-
um hófst 1993, og jafnframt starf-
aði sjóðurinn þegar snjóflóðinu á
Neskaupstað 1976.
„Upp úr þessum tveimur óhöpp-
um var ákveðið að að setja þessa
stofnun á sem viðlagatryggingu.
Þetta er sjálfstæð stofnun með
sjálfstæðan fjárhag og engin ríkis-
framlög. Tekjurnar byggjast á
gjöldum hins almenna borgara
sem koma í gegnum tryggingafé-
lögin, en af hverri brunatryggingu
sem tekin er fáum við við vissa
prósentu, hvort sem um er að
ræða brunatryggingu á iausafé
eða fasteign," sagði Geir.
Eftirlit, með umferð
til Súðavíkur
Almannavamanefnd Isa-
fjarðar heimilaði íbúum Súða-
víkur að fara heim í gær og
vitja um eigur sínar. Lögregl-
an hefur þó enn eftirlit með
umferð til bæjarins og hleypir
engum í gegn nema að hann
hafi til þess sérstakt leyfi.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um hvenær þessum tak-
mörkunum verður aflétt.
Lífeyrissjóður
Austurlands
Ein millj-
ón kr. til
Súðavíkur
LÍFEYRISSJÓÐUR Austur-
lands hefur ákveðið að gefa
eina milljón króna til upp-
byggingarstarfs eftir snjó-
flóðið í Súðavík. Jafnframt
hefur lífeyrissjóðurinn hvatt
aðra lífeyrissjóði til að gera
það sama. Lífeyrissjóður
Vestfirðinga hefur tekið að
sér að koma slíkum framlög-
um áleiðis.
Sérstakur reikningur
stofnaður
Samkvæmt upplýsingum
Péturs Sigurðssonar, for-
manns Lífeyrissjóðs Vestfirð-
inga, er ætlunin að því fé sem
þannig safnaðist frá lífeyris-
sjóðum landsins verði ráðstaf-
að í samráði við sveitarstjóm
Súðavíkur og Verkalýðs- og
sjómannafélag Álftfirðinga.
í þessu skyni hefur verið
stofnaður sérstakur ávísana-
reikningur nr. 900 hjá Spari-
sjóði Súðavíkur og er hann í
nafni Lífeyrissjóðs Vestfirð-
inga.
Morgunblaðið/Júlíus
RÚTAN leit illa út að framan en var þó ökufær og var henni ekið í bæinn, framrúðulausri, eftir að veghefill hafði dregið hana upp á veg.
Á myndinni til hægri eru krakkarnir úr 6. bekk í Varmárskóla sem fóru í læknisskoðun í Borgarnesi í gær. Þau sögðust hafa verið
hrædd þegar rútan fór út af en flest þeirra sluppu með skrekkinn.
Rúta með skólabörnum út af veginum í Norðurárdal
Þijú böm slösuðust
ÞRJÚ börn slösuðust lítillega þegar
rúta, sem þau voru farþegar í ásamt
skólafélögum sínum úr 6. bekk í
Varmárskóla í Mosfellsbæ, fór út
af veginum við Bjarnadalsá í Norð-
urárdal í gærdag.
Fimm börn voru flutt á heilsu-
gæslustöðina í Borgarnesi með
sjúkrabíl og lögreglu og þijú þeirra
áfram með sjúkrabíl á Borgarspítala
til nánari skoðunar. Að sögn læknis
á Borgarspítala fengu tvö þeirra að
fara heim að skoðun lokinni, annað
rifbeinsbrotið og hitt marið um lík-
amann, en þriðja barnið var með
sprungu á hryggjarlið og þurfti að
leggjast inn.
Þijú börn til viðbótar kvörtuðu
undan eymslum þegar nokkuð var
liðið frá slysinu og voru flutt á heil-
sugæslustöðina í Borgarnesi. Að
skoðun lokinni fengu þau að halda
ferð sinni áfram en henni var heitið
að skólabúðunum á Reykjum í
Hrútafirði.
„Þetta fór betur en á horfðist,"
sagði Isak Þórðarson bílstjóri hjá
Allrahanda í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Rútan fauk til í glæra
hálku og út af veginum. Við stefnd-
um á brúarstólpann og til þess að
koma í veg fyrir að við yltum á hlið-
ina tók ég þann kostinn að stýra
bílnum út af veginum," sagði ísak.
Hópurinn var á ferð á tveimur
rútum og færðu börnin sig yfir í
hina rútuna um leið og hún kom að
slysstaðnum. Þau voru síðan keyrð
í Hreðavatnsskála þar sem beðið var
eftir annarri rútu. Hópurinn, að þeim
undanskildum sem þurftu aðhlynn-
ingar við og tveimur kennurum,
hélt síðan áfram að Reykjum.
Blaðamaður og ljósmyndari hittu
krakkana fimm og kennara þeirra
að læknisskoðun lokinni í Borgar-
nesi, þar sem þau voru á leið að
Reykjum í bíl frá Sæmundi í Borg-
amesi. Þau sögðust hafa verið mjög
hrædd þegar rútan fór út af. Kenn-
arar þeirra, Gunnhildur Sigurðardótt-
ir og Sesselja Guðjónsdóttir, sögðu
þau hins vegar hafa haldið stillingu
sinni furðanlega vel. Fyrst hefði ver-
ið mikill æsingur í rútunni en krakk-
amir hefðu strax róast niður.
