Morgunblaðið - 05.02.1995, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 5. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
AFWERTU SfCYLpU
* f FWGUGtfAft ALLTXFVEfti
\6fee& HiNOM /H£<5 /M
(SlFOiNO flF/MK/iR ?
'W
OjH^
rcQÍ))'y^'
Grettir
fíANH'A AE>HAFA/*W«-A
KYNH/UGO íeFT/Ott/ÐD/XS -
-^j'- —
O, VJSS Ht£>U PAP emu? )
JC/UN/NGOUN/ «!WG
i/æb/o feescjo m.
AAOR&UN9 j'—
' y
DAGUKtLETMGlNH
ÞlNN } YAKNAf>0
Ferdinand
Smáfólk
Ég sé að fuglarnir
eru vel búnir undir
veturinn ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Iþróttir fyrir alla
Frá Magnúsi Þorkelssyni:
EITT af því sem vekur hvað mesta
athygli í sjónvarpi eru beinar út-
sendingar frá kappleikjum fremstu
afreksmanna okkar - og erlendra
í knattleikjum. Þar sjáum við þá
íþróttamenn sem fremstir eru í sinni
grein etja kappi hver við annan og
spennan getur orðið mikil. Aðrar
íþróttir njóta því miður ekki sömu
vinsælda til beinna útsendinga hér
á landi enda virðist tíminn til þeirra
knappur þegar ekki er um fleiri
rásir að ræða. Því eiga ýmsar grein-
ar mjög undir högg að sækja þó
aðstaða til æfinga sé í sjálfu sér í
góðu meðallagi. Stundum er erfitt
er að fá mannvirki sem hæfa þess-
um greinum til keppni - ég nefni
sundið auk þolfimi, en til skamms
tíma varð að halda íslandsmót
þeirrar greinar á öldurhúsum! Þó
er kannski verra að börn sem eru
að „leita“ sér að íþrótt átta sig
ekki nógu vel á þeim fjölda greina
sem í boði er - boltinn sést mest
og ekki líkar öllum við hann eða
telja hann hæfa sér.
Barna- og unglingastarf
er grunnurinn
Nú vill svo til að þegar afreks-
fólkið er að keppa ber að muna
eftir þeim grunni sem starf þeirra
byggist á. Bama- og unglingastarf-
ið er mikilvægt. Þaðan fáum við
afreksfólkið, þaðan fá félög tekjur,
þaðan koma áhorfendur framtíðar-
innar, svo það er mikilvægt frá sjón-
arhóli íþróttanna að kynna það starf
vel. Það er einnig mikilvægt þjóðfé-
lagslega miðað við félags- og heilsu-
farsleg rök að efla starf íþróttafé-
laganna þannig að þau hafi tök á
að vera með jafngóða fagmenn í
barnastarfi og fullorðinsstarfi. Um
síðustu helgi (27.-29. jan.) fór fram
sundmót í Hafnarfirði, kennt við
Landsbankann og haldið á vegum
Sundfélags Hafnarfjarðar. Þar
keppti á fjórða hundrað manns við
þröngar aðstæður og þar á meðal
sundfólk - afreksfólk, frá Þýska-
landi. Fjölmiðlar fengu fréttatil-
kynningar (fleiri en eina hver) um
mótið. Morgunblaðið sendi mann
og mun (væntanlega) birta úrslit
og umfjöllun að vanda. RÚV sendi
einn myndatökumann og sendi út
frétt uppá um eina mínútu í íþrótta-
þætti sínum. Af öðrum heyrðum við
ekki þó fyrir þeim lægju skilaboð.
Hvernig á að vera hægt að efla
íþróttir fýrir alla þegar ekki tekst
að ná til barnanna og unglinganna?
Ég skora hér með á RÚV og
Stöð 2 að vinda að því bráðan bug
að hefja útsendingar á barna-
íþróttaþáttum að nýju. Ég efa ekki
að einhverjir öflugir aðilar væru
tilbúnir að kosta slíkt miðað við það
áhorf sem í boði er. Ég var einu
sinni samferða Adolfi Inga Erlings-
syni úr Viðey ásamt föngulegum
skólabekk úr Reykjavík. Þá var
nýhætt að sýna barnaíþróttaþátt
sem hann stýrði og voru vonbrigði
bamanna augljós.
Hefjið aftur sýningar á barna-
íþróttaþáttum til að efla grunnstarf
félaganna. Ég get ekki ímyndað
mér annað en að kostunaraðilar og
íþróttahreyfingin séu til í slíkt.
MAGNÚS ÞORKELSSON,
íþróttaforeldri,
Lyngbergi 17, Hafnarfirði.
Upplýsingar um
Intemettengingu
við Morgunblaðið
VEGNA fjölda fyrirspurna
varðandi Internet-tengingu
við Morgunblaðið, skal eftir-
farandi áréttað:
Tenglng viA heímasíðu
Morgunblaðslns
Til þess að tengjast heima-
síðu Morgunblaðsins, sláið inn
slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar
upplýsingar um blaðið, s.s net-
föng starfsmanna, upplýsingar
um hvernig skila á greinum
til blaðsins og helstu símanúm-
er.
MorgunblaAIA á Internetlnu
Hægt er að nálgast Morgun-
blaðið á Internetinu á tvo
vegu. Annars vegar með því
að tengjast heimasíðu Strengs
hf. beint með því að slá inn
slóðina http://www.streng-
ur.is eða með því að tengjast
heimasíðu blaðsins og velja
Morgunblaðið þaðan.
Þessi þjónusta er endur-
gjaldslaus til 1. febrúar nk.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Internetið
noti netfangið
/wW@centrum.is
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem
má finna á heimasíðu blaðsins.
Það tryggir öruggar sending-
ar og einnig að efnið rati rétta
leið í blaðið. Senda má grein-
ar, fréttir, auglýsingar og
myndir eins og fram kemur á
heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar viA
Internet
Þeir sem hafa Netscape/
Mosaic-tengingu eiga hægt um
vik að tengjast blaðinu. Ein-
ungis þarf að slá inn þá slóð
sem gefin er upp hér að fram-
an.
Þeir sem ekki hafa
Netscape/Mosaic-tengingu
geta nálgast þessar upplýs-
ingar með Gopher-forritinu.
Slóðin er einfaldlega slegin inn
eftir að forritið hefur verið
ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota
a.m.k. 14.400 baud-mótald fyr-
ir Netscape/Mosaic tengingar.
Hægt er að nota afkastaminni
mótöld með Gopher-forritinu.