Morgunblaðið - 24.01.1995, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
m f -'áfc t
1 Mký f -1 SM
KENNEDYHJÓNIN með nýkjömum forseta, systkinum hans og mökum árið 1960. F.v.: Ethel Kennedy, Stephen Smith, Eunice
Kennedy Shriver, Jean Kennedy Smith, Rose Kennedy (situr), Joseph Kennedy, John F. Kennedy, Jacqueline Kennedy, Robert
Kennedy, Edward Kennedy, Patricia Kennedy Lawford, Sargent Shriver, Joan Kennedy og Peter Lawford. Á minni myndinni
er Rose Kennedy á níræðisafmæli sínu árið 1980.
Ættmóðir Kennedy-fjölskyldunnar látin, 104 ára að aldri
Sást aldrei
fella tár
opinberlega
Boston. Reuter.
ROSE Kennedy, ættmóðir nokk-
urra af þekktustu stjómmála-
mönnum þessarar aldar, lést á
heimili sínu í Hyannisport í
Massachusetts á sunnudagskvöld,
104 ára að aldri. Banamein henn-
ar var lungnabólga. Við banabeð-
ið voru fjögur bama Rose; Edw-
ard öldungardeildarþingmaður,
Eunice Shriver, Patricia Kennedy
Lawford og Jean Kennedy Smith,
sendiherra Bandaríkjanna á ír-
landi, auk ekkju Roberts F.
Kennedys, Ethel.
í yfírlýsingu Edwards segir að
móðir hans hafi átt hægt andlát.
„Hún lifði löngu og merku lífi og
við elskuðum hana heitt. Hún var
okkur öllum í Kennedy og Fitzger-
ald ættunum fegurst allra rósa.“
Rose Fitzgerald var fædd 22.
júlí 1890, dóttir írskra innflytj-
enda sem flúið höfðu hungursneyð
í heimalandinu og sest að í Bos-
ton. Faðir hennar, John (Honey
Fitz) var litríkur stjórnmálamaður
sem var kjörinn borgarstjóri í
Boston árið 1906. Er talið að
meðal vonbiðla Rose dóttur hans
hafi verið Grover Cleveland og
William McKinley, síðar Banda-
ríkjaforsetar.
Rose giftist hins vegar Joseph
Patrick Kennedy, ungum lögfræð-
ingi, árið 1914. Hann varð síðar
sendiherra Bandaríkjanna í Bret-
landi og lést árið 1969.
Syrgði í einrúmi
Fjögur barna Rose Kennedy
létu lífið á voveiflegan hátt. Elsti
sonurinn Joseph lét lífið í heims-
styijöldinni síðari, dóttirin Kathle-
en fórst í flugslysi 1948 og John
F. Kennedy Bandaríkjaforseti og
öldungadeildarþingaðurinn Rob-
ert féllu fyrir byssukúlum, John
í Dallas 1963 og Robert í Los
Angeles 1968.
Vakti andlegur styrkur Rose
athygli og aðdáun margra en hún
sást aldrei fella tár opinberlega.
Sagði hún að menn ættu að syrgja
í einrúmi. „Það skiptir máli hvem-
ig við tökumst á við hlutina -
ekki atburðimir sjálfir," sagði hún
eitt sinn.
Rose Kennedy lýsti lífí sínu sem
röð sorgar- og gleðiatburða. En
þrátt fyrir að hafa misst fjögur
börn sín, auk þess sem elsta dótt-
irin, Rosemary, er þroskaheft,
sagðist Rose vera ein af „lán-
sömustu manneskjum í heimi“.
Rose var kaþólsk og afar trú-
uð. Hún var óþreytandi í því að
styðja eiginmann sinn og börn til
dáða og sonurinn John sagði eitt
sinn að hún væri „bindiefnið sem
héldi fjölskyldunni saman“.
I ævisögu sinni „Times to
Rembember" (Eftirminnilegar
stundir), sagði hún að barnaupp-
eldi væri starf sem væri „alveg
jafn áhugavert og jafn mikil
áskorun og hver önnur heiðvirð
starfsgrein“. Samkvæmt bókinni
virðist Rose hafa verið ákaflega
metnaðarfull fyrir hönd bama
sinna og segir þar að hún hafi
hreinlega sett upp „þingfundi" við
eldhúsborðið, þar sem bömin
ræddu stjómmálaástandið.
Afdrifarík teboð
Hún var óþreytandi að styðja
stjómmálabaráttu barna sinna og
fullyrti keppinautur Johns sonar
hennar um öldungardeildarþing-
sæti fyrir Massachusetts að hann
hefði beðið lægri hli't vegna allra
teboðanna sem Rose hélt til að
afla syni sínum fylgis.
Rose fékk slag árið 1984 og
var bundin við hjólastól upp frá
því. Hún missti málið fyrir nokkr-
um ámm. Fyrir tæpri viku hrak-
aði henni mjög og lést hún um
kl. 17.30 að staðartíma á sunnu-
dag.
Jarðskjálftinn
í Japan
Eig’iiatjón
áætlað um
700 millj-
arðar
Kobe. Reuter.
SNARPIR eftirskjálftar riðu enn yfir
japönsku hafnarborgina Kobe í gær
eftir landskjálftann í síðustu viku
sem kostuðu meira en 5.000 manns
lífið. Borgarstjórinn í Kobe áætlaði
að tjónið hefði numið a.m.k. jafnvirði
700 milljarða króna.
