Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995 33
dæmi um aðgerðir sem nú þegar
má grípa til:
Afturkölluð verði öll bygginga-
leyfi og framkvæmdir stöðvað-
ar á svæðum þar sem talið er
mögulegt að snjóflóð geti fallið.
Staðfestingu aðal- og deili-
skipulaga sem í vinnslu kunna
að vera verði frestað meðan
unnið er að endurskoðun
áhættumats.
Ljóst er síðan að endurskoða
þarf aðalskipulag á öllum þeim
stöðum þar sem nýtt hættumat
verður gert.
Afstaða heimamanna
Samkvæmt núverandi skipulagi
á frumkvæði að gerð varanlegra
varnarmannvirkja að vera í hönd-
um sveitarstjórna. Segja má að
afstaða sumra heimamanna á þeim
stöðum þar sem hætta er á snjó-
flóðum geti (e.t.v. af skiljanlegum
ástæðum) verið ákveðið vandamál.
Það getur m.a. birst í eftirfarandi:
Tilhneiging til að draga úr
áhættumati.
Upplýsingar „elstu manna“ um
fyrri flóð eru dregnar í efa.
Otti við að fólk kunni að flytja
brott úr byggðarlaginu.
Ótti við verðfall á fasteignum.
Andstaða við að birta almenn-
ingi niðurstöður hættumats.
Það er að sjálfsögðu afar við-
kvæmt og erfitt að fást við þennan
vanda en hinsvegar er mjög mikil-
vægt að menn geri sér grein fyrir
honum þegar fjallað er um þessi
mál.
Fræðsla, þjálfun
Ég tel ljóst að okkur Islendinga
skorti verulega reynslu og þekkingu
á fjölmörgum þáttum þeirra vanda-
mála sem hér hafa verið gerð að
umtalsefni. Með þvi er ekki verið
að kasta neinni rýrð á þá einstak-
linga og stofnanir sem unnið hafa
mikilvægt starf á þessu sviði á
undanförnum árum. Staðreyndin er
einfaldlega sú að tíðni snjóflóða og
slys af þeirra völdum er (sem betur
fer) mun minni en í ýmsum öðrum
löndum. Því er mjög mikilvægt að
við leitum ráða hjá þeim þjóðum
sem mesta reynslu og þekkingu
hafa á lausn ýmissa þátta þessa
vanda. Nauðsynlegt er að stuðla
að því að mun fleiri íslendingar en
nú er geti aflað sér reynslu og þekk-
ingar á þessum málum og á ég þá
bæði við tæknimenn, björgunar-
menn, heilbrigðisstéttir, stjórnend-
ur og fleiri.
Lokaorð
Það sem hér hefur verið rætt um
á að flestu leyti við um öll ofanflóð
(skriðuföll, aurskriður, snjóflóð) og
að mörgu leyti einnig um aðrar
tegundir náttúruhamfara.
Á þessari öld eru snjóflóð lang
mannskæðustu náttúruhamfarir
hér á landi (hátt í 150 manns hafa
látið lífið af völdum þeirra en sára-
fáir vegna jarðskjálfta eða eldgosa)
en mig grunar að einna minnstum
fjármunum hafi verið varið til
varnaraðgerða vegna þeirra. Eru
þó varnaraðgerðir vegna annarra
náttúruhamfara ekki ofaldar á fé.
Það er ekki eðlilegt að þjóðfélagið
sé reiðubúið að takast á við stórá-
föll af völdum margskonar náttúru-
hamfara en treysti sér þess á milli
ekki til að taka myndarlega á til
að koma í veg fyrir stórslys með
fyrirbyggjandi aðgerðum.
Því miður virðist það vera svo
að öll þjóðin hrekkur illilega við
þegar slysin verða og um nokkurn
tíma er jarðvegur fyrir úrbætur
mjög frjór, en ótrúlega fjótt fýrnist
yfir og minna verður úr athöfnum
en menn höfðu áætlað. Þessu verð-
ur að breyta.
