Morgunblaðið - 03.03.1995, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
1 jHrTÍ.í.’JÉ Jti % J 1 ’
Anna Guðný Guðmundsdóttir Antonía María Gestsdóttir Guðný Sif Jakobsdóttir Ingibjörg Dagný Jóhannsdóttir
' ÆfH i •‘r4 M afe, Jn' á m M-p, .1 A ;fjffœíí;
Jóhanna Erla Jóhannesdóttir Laufey Björg Sigurðardóttir Sigríður Ósk Kristinsdóttir Unnur Valgeirsdóttir
Fegurðardrottning Norðurlánds valin í Sjallanum í kvöld
Atta stúlkur keppa
Búsetumál
fatlaðra
FORELDRAFÉLAG barna með sér-
þarfir stendur fyrir hádegisverðar-
fundi á Hótel KÉA á morgun, laug-
ardaginn 4. mars, milli 12 og 14.
Þar hittast fulltrúar Svæðisskrif-
stofu málefna fatlaðra á Norðurlandi
eystra og foreldrar og skiptast á
skoðunum um búsetumál fatlaðra
yfir léttum hádegisverði. Fjallað
verður um mismunandi búsetuform,
kosti þeirra og galla og leitast við
að svara spurningum eins og „Eru
sambýli úrelt?“ og „Hvað kemur í
staðinn?" Foreldrar segja frá reynslu
sinni, m.a. af undirbúningi áður en
fatlaður einstaklingur flytur að
heiman, óskum sínum um þjónustu
í sambýlinu og hugmyndum um ný
vinnubrögð til að auðvelda aðskiln-
aðinn við fjölskylduna.
----♦ ♦ ♦
Bikarmót
í svigi
BIKARMÓT í svigi, minningarmót
um Björn Brynjar Gíslason í karla-
flokki og bikarmót í svigi í kvenna-
flokki fara fram á Ólafsfirði á morg-
un, laugardaginn 4. mars.
Bikarmót í stórsvigi verður síðan
haldið á Dalvík á sunnudag, 5. mars,
en það heldur Skíðadeild Leifturs á
Ólafsfirði í samvinnu við Skíðafélag
Dalvíkur.
Brautarskoðun hefst kl. 9.30 báða
dagana.
-----» -»—»--
Hádegistón-
leikar
BJÖRN Steinar Sólbergsson organ-
isti Akureyrarkirkju heldur hádeg-
istónleika í kirkjunni á morgun,
laugardaginn 4. mars kl. 12.00.
Þetta eru síðustu hádegistónleik-
amir að sinni þar sem fyrir dymm
stendur stórfelld viðgerð á pípuorgeli
kirkjunnar, hún hefst í júní en stefnt
er að endurvígslu orgelsins 26. nóv-
ember næstkomandi en hljóðfærið
var vígt þann dag fyrir fjórum ámm.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk tengd föstunni eftir Bach og
Cesar Franck. Lesari á tónleikunum
verður Valgerður Valgarðsdóttir
djákni. Eftir tónleikana verður boðið
upp á Iéttan hádegisverð í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju. Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir.
ÁTTA stúlkur taka þátt í Feg-
urðarsamkeppni Norðurlands
sem haldin verður í Sjallanum
á Akureyri í kvöld, föstudags-
kvöld. Keppt er um titilinn
„Fegurðardrottning Norður-
lands“ en sú stúlka sem hann
hlýtur öðlast jafnframt þátt-
tökurétt í Fegurðarsamkeppni
íslands sem haldin verður í vor.
Undanfarnar vikur hafa
stúlkurnar æft stíft fyrir
keppnina en þær hafa m.a. æft
undir sljórn Hennýar Her-
mannsdóttur, Sigurðar Gest-
sonar og Gunnars Más Sigfús-
sonar.
Stúlkurnar sem taka þátt í
keppninni eru Anna Guðný
Guðmundsdóttir, 17 ára nemi í
VMA, Antonía Maria Gestsdótt-
ir, 19 ára nemi í VMA, Guðný
Sif Jakobsdóttir, 19 ára nemi í
VMA, Ingibjörg Dagný Jó-
hannsdóttir, 21 árs nemi í VMA
og starfandi þjónn, Jóhanna
Erla Jóhannesdóttir, 19 ára
nemi í MA, Laufey Björg Sig-
urðardóttir, 18 ára þjónn og
starfsmaður Foldu, Sigríður
Ósk Kristinsdóttir, 19 ára nemi
í VMA og Unnur Valgeirsdóttir
20 ára, stúdent frá MA og
starfsmaður í apóteki.
Vegleg verðlaun
Auk þess sem keppt er um
áðurnefndan titil er besta ljós-
myndafyrirsætan valin úr
hópnum, vinsælasta stúlkan og
sportstúlkan. Vegleg verðlaun
verða veitt þeim sem titlana
hljóta en allar fá stúlkurnar
myndarleg verðlaun fyrir þátt-
tökuna, fatn'að, snyrtivörur,
skartgripi og ljósatíma svo eitt-
hvað sé nefnt.
Matargestum verður boðið
upp á koníaksbætta sjávar-
réttasúpu, camenbertgratíner-
aðar lambalundir með beikon-
og skinkufylltum kartöflum og
Toblerone-krokantmousse í
sykurkörfu á ávaxtagrunni og
verður húsið opnað kl. 19.00.
Kynnir kvöldsins er Her-
mann Gunnarsson. Sigtryggur
Sigtryggsson cr formaður dóm-
nefndar, en aðrir í nefndinni
eru Bragi Bergmann, Þorgerð-
ur Kristinsdóttir, Kristín Stef-
ánsdóttir og Gróa Ásgeirsdótt-
ir.
