Morgunblaðið - 24.01.1995, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
JÚDIT JÓNBJÖRNSDÓTTIR
kennari,
dvalarheimilinu Hlið,
Akureyri,
lést þann 21. janúar sl.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Sigurveig Bergsteinsdóttir,
Kristbjörg Rúna Ólafsdóttir.
t
Kjörmóðir okkar,
ELÍSABET GUÐNADÓTTIR
frá Kambi
í Holtum,
lést á öldrunardeild Landspítalans í Hátúni aðfaranótt laugardags
21. þ.m.
Erla Sigurðardóttir,
Hilmar Ó. Sigurðsson.
t
Systir mín og föðursystir okkar,
RÓSA GUÐBRANDSDÓTTIR
frá Prestsbakka
á Síðu,
andaðist í Landspítalanum sunnudaginn 22. janúar sl.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 31. janúar
kl. 15.00.
Ingólfur Guðbrandsson,
Vilborg Ingólfsdóttir,
Þorgerður Ingólfsdóttir, Rut Ingólfsdóttir,
Unnur María Ingólfsdóttir, Inga Rós Ingólfsdóttir.
t
Ástkær móðir og stjúpmóðir okkar,
ÍSAFOLD JÓNATANSDÓTTIR,
Skarðshlíð 22d,
Akureyri,
andaðist í Landspítalanum í Reykjavík
22. janúar sl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 31. janúar kl. 13.30.
Þórður Pálmason,
Valrós Kelly, Donald Kelly,
Katrín Björgvinsdóttir, Vfkingur Antonsson,
Júlíus Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
AÐALSTEINN HALLDÓRSSON
frá Hvammi,
Eiðsvallagötu 32,
Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri 22. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 30. janúar kl. 13.30.
Þóra Björnsdóttir,
Jón Ágúst Aðalsteinsson, Halla Sveinsdóttir,
Guðný Aðalsteinsdóttir, Sigurður Ákason,
Sigrún Aðalsteinsdóttir, Stefán Geir Pálsson,
Stefán Aðalsteinsson, Þuríður Þorláksdóttir,
Halldór Aðalsteinsson, Helga Sigriður Steingrimsdóttir,
Hlynur Aðalsteinsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ERLA SIGURÐARDÓTTIR,
Smyrilshólum 4,
lést á heimili sínu laugardaginn
21. janúar.
Guðjón Júníusson,
Ólafur Guðjónsson, Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Guðríður Guðjónsdóttir, Guðmundur Hinriksson,
Bryndís Guðjónsdóttir, Örn Gunnarsson,
Júni'us Guðjónsson, Þóra B. Pétursdóttir,
Sigrún Guðjónsdóttir, Heiðar Ragnarsson,
Þórarinn Guðjónsson, Sigríður A. Garðarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
BJORK THOMSEN
+ Björk Thomsen
fæddist í Hobro
í Danmörku 28.
október 1945. Hún
lést í Bandaríkj-
unum 6. janúar síð-
astliðinn og fór út-
för liennar fram frá
Bústaðakirkju 19.
janúar.
Kveðja frá
skátafélaginu
Ægisbúar
Hún Björk er farin
heim. Við hin sem eftir
stöndum fyllumst harmi og skiljum
ekki tilgang þessa útspils skapar-
ans. Við sem störfuðum með Björk
Thomsen að skátamálum, hvort
heldur var í skátasveitinni hennar
í Ægisbúum eða í störfum fyrir
Skátasamband Reykjavíkur og
Bandalag íslenskra skáta, vitum að
þrátt fyrir það hve sérlega drífandi
og afkastamikil hún var í öllu því
starfi, þá var enn fjölmargt sem
hún átti ógert, hugmyndir sem hún
átti eftir að koma í framkvæmd.
Björk gekk til liðs við Ægisbúa
haustið 1992 og er óhætt að segja
að starf félagsins hafí ríkulega not-
ið komu hennar. Hugmyndaauðgi
og gott verkskipulag hennar reynd-
ust félaginu vel. Nú er það oft þann-
ig með jafn drífandi fólk og Björk
var, að það telur sig vita allt og
geta allt mikið betur en allir aðrir.
Þannig var því ekki farið með hana,
skoðanir og reynsla annarra voru
þess virði að læra af. Hún hlust-
aði, rökræddi og síðan var tekin
ákvörðun. Við Ægisbúar þökkum
samstarfið um leið og hugheilum
samúðarkveðjum er
komið til fjölskyldu
hennar sem hefur svo
mikið misst.
Með skátakveðju,
Júlíus Aðalsteinsson
félagsforingi.
Hún Björk er dáin.
Harmafregn.
Vegir lífsins eru
órannsakanlegir og
þegar svona gerist er
eins og við neitum að
trúa. Við vissum að
Björk var veik en engin okkar bjóst
við að svona myndi fara. Andlát
Bjarkar kom eins og högg á nýju
ári og minnir okkur á hve lífið er
hverfult. Hún sem hafði svo margt
að gefa og lifa fyrir í leik og starfí.
Þegar litið er yfir farinn veg og
samferðamaður hverfur á braut
kemur margt í hugann, rabbfundir,
heimboð, vinnupartý, matarklúbb-
urinn, ferðalög að ógleymdum ferð-
um í sumarbústað Bjarkar og Auð-
uns að Apavatni. Alltaf var Björk
forsprakkinn og með sinni stóísku
ró tókst henni að telja okkur þrem-
ur og jafnvel tuttugu manna hóp
til viðbótar trú um að þetta væri
nú lítið mál. „Þið komið bara austur
um helgina, gistið og takið með
ykkur krakkana."
