Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B/C/D
Andreotti leiddur
fyrir rétt á Sikiley
Palermo. The Daily Telegraph, Reuter.
DÓMAKI á Sikiley ákvað í gær að
Giulio Andreotti, einn af þekktustu
stjórnmálaleiðtog'um kristilegra
demókrata á Italíu um áratuga
skeið, yrði leiddur fyrir rétt vegna
gruns um að hann hafí verið félagi
í Sikileyjarmafíunni. Réttarhöldin
verða í Palermo en veijendur höfðu
krafist þess að þau yrðu í Róm þar
sem Andreotti væri sakaður um af-
brot { ráðherrastörfum sínum.
Málaferlin eiga að hefjast í sept-
ember nk. Andreotti er 76 ára gam-
all, hann var forsætisráðherra Italíu
sjö sinnum, er kirkjurækinn kaþó-
likki og hefur í hálfa öld verið tákn
hinna hefðbundnu stjórnmálaafla
landsins, víðfrægur fyrir pólitíska
Sakaður um að
vera félagi í
mafíunni
slægð og eitraða kímnigáfu sína.
Andreotti virtist halda ró sinni og
sjálfsöryggi í gær. „Það er með
hryggð í huga að ég horfi fram á
óréttlát réttarhöld. Ég hélt að hræði-
leg, tveggja ára bið [meðan rann-
sóknin fór fram] myndi nægja til
að leiða sannleikann í ljós.“
Flugferðir kannaðar
Málsskjöl eru alls um 90.000 blað-
síður, þar á meðal eru skýrslur um
hleruð símtöl og leiðsögubækur flug-
véla sem Andreotti ferðaðist með á
ráðherraárum sínum. Bækurnar á
m.a. að nota til að sanna að hann
hafi átt leynilega fundi með mafíu-
foringjum.
Veijendur, einn þeirra er níræður,
segja að sönnunargögnin séu full
af þversögnum og þau byggist á
lygum fyrrverandi mafíumanna.
Sjálfur hefur Andreotti sagt að
málið sé samsæri mafíunnar eða
bandarísku leyniþjónustunnar, CIA,
jafnvel beggja. Markmið þeirra sé
að hefna sín vegna laga gegn glæp-
um sem hann hafi staðið fyrir og
vegna skorts á þjónkun hans við
sjónarmið Bandaríkjamanna.
Reuter
Sjónvarps-
maður
syrgður
RÚSSNESKA þjóðin syrgði
í gær ástsælan sjónvarps-
mann, Vladíslav Lísljev,
sem myrtur var við heimili
sitt í Moskvu í fyrrakvöld.
Borís Jeltsín forseti hét að
efla baráttuna gegn skipu-
legri glæpastarfsemi en tal-
ið er að leigumorðingi hafi
verið að verki og morðið
skrifist á sjónvarpsstarfs-
menn sem notuðu aðstöðu
sína í auglýsingadeild til að
skara eld að eigin köku.
Stöðugur straumur fólks,
sem vildi sýna hinum látna
virðingu sína, var að heim-
ili Lístjevs í gær. Lögðu
margir blóm að húsinu.
■ Rekur saksóknara/17
Saka Leeson
um skjalafals
Frankfurt, London. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Singapore segjast
gruna breska bankamanninn Nick
Leeson, sem kyrrsettur var í Frank-
furt í gærmorgun, um að hafa falsað
skjöl til að blekkja yfírmenn sína
hjá Baringsbanka í London og nemi
fjárhæðin rúmlega 5 milljörðum
króna. Fyrir helgi olli Leeson hruni
Baringsbanka með braski á verð-
bréfamörkuðum Singapore þar sem
hann starfaði fyrir bankann.
Stjórnarerindrekar í Bonn sögðu
að þýsk yfirvöld hefðu fengið hand-
tökuskipun á Leeson frá fulltrúum
Singapore þar sem kæmu fram ásak-
anir er gætu orðið grundvöllur fram-
sals mannsins.
Talið væri að hann hefði falsað
skjal er staðfesti greiðslu um
7.778.000.000 jena, rúmlega fimm
milljarða króna, frá bandarísku fyr-
irtæki. Samkvæmt skjalinu fór
greiðslan inn á reikning verðbréfa-
deildar Barings hjá Citibank í Singa-
pore og segja yfirvöld þar að Leeson
hafí með þessu reynt að blekkja yfír-
menn sína í London.
