Morgunblaðið - 03.03.1995, Síða 8

Morgunblaðið - 03.03.1995, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR __ Konsertþáttur eftir Askel Masson hlýtur lof KONSERT- ÞÁTTUR eftir tónskáldið Áskel Másson fyrir litla trommu og hljómsveit hlaut frábærar við- tökur á tónleik- um sinfón- íuhljómsveitar Baltimore í Maryland í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Var verkið flutt þrisvar, 10., 11., og 12. febrúar og risu áheyrendur fagnandi úr sætum á öllum tónleik- unum. Hljómsveitarstjóri var hinn heimsþekkti Ivan Fischer. Áheyrendur í Baltimore risu fagnandi úr sætum Sinfóníuhljómsveit íslands flutti konsertþáttinn, sem er tíu mínútna languv, fyrst í september árið 1982 og hefur hann verið fluttur víðs vegar um heim síðan við góðan orðstír, meðal annars í Bretlandi, Venesúela, Sviss, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Til dæmis var þess getið í umsögn um flutning sinfón- íuhljómsveitar Cincinnati á verkinu fyrir tveimur árum að Áskell ætti „heiður skilinn fyrir óvenjulegt, spennandi og hugvitsamlegt verk“. Slagverksleikarinn skoski Evel- yn Glennie lék með sinfóníuhljóm- sveitinni á tónleikunum í Baltimore og hlaut mikið lof fyrir túikun sína. Glennie, sem er 29 ára, er eini slag- verksleikari heims sem ferðast ein- göngu um sem einleikari og hefur leikið með mörgum helstu sinfóníu- hljómsveitum veraldar. Hinn 12. apríl mun Glennie leika Konsertþáttinn í Zúrich og 18. maí leikur hún einleikshlutverkið j öðru verki, Marimbukonsert Áskels Mássonar, með Sinfóníuhljómsveit fslands. Áskell Másson Fjármála- handbækur fyrir al- menning BÚNAÐARBANKI íslands hefur gefið út tvær bækur um fjármál. Nefnist önnur Fjármál heimilis- ins en hin Fjármál unga fólksins. Er markmiðið með útgáfunni að benda fólki á leiðir til að öðlast betri yfirsýn yfir fjárreiður sín- ar,_segir í frétt frá bankanum. I Fjármálum heimilisins er bent á leiðir til að bæta rekstur heimilisins auk fræðslu um skattamál, lánamál, ávöxtunar- leiðir og fleira. Sem dæmi má nefna að fjallað er um heimilis- bókhald og áætlanagerð, farið út í útreikninga á tekju- og eign- arskatti, barna- og vaxtabótum. Einnig eru upplýsingar um skatt- afrádrátt vegna hlutabréfa- kaupa, fjallað um bætur frá Tryggingastofnun og leiðir til ávöxtunar sparifjár. Fjármál unga fólksins er ætluð fólki á aldrinum 16 til 26 ára en markmiðið er að leiðbeina ungu FJÁRMÁLAHANDBÆKURBúnaðarbankans. fólki við að feta sig á fjármála- brautinni, til dæmis hvað beri að hafa i huga við lántökur, bíla- og íbúðarkaup. Farið er út í kostnað við að búa á eigin veg- um, laur.aútreikning, stað- greiðslu skatta, lífeyrissjóði, or- lof og atvinnuleysisbætur. Jafn- framt eru upplýsingar um Lána- sjóð ísienskra námsmanna, út- borgun og endurgreiðslur. Bækurnar eru gefnar út í tengslum við Heimilis- og Náms- mannalínu bankans og eru ætlað- ar sem grunnur að námskeiðum fyrir viðskiptavini bankans. Málþing UMHVERFISVERKEFNI UMFÍ 1995 hefur verið ýtt úr vör. Átakið verður undir forystu ung- mennafélagshreyfingarinnar er samanstendur af 52.000 félags- mönnum, í samstarfí við umhverfis- ráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og bændasamtökin. Á málþinginu kom m.a. fram að umhverfisátak eins og hér um ræðir hafí mikið uppeldislegt gildi fyrir kynslóðimar sem eru að vaxa. Arsrit Heimilisiðnaðarfélagsins Ahersla lögð á þjóðlegan fróðleik og heimilisiðnað Arsrit Heimilisiðnað- arfélags íslands, Hugur og hönd, er komið út. Heimilisiðnaðar- félagið var stofnað 12. júlí árið 1913 en tímaritið hef- ur komið út árlega frá ár- inu 1966. Hildur Sigurðardóttir er formaður ritnefndar en hana skipa auk hennar þau Helga Thoroddsen, Herdís Tómasdóttir, Guðrún Haf- steinsdóttir og Þórir Sig- urðsson. Hildur var beðin um að segja lítillega frá útgáfunni og sagði hún að þó svo hún væri formaður ritnefndarinnar þá mætti ekki gleyma að ritnefndin starfaði mjög náið saman. „Tilgangur útgáfunnar er að miðla margvíslegum fróðleik um íslenskan heimilisiðnað