Það væri verðugur minnisvarði
um alla þá sem um sárt eiga að
binda vegna náttúruhamfara hér á
landi ef nú væri stigið stórt skref
til að tryggja öryggi þeirra sem búa
við aðstæður sem ekki eru tryggar.
Fjármagn og vilji er það sem til
þarf.
Höfundur er verkfræðingur,
starfsmaður snjóflóðmtefndnr
Neskaupstaðar 1975-1977.
-4- Helgi Einarsson
■ vélagæslumað-
ur var fæddur á
Eyrarbakka hinn
16. júlí árið 1903.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Hrafnistu hinn 13.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Einar Jónsson
frá Álfsstöðum og
Oddný Guðmunds-
dóttir frá Steinum
undir Eyjafjöllum.
Þau fluttust til Eyr-
arbakka árið 1899.
Fyrri kona Einars var Geirlaug
Jónsdóttir frá Miðengi í Gríms-
nesi. Alsystkini Helga voru,
Margrét, f. 1897, Sigurlaug
Guðrún, f. 1899 og lifir enn,
Helga, f. 1902, Sigríður, f.
1906, og Margrét Jóna en hún
lést ung. Hinn 19. nóvember
1927 giftist Helgi eftirlifandi
konu sinni, Kristínu Andreu
Á HLJÓÐU sumarkvöldi árið 1903,
nánar tiltekið 16. júlí, fæddist í
stóran systkinahóp á Eyrarbakka
Helgi Einarsson, síðar vélamaður.
Hann sofnaði til Guðs föstudaginn
13. janúar síðastliðinn, þá á nítug-
asta og öðru aldursári. Eftir lifir
kona hans, Kristín Sæby Friðriks-
dóttir, og syrgir nú látinn ástvin.
Gæfa mín er að eiga Oddnýju
dóttur þeirra. Helgi var svo yndis-
legur maður og tengdafaðir, að ég
hlýt að kveðja hann með söknuði,
og minnast hans nokkrum orðum.
Að hætti tíðarandans vann Helgi
kornungur alla almenna vinnu.
Hann reri að sjálfsögðu strax og
hann gat valdið árum, einkum frá
Eyrarbakka og Þorlákshöfn. Þá var
hann í kaupamennsku í uppsveitum
Suðurlands.
Lífslán Helga bar hann um tví-
tugt norður á Siglufjörð til sjó-
Sæby Friðriksdótt-
ur frá Siglufirði, f.
29. des. 1906. Börn
þeirra eru Björg
Sigríður Sæby, f.
10. maí 1929, hún
var gift Árna Jó-
hannssyni, en hann
er nú látinn;
Oddný, f. 9. júlí
1932, gift Kristjáni
Sigurðssyni; Erla,
f. 2. ágúst 1935,
gift Haraldi Gísla
Eyjólfssyni. Barna-
börnin voru tíu én
eitt er látið og
barnabarnabörnin eru tuttugu
og eitt. Helgi stundaði sjó-
mennsku og ýmis störf í landi
en lengst af var hann véla-
gæslumaður á Landspítalanum
í Reykjavík, eða í rúm fimmtíu
kr.r
Útför Helga fer fram frá
Fossvogskirkju í dag.
róðra. Fyrir örlæti gæfunnar hitti
hann þar ástina sína, unga og
fagra, Kristínu Sæby Friðriksdótt-
ur, sem fyrr er nefnd. Settu þau
saman bú, og höfðu unnast og
búið saman í full sextíu og sjö ár,
þegar Helgi sofnaði. Bið ég þess
Guð, að þú mildir tregann í tíma-
bundnum aðskilnaði ástvina og
hjóna.
Helgi, tengdafaðir minn, réðst
til vinnu við að taka grunn að Land-
spítalanum og byggingu hans árið
1927. Þegar lokið var að reisa þetta
mikla mannvirki, var honum boðið
starf vélgæslumanns í þvottahúsi
spítalans. Hjá Landspítalanum
starfaði hann í rúmlega hálfa öld.
