Morgunblaðið - 24.01.1995, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Kristjón Sigurbergsson, Foldaskóla
Stelpur eru ekki
betri að teikna
Stelpur eru ekki betri
að teikna en strák-
ar,“ sagði Kristjón Sig-
urbergsson úr Folda-
skóla sem var eini strák-
urinn sem fékk viður-
kenningu, hinir níu verð-
launahafamir voru
stúlkur.
Flestar stelpumar í
bekknum teiknuðu fim-
leikakonur og strákamir fótbolta-
menn. Við vomm tveir í bekknum
sem teiknuðum skíða-
menn en ég fer oft á
skíði sjálfur," sagði Kris-
tjón og bætti við að það
hefði verið erfiðast að
teikna fætuma. En átti
hann von á því að hans
mynd gæti unnið til verð-
launa?
„Nei alls ekki, ég átti
hins vegar von á því að
annar úr bekknum myndi komast
í verðlaunasæti.
Teiknimyndasamkeppni grunnskóla
Þúsund myndir bárust
TÆPLEGA eitt þúsund grunn-
skólanemar skiluðu inn mynd-
um íteiknimyndasamkeppni
sem Ólympíunefnd íslands og
íþróttasambandið gengust fyr-
ir ítilefni af ári íþrótta og
Ólympíuhugsjónar og því að
öld er liðin frá stofnun Alþjóða
Ólympíunefndarinnar.
Viðfangsefni samkeppninnar var
skilgreint sem „íþróttir í víð-
asta samhengi," og þátttakendum
heimilt að teikna jafnt myndir af
almennings- og keppnisíþróttum.
Fimm manna nefnd var skipuð
til að vinna samkeppnina og mynd-
menntakennararnir Þórir Sigurðs-
son og Þorvaldur Jónasson sátu
ásamt Gísla Halldórssyni, formanni
nefndarinnar í dómnefnd sem valdi
úr tíu myndir.
Þeir tíu nemendur sem áttu bestu
myndirnar fengu að launum sviss-
nesk úr af gerðinni Swatch sem
sérstaklega voru framleidd fyrir al-
þjóða Ólympíunefndina auk viður-
kenningaskjala. Eftirtaldir fengu
viðurkenningu:
Margrét Niísdóttir Grenivíkurskóla
sem teiknaði mynd af knapa á hesti,,
Marsibil K. Guðmundsdóttir Eyrar-
sveit fyrir mynd af skíðamönnum,
Guðrún Helga Elvarsdóttir Stokks-
eyri fyrir mynd af hesti að stökkva
yfir hindrun, Ósk Ómarsdóttir fyrir
mynd af fólki að synda og íris Linda
Ámadóttir fyrir mynd af skautafólki
en báðar eru nemendur í Hóla-
brekkuskóla. Clara Guðjónsdóttir
Árbæjarskóla. Fjórir af tíu verð-
launahöfunum eru við nám í Folda-
skóla en það eru Kristjón Sigur-
Morgunblaðið/Kristinn
VERÐLAUNAHAFARNIR í teiknimyndasamkeppni um íþróttir. Tal-
ið frá efstu tröppu vinstra megin, Sara Jóhannsdóttir, Anna
María Sighvatsson, Margrét Nilsdóttir og Ósk Ómarsdóttlr.
Hægra megln í stlganum eru: Kristjón Slgurbergsson Foldaskóla,
Halldóra Ósk Reynisdóttlr, Clara Guðjónsdóttlr og Guðrún Helga
Elvarsdóttir. Fyrir mlðju eru þau Ragnar Gíslason skólastjóri
Foldaskóla í Grafarvogl og íris Llnda Árnadóttir. Á myndlna vant-
ar Marsibll K. Guðmundsdóttur úr Eyrarsveit. Mynd Óskar Ómars-
dóttlr af sundfólkl
bergsson sem teiknaði skíðamann,
Halldóra Ósk Reynisdóttir fyrir
mynd af dansara, Anna María Sig-
hvatsdóttir fyrir mynd af fimleika-
manni og Sara Jóhannsdóttir úr
Foldaskóla fyrir mynd af kylfingi.
Ragnar Gíslason, skólastjóri
Foldaskóla í Grafarvogi tók jafn-
framt við viðurkenningu fyrir hönd
skólans en fjórir nemendur hans
fengu viðurkenningu fyrir myndir
sínar.
Margrét Nilsdóttir, Grenivíkurskóla
Kom aldrei neHt annað
til greina en hestamynd
Eg var eins og allir
aðrir þegar ég var
fjögurra ára, þá teiknaði
ég bara bollu með fjórum
strikum en myndimar
hafa þróast mikið síðan
þá,“ sagði Margrét Nils-
dðttir nemandi úr Greni-
víkurskóla. en blýants-
teikning hennar af knapa
á hesti vakti athygli á
sýningunni.
„Það kom aldrei neitt annað til
greina en að teikna hestamynd, fyrst
að það var leyfilegt því segja má
að ég hafi sérhæft mig í hestamynd-
um,“ sagði Margrét sem vann mynd-
ina heima hjá sér enda er engin
skipulögð myndmenntakennsla í
Grenivíkurskóla. Rúmlega
sjötíu nemendur stunda
nám þar og sagðist Mar-
grét ekki vita til þess að
aðrir nemendur skólans
hefðu sent myndir í sam-
kepgnina.
„Ég á einn hest sem
heitir Kolur og myndin er
ekki ólík honum. Eg átti í
svolitlum vandræðum með
að teikna afturlappirnar,
þeir eru erfíðastir og svo er alltaf
mikill vandi að hafa stærðarhlutföll-
inn rétt á milli knapa og hests.“
Margrét sagði að litlu teikning-
amar á myndinni væru hugsaðar
sem svipmyndir frá hestaíþróttum
almennt."
Erfiðast að
teikna hendur
[jað var erfiðast að teikna hend-
umar og svolítið erfitt að
finna réttu litina. Ég fer aldrei í
golf en frændi minn, Þorsteinn
Hallgrímsson varð íslandsmeist-
ari,“ sagði Sara Jóhannsdóttir úr
Foldaskóla sem teiknaði kylfíng
sem mundaði golfkylfu. Aðspurð
sagði hún að frændsemin hefði
litlu ráðið um að þessi mynd varð
til.
- En er mikill áhugi á teikningu
í Foldaskóla?
• „Já ég mundi segja það, að
minnsta kosti fínnst mér það
skemmtilegasta fagið í skólanum,"
sagði Sara. Hún hefur áður átt
mynd af sýningu er hún var ein
þeirra sem sigruðu í samkeppni á
vegum tóbaksvamamefndar.
Samt sem áður segist hún lítið
teikna fyrir utan skólastofuna.
Skautamynd
hjá írisi
Lindu
lUI ig langaði að teikna eitthvað
sem enginn annar í bekkn-
um væri með,“ sagði íris Linda
Árnadóttir, tólf ára gömul úr
Hólabrekkuskóla sem teiknaði
mynd af pari í listdansi á skautum.
„Myndin var unnin í mynd-
menntatímum og tók mig fjóra
tíma. Það voru mismundandi
íþróttagreinar teknar fyrir hjá
bekkjarfélögunum og ég held að
flestir í mínum árgangi hafí skilað
inn mynd.“
Þrátt fyrir að hafa teiknað
íþróttamynd er íris Linda ekki í
neinum íþróttum sjálf. „Ég var
einu sinni í badminton en hætti
og því og stunda engar íþróttir. “