Fyrir dómara
Leeson verður færður fýrir þýsk-
an dómara í dag og mun hann úr-
skurða hvort orðið verði við fram-
salsbeiðni Singapore en búist var við
því að sendimenn þarlendra kæmu
til Þýskalands í dag með formlega
beiðni. Talið er að það geti tekið
Þjóðveija nokkra mánuði að komast
að niðurstöðu, svo flókið sé málið.
Bretar óska ekki eftir framsali.
Nú mun ljóst að Elísabet II. Breta-
drottning tapar sem svarar rúmlega
50 milijónum króna á hruni Barings-
banka. Hollensk fjármálasamsteypa
bauð í gær táknræna fjárhæð, eitt
pund, í bankann sem úrskurðaður
hefur verið gjaldþrota.
Reuter
NICK Leeson sést hér í fylgd varða á flugvellinum í Frankfurt í gærmorjgun,
Miðli dæmdur einkaréttur
á forn-egypskum anda
Vín, Washington. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKUM miðli hefur verið dæmdur
einkaréttur á 35.000 ára gömlum egypskum
anda. Miðlinum, Judy Knight, 46 ára, var stefnt
fyrir rétt í Austurríki af þýskum kvenmiðli, sem
sagðist hafa einkarétt á andanum Ramtha.
Frú Knight sagði dómaranum að hún hefði
náð sambandi við andann árið 1978 og að hún
þarfnaðist hans rétt eins og hann hennar. And-
stæðingur hennar, Julie Ravel, 53 ára, lagði
einnig mikla áherslu á að halda Ramtha. „Hann
kemur hugsunum sínum og orku á framfæri i
gegnum mig og aðeins mig. Ég gæti hans,“
sagði hún.
Sagði dómarinn Knight hafa áralanga
reynslu í að ná andlegum tengslum við Ramtha,
þýski miðillinn hefði brotið á rétti Knight með
því að reyna að eigna sér andann aldna. Ravel
fullyrti að hann hefði náð sambandi við sig er
hún var stödd í glervöruverslun. Hún greindi
fylgismönnum sínum frá þessu á fundi í austur-
rískum kastala, þar sem hún rekur miðstöð í
djúpsálarfræðum. Ravel hyggst áfrýja úrskurð-
inum.
Knight hefur flutt skilaboð frá Ramtha í 15
ár, m.a. ráðleggingar í fjármálum og gefið út
fjölda bóka og myndbanda um sambandið, hún
græðir á tá og fingri. Fylgismönnum hefur
fjölgað stöðugt og þeirra á meðal var kvik-
myndaleikkonan Shirley MacLaine þar til fyrir
skemmstu. Safnast hópurinn saman á heimili
Knight í Yelm í Washington-ríki þar sem hún
heldur miðilsfundi.
Bann við fjárlaga-
haila féil naumlega
Washington. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings
felldi í gær tillögu um breytingar á
stjórnarskránni sem bannað hefði
þinginu að samþykkja fjárlög með
halla. Er það fyrsta mál repúblikana
sem ekki nær fram að ganga á nýja
þinginu en þeir hafa þar meirihluta.
Tillagan var reyndar samþykkt,
með 65 atkvæðum gegn 35, en hefði
þurft að fá 67 atkvæði til þess að
verða að lögum. Allir 53 þingmenn
repúblikana utan einn, Mark Hatfield
frá Oregon, greiddu tillögunni at-
kvæði ásamt 14 demókrötum af 47.
Gengishrun dollarans
London. Reutcr.
BANDARÍKJADOLLARI féll í gær hann í 96,03 jen. Dollarinn féll einn-
á ókyrrum mörkuðum og var lægri ig gagnvart þýska markinu í gær.
gagnvart jeninu á Evrópumörkuðum Öljóst er hvað olli verðfallinu í
en nokkru sinni eftir stríð. gær. Bandaríski seðlabankinn keypti
Er mörkuðum var lokað var doll- mikið af dollurum til að reyna að
ari metinn á 95,70 jen, í fyrra fór styrkja gjaldmiðilinn.