Morgunblaðið - 24.01.1995, Side 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ótrúleg
eyðilegging
„AÐKOMAN er verri en ég átti
__ v.on á. Eyðileggingin er hreint
ótrúleg,“ sagði Jónatan Ásgeirs-
son skipsíjóri frá Súðavík í sam-
tali við Morgunblaðið eftir að
hann og fleiri Súðvíkingar höfðu
farið til Súðavíkur að vitja eigna
sinna og freistað þess að bjarga
einhverjum persónulegum mun-
um úr snjóflóðinu.
Hópur Súðvíkinga fór til Súða-
víkur á laugardag og í gær fóru
menn aftur, vitjuðu eigna sinna
og leituðu í húsarústunum, aðal-
lega að persónlegum munum.
Formaður atvinmimálanefndar Akureyrar um tilboð SH um 80 störf
Getur eflt atvinnulífið
„ÞAÐ er ánægjulegt að eitthvað er að gerast
hér, að við eigum einhverra kosta völ, Það er Ijóst
að ef við vinnum vel úr þessu máli á það að geta
eflt mjög atvinnulíf á Akureyri," sagði Guðmund-
ur Stefánsson formaður atvinnumálanefndar Ak-
ureyrar og einn fulltrúi bæjarins í viðræðuhópi
sem skipaður var vegna hugsanlegrar sölu á
hlutabréfum bæjarins í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa.
Fulltrúar í stjóm SH kynntu viðræðuhópnum
tilboð sitt til eflingar atvinnulífs á Akureyri á fundi
í gær en í því felst m.a. að þeir tryggi 80 störf í
bænum með því að flytja umtalsverðan hluta starf-
semi sinnar norður og að beita sér að öðru leyti
fyrir annarri atvinnustarfsemi á Akureyri.
Háskólinn styrktur
SH-menn vilja stuðla að bættri aðstöðu Akur-
eyrar til að verða miðstöð flutninga til og frá
landinu og einnig hyggjast þeir styðja við bakið
á Háskólanum á Akureyri m.a. með því að kosta
prófessorsstöðu við skólann. Tilboð SH miðast
við að bæjarstjóm Akureyrar tryggi að sala af-
urð_a ÚA verði áfram á vegum SH.
Á næstu dögum eru væntanlegar tvær skýrslur
um áhrif þess að sölumál ÚA verði færð frá SH
yfir til íslenskra sjávarafurða, en í kauptilboði
Kaupfélags Eyfirðinga í hlutabréf bæjarins í ÚA
fólst m.a. að sala afurða yrði færð til ÍS og höfuð-
stöðvar þess fluttar norður í kjölfarið.
Guðmundur sagði að í kjölfar niðurstaðna
skýrslnanna um hvort hagkvæmt sé að skipta
um söluaðila yrðu málin rædd ítarlega. „Og í fram-
haldi af því munum við taka ákvörðun, það eru
greinilega miklir möguleikar fyrir hendi ef rétt
er haldið á spilunum. Það skiptir mestu að afrakst-
urinn verði sem mestur,“ sagði Guðmundur.
■ SH tryggir 80 störf/14
Laun á almennum markaði o g hjá hinu opinbera síðustu 5 ár
3,50% meiri lanna-
hækkun hjá ríkinu
Dró mest í sundur á undanförnum þremur árum
IjAUNAVÍSITALAN sem Hagstofa
íslands reiknar út hækkaði um 17%
á fimm ára tímabili frá ársbyijun
1990 til ársloka 1994 eða á því
tímabili sem liðið er frá því svo-
nefndir þjóðarsáttarsamningar voru
gerðir. Ef litið er á launaþróun opin-
berra starfsmanna og bankamanna
annars vegar og launaþróun á al-
mennum markaði hins vegar kemur
fram að laun hinna fyrmefndu hafa
hækkað um 19,7% á þessu tímabili
á sama tíma og laun á almennum
markaði hafa hækkað um 15,3%.
Þetta kemur fram í upplýsingum
frá Hagstofu íslands sem fylgdu
útreikningi síðustu launavísitölu.
Launaþróun beggja hópanna er rak-
rri frá ársbyijun 1990 miðað við
ársfjórðunga og fram kemur að það
er einkum á síðustu þremur árum
sem laun opinberra starfsmanna og
bankamanna hækka meira en á
almennum markaði. Þannig hafa
laun opinberra starfsmanna og
bankamanna að meðaltali hækkað
0,50% meira árið 1991 en laun á
almennum markaði. Á árinu 1992
Launaþróun skv. launa-
1990 1991 1992 1993 1994
hækka laun opinberra starfsmanna
um 0,9% meira en á almennum
markaði og á árinu 1993 um 1,2%
til viðbótar. 0,9% bætast við á síð-
asta ári og samanlagt hafa því laun
opinberra starfsmanna og banka-
manna hækkað um 3,50% meira en
laun á almennum markaði frá árs-
meðaltali 1990 til ársmeðaltals í
fyrra.
