Morgunblaðið - 03.03.1995, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLENT
Loftferðasamningar við Bandaríkin
Afram viðræður
þótt framkvæmda-
stjórnin mótmæli
Washington. Reuter.
BANDARÍKJASTJÓRN
greindi frá því i gær
að hún hygðist halda
áfram viðræðum við
einstök aðildarríki Evr-
ópusambandsins um
frjálsa flugumferð
þrátt fyrir hörð and-
mæli framkvæmda-
stjórnarinnar.
Framkvæmdastjórn-
in hefur skipað þeim
aðildarríkjum, sem
eiga í viðræðum við
bandarísk yfirvöld, að
gera enga samninga
þar sem slíkt sé á vald-
sviði framkvæmda-
stjórnarinnar. Patrick Murphy, að-
stoðarsamgönguráðherra Banda-
ríkjanna, sem sér um viðræðurnar
fyrir hönd Bandaríkjastjómar, sagði
í gær að þama væri fyrst og fremst
um að ræða ágreining milli fram-
kvæmdastjómarinnar og aðild-
arríkjanna um hvar forræði í þessum
málum væri. „Það hefur vissulega
truflandi áhrif en við munum halda
áfram okkar viðræðum og búumst
við jákvæðri niðurstöðu," sagði
Murphy.
Þegar hefur náðst samkomulag
við Svisslendinga og er búist við að
Bandaríkjamenn og Belgar semji
einnig á næstu dögum.
Þá segja bandarískir
embættismenn að hægt
verði að ganga frá
óformlegum _ samning-
um við íslendinga,
Finna, Austurríkis-
menn, Lúxemborgara,
Norðmenn, Svía og
Dani í vor. Öll þessi ríki
nema Sviss og ísland
eru innan ESB.
Ekki á valdi
aðildarríkjanna
Talsmaður fram-
kvæmdastjórnarinnar,
sagði að Neil Kinnock,
sem fer með samgöngumál, hefði
ritað ríkisstjórnum Belgíu, Dan-
merkur, Finnlands, Austurríkis,
Lúxemborgar og Svíþjóðar bréf þar
sem segði að ríkin hefðu ekki vald
til að ganga frá samningum við
Bandaríkin. „Aðildarríkin hafa ekki
vald til að gera tvíhliða samninga,"
sagði talsmaðurinn og bætti við að
framkvæmdastjórnin myndi kæra
slíka samninga tii Evrópudómstóls-
ins yrðu þeir gerðir engu að síður.
Framkvæmdastjórnin hefur að
undanförnu leitað eftir umboði til
að ganga frá loftferðarsamningum
af þessu tagi fyrir ESB í heild sinni.
Neil Kinnock
Breytingar hjá
EFTA-stofnunum
BREYTINGAR hafa verið gerðar á
skipan EFTA-dómstólsins í Genf
vegna inngöngu Svíþjóðar, Finn-
lands og Austurríkis í Evrópusam-
bandið.
Leif Sevón frá Finnlandi hefur
látið af embætti dómara og forseta
dómsins, en hann hefur verið skip-
aður dómari við Evrópudómstólinn
í Lúxemborg. Við embætti Sevóns
tekur Gustav Bygglin, tilnefndur
af fínnsku ríkisstjórninni. Hann sór
embættiseið sinn í Genf á miðviku-
dag.
Við sama tækifæri var Björn
Haug frá Noregi kosinn forseti
dómstólsins. Auk Haugs og Sevóns
sitja í dómnum þeir Þór Vilhjálms-
son frá íslandi, Kurd Herndl frá
Austurríki og Sven Norberg frá
Svíþjóð.
Samkvæmt sérstöku samkomu-
lagi milli Austurríkis, Finnlands,
íslands, Noregs og Svíþjóðar hefur
verið ákveðið að EFTA-dómstóllinn
starfi óbreyttur til 1. júlí 1995.
Eftir það verður hann rekinn af
Norðmönnum og Islendingum.
Hugsanlegt er að Liechtenstein
bætist í þann hóp síðar á árinu ef
samþykkt verður í þjóðaratkvæða-
greiðslu 8. apríl að ijúfa tollabanda-
lagið við Sviss til þess að hægt sé
að taka þátt í samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið.
Samkomulag um
kostnaðarskiptingu
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa EFTA-ríkin nú
komizt að samkomulagi um kostn-
aðarskiptingu vegna EFTA-dóm-
stólsins og Eftirlitsstofnunar
EFTA. Noregur mun greiða 95%
kostnaðar, ísland 4,9% og Liechten-
stein 0,1%.
Rússar vilia efla tengsl
• VIKTOR Tsjernómyrdín, for-
sætisráðherra Rússlands, kemur
í dag í opinbera heimsókn til
Parísar. Hann mun ræða við
franska ráðamenn, sem gegna
nú formennsku í ráðherraráði
Evrópusambandsins, hvernig
efla megi tengsl Rússlands við
ESB. Utanríkisráðherrar ESB
munu ræða málið áður en sendi-
nefnd frá sambandinu heldur til
Moskvu á fimmtudag.
• EVRÓPUÞINGIÐ vill gefa
gott fordæmi með því að banna
reykingar í byggingum sínum —
nema á börunum og í einkaskrif-
stofum. Þetta er efni breyting-
artillögu við heilbrigðismála-
frumvarp, sem var samþykkt í
vikunni. Þingmenn höfnuðu hins
vegar tillögum um hertar reglur
um merkingar tóbaksumbúða.
