Morgunblaðið - 03.03.1995, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 19
Kjalarnes-
prófastsdæmi
Kóramót
kirkjukóra
KÓRAMÓT kirkjukóra í Kjalar-
nesprófastsdæmi verður haldið
laugardaginn 4. mars í Grinda-
vík. Er þetta þriðja sameigin-
lega kóramótið, en það fyrsta
var haldið í Víðistaðakirkju
1991, þá í Vestmannaeyjum og
nú í Grindavík.
Þátttakendur eru allir kirkju-
kórar prófastsdæmisins, en þeir
eru 14 talsins og fjöldi kórfé-
laga rúmlega 200 manns. Mótið
hefst um morguninn með sam-
æfingu í Grindavíkurkirkju á
sex verkefnum, þar af eru tvö
verk sérstaklega samin fyrir
mótin en þau eru: „Maríuþula"
samið fyrir kór, orgel og málm-
blásarakvintett eftir Ríkarð Öm
Pálsson og kórverk eftir Jón
Nordal við sálminn „Tunga mín
vertu treg ei á“. Verða þau
frumflutt á tónleikum síðar um
daginn.
Eftir samæfingar verða tón-
leikar í íþróttahúsinu kl. 17 og
eru allir velkomnir.
UNGLINGAR á aldrinum
13-15 ára frumsýna leik-
ritið á laugardag.
Fjörgyn
„meira að
segja kampa-
vínsglas“
FJÖRGYN fmmsýnir leikritið
„meira að segja kampavíns-
glas“ á laugardag. Það eru
unglingar á aldrinum 13-15
ára sem standa að þessari sýn-
ingu og sömdu þau leikritið
sjájf.
I kynningu segir: „Hópurinn
byrjaði á leiklistarnámskeiði
fyrr í vetur og var ákveðið að
halda áfram samstarfmu og
setja upp þessa sýningu. Leik-
stjóri sýningarinnar er Gunnar
Gunnsteinsson.
Næstu sýningar eru miðviku-
daginn 8. mars og fimmtudag-
inn 9. mars. Sýningarnar hefj-
ast kl. 20.30 og er frítt inn.
Sýning á
verkum Han-
sen að ljúka
SÝNINGU á verkum danska
listamannsins Svend Wiig Han-
sen í sýningarsal Norræna
hússins lýkur nú á sunnudag.
Svend Wiig er einn fre'msti list-
málari Dana og er þetta í fyrsta
sinn sem íslendingum gefst
kostur á að sjá verk hans á
sýningu hér á landi. Sýningin
er opin daglega kl. 14-19.
I anddyri Norræna hússins
stendur ýfir- sýning, sem er í
tengslum við þing Norðurlanda-
ráðs. Þar kynna norrænar
stofnanir margvíslega starf-
semi sína. Þær eru Norður-
landahúsið í Þórshöfn í Færeyj-
um, Nordens Institut í Maria-
hamn á Alandseyjum, Nordens
Institutet í Nuuk á Grænlandi,
Nordens Genbanken í Alnarp í
Svíþjóð og NorFa (Nordisk
Forskerutdanningsakademi) í
St. Hanshaugen í Noregi. Sýn-
ingunni lýkur 13. mars, opið
kl. 9-17, sunnudaga kl. 12-17.
Líkamslist
LEIKUST
Mögulcikhúsið
EINS OG TÚNGL
í FYLLINGU
Leikari: Henning Farner. Leik-
sljóri: Tim Dalton.
EINS OG á öðrum Norðurlöndum
byggir íslensk leikhúshefð nær ein-
göngu á textaverkum, eða því sem
kalla mætti „hið sálfræðilega leik-
hús“. Fyrst kemur textinn og eftir
honum eru línurnar lagðar í persónu-
sköpun, með svipbrigðum og hreyf-
ingum. Tungumál líkamans er ekki
það sem unnið er útfrá.
í Möguleikhúsinu verður góður
gestur með sýningar dagana 10. og
11. mars, en það er leikarinn Henn-
ing Famer. Flytur sýningu sem segja
má að sé iíkamlegt eintal. Eintal
manns sem er gerður af leir. Líkami
hans nær heimsenda á milli og Guð
hefur hikað við að blása í hann líf-
sanda. Samt kviknar í honum líf.
Hann er óhörðnuð manneskja að
stíga sín fyrstu skref í heiminum,
sem eiginlega er of lítill fyrir hann.
Allt er nýtt fyrir honum og vekur
undrun hans - jafnvel hans eigin lík-
ami og frumþarfir.
I fyrstu er hann eins og dýr;
kannski lítill kálfur sem reynir að
standa á sínum brauðfótum og eins
og það sé ekki nógu erfitt, fer þessi
nýi maður að reyna að standa upp-
réttur. Smám saman lærist honum
að þekkja líkama sinn og nánasta
umhverfi og endar á því að vera ein-
staklingur sem gefur.
Það getur verið freistandi að skilja
sýninguna á þann hátt að það sé
djöf.... erfitt að vera maður og standa
uppréttur í tilverunni. Manninum eru
jú alltaf að mæta nýir þættir á lífs-
leiðinni sem hann þarf að takast á
við. Og þótt hann faili aftur og aftur
á prófraunum lífsins, tekst honum
alltaf að standa upp aftur. Þegar
hann svo hefur lært að þekkja sjálf-
an sig og það samfélag sem hann
býr í, er honum óhætt að hafa mann-
leg samskipti, óhætt að gefa og
þiggja. Og ef enn er litið táknrænt
á verkið, þar sem heimurinn er næst-
um of lítill fyrir þennan mann, má
segja að sá tími sé kominn að varla
sé pláss fyrir alla íbúa jarðar á þess-
HENNING Farner í hlutverki
hins fyrsta manns.
ari plánetu. Það eru takmörk
fyrir því hversu marga hún
getur brauðfætt.
