Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 03.03.1995, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Alvarlegiir niðurskurður Reksturskostnaöur 1991 - 1994 Kristín Á. Ólafsdóttir SAMEIGINLEGUR rekstrarkostnaður Borgarspítalans og Land- kots 1991-1994. Verðlag 1994. Framlög tll stofnkostnaðar FRAMLÖG til stofnkostnaðar og eðlilegrar enduriiýjunar á Borg- arspitala og Landkoti 1992-1994. Verðlag hvers árs. SJÚKRAHÚSIN í Reykjavík eru í vanda stödd vegna fjár- skorts. í fjárlögum fyrir yfirstandandi ár vantar meira en hálf- an milljarð króna til þess að Landspítalinn, Borgarspítalinn og Landakot hafi fjár- veitingar fyrir sömu starfsemi og í fyrra. Sameiginlega ættu Borgarspítalinn og Landakot, út frá íjár- lögum, að draga sam- an seglin og/eða auka sértekjur fyrir meira en 300 milljónir króna. Samning- ur, sem gerður var í nóvember sl, ver þó spítalana þannig að spamaðarkrafan hljóðar „aðeins“ upp á 180 milljónirkróna á þessu ári. 180 milljón króna niðurskurður er sár og afdrifaríkur, ekki síst vegna þess að hart hefur verið gengið að spítulunum undanfarið. Ljóst er að viðbótarspamaður næst ekki nema með niðurskurði á þjónustu við sjúklinga og fækk- un starfsfólks. Fyrri áfangi niðurskurðar í febrúarlok tók bráðabirgða- stjóm Sjúkrahúss Reykjavíkur (Borgarspítalinn og Landakot) ákvarðanir sem eiga að spara 125 milljónir króna á árinu. Áður höfð- um við, stjómarformenn spítal- anna tveggja, gert skriflega grein fyrir þeim alvarlegu afleiðingum sem við teljum aðgerðimar hafa. Við óskuðum eftir því að fjármála- ráðherra og heilbrigðisráðherra mætu í því ljósi hvort ekki væri rétt að slaka á spamaðarkröfunni. Neikvæð svör komu frá fulltrúum ráðherranna, sem sitja ásamt okk- ur og fulltrúa Reykjavíkurborgar í bráðabirgðastjórninni. Fyrir lok marsmánaðar er stjórnendum spít- alanna ætlað að ákveða hvemig spara megi 55 milljónir til viðbótar þeim sem fóm undir hnífinn um mánaðamótin. Þegar ákveðnar að- gerðir koma niður á flestum sviðum starf- seminnar. Þrengt verður að möguleikum endurhæfingadeilda með því að flytja þangað langlegusjúkl- inga og losa þannig húsnæði og rekstr- arfé. Starfsfólki verð- ur fækkað. Sá sam- dráttur mun bitna á hjúkran og lækningum sem og almennum rekstri og viðhaldi. Færra starfs- fólk verður til þess að sinna sjúk- um, m.a. bráðveiku fólki. Þjónustan ófullnægjandi Langflestir sjúklingar Borgar- spítalans era svokallaðir bráða- sjúklingar, þ.e.a.s þeir koma þegar spítalinn hefur bráðavaktir, hálft árið á móti Landspítalanum, eða vegna slysa. Það er því ekki á valdi spítalans að stjórna fjölda sjúklinga. En því færra sem starfs- fólkið verður eykst álagið, og þeim mun meira sem fleiri sjúklingar af bráðavöktum eða slysadeild eru lagðir inn. í greinargerð frá fag- legum stjórnendum spítalans nú í febrúar segir m.a.: „Eftirspurn og raunveraleg þörf fyrir þjónustu spítalans hefur jafnan verið meiri en hægt hefur verið að sinna. Að undanfömu hefur enn meira borið á því en áður og era lengri biðlist- ar órækasta vitnið um það svo og allmörg tilvik, sem upp hafa kom- ið og verið kærð og rekja má að veralegu leyti til aukins umsetn- ingarhraða og óhjákvæmilegrar viðleitni starfsmanna til að komast hjá innlögnum sjúklinga." Verði spamaðarkröfunni upp á Heilbrigðisþjónustan í Reykjavík er, að mati Kristínar Á. Ólafs- dóttur, sett í verulega hættu með of miklum niðurskurði. 