Óvanalegri fágun tengdaföður
míns og prúðmennsku var við
brugðið. Skyldurækni og snyrti-
mennska var honum í blóð borin,
sem og hjálpsemi, ekki síst við þá,
sem stóðu höllum fæti á einhvern
hátt. Fyrir mannkosta sakir naut
hann skilyrðislausrar virðingar
allra manna.
Hann var félagshyggjumaður
með fastmótaðar skoðanir, og svo
fylginn sér og trúr viðhorfum sín-
um, að lítt kunnugum kom það
stundum mjög á óvart. Stéttvísi
hans var traust og hreinskiptni
gagnheiðarleg. Keikur var hann
framarlega í 1. maí-göngunni
1923, þeirri fyrstu, sem gengin var
hér í Reykjavík. Með félögum sín-
um gekk hann 1. maí hvert einasta
ár til 1991. Mér þótti heiður af
samferðinni við hann á þessum
hátíðisdegi. „Það var maísólin
hans.“
Fjölskyldan var Helga heilagt
vé. Helgi Einarsson var fjölskyldu-
faðir í besta og fegursta skilningi
þess orðs. Þeirri stöðu gegndi hann
með þeim hætti, að ógleymanlegt
er. Það er mér dýrmætur og kær
skóli að hafa notið leiðsagnar hans
og skilnings á þeim burðarás sam-
félagsins. Ekki síst missir yngsta
fólkið í fjölskyldunni mikils við frá-
fall ættföðurins. Þeirrar kjölfestu,
sem hann var allri fjölskyldunni og
virtist það hlutskipti undarlega fyr-
irhafnarlaust.
Eins og fleiri sé ég á bak yndis-
legum manni og fágætum vini við
fráfall tengdaföður míns. En áhrif-
in, sem þessi heiðursmaður hafði,
voru svo sterk, að hann fer ekki
frá okkur, heldur er hann áfram
og verður með okkur og í okkur.
Hann gaf okkur af ást og góðvild
þá hlutdeild í sér, sem ekki verður
frá okkur tekin.
Guð blessi minningu hans.
Kristján Sigurðsson.
Að loknum veikindum síðustu
mánaða hefur hann afi minn Helgi
Einarsson nú lokið lifsferli sinum.
í dagsins önn er dauðinn ætíð svo
ijarri okkar hugsun, þeirra sem eru
við fulla heilsu og á fullu að lifa
lífinu dag hvem. Enda ekkert skrít-
ið, því dauðinn er jú andstæða lífs-
ins. Hugurinn leitar víða og þaðan
HELGIEINARSSON
ÁRNI
KRISTJÁNSSON
+ Árni Kristjánsson fæddist
* á Stapa í Lýtingsstaða-
hreppi 5. ágúst 1924. Hann
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri 10. janúar síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Akureyrarkirkju 23. janúar.
UÚFMENNSKA og létt lund eru
orð sem koma upp í hugan þegar
Árna er minnst. Það var árið 1961
um vorið að ég hitti Árna fýrst,
en ég kom þá í heimsókn til þeirra
hjóna Árna og Lóu, sem tilvonandi
tengdasonur. Þau áttu þá heima á
Hofi í Skagafirði. Og á ég hinar
bestu minningar frá heimsóknum
í Skagafjörðinn þetta sumar. Um
haustið 1961 flyst Árni búferlum
til Akureyrar með fjölskyldu sína,
en þar hafði hann fengið vinnu.
Þegar Árni var búin að búa í nokk-
ur ár á Akureyri keypti hann lítið
timburhús og flutti það að
Gránufélagsgötu 35. Vann ég þá
mikið með honum við að stand-
setja það og var þá oft glatt á
hjalla, því Árni var glaðlyndur
maður og hafði gaman af að fara
með vísur.