En beinast liggur við að
taka sýninguna bókstaflega,
líta á þennan leirmann sem
fær líf sem hinn fyrsta mann
og skoða sýninguna sem eins
konar örþróunarsögu. Þá
sögu þarf ekki endilega að
segja með orðum - og í með-
förum Hennings Famer verð-
ur hún mjög ljós.
Líkamshreyfingarnar sem
hann vinnur út frá eru ekkert
óskyldar æfingum í líkams-
rækt og verkið er þvíiík jafn-
vægislist að minnir helst á
fimleika. Henning hefur
geysilegt vald yfir líkamanum
og vinna hans með svipbrigði
er unnin af stakri nákvæmni.
Hann bregður upp eins konar
grímusvipbrigðum sem hann
gæðir síðan lífi og tilfínning-
um. Sýning hans er hæg og
falleg - nánast eins og að
skoða skúlptúra sem fá allt í
einu líf. Það er líka mikill
húmor í henni og ekki var
annað að heyra í leikhúsinu
en að unglingar skemmtu sér
hið besta ^henni.
Súsanna Svavarsdóttir
SÖNGLEIKURINN West Side Story verður
frumsýndur í kvöld í Þjóðleikhúsinu.
„West Side
Story“ frum-
sýnt í kvöld
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ frumsýnir á
Stóra sviðinu söngleikinn West Side
Story, Saga úr vesturbænum, í
kvöld, föstudagskvöld, og er það í
fyrsta sinn sem þessi söngleikur er
sýndur á íslensku leiksviði.
í kynningu segir: „í vesturbæ
New York-borgar takast götuklíkur
á um völdin. Hver á göturnar,
„sannir“ ameríkanar eða innflytj-
endur frá Púertó Ríkó? Ólgandi til-
finningar leita útrásar í slagsmálum
og spennu, villtum dansi, heiftugu
hatri - og ást. Mitt í allri hringið-
unni fella ung stúlka og ungur
maður af ólíkum uppruna hugi sam-
an, þvert gegn vilja sinna nánustu.
Óspillt æskuást þeirra má sín þó
lítils gegn valdastríði og blóðhefnd-
um.
Söngleikurinn West Side Story
er byggður á hugmynd bandaríska
danshöfundarins Jerome Robbins,
tónlistin er eftir Leonard Bernstein,
söngtexta gerði Stephen Sondheim
en leiktextann Arthur Laurents.
Söngleikurinn var fyrst frumsýndur
í New York 1957.
Þýðandi verksins er Karl Ágúst
Úlfsson, danshöfundur og dans-
stjórnandi Kenn Oldfield, tónlistar-
og hljómsveitarstjóri er Jóhann G.
Jóhannsson og hljóðstjóri Sveinn
Kjartansson. Lýsing er í höndum
Björns Bergsteins Guðmundssonar,
leikmynd hannaði Finnur Arnar
Arnarsson og búninga María Ólafs-
dóttir. Aðstoðarleikstjóri er Rand-
ver Þorláksson en leikstjórar eru
þeir Karl Ágúst Úlfsson og Kenn
Oldfield.
Leikendur í West Side Story eru
á fjórða tug talsins, söngvarar,
dansarar og leikarar. Með hlutverk
elskendanna ungu, Tóný og Maríu,
fara Marta G. Halldórsdóttir og
Felix Bergsson, til skiptis við Val-
gerði G. Guðnadóttur og Garðar
Thór Cortes. Foringjar götuhóp-
anna eru þeir Baltasar Kormákur
og Hilmir Snær Guðnason, kær-
ustur þeirra eru Sigrún Waage og
Ástrós Gunnarsdóttir.
Með önnur hlutverk fara Magn-
ús Ragnarsson, Daníel Ágúst Har-
aldsson, Gunnar Helgason, Þórar-
inn Eyfjörð, Gunnar Eyjólfsson,
Gísli O. Kærnested, Stefán Jóns-
son, Jón St. Kristjánsson, Vigdís
Gunnarsdóttir, Rúrik Haraldsson,
Selma Björnsdóttir, Birna Hafstein
Júlíusdóttir, Agnes Kristjónsdóttir,
David Greenall, Edda Arnljótsdótt-
ir, Helena Jónsdóttir, Júlía Gold,
Katrín Ingvadóttir, Jenný Þor-
steinsdóttir, Guðmundur Helgason,
Ingólfur Stefánsson, Eldar Valiev,
Jóhann Björgvinsson, Sigurður
Siguijónsson og Hjálmar Hjálm-
arsson."
o
Gerðubergs
í Fella- og Hólakirkju
laugardaginn 4. mars kl. 17.00
Ný íslensk einsöngslög
eftir tónskáldin:
Atla Heimi Sveinsson
Fjölni Stefánsson
Gunnar Reyni Sveinsson
Hildigunni Rúnarsdóttur
Hjálmar H. Ragnarsson
John A. Speight
Jón Ásgeirsson
Jón Hlöðver Áskelsson
Jón Þórarinsson
Jónas Tómasson
Oliver Kentish
Pál P. Pálsson
Tryggva Baldvinsson
Þorkel Sigurbjörnsson
Flytjendur:
Ingveldur Ýr Jónssdóttir, messósópran
Rannveig Fríða Bragadóttir, messósópran
Signý Sæmundsdóttir, sópran
Sverrir Guðjónsson, kontrtenór
Jónas Ingimundarson, píanó
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
Gerðubergi 3-5 111 Reykjavík
sími 79166