180 milljónir króna haldið til streitu verður ekki hjá því komist að loka deildum umfram hefð- bundnar sumarlokanir. Hætt er við að það bitni á þjónustu spítal- anna við geðsjúka og aldraða. Bráðlæti fjárveitingarvaldsins Til marks um aðhaldið undan- farið era tölur yfir rekstrarkostnað Borgarspítalans og Landakots síð- ustu fjögur ár. Árið 1991 voru lögð drög að sameiningu spítal- anna í eitt sjúkrahús. Svo virðist sem fjárveitingarvaldið hafi í bráð- læti sínu eftir sparnaði af væntan- legri sameiningu tapað bæði raun- sæi og sanngirni. Þó er skýrt tek- ið fram í áliti nefndar undir for- mennsku ráðuneytisstjóra heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins í árslok 1991, að til þess að ná hagræðingu og sparnaði með sameiningu spítalanna tveggja, þurfi veralegar fjárfest- ingar vegna lúkningar ófullgerðra bygginga á Borgarspítala, breyt- inga og nýbygginga, auk þess sem gera þurfi minni háttar breytingar á Landakoti. „Nefndin telur að verði þessar breytingar að mestu leyti framkvæmdar á áranum 1992 og 1993 muni sparnaður koma fram í rekstri nýs spítala á árinu 1994 m.v. rekstrarkostnað þessara tveggja spítala eins og hann er nú. A árunum 1992 og 1993 þurfa spítalarnir hlutfalls- lega sama rekstrarfé og í ár þótt af sameiningu verði og fjárfesting- arfé 300-500 m.kr. á hvoru ári“ (leturbreyting mín). Engin sameining varð 1992. Það ár hófust þó verulegir verk- efnaflutningar frá Landakoti á Borgarspítala og samvinna spítal- anna á ýmsum sviðum. En ekki fengu spítalarnir næstu árin „hlut- fallslega sama rekstrarfé" og á árinu 1991 og ekkert í líkingu við það fjárfestingafé sem nefndin taldi nauðsynlegt. Sameiginlegur rekstrarkostnaður spítalanna tveggja lækkaði um 27 milljónir milli áranna 1991 og 1992f Svipað gerðist árin 1993 og 1994, þannig að sparnaðurinn síðustu 3 árin, iniðað við rekstrarkostnað spítal- anna árið 1991 nam rúmum 700 milljónum króna (mynd 1). Um síðustu áramót vora stöðugildi spítalanna 171 færri en í árslok 1991, hafði fækkað um nær 10% á tímabilinu. Viðurkennt var að fjárfesta þyrfti fyrir 600-1000 milljónir áð- ur en hægt væri að reikna með hagræðingu af sameiningunni. Raunin varð sú, að spítalarnir fengu 278 milljónir króna til stofn- kostnaðar og eðlilegrar endurnýj- unar á árunum 1992-1994. (Mynd 2.) Fjárveitingarvaldið heimtar hagræðingu og sparnað en leggur ekki sjálft það af mörkum sem til þarf. Samkomulag og endurmat Þegar ný stjórn tók við Borgar- spítalanum í júní sl. var óbættur 124 milljóna króna halli af rekstri spítalans 1993 og stefndi í rúma 300 milljóna króna fjárvöntun 1994. Eftir strangar viðræður við Aðför Fínpússningar að Vikri hf. og Reykjavíkurborg VEGNA blaðagreinar Baldurs Hannessonar framkvæmdarstjóra Fínpússningar sé ég mig knúna til þess að svara fullyrðingum hans varðandi starfsemi Vikurs hf. og mun ég gera það lið fyrir lið. Fullyrðingar: 1) Styrkur Reykjavíkurborgar var ókeypis húsnæði og aðgangur að vélbúnaði. Stofnsamningur Vikurs hf. er dags. 4. mars 1993 og var þá haf- in leit að hentugu húsnæði fyrir reksturinn. Verksmiðjan á Köll- unarklettsv. 5 varð þá fyrir valinu þar sem leigusamningur Faxamjöls var að renna út. Gengið var til samninga við Markús Örn þ.v. borgarstjóra og vel tekið í málaleit- an okkar. Að vísu fylgdi sá bögull skammrifi að rífa átti verksmiðjuna og því urðu allar endurbætur sem gera þurfti á húsnæðinu að vera á kostnað Vikurs. Einnig var um það samið að Vikur sæi um að rífa nið- ur ónothæfan búnað og hreinsun á verksmiðjunni væri á kostnað fyrir- tækisins. Faxamjöl hf. þurfti svig- rúm til þess að fjarlægja þann bún- að sem verðmæti vora í og varð sá tími sem það tók talsvert lengri en gert var ráð fyrir í upphafi, endanleg afhending á öllu húsnæðinu fór fram í okt. sl. Tíminn sem fór í að gera verk- smiðjuna tilbúna til þess að hefja þá þróun- arvinnu sem unnin er hér varð tíu mánuðum lengri en gert var ráð fyrir í áætlunum Vik- urs. Viðgerðar- og hreinsunarkostnaður á húsnæðinu fór einnig langt umfram áætlanir fyrirtækisins og er kostnaðurinn u.