Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 39
MORGUN BLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 39
FRÉTTIR
Utsölulok á
Löngum laugardegi
LAUGARDAGINN 4. mars er Langur
laugardagur á Laugavegi og í ná-
grenni. A Löngum laugardegi eru
verslanir á svæðinu opnar til kl. 17.
Þennan Langa laugardag verða
ýmis sértilboð í gangi. Margar versl-
anir eru nú að ljúka útsölum sínum
og bjóða af því tilefni útsöluvörur á
lágmarksverði.
Á öskudaginn sl. miðvikudag heim-
sóttu þúsundir krakka Laugaveginn
og sungu fyrir verslunarfólk og fengu
sælgæti að launum. Nokkrir krakka-
hópar verða í bænum á Löngum laug-
ardegi og ætla að syngja fyrir vegfar-
endur klæddir grimubúningum.
Spörtugetraun verður í gangi. Þátt-
tökuseðlar verða afhentir í Spörtu,
Laugavegi 49. Fimm vinningar eru í
boði frá versluninni. Mörg veitingahús
verða með tilboð í tilefni dagsins eins
og venjulega.
■ HÚNVETNJNGAFÉLAGIÐ í
Reykjavík heldur árshátíð sína í
Akoges-salnum, Sigtúni 3, laug-
ardaginn 4. mars. Að venju verða
skemmtiatriði úr heimabyggð.
Heiðursgetsur kvöldsins verður
Stefán A. Jónsson, bóndi á Kagað-
arhóli og veislustjóri verður Þórður
Skúlason fyrrverandi sveitarstjóri
á Hvammstanga.
■ FYRIRLESTUR verður á veg-
um Sólstöðuhópsins í Norræna
húsinu laugardaginn 4. mars kl.
13. Fyrirlesari er Andrés Ragn-
arsson, sálfræðingur. Fyrirlestur-
inn ber heitið: Að segja samvisku-
bitinu upp. Aðgangseyrir er 500
kr. Eftir fyrirlesturinn verða pall-
borðsumræður. í pallborði munu
m.a. sitja þau Baldvin Steindórs-
son, sálfræðingur og Olga Dagm-
ar Erlendsdóttir, nemi. Tónlist
verður einnig flutt. Sólstöðuhátíð
1995 verður-haldin að Laugar-
landi í Holtum um mánaðamótin
júní og júlí eða nánar tiltekið frá
30. júní til 2. júlí. Undirbúningur
er hafinn. Hátíðin mun bera yfir-
skriftina: í hjartans einlægni.
■ SKAGFIRÐINGAR norðan og
sunnan heiða verða með fagnað í
Félagsheimilinu Drangey,
Stakkahlið 17, laugardaginn 4.
mars nk. sem hefst með borðhaldi
kl. 20. Á dagskrá verður söngur,
gamanþáttur, happdrætti o.fl.
Hermann Jónsson frá Lambsnesi
í Fljótum og Steinar Ingi Eiríks-
son frá Siglufirði spila fyrir dansi.
Aðgangseyrir er 1.900 kr. Allur
ágóði rennur til þess að styrkja
Félagsheimilið Drangey, Stakka-
hlíð 17. Húsið verður opnað kl.
18.30 og aðgöngumiðarnir afhentir
við innganginn.
■ KYNNING á frambjóðendum
Alþýðuflokksins á Reykjanesi
verður föstudaginn 3. mars kl. 21
í Félagsheimili Kópavogs, Fann-
borg 2 (suðurdyr - veislusalur á
neðstu hæð). Kynningin er opin
öllum stuðningsmönnum flokksins.
WtÆkWÞAUGL YSINGAR
Bifreiðauppboð
Bifreiðauppboð verður haldið á athafnasvæði
Vöku á Eldshöfða 6, Reykjavík, laugardaginn
4. mars 1995 kl. 13.30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Fjölskylda óskast
í þrjá mánuði handa 16 ára sænskri stúlku,
sem dvelur hér sem skiptinemi.
Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá ASSE
í síma 91-565 5670 milli kl. 09.30-12.30 alla
virka daga.
FÉLAGSSTARF
Kópavogsbúar
Opið hús
Opíð hús er á hverj-
um laugardegi milli
kl. 10og 12ÍHamra-
borg 1, 3. hæð.
Bragi Mikaelsson,
bæjarfulltrúi, og
ÓlafurG. Einarsson,
menntamálaráð-
herra, verða til við-
tals á morgun, laug-
ardaginn 3. mars.
Allir velkomnir. Kaffi á könnunni.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
I.O.O.F. 12 = 176338'/! = Sp.
I.O.O.F. 1 = 176338 I, = Fl.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ingólfsstraeti 22
Áskrittarsfmi
Ganglera er
989-62070
Föstudaginn
3. mars 1995
I kvöld kl. 21.00 heldur Gunn-
laugur Guðmundsson erindi um
heildarmynd sjálfsræktar í húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá
kl. 15-17 með fræðslu Elíasar
Sveinssonar um tilfinningar
ásamt umræðum. í Guöspekifé-
laginu er fjallað fordómalaust
um andleg mál á breiöum
grunni. Starf félagsins er ókeyp-
is og öllum opið.
Kristalsskóli íslands
Við erum að fara í gang með
nýtt námskeiö í kristalheilun í
húsakynnum Sálarrannsóknar-
skólans á Suðurlandsbraut 16,
mánudaginn 6. mars kl. 19.30.
Nánari upplýsingar í símum
98-13812 og 92-15862.
Alþjóðlegur
bænadagur kvenna
Almenn samkoma verður i kvöld
i Dómkirkjunni kl. 20.30. Elsabet
Daníelsdóttir stjórnar. Málfríður
Finnbogadóttir, Eirný Ásgeirs-
dóttir og Katrín Söebeck tala.
Kór aðventista syngur. Samskot
til hjálparstarfs í Rúanda.
Allir velkomnir.
Frummœlendur:
Ingibjörg Sólrún
Gtsludóttir, borgarstjóri,
„Heð femíntsma t farteskinu“.
Guöný
Guðbjörnsdóttir, dósent,
„Kvenfrelsi og kjarabarútta".
Þórunn
Sveinbjurnurdóttir,
„Aógerðir t stad orða“.
MANNRETTINDI
KVENFRELSI,
OG SAMÁRYRGÐ
Opinn fundur d Hótel Borg d morgun,
luugurdug, kl. 14:00. Alíir velkomnir!
Fundarstýra
Rugnhildur
Vigfúsdóttir.