og var í upphafi lögð sérstök áhersla á ýmsar gamlar íslenskar uppskriftir. Minnist ég meðal annars upp- skrifta að gömlum rósaleppum í sauðskinnsskó í 3. tölublaði," sagði Hildur. „Minna má á að áður en Heimilisiðnaðarfélagið hóf útgáfu tímaritsins hafði fé- lagið gefið út talsvert af heftum og blöðum með munstrum af fatnaði og uppskriftum." - Má merkja einhverja ákveðna áherslu í efnisvali tíma- ritsins? „Það hafa verið birtar greinar um þjóðlegan fróðleik og þá með áherslu á handiðnað og listiðnað. Þá hafa verið birtar ýmsar upp- skriftir að pijónafatnaði og fata- snið. Við höfum einnig birt vefn- aðarmunstur fyrir vefara og er ritið eitt um að birta þau að ég held. Við höfum lagt mikið upp úr góðum myndum eins og sjá má á blaðinu. Þetta er ársrit, kemur út einu sinni á ári á vegum Heimilisiðnaðarfélags íslands, en í seinni tíð hefur þróunin verið sú að meira er fjallað um félags- mál félagsins í tímaritinu." - Hvort er meiri áhersla lögð á að kynna gamalt handverk eða nýtt? „Við kynnum hvort tveggja. Yngra fólk hefur kömið með nýtt handbragð og svo hafa verið birt viðtöl við eldra fólk sem við höf- um fréttir af að unnið hafi ýmsa fágæta muni. Við búum í svo litlu landi að slíkt spyrst milli manna.“ - Er mikill áhugi ------------ fyrív tímarítinu? „Já, það er sent út til skuldlausra félags- manna Heimilisiðn- ______ aðarfélagsins en auk þess eru áskrifenaur um 1100. I blaðinu hafa gjarnan verið gi’einar um frumkvöðla eins og Halldóru Bjarnadóttur og ferð hennar í Vesturheim, eftir Guð- rúnu Helgadóttur, og grein um Guðmund Einarsson frá Miðdal og upphaf leirmunagerðar á ís- landi, eftir Eirík Þorláksson, en þessar greinar eru í nýjasta tölu- blaðinu. Þar er einnig viðtal við Sigríði J. Kristjánsdóttur, Hag- leikskonan Sigga á Grund, eftir Þóri Sigurðsson, Helga Thorodd- sen fjaJlar um kembivél Þing- borgarhópsins og Guðrún Haf- steinsdóttir ræðir við Arndísi Jó- hannsdóttur söðlasmið, sem hef- ur sérhæft sig í vinnslu muna úr steinbítsroði. Einnig má nefna snið að dagtreyju sem er í blaðinu Hildur Siguröardóttir ► Hildur Sigurðardóttir kenn- ari og formaður ritnefndar Hugar og handar, ársrits Heimilisiðnaðarfélagsins, fæddist í Reykjavík 9. júní 1939. Hún hefur kennt við grunnskóla í Reykjavík, við Fellaskóla, Olduselsskóla og nú við Rimaskóla og þá einkum kennt ungum börnum. Hildur hefur starfað lengi í Heimilis- iðnaðarfélaginu og var for- maður þess í sex ár. Kynning á gömlu og nýju handverki og Fríður Ólafsdóttir fjallar um. Ég hef heyrt af fólki sem ætlar að teikna upp sniðið og sauma sér samsvarandi treyjur. Við höfum einnig gjarnan birt greinar um kunna listamenn og má í fljótu bragði nefna glerlista- fólkið í Bergvík á Kjalarnesi, ásamt leirlistamönnum og list- vefnaðarfólki, erlendu sem inn- lendu. Þá hefur Elsa E. Guðjóns- son gjarnan skrifað fræðilegar greinar um hannyrðir og ég man eftir grein um Theódóru Thorodd- sen og hennar hannyrðir sem hafa þótt sérstæðar. Það má því segja að í ritinu hafí bæði verið ijallað um menntaða og sér- menntaða listamenn." - Efni tímaritsins nær þá jafnt til listamanna og hagleiks- manna? „Já, við höfum reynt að sýna sem breiðasta mynd af því sem verið er að vinna. Við höfum sett okkur sem markmið að fjalla um einn listamann eða _____ listiðnaðarmann í hveiju blaði -á undan- förnum árum og fólk hefur verið ánægt með að fá um sig umfjöll- un. Eg veit að vísu ekki hvort umfjöllunin hefur haft áhrif á feril viðkomandi." - Er einhver erlend fyrirmynd að tímaritinu? „Ekki alveg en heimilisiðnað- arfélögin á Norðurlöndum gefa út sín tímarit og ég held að mark- mið þeirra sé svipað og hjá okk- ur. Mér finnst að Hugur og hönd mætti hafa meiri útbreiðslu. Þar er svo mikinn fróðleik að finna sem snertir áhugasvið ansi margra. Ég veit til dæmis að nokkuð er um að vitnað er til ritsins og það notað sem heimild þegar nemendur og aðrir eru að skrifa ritgerðir og greinar um þessi efni.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.