Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 15 VIÐSKIPTI Hagnaður Sæplasts 10 milljónir króna Útflutning- urjókst um 20%milliára HAGNAÐUR af rekstri Sæplasts hf. var 10,1 milljón króna á árinu 1994. Rekstrartekjur voru 361 milljón og hagnaðurinn því 2,8% af rekstrartekjum. Árið 1993 skil- aði rekstur Sæplasts 12,2 milljóna hagnaði eða sem svaraði 3,9% af 307,8 milljóna rekstrartekjum. Rekstrartekjur jukust milli ára um 17%. Rekstrargjöld Sæplasts án fjár- magnsgjalda námu 332,1 milljón samanborið við 272,4 milljónir árið 1993. Hækkunin milli ára nemur 22%. „Framleiðslukostnaðurinn hækkaði um tæp 33% á milli ára og er nú um 55% af veltu,“ sagði Kristján Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri Sæplasts í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði enn- fremur að þessa miklu hækkun mætti fyrst og fremst rekja til hækkunar á hráefni síðari hluta síðasta árs. Sölukostnaður hefði hins vegar lækkað sem hlutfall af veltu, úr 31,1% í 29,3%. Samkvæmt ársreikningi var gjaldfært framlag Sæplasts á af- skriftarreikning 8,4 milljónir á síð- asta ári og lækkaði lítillega milli ára. Fjármagnsgjöld voru óveruleg í fyrra eða um 54 þúsund saman- borið við 7,4 milljónir árið áður. Hagnaður af reglulegri starf- semi Sæplasts var 28,8 milljónir króna á síðasta ári en tæpar 28 milljónir árið áður. „Við færðum niður 16,6 milljónir til að mæta eftirstöðum tæknisamnings við Tækniplast hf. upp á um 12 millj- ónir og tjónabótum í kjölfar sölu fasteignar upp á tæpar fimm millj- ónir,“ sagði Kristján. „Það hefur verið málarekstur í gangi vegna tæknisamningsins undanfarin ár og í desember síðastliðnum féll dómur í málinu í héraðsdómi og hefur stjórn félagsins áfrýjað hon- um til hæstaréttar.“ Eigið fé 255,9 milljónir króna í árslok Heildareignir Sæplasts voru í árslok 1994 bók’færðar á 397,4 milljónir en skuldir námu 141,6 milljónum. Eigið fé Sæplasts var Þró unarfélagið vill sameinast Draupnissjóðnum ÞRÓUNARFÉLAG íslands hf. hefur gert tilboð um kaup á stærstum hluta hlutabréfa Iðnþróunarsjóðs og Iðn- lánasjóðs í fjárfestingarfyrirtækinu Draupnissjóðnum hf. með það að markmiði að sameina félögin. Þetta kom fram í ræðu Ragnars Ónundar- sonar, stjórnarformanns' Draupnis- sjóðsins, á aðalfundi félagsins í gær. Vegna óvissu í þessu máli var fundin- um frestað þegar kom að kjöri stjórn- ar. Iðnþróunarsjóður á samtals 54% hlut í Draupnissjóðnum, Iðnlánasjóð- ur 20%, Lífeyrissjóður verslunar- manna 7%, Sameinaði lífeyrissjóður- inn 4% og Lífeyrissjóður Austurlands 4%. Árið 1994 var sjöunda starfsár félagsins sem hefur það að markmiði að fjárfesta í hlutabréfum óskráðra fyrirtækja og stunda viðskipti með hlutabréf skráðra félaga. Ragnar greindi frá því í ræðu sinni í gær að félagið hefði verið kaupandi eða seljandi í um 8% þeirra viðskipta sem skráð voru í helstu félögum á Verð- bréfaþingi Islands og Opna tilboðs- markaðnum á árinu 1994. Hagnaður Draupnissjóðsins á sl. ári nam alls 47,3 milljónum saman- borið við 4 milljóna hagnað árið áður. Þessi umskipti í afkomunni skýrast að miklu leyti af hækkun á markaðs- virði hlutabréfaeignar félagsins á árinu eftir lækkun á árinu áður. Á árinu voru keypt hlutabréf fyrir 70,7 milljónir og seld bréf fyrir 118,3 milljónir. Fjöldi viðskipta var 114 eða um 4,5% skráðra viðskipta í félögum öðrum en hlutabréfasjóðum. Heildareignir félagsins í árslok námu alls 778 milljónum en þar af námu hlutabréf 389,6 milljónum, skuldabréf 200,4 milljónum og skammtímabréf 177,2 milljónum. Félagið átti bréf í 22 félögum í árs- lok 1994 og er stærsta einstaka fjár- festing 26% hlutur í Nýheija að flár- hæð 65 milljónir. Eigið fé í árslok nam 726,8 milljónum. Dræm viðbrögð Stjórn félagsins tók ákvörðun um það á haustmánuðum að kanna markað fyrir hlutabréf félagsins með því að bjóða til sölu eigin hlutabréf þess að nafnvirði 32,5 milljónir. Var leitað til lífeyrissjóða, bæði núver- andi