Skólar vora opnaðir á ný í borg-
inni í gær og öngþveiti skapaðist á
götunum þegar íbúar héldu til vinnu
að nýju. Byggingar sveigðust í þrem-
ur eftirskjálftum, sem voru allt að
4,5 stig á Richters-kvarða. „Þetta
var mjög ógnvekjandi,“ sagði kona
í miðstöð fyrir fólk sem varð að flýja
heimili sín. „Byggingin við hliðina
byrjaði að sveigjast til og frá.“
300.000 misstu heimili sín
Lögreglan sagði að 5.002 hefðu
farist í landskjálftanum á þriðjudag
og 26.253 hefðu slasast. 300.000
manns misstu heimili sín og 125 var
enn saknað í gær.
Hlutabréf lækkuðu um 5% í verði
í kauphöllinni í Tókýó vegna frétta
um að landskjálftinn gæti haft alvar-
leg áhrif á efnahag landsins.
„Þessi jarðskjálfti mun hafa mjög
neikvæð áhrif á efnahagsþróunina í
landinu í allnokkum tíma,“ sagði
Tadayo Homa, bankastjóri Japans-
banka í Osaka.
Stjórnin gagnrýnd
Flest heimili höfðu fengið rafmagn
í gær en um 60% borgarinnar vora
enn án vatns. Læknar höfðu áhyggj-
ur af lyfjaskorti og sögðu að flensu-
faraldur væri yfirvofandi. Skorturinn
var svo mikill að starfsmenn sjúkra-
húsa leituðu í rústum sjúkrahúsa,
sem eyðilögðust, að óskemmdum
lyfjabirgðum.
Stjóm Tomiichis Murayama for-
sætisráðherra sætti gagnrýni fyrir að
bregðast of seint og illa við land-
skjálftanum en Walter Mondale,
sendiherra Bandaríkjanna í Tókýó,
kom henni til vamar. „Ég tel að
næstum allar ríkisstjómir hefðu átt
erfitt með að gera allt sem þurfti í
tíma við slíkar aðstæður," sagði hann.
Avarpi Suu Kyi smyglað frá Burma
Neitar gerð samn-
ings við stjórnvöld
Bankok. Reuter.
ANDÓFSKONAN
Aung San Suu Kyi frá
Burma segir í ávarpi,
sem tókst að smygla
frá Rangoon til Bang-
kok í Tælandi, að hún
hyggist ekki gera
neinn leynisamning við
stjórnvöld í landi sínu
til að sleppa úr stofu-
fangelsi sem hún hefur
setið í frá árinu 1989.
Það var eiginmaður
Suu Kyi, Bretinn Mic-
hael Aris, sem smygl-
aði bréfinu til Bang-
kok. í því segir að hún
telji sig bundna þeirri
lýðræðisskyldu að vinna með félög-
um sínum og fylgja óskum þeirra.
„Það hafa ekki og verða ekki gerð-
ir neinir leynisamningar í tengslum
við lausn mína eða önnur mál,“
segir í bréfinu.
Yfírlýsingin, sem er skrifuð á
sunnudag og birtist í gær, virðist
vera svar við vangaveltum lýðræðis-
sinna um að Suu Kyi væri í þann
mund að semja við her-
foringjastjómina í
Burma um að losna úr
stofufangelsi en slíkur
samningur myndi
koma í veg fyrir frek-
ari stjómmálaþátttöku
hennar.
Tveir fundir sem
Suu Kyi átti með
stjóminni í september
og október á sfðasta
ári ýttu mjög undir
þessar vangaveltur.
Hins vegar sögðu her-
foringjar í Burmastjórn
að áður en Suu Kyi
yrði látin laus, yrði að
koma til stjómarskrárbreyting, sem
tæki ekki gildi fyrr en eftir nokkur
ár. I yfirlýsingunni segist Suu Kyi
hafa.gengið til viðræðnanna í þeirri
von að þær skiluðu árangri. „Það
hefur alltaf verið sannfæring þeirra
sem hafa unnið að lýðræði í Burma
að aðeins með innihaldsríkum sam-
ræðum andstæðra stjórnmálafla
getum við náð þjóðarsátt."
Aung San Suu Kyi
AÐ MINNSTA kosti fimm manns
hafa látið lífið í úrhelli og ofsa-
roki, sem geisað hefur í Þýska-
landi, Belgíu og Frakklandi frá
því fyrir helgi. Þrír urðu undir
tijám en hinir tveir drukknuðu.
Vegir voru víða lokaðir vegna
flóðanna og umferð járnbrauta
hefur einnig tafist. M.a. flæddi
Signa yfir bakka sína og fór
hraðbraut sem liggur við ána í
sundur á tveimur stöðum.
Vindhraði fór upp í 140 km á
Óveður í
Evrópu
klst. í Belgíu en 160 km á klst.
nærri Rostock í Þýskalandi. Úr-
koman hefur verið gríðarleg, á
laugardag var hún 90 mm á 72
stundum á Bretagne-skaga en
það samsvarar tveggja mánaða
Reuter
úrkomu. Er þetta mesta úrkoma
sem verið hefur í 150 ár en mynd-
in er tekin í Quimper á Bretagne-
skaganum. f gær hækkaði yfir-
borð árinnar Mosel um 10 sm á
klukkustund en fjöldi áa hefur
flætt yfir bakka sína.
Fannfergi og fárviðri olli mik-
illi röskun í Svíþjóð og sunnan-
verðu Finnlandi í gær. í Helsinki
var fólki ráðlagt að halda sig
innandyra eftir að þök fuku af
fjölda bygginga.