Tvær sýn-
ingar í Lista-
safninu
TVÆR myndlistarsýningar verða
opnaðar í Listasafninu á Akureyri
á morgun, laugardaginn 4. mars
kl. 16.00.
Í austursal safnsins sýnir Ragn-
heiður Jónsdóttir teikningar og í
miðsal sýnir Guðmundur Thor-
oddsen lágmyndir.
Ragnheiður er fyrst og fremst
þekkt fyrir grafíkmyndir sínar, en
hefur beint sjónum sínum að öðrum
miðli, teikningunni, en fyrir þær
hefur hún hlotið menningarverð-
laun DV. Hún hefur haldið á ann-
an tug einkasýninga og eru verk
hennar til á söfnum og opinberum
stöðum heima og erlendis.
í miðsal eru lágmyndir unnar
með blandaðri tækni, s.s. tré
málmum, vatnslitum, olíulitum,
smásteinum og kítti. Guðmundur
hefur numið við Myndlistarskólann
í Reykjavík, i París og Amsterdam,
hann hefur haldið fjölda einkasýn-
inga og tekið þátt í samsýningum.
Sýningarnar standa til 26. mars
næstkomandi en safnið er opið alla
daga nema mánudaga frá kl.
14-18.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Samúel
sýnir í Þingi
SAMÚEL Jóhannsson opnar sýn-
ingu á málverkum og teikningum
í Listhúsinu Þingi á morgun, laug-
ardaginn 4. mars kl. 14.00.
Þetta er tólfta einkasýning
Samúels, en hann hefur efnt til tíu
sýninga á Akureyri og tvívegis sýnt
í Reykjavík. Hann hefur auk þess
tekið þátt í fjölda samsýninga.
Sýningin stendur til 12. mars
næstkomandi og verður opin frá
kl. 15.00 til 19.00 sýningardagana.
Bifreið frá Bifreiðum og landbúnaðarvélum kr. 1.239.000
36475
Snjósleði frá Bifreiöum oq landbúnaðarvélum kr. 950.000
22800
Utanlandsferðir með Fluqleiðum kr. 100.000
406 8308 10422 22761 40608 51627 61513 75426 88596 96911
1092 8392 13324 30667 46677 54560 63414 77850 90795 97863
2338 10134 22205 32103 50170 54982 66242 83740 93375 98165
Vöruúttekt frá Radíóbúðinni kr. 90.000
1342 17858 23010 30310 37319 45046 50830 60125 73494 85794
11640 18627 27722 34431 37422 47867 51717 71105 77618 89087
15494 21312 27844 36714 43405 49004 59895 71769 77830 94366
Vöruúttekt frá IKEA kr. 50.000
1943 9615 17457 29398 40836 47076 56924 70908 83935 90508
3271 10032 18205 30056 41713 48998 58109 71727 84481 91055
3553 10895 19928 30455 41869 49011 58784 72767 85034 91938
4187 10920 21635 32163 42130 49598 59546 73378 86145 92303
4833 11367 22137 33091 42359 49732 59591 73790 88134 92487
5117 12841 22322 33853 v 42788 50319 60065 73832 86245 92621
5817 12900 23167 33881 43569 50501 60106 74964 88358 93790
6962 14322 24140 36786 43672 51464 61674 78724 89127 96552
7435 14896 26400 37487 43733 54306 63957 79135 89350 97859
7525 17250 26872 38065 44349 54806 64573 80735 89764 98622
9576 17432 27739 40106 46244 56043 69683 82334 90068 98967
Námsmenn fá
afslátt af leik-
skólagjöldum
MEIRIHLUTI bæjarráðs Akureyrar
leggur til að frestað verði gildistöku
samþykktar um niðurfellingu á af-
slætti á leikskólagjöldum vegna
bama námsmanna til endurskoðunar
fjárhagsáætlunar Bæjarsjóðs síðar á
árinu.
Guðmundur Stefánsson bæjar-
ráðsmaður bókaði á fundinum að
hann væri andvígur þeirri ákvörðun
að fella niður afslátt frá gjaldskrá
sem námsmenn hafa notið vegna
vistunar barna þeirra á leikskólum
Akureyrarbæjar og muni því ekki
greiða atkvæði um tillöguna.
Bæjarráð samþykkti einnig að
beina því til leikskólanefndar að hún
fjalli um meiri sveigjanleika í sum-
arleyfislokunum leikskólanna.
Sambýli fyrir
Alzheimersjúklinga
Á fundi bæjarráðs var til umfjöll-
unar bréf frá Félagi aðstandenda
Alzheimersjúklinga á Akureyri og
nágrenni þar sem greint er frá áhuga
félagsins á að koma upp sambýli eða
stoðbýli fyrir einstaklinga með heila-
bilun og leitað eftir samstarfi við
Akureyrarbæ til að hrinda því í fram-
kvæmd. Fulltrúar félagsins hafa ósk-
að eftir að skýra málið nánar fyrir
bæjarráði. Ráðið samþykkti að vísa
erindinu til félagsmálaráðs til um-
sagnar.
Einnig vísaði ráðið tillögu þess
efnis að á svæði héraðsnefndar Eyja-
fjarðar starfi sameiginleg barna-
verndarnefnd til félagsmálaráðs.
Styrkur til LMA
Leikfélag Menntaskólans á Ak-
ureyri hefur sótt um styrk úr Bæjar-
sjóði til greiðslu á húsaleigu og
brunavörslu í Samkomuhúsinu vegna
sýninga félagsins á Silfurtunglinu
og vísaði bæjarráð erindinu til bæjar-
ritara með heimild til afgreiðslu.