Reuter
Upp til stjamanna
BANDARÍSKU geimferjunni Endeavour var skotið upp frá Kanaveralhöfða á Flórída í gær með sjö
manns innanborðs. Verður hún á braut um jörðu í næstum 16 daga og mun áhöfnin verja tímanum
til stjarnfræðirannsókna. Fór ferjan á loft nokkru eftir miðnætti og var bjarminn svo mikill, að les-
ljóst var í fimm km fjarlægð.
Heimsþing um félagsleg réttindi í Kaupmannahöfn
Norðurlönd gagnrýna
fyrirliggjandi lokadrög
Varað við afturhvarfi á sviði mannréttindamála
NORRÆNAR mannréttindaskrifstofur hafa sent frá sér athuga-
semdir við drög þau sem liggja fyrir að lokayfirlýsingu Heims-
þings -um félagsleg réttindi sem hefst í Kaupmannahöfn í næstu
viku. Fullyrða norrænir sérfræðingar um mannréttindi að lokayfir-
lýsingin feli í sér afturför verði drögin samþykkt.
Electro-
lux selur
Gránges
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKI raftækjaframleiðandinn
Electrolux tilkynnti í gær, að málm-
vinnslufyrirtækið Gránges, eitt af
Atlantsáls-fyrirækjunum þrem, yrði
selt og hlutabréfin boðin út í þessum
mánuði. Búist er við, að söluverðið
geti orðið allt að 35 milljarðar ísl.
kr. og hagnaður Electrolux hátt í
17 milljarðar kr.
Salan á Gránges hefur lengi stað-
ið til en Electrolux hefur verið að
selja frá sér ýmsan óskyldan rekst-
ur til að geta einbeitt sér að raf-
tækjaframleiðslunni. Verður hver
hlutur seldur á 105 til 117 skr. til
fjárfestingarstofnana en á fimm
skr. minna til einstaklinga. Geta
kaupendur skráð sig fyrir hluta-
bréfum frá 8. mars til 21. mars og
fjárfestingarsjóðir og -stofnanir
tveimur dögum lengur.
Fundið er að því að lítt sé vísað
til mannréttinda í fyrirliggjandi
drögum. Þannig sé t.a.m. ekki
minnst á réttinn til vinnu. Hins
vegar sé ljóst að hefja eigi hug-
myndir um sjálfsákvörðunarrétt
þjóða upp yfír alþjóðleg mannrétt-
indi. Verði niðurstaðan sú sé um
afturhvarf til fortíðar að ræða.
Vikið er að því í áliti norrænu
Mannréttindaskrifstofanna að í
upphafi hafi verið stefnt að því
að Kaupmannahafnarráðstefnan
skyldi hnykkja á þeim ákvæðum
stofnskrár Sameinuðu þjóðanna
sem kveða á um skyldur aðildar-
ríkjanna á þessum vettvangi. í
fyrirliggjandi drögum sé sneitt hjá
því að vísa til mannréttindaá-
kvæða þessara. *
I álitinu segir ennfremur að
gera beri greinarmun á mannrétt-
indum annars yegar og hugtökum
svo sem „réttlæti" og ,jöfnuður“
hins vegar. Þe'ssi greinarmunur sé
ekki síst mikilvægur sökum þess
að hann feli í sér skuldbindingu
og viðurkenningu af hálfu aðildar-
ríkjanna. Frá þessum greinarmuni
sé horfið í drögunum og þannig
sé grafið undan alþjóðlega viður-
kenndum mælikvörðum á sviði
mannréttinda. Þeir mælikvarðar
hafi hins vegar nýlega verið ítrek-
aðir og er vísað til Vínaryfirlýsing-
arinnar.
Ennfremur er vakin athygli á
að hvergi sé vísað til réttarins til
vinnu þótt kveðið sé á um réttindi
verkamanna. Að þessu- leyti hafi
lokaskjalið tekið miklum breyting-
um því í fyrri drögum hafi verið
vísað til þess að viðra bæri að einu
og öllu leyti samþykktir Alþjóða
vinnumálastofnunarinnar.
Norrænu mannréttindaskrif-
stofurnar vekja athygli á að loka-
drögin innisigli í raun hindranir
af tvennum toga, sem vinni gegn
framgangi mannréttindamála.
Annars vegar sé hugmyndin um
sjálfsákvörðunarrétt og hins vegar
kenningin um hinn frjálsa markað.
Þessa þróun beri að harma þar sem
verið sé að hverfa til orðalags sem
notað hafi verið fyrir 40 árum.
Kveðið sé skýrlega á um að lög í
tilteknu landi skuli vega þyngra
en alþjóðalög. Er varað við þeirri
hættu að þróun þessi leiði til þess
ástands sem ríkti áður en Samein-
uðu þjóðirnar voru stofnaðar og
„stjómvöld komust upp með að
að meðhöndla almenning eins og
þeim sýndist".
Búist er við að um 130 þjóðar-
og stjómmálaleiðtogar sitji ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna í
Kaupmannahöfn en alls er búist
við um 20.000 gestum.
Inn í framtíðina með Novell NetWare 4.1
Mest selda netstýrikerfið
í heiminum í dag.
NetWare frá Novell.
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 568-1665 - Fax 568-0664