Elsku Auðun, guð gefi þér og
dætrum ykkar styrk til að takast á
við sorgina og lífið framundan.
Dóra, Katla, Þórdís.
Björk Thomsen er látin eftir erf-
iða sjúkdómsbaráttu. Alltaf trúðum
t
Faðir minn,
ÁGÚST ÁRNASON,
vistmaður á Hrafnistu
í Reykjavík,
áðurtil heimilis
íGrýtubakka 18,
andaðist 14. janúar síðastliðinn.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jón Ágústsson og fjölskylda.
t
Útför elsku barnanna okkar,
HREFNU BJARGAR HAFSTEINSDÓTTUR,
KRISTJÁNS NÚMA HAFSTEINSSONAR
og AÐALSTEINS RAFNS HAFSTEINSSONAR,
fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 25. janúar
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minn-
ast hinna látnu, láti björgunarsveitina Kofra í Súðavík njóta þess.
Berglind María Kristjánsdóttir,
Hafsteinn Númason.
t
Móðir okkar,
MARGRÉT JÓHANNESDÓTTIR
frá Snorrastöðum,
verður jarðsungin frá Kolbeinsstaða-
kirkju fimmtudaginn 26. þ.m. kl. 14.00.
Bílferð verður frá Umferðarmiðstöðinni
kl. 10.30 f.h.
Börn hinnar látnu.
t
Útför sambýlismanns míns, föður og tengdaföður,
EINARS STEFÁNS SIGURÐSSONAR,
Hólabraut 18,
Akureyri,
fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 25. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri.
Hulda Guðnadóttir,
Sigurður Einarsson, Birna Jóhannsdóttir.
við að Björk ynni þessa baráttu, en
að þessu sinni hafði maðurinn með
ljáinn betur.
Duglegri og afkastameiri mann-
eskju en Björk er ekki hægt að
hugsa sér. Hún starfaði alla tíð af
trúmennsku og tryggð við skáta-
hreyfínguna. Kjörorð skátahreyf-
ingarinnar „Ávallt viðbúinn“ gerði
hún að sínum. Þegar leitað var til
hennar var hún alltaf tilbúin til
þess að leggja sitt af mörkum. Hún
vann mjög gott og óeigingjarnt
starf á vettvangi Skátasambands
Reykjavíkur sem og annars staðar.
Nú þegar hún er horfin heim er
hennar sárt saknað. Við sendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur
til fjölskyldu hennar sem hefur
misst svo mikið. Guð styrki ykkur
í sorginni.
Skátasamband Reykjavíkur.
Dáin, farin heim.
Ef við lítum yfir farinn veg
og finnum gamla slóð,
færast löngu liðnar stundir okkur nær.
Það var eins og tíminn stöðvaðist
og löngu liðnar stundir komu upp
í hugann er við fréttum ótímabært
andlát Bjarkar.
Minningin sem við eigum um
Björk er ljúf. Skátastarfið átti hug
hennar allan, og við vorum heppnar
að hafa hana sem sveitarforingja
og síðar sem dróttskátaforingja yfir
okkur. Hún miðlaði okkur af öllu
sem hún kunni, hún hafði líka svo
einstaklega gott lág á okkur og
alltaf tókst henni að láta okkur
hlusta og hlýða. Við sjáum það svo
vel núna þegar við hugsum til baka
hve þolinmóð og ljúf hún var, en
sennilega hefur hún oft verið búin
að fá nóg af fjörinu í okkur. En
aldrei lét hún okkur finna það. Hún
var foringinn og allt skátastarfið
var vel skipulagt, hvort heldur það
voru skátaprófín sem við tókum eða
útilegurnar og skátamótin sem við
fórum á.
Einu sinni fór hún með okkur í
sveitarútilegu upp að Leirvogsá í
Mosfellssveit, já, við þurftum ekki
að fara langt. Þar vorum við í
nokkra daga. Björk hafði samið
mótssöng og okkur fannst þetta
eiris og stórt skátamót. Hún bauð
foreldrum okkar í heimsókn, við
kveiktum varðeld og sungum skáta-
söngva langt fram á nótt.
Skátastarfíð hafði svo sannar-
lega mikil áhrif á okkar uppeldi,
og Björk átti stóran þátt í því og
við erum mjög þakklátar fyrir að
fá að vera með henni þennan tíma.
Eitt sinn skáti, ávallt skáti.
Við sendum eiginmanni, dætrum,
móður og systur okkar innilegustu
samúðarkveðjur. Við biðjum góðan
Guð að blessa ykkur öll.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Morgunstjörnurnar.
Vorn hörundslit og heimalönd
ei hamla látum því,
að bræðralag og friðarbönd
vér boðum heimi í.
Látinn er góði vinurinn og sveit-
arforinginn Björk Thomsen. Björk
var ein af bestu manneskjum sem
maður gat hugsað sér, hún var allt-
af til staðar ef manni leið illa eða
meiddi sig. Maður gat alltaf komið
til hennar ef maður vildi tala við
einhvern í trúnaði. Ef einhverjum
leið illa gat hún alltaf hresst hann
við hvað sem var að. Einnig var
hún alltaf góð við alla en ekki bara
suma. Hún gerði okkur að skátum
og kenndi okkur svo margt sem við
munum aldrei gleyma. Við munum
aldrei gleyma Björk, hún var svo
Krossar
, I viSorlit og máloSjr.
Mismunandi mynsnjr, vönduo vinna.
Simi 01-35929 og 35735