Þær vildu koma á framfæri þakk-
læti til starfsfólks Hreðavatnsskála
fyrir góðar móttökur og starfsfólki
heilsugæslunnar í Borgarnesi fyrir
góða aðhlynningu en þar hefði verð
óvenjumikið álag fyrir vegna
krabbameinsskoðunar sem þar var
boðið upp á einmitt í gær. Rútan,
sem fór út af, var dregin upp á veg
af veghefli. Síðan var henni ekið í
bæinn en að sögn ísaks bílstjóra var
hún í lagi að mestu að því undan-
skildu að framrúðurnar væru farnar.
Ögmundur Jónasson um framboð óháðra og Alþýðubandalags
HÓPUR fólks sem vill bjóða fram
með Alþýðubandalaginu í Reykjavík
í komandi Alþingiskosningum undir
merkjunum Alþýðubandalagið og
óháðir, kynntu markmið sín á fundi
á Hótel Borg sl. sunnudag. Ögmund-
ur Jónasson, formaður BSRB, hefur
fallist á að taka 3. sæti á framboðs-
lista Aiþýðubandalagsins sem einn
af fulltrúum óháðra en gengið verð-
ur endanlega frá framboðslistanum
í þessari viku.
„Þeir sem hafa komið að þessu
koma einkum úr röðum launafólks
en einnig víðar að úr samfélaginu
Þeir líta svo á að fulltrúar peninga-
aflanna ráði of miklu á Alþingi og
að það hafi sýnt sig í þeirri stefnu
sem rekin hefur verið undan farin
ár. Þeir eru sammála um að þessu
verði að breyta og skapa hér öflugt
mótvægi gegn þessari stefnu og hefja
uppbyggingarstarf sem leiðir til jafn-
Skilyrði óháðra
að flokkurinn
opnaði sínar raðir
aðar en ekki ójafnaðar," segir Ög-
mundur. Meðal ræðumanna á fundin-
um voru Svanhildur Kaaber, fyrrv.
formaður Kennarasambands Islands.
Ögmundur segir að það hafi verið
skilyrði óháðra fyrir þessu samstarfi
að Alþýðubandalagið væri reiðubúið
að opna sínar raðir og byði fram
undir formerkjunum, Alþýðubanda-
lagið og óháðir „Við komum ekki
að þessu sem samtök heldur sem
einstaklingar sem höfum sameinast
um þetta meginmarkmið,“ segir
Ögmundur.
Höfuðmarkmið að útrýma
atvinnuleysi
Hann segir að það fari vel saman
að gegna formennsku í launþega-
samtökum og taka sæti á Alþingi
og aðspurður hvers konar stjórnar-
samstarf hann vilji sjá eftir kosning-
ar segir Ögmundur: „Eg tel að þeir
eigi að starfa saman sem setja sér
sömu markmið. Við viljum aðeins
starfa með þeim sem eru staðráðnir
í því að fylgja í einu og öllu þeirri
stefnu sem hefur það að höf-
uðmarkmiði að útrýma atvinnuleysi
og jafna kjörin í landinu. Ég tel að
fyrsta verk nýrrar ríkisstjómar eigi
að vera ákvörðun um að hætta að
selja aðgang að skólum og heilsu-
gæslustöðvum, taka til gagngerrar
endurskoðunar allar kerfisbreyting-
ar sem núverandi ríkisstjórn hefur
keyrt í gegn og bitnað hafa á sjúkum
og öldruðum. Það á að hækka skatta
á hátekjufólki og arðsömum stórfyr-
irtækjum, það á að skattleggja fjár-
magn og flytja þessa fjármuni þang-
að sem þeirra er þörf,“ segir Ög-
mundur Jónasson.
Formenn lands-
sambanda ASI
Ganga frá
kröfum á
hendur
ríkisvaldi
FORMENN lands- og svæða-
sambanda innan Alþýðusam-
bands íslands koma saman
til fundar í dag og verður þar
væntanlega lögð lokahönd á
sameiginlegar kröfur aðildar-
félaganna gagnvart stjórn-
völdum í tengslum við gerð
nýrra kjarasamninga.
Viðræður landssambanda
og einstakra aðildarfélaga
ASÍ við viðsemjendur hafa
að mestu snúist um sérmál
að undanfömu. Samninga-
fundir hafa einnig verið
haldnir milli einstakra félaga
opinberra starfsmanna og
samninganefnda ríkis og
sveitarfélaga.
Skýrist á næstu dögum
Einstök aðildarfélög innan
BSRB hafa átt í viðræðum
við sína viðsemjendur en að
sögn Ögmundar Jónassonar,
formanns BSRB, hafa for-
menn aðildarfélaganna einnig
komið saman til að setja sam-
an sameiginleg áhersluatriði,
en þar er lögð hvað mest
áhersla á að taka beri laun-
þáttinn út úr lánskjaravís-
tölunni.
„Ég veit að ýmis félög eru
þegar komin í talsverða vinnu
í tengslum við kjaraviðræð-
urnar. Það kemur eflaust í
ljós á næstu dögum hvernig
þessu miðar en það er ekki
séð fyrir endann á því,“ segir
Ögmundur.