Á árinu 1990 er launaþróun
beggja hópanna nánast sú sama og
lítilega dregur í sundur á árinu
1991. í árslok þá eru laun á almenn-
um markaði að meðaltali 11,3%
hærri en í ársbyijun 1990, en laun
opinberra starfsmanna og banka-
manna hækkuðu á sama tímabili
um 12,8%. í árslok 1992 hafa laun
á almennum markaði hækkað að
meðaltali um 13,5% frá ársbyijun
1990 og laun opinberra starfs-
manna og bankamanna hafa hækk-
að um 15,4%. í árslok 1993 eru
laun á almennum markaði 13,9%
hærri en í ársbyrjun 1990, en laun
opinberra starfsmanna og banka-
manna eru að meðaltali 17,5% hærri
en í ársbyijun 1990. Á síðasta árs-
fjórðungi í fyrra eru laun á almenn-
um markaði orðin 15,3% hærri en
í ársbyijun 1990, en laun hjá hinu
opinbera og bankamönnum eru
19,7% hærri en í ársbyijun 1990.
Skip Súðvíkinga halda á veiðar
Frosti hefur
rækjuvinnslu
á mánudag
ísafirði. Morgunblaðið.
Á SAMEIGINLEGUM stjórnarfundi Frösta hf. og Álftfirðings hf. í Súðavík
var samþykkt að hefja rækjuvinnslu í rækjuverksmiðjunni nk. mánudag.
Súðvíkingar, sem búa á ísafirði, verða keyrðir á milli í rútu. Rækjuskip
Súðvíkinga, Bessi og Haffari, fóru tii veiða í gærkvöldi og rækjuskipin
Kofri og Eyborgin fara til veiða í dag. Reiknað er með að skipin landi í
byijun næstu viku. Bátar á innfjarðarrækju, sem leggja upp hjá Frosta,
munu leggja úr höfn á fimmtudag.
Áður en snjóflóðið féll var unnið
á tveimur vöktum í Frosta hf. og
unnu 25-30 manns á vakt. Ingimar
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Frosta, sagði að ætlunin væri að
byija með vinnu á einni vakt. Hann
sagði að það myndi skýrast um miðja
vikuna hveijir kæmu til vinnu, en
hann sagðist vonast eftir að sem
flestir sneru aftur.
Ársveltan 1,2 milljarður
Velta Frosta hf. á síðasta ári nam
um 1,2 milljarði kr. Ingimar sagði
að bráðabirgðatölur bentu til að fyr-
irtækið hefði skilað hagnaði sl. ár.
Jónatan Ásgeirsson, stjómarmað-
ur í Frosta hf., sagði að Frosti væri
öflugt fyrirtæki og menn myndu að
sjálfsögðu halda rekstri þess áfram
þrátt fyrir það áfall sem byggðin í
Súðavík hefði orðið fyrir. „Við höfum
alla tíð barist og staðið okkur vel.
Við munum beijast af enn meiri
krafti nú,“ sagði Jónatan.
Hreppsnefnd Súðavíkur féllst á
fundi sínum í gær á ósk sveitarstjóra
um heimild til að taka sér leyfi frá
störfum um óákveðinn tíma. Jafn-
framt fór nefndin þess á leit við for-
svarsmenn Sambands íslenskra
sveitarfélaga, að þeir útvegi svo fljótt
sem verða má, staðgengil sveit-
arstjóra um óákveðinn tíma. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Þórður Skúlason framkvæmdastjóri
þess halda í dag til Súðavíkur og
Isafjarðar. Þar munu þeir eiga fund
með hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
og kynna tillögu sína um ráðningu
staðgengils sveitarstjóra á Súðavík
í forföllum ráðins sveitarstjóra. Á
fundinum munu þeir einnig fy'alla urn
undirbúning að samvinnu allra sveit-
arfélaga í landinu um aðstoð þeirra
við Súðavíkurhrepp.
■ Fólk leitar/4
■ Súðavík/28-29
Lyfjaverslun íslands
Eftirstöðvar bréfa
ríkisins á markað
RÍKISSJÓÐUR hefur ákveðið að
bjóða til sölu á almennum markaði
nk. fimmtudag eftirstöðvar hluta-
bréfa sinna í Lyfjaverslun íslands.
Hér er um að ræða helming hluta-
fjárins í félaginu en hinn helmingur-
inn var settur á markaðinn í nóvem-
ber og seldist þá upp á einum degi
til 825 nýrra hluthafa. Bréfín eru
að nafnvirði 150 milljónir króna og
verða seld á genginu 1,34 þannig
að söluverð er alls 201 milljón.
Stefnt er að sem mestri dreif-
ingu bréfanna meðal almennings
og verður því sala til hvers aðila
að hámarki 500 þúsund krónur.
Bréfin verða í boði með sérstökum
greiðslukjörum í fímm daga eða á
tímabilinu 26. janúar til 1. febr-
úar. Þannig verður mögulegt að
greiða bréf að hámarki 250 þúsund
krónur með fimm jöfnum vaxta-
lausum greiðslum á tveimur árum,
fímmtung við kaup, og síðan
fimmtung á sex mánaða fresti.
Eftir 1. febrúar verður leitað eftir
tilboðum í þau bréf sem þá kunna
að vera óseld.
■ Síðustu hlutabréf/16