Minningar úr Gránufélagsgöt-
unni eru margar enda kom ég þar
flesta daga á þessum árum og man
ég glöggt hvað gott var að koma
í kaffi til Lóu tengdamömmu og
hvað jólakökurnar og kleinurnar
hennar voru sérlega góðar. Árni
hafði mikið yndi af hestum og átti
alltaf hesta en aldrei fór ég þó á
bak með honum því hestamennska
var ekki mitt áhugamál, en oft
fórum við hjónin með honum að
líta á hestana á sumrin þegar þeir
voru í hagagöngum og undraðist
ég oft hve auðvelt það var fyrir
hann að ná þeim, það nægði bara
að kalla á þá. Árni hugsaði vel um
sína hesta og fékk hann áletraðan
heiðursskjöld fyrir umgengi í hest-
húsi sínu frá Hestamannafélaginu
Létti.
Söngur var hans líf og yndi og
var hann alltaf starfandi í kórum
og á góðum stundum var oft tekið
lagið. Árni og Lóa eignuðust níu
börn og ólu auk þess upp dótturson
sinn um tíma. Böm flugu úr hreiðr-
inu eitt af öðru og þegar Ámi
missti konu sína var yngsta dóttir-
in eftir heima, þá 12 ára. Seldi
hann þá húsið í Gránufélagsgöt-
unni og festi kaup á íbúð í Furu-
lundi 8 j)ar sem hann bjó til dauða-
dags. I ágúst síðastliðnum varð
Ámi 70 ára og hélt þá bömum
sínum og fjölskyldum þeirra mikla
veislu úti á Hauganesi en þar býr
nú yngsta dóttir hans, Svala, og
var þá mikið sungið. Hann fór í
sína síðustu söngferð með gömlum
Geysisfélögum til írlands síðastlið-
ið haust en skömmu áður en hann
fór fékk hann að vita að hann
þyrfti að fara í uppskurð og lagð-
ist hann inn á sjúkrahúsið strax
þegar hann kom aftur en þaðan
átti hann ekki afturkvæmt og eftir
harða baráttu við illvígan sjúkdóm
varð hann loks að lúta í lægra
haldi. Þá kom vel í ljós hvaða hug
börnin hans bám til hans og voru
þau hjá honum öllum stundum og
reyndu að láta honum líða sem
best. Árni var mikil ljúfmenni og
bóngóður og var alltaf tilbúinn að
aðstoða þegar þörf var á. Hann
var mikill fjölskyldumaður og hélt
fjölskyldu sinni vel saman. Eg er
viss um að nú þegar hann er kom-
in á annað tilverustig og hitta áð-
urfarna ástvini verða fagnaðar-
fundir.
Þegar sest er niður og litið yfir
farinn veg leita margar ljúfar
minningar á hugann, en ég læt
hér staðar numið.
Ámi minn, ég og fjölskylda mín
þökkum þér alla ástúð og hlýju
meðan við fengum að hafa þig hjá
okkur. Guð blessi þig.
Sigurður Vatnsdal og
fjölskylda.
Árni afi er dáinn.
Við eigum erfitt með að sætta
okkur við að elsku afi okkar, Árni
Kristjánsson, sé dáinn en það
styrkir okkur í sorginni að nú er
hann kominn til Lóu ömmu aftur
eftir 15 ára aðskilnað. Hann barð-
ist hetjulega gegn illvígum sjúk-
dómum en varð að láta undan og
fékk loksins hvíld og ró.
Við eigum svo margar minning-
ar um hann og voru samverustund-
ir okkar ótal margar og skemmti-
legar. Við vissum alltaf þegar hann
kom í heimsókn því þá opnuðust
útidyrnar hægt, síðan heyrðist
umgangur í forstofunni og loks var
kallað glaðlega til heimilisfólksins:
„Sælir nú hér.“ Á seinni árum var
það árviss venja að fara og að-
stoða afa við heyflutninga upp í
hesthús. Þetta tók ekki langa stund
en það var alltaf jafn gaman að
vera með honum í þessu. Hann var
þakklátur fyrir þessi litlu viðvik
sem voru þó alveg sjálfsögð og
munum við sakna þess að fara
ekki á næsta sumri heyflutninga
fyrir afa.