þ.b. 16 millj. kr. Reykjavíkurborg á hús- næðið, ekki vélbúnaðinn, og var hluti þess vélbúnaðar sem notaður er í verksmiðjunni keyptur af Faxa- mjöli hf., og var kaupverðið 6 millj. kr. Annar vélbúnaður hefur verið kostaður af fyrirtækinu og að mestu smíðaður af starfsmönnum Vikurs. 2) Ógerningur að selja þurrk- aðan vikur. Eins og fram kom í fyrsta lið þá er ekki langur tími síðan hafinn var fram- leiðsla og þróunar- vinna á fullunum vikri í verksmiðjunni og sá tími sem það tekur að markaðsetja og þróa nýja vöt-u talsvert lengri en nokkrir mán- uðir eins og þeir vita sem það hafa gert. Vikur hf. framleiðir í dag fjóra vöruflokka, þrír þeirra eru nú þeg- ar á innanlandsmark- aði, þ.e. Kattasandur, Hálkubani og Heklu- vikur, og fjórða vöra- tegundin fer á almenn- an markað eftir hálfan mánuð en það er Olíugleypir. Allar þessar vörar hafa verið prófaðar af inn- lendum og erlendum aðilum og ekki settar á markað fyrr en gæð- in hafa verið sönnuð. í sambandi við markaðsetningu erlendis þá er um nokkra vöruflokka að ræða og prófun er í fullum gangi hjá sam- starfsaðilum Vikurs ytra, þessar prófanir era mjög dýrar og alfarið kostaðar af erlendu fyrirtækjunum. Vikur hf. stendur fyrir nýsköpunarverkefni, segir Ástdís Kristjáns- dóttir, sem í grein þess- ari svarar gagnrýni á fyrirtækið. Bráðabirgðaniðurstöður úr þessum prófunum liggja fyrir og má búast við sölu erlendis á framleiðslu Vik- urs á næstu mánuðum. 3) Sneri sér að sandblásturs- sandi. Sölutölur Vikurs á síðasta ári fyrir sandblásturssand er innan við hálf milljón kr. og í raun ekkert unnið í markaðsstarfí fyrir þessa vöra. 4) Ekkert greitt í húsaleigu. Greidd húsaleiga á þessu ári nemur u.þ.b. sex hundruð þúsund- um kr. en rétt er að skuldin er umtalsverð, hins vegar hefur fyrir- tækið notið biðlundar Reykjavík- urborgar og þá hefur væntalega Ástdís Kristjánsdóttir verið tekið tillit til kostnaðar Vik- urs við húsnæðið, sbr. lið 1. 5) Vikur hf. hefur lagt undir sig markaðinn á sandblásturssandi. Sjá sölutölur, lið 3. 6) Lág leiga. Greinahöfundur getur ekki tekið undir þá fullyrðingu að leiguupp- hæðin sé lág og ef tekið er tillit til viðgerðarkostnaðar Vikurs hf. þá er hún mjög há. Rífa átti hús- næðið eins og áður hefur komið fram og það hlýtur að teljast hagur borgarinnar að fá greitt .fyrir það og sér í lagi þar sem allar endur- bætur era kostaðar af leigjanda. Vikur hf. stendur fyrir nýsköpunar- verkefni í sambandi við fullunninn vikur og gengur það vel að mínu mati, hins vegar er því ekki að neita að þungur róður hefur verið hjá fyrirtækinu í sambandi við fjár- mögnun til þróunar- og markaðs- vinnu. Stefna Vikurs hf. er að þróa fullunna vöru úr vikri og segja má að möguleikarnir í vöruþróun byggðri á þessari auðlind okkar íslendinga séu óþrjótandi. Hins vegar er kostnaðurinn við vöruþró- un og markaðsstarf mjög mikill og óneitanlega getur það tafið fram- gang mála þegar fjármagn er af skornum skammti. Áætlaður starfsmannafjöldi verksmiðjunnar í fullum rekstri er 30-40 og hafa starfsmenn verið 5-18 til þessa dags. Höfundur er frnmk væmdnrstjóri Vikurs hf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.