hluthafa og nýrra auk trygg- ingafélaga og þeim boðið að kaupa hlutabréf á genginu 1,39. Markmiðið var m.a. að fjölga hluthöfum nægi- lega til að unnt yrði að skrá félagið á Opna tilboðsmarkaðnum, en til þess þarf a.m.k. 25 hluthafa. Frarri kom hjá Ragnari að viðbrögð fjár- festa hefðu verið misjöfn og óneitan- lega valdið vonbrigðum. Undirtektir voru þó nægar til að unnt hefði ver- ið að skrá félagið á Opna tilboðs- markaðnum. Áður en endanleg við- brögð lágu fyrir gerðist það hins vegar að Þróunarfélag Islands gerði Iðnþróunarsjóði og Iðnlánasjóði til- boð um kaup á stærstum hluta hluta- bréfa þeirra í Draupnissjóðnum með það að markmiði að sameina félögin. „í ljósi þessa tilboðs ákvað stjórn Draupnissjóðsins að setja sölu eigin hlutabréfa í biðstöðu um sinn þar til ljóst yrði hvort Þróunarfélagið keypti umrædd bréf. Á hinn bóginn getur einnig komið til þess að Draupnis- sjóðurinn starfi áfram um sinn með óbreyttu sniði enda hafa stjórnvöld markað stefnu um áframhaldandi starf Iðnþróunarsjóðs á næstu miss- eruin," sagði Ragnar. Á aðalfundinum vár samþykkt að greiða 7% arð af nafnverði hlutafjár og jafngildir það 5% arði af eigin fé félagsins. Fjarskipti NTTí Japan í bandalag AT&T Tokyo. Reuter. STÆRSTA fjarskiptafyrirtæki Japans, Nippon Telegraph and Telephone (NTT), hefur ákveðið að ganga í alþjóðlegt fjarskipta- bandalag undir forystu AT & T í Bandaríkjunum og tryggir því þar með yfírburði í samkeppni við önn- ur bandalög, sem komið var á fót 1993. NTT tilkynnti að í apríl mundi fyrirtækið ganga í World Partn- ers, samtök 10 stórra fjarskipta- fyrirtækja, þar á meðal Kokusai Denshin Denwa í Japan, Singap- ore Telecom og Telstra í Ástralíu auk AT&T. Leitað eftir samvinnu Concert, sameignarfyrirtæki British Telecom og MCI Com- munications í Bandaríkjunum, mun einnig hafa leitað eftir sam- vinnu við NTT. Talsmaður NTT segir að aðild að Partners komi ekki í veg fyrir samkomulag við BT og önnur samtök. Að þriðja alþjóðlega fjarskipta- bandalaginu standa Deutsche Telecom, France Telecom og Spring, sem er þriðja stærsta langlínusímstöð Bandaríkjanna og hefur engin formleg tengsl við stöðvar í Asíu. ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI á trollkúlum jókst um tæplega 40% l\já Sæplasti á sl. ári. Á myndinni er Kristján Aðalsteins- son, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. 255,9 miljónir í árslok og eiginfjár- hlutfall 64% samanborið við 66% árið á undan. Arðsemi eigin fjár 1994 var 4,2% en 5,2% árið 1993. Sala Sæplasts á innanlands- markaði var 184,3 milljónir á síð- asta ári eða 51,3% af heildarsölu. Salan skiptist þannig að sala á fiskkeijum innanlands var 29,5% af heildarsölu, sala á fiskkerjum erlendis 40,5%, trollkúlur innan- lands 11,0%, trollkúlur erlendis 8,2% og rotþrær, tankar og plast- rör 10,8%. 40% aukning á útflutningi trollkúla Útflutningur Sæplasts jókst um 20,4% á síðasta ári. Þar vegur þyngst veruleg aukning á sölu trollkúlna, en útflutningsverðmæti þeirra jókst um tæplega 40%. Út- flutningsverðmæti fiskkerja jókst um tæplega 15% á milli ára. Sam- tals voru flutt út ker og trollkúlur til 30 landa á síðasta ári. Sala innanlands jókst um 13,6% milli ára og vegur þar nokkuð sala á plaströrum sem félagið hóf að framleiða á árinu. Sala á fiskkerj- um var svipuð og árið á undan en sala á trollkúlum dróst nokkuð saman en sala á trollkúlum innan- lands dróst hins vegar saman á árinu. „Við gerum ráð fyrir um 15% veltuaukningu á þessu ári,“ sagði Kristján og ennfremur að framtíð- aráform fyrirtækisins miðuðu að því að hagnaður yrði 10-15% af veltu. Full búð af nýjum vörum. Jokkar óður 9.990 Peysur ódur 5.490 Uyrtur óður 3.590,- nú 900,- tiWíoMcprófor i2990 8uxur óður 4.790 Jakkar óður 12.990, Pils ó5ur 3.790, Buxur áður 4.690, Peysur áður 5.990, Kjólar áður 6.490, Kápur áður 14.990, Bolir áður 3.990, Skór áður 5.900,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.