Það var alltaf jafn gaman að
setjast við hliðina á honum því þá
tók hann alla nálæga púða og rað-
aði þeim upp við sig því hann var
einstaklega kitlinn. Vegna þessa
skemmtilega veikleika hans var
ekki hægt að standast freistinguna
að kitla því viðbrögð hans voru
ótrúleg, hann kipptist við og jafn-
streyma ótal spurningar sem ekk-
ert svar fæst við og því leitar hug-
urinn á vit minninganna. Þær renna
hjá straumþungar en um leið milda
þær huga manns.
Hann afi var alla tíð mjög heilsu-
hraustur maður og hafði unun af
allri útivist og göngu, einnig hafði
hann gaman af stangveiði og er
mér minnisstæð síðasta veiðiferð
okkar er við fórum ásamt nojíkrum
úr fjölskyldunni til veiða í Hitar-
vatn. Þar kom berlega í ljós hvað
afi hafði mikla unun af og gaf sig
hvergi, hvorki við veiðar né göngu.
Lengst af bjuggu afi og amma
á Rauðarárstíg 21a, hér í bæ, en
fluttust síðan inn á Rauðalæk 45,
þar sem þau hafa búið síðan. Til
þeirra var alltaf gott og gaman að
koma og öllum tekið opnum örm-
um, var þar oft mjög fjölmennt en
þó færra nú hin síðari ár.
Á sumrin var tekið móti sólinni
úti á svölum, en afí var mikill sólar-
unnandi.
Afi byijaði snemma sjómennsku
og hneigðist hugur hans mjög að
vélum og vélgæslu á þeim bátum
er hann var á, en lengst af eða í
rúma hálfa öld starfaði hann sem
vélagæslumaður í þvottahúsi Land-
spítalans við Eiríksgötu, og man
ég mjög vel eftir því þegar maður
fékk að fara með honum í vinnuna
og fékk að standa á trillunum þeg-
ar hann fór með tauið niður á spít- v
ala. Ég gæti skrifað margar
skemmtilegar sögur sem ég upp-
lifði með afa og margt spjallið, en
læt nægja að riija þær upp í hugan-
um.
Það má segja að afi hafi verið
lánsamur maður, því ég tel það
vera mikla gæfu að koma bömum
sínum vel upp og fá að fylgjast
með komu og þroska afabarna og
langafabarna.
Elsku amma, mamma, Björg, og
Didda, við Magga og strákarnir
vottum ykkur og fjölskyldum ykkar
innilega samúð við fráfall afa.
Megi hann hvíla í friði.
Oskar Smári Haraldsson.
vel þó maður væri einungis að
þykjast.
Það er svo margt sem við mun-
um um hann en viljum að lokum
minnast hans með eftirfarandi ljóði
sem tengist einu af aðaláhugamáli
hans, söngnum:
Við munum þig og þökkum sðnginn hreina,
þann söng er veitti hjörtum vorum yl.
Við munum þig í hópi horskra sveina
með hlýjan svip er vissi á mörgu skil.
Það stóð ei þys né styr um þína vegi,
þú stilltir jafnan geði þínu í hóf,
og því var bjart á þínum hinsta degi,
þegar vetur líkklæði þér óf.
(Guðmundur Guðmundsson)
Elsku afi okkar, við þökkum þér
fyurir allar skemmtilegu samveru-
stundirnar sem við áttum með þér.
Guð veri með þér.
Rúnar og Guðrún.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er mðttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasiðum.
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
fyriri inn.iAMni
9BÞ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
Ármúla 29 - Reykjavik - sími 38640