Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Leikfélag Reykjavíkur frumsýnir nýtt finnskt leikrit
Heimur
dökku
fiðrild-
anna
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frumsýn-
ir nýtt finnskt leikrit, gert eftir
sögu Leenu Lander, laugardaginn
4. mars. Þetta er í annað sinn sem
leikritið er sett upp, en það var
frumsýnt í Turku í Finnlandi. Þessi
sýning er liður í norrænu menning-
arhátíðinni, Sólstöfum.
í kynningu segir: „Þetta finnska
leikrit er spennuleikrit um ástir,
framhjáhald, afbrýði, morð og
fleira. Juhani Juhansson er ungur
fjármálamaður sem vinnur hjá
byggingafyrirtæki og á von um
stöðuhækkun. Hann hugsar til
æskuáranna, iSm tildrög þess að
þeir bræður voru teknir frá foreldr-
um sínum, og hann kemst síðan að
æ meiru um fortíð föður síns sem
var efnavísindamaður en aðgerðir
hans ollu undarlegum atburðum,
t.d. vegna mengunar. Þetta er leik-
rit um leyndarmál liðins tíma. í
sárri endurminningu blandast sam-
an spenningur og ógn, ást og hat-
ur, miskunnarleysi þess sterka og
hjálparleysi fórnarlambsins."
Leikstjóri sýningarinnar er Eija-
Elina Bergholm. Hún hlaut mennt-
un í leiklistarskóla og háskóla og
var um tíma aðstoðarleikstjóri í
sænsku leikhúsi í Helsinki. Eija-
Elina hefur stjórnað mörgum upp-
færslum á ýmsum verkum eftir
finnska og einnig erlenda höfunda,
bæði í heimalandi sínu og erlendis.
A síðasta ári stjórnaði hún m.a.
uppfærslu á hinu þekkta verki
Mahogany eftir Kurt Weill og Bert-
holt Brecht í Kanada. Næsta verk-
efni Eiju-Elinu verður fyrir finnska
sjónvarpið við uppsetningu á óper-
unni Miðlinum eftir Menotti.
Leikgerðin er unnin af Páli Bald-
vinssyni en þýðandi er Hjörtur Páls-
son. Leikmynd gerir Steinþór Sig-
urðsson, búninga Stefanía Adolfs-
dóttir, lýsingu annast Lárus Björns-
son, dansahöfundur er Nanna Oi-
afsdóttir og leikstjóri er Eija-Elina
Bergholm. Leikarar eru Ari Matthí-
asson, Benedikt Erlingsson, Eyjólf-
ur Kári Friðþjófsson, Guðmundur
Ólafsson, Hanna María Karlsdóttir,
Jón Hjartarson, Jakob Þór Einars-
son, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Magnús Jónsson, Sigrún Edda
Björnsdóttir, Sigurður Karlsson,
Stefán Sturla Sigurjónsson, Stein-
unn Ólafsdóttir, Theodór Júlíusson
og Þröstur Leó Gunnarsson. Dans-
arar eru: Tinna Grétarsdóttir og
Valgerður Rúnarsdóttir. Saga
Leenu Lander, Heimur dökku fiðr-
ildanna, kom út árið 1992 og var
sjöunda skáldsaga hennar. Sagan
hlaut mikið hrós, var tilnefnd bæði
til Finlandia- og Norðurlandaráðs-
verðlauna 1993 og hefur síðan ver-
ið þýdd á íjölda tungumála. Bókin
kemur út á íslensku um mánaða-
mótin hjá Forlaginu og mun höf-
undurinn Leena Lander koma til
landsins af því tilefni og einnig til
að vera viðstödd frumsýninguna.
Nína Margrét á
EPTA-tónleikum
Aðrir tónleikar EPTA á þessu starfsári
verða sunnudaginn 5. mars. Að þessu
sinni leikur Nína Margrét Grímsdóttir,
sem er tónleikagestum að góðu kunn úr
tónleikaröð EPTA á undanförnum árum.
gráðu frá City Uni- styrki úr Minning-
versity í London *n,a Margret arsjóði Gunnars
1989 og frá Mann- Gnmsdottir Thoroddsen' og frá
es College of Music í New York Helena Rubinstein Foundation.
með Professional Studies Á efnisskrá eru Tilbrigði í
Diploma. Nú stundar Nína Mar- C-dúr K. 256 eftir Mozart, Són-
grét doktorsnám við City Uni- ata í e-moll op. 90 eftir Beethov-
versity of New York. Þar vinnur en, Sex píanóverk op. 19 eftir
hún m.a. að rannsóknum á þró- Schönberg og Variations
un píanóleiks á íslandi. serieuses eftir Mendelssohn.
Nína Margrét hefur komið Aðgöngumiðasala við inngang-
víða fram sem einleikari og í inn.
LANGUR LAUQARDAGUR
aðeins í dag og á morgun
Verðhrun!
Ljúkum útsölunni
með VERÐHRUNI!
m* Siwii uxðss
j*15% aukaafsláftur
J)
af útsöluskóm
§ i dag og á morgun
10% afsláttur
af nýjum skóm
rtíf ici '
Ær.Skóverslun
tMneykjavíkur
Laugavegi 95 - Sími 624590
NYTJAUST
Sængurver, rúmteppi og
nóllföt með persónulegri
óletrun eftir pöntun.
Silkitreflor
Sérverkefni
Mjög þvottþolið
flllcir staerðir
Textílkjallarinn
Borónsstíg 59,101 Reykjovík,
sími 13584.
Opið kl. 11-16 virko dogo
og fyrsto lougordog
í hverjum mónuði.
Hrönn Uittieimsdórtir
fexf^Önnudír
Bolur +
leggings
áður 3.990
nú 1.990
■■ ■ ■
Full búð af nýjum vorvörum
Mörg girnileg tilboð
Laugavegi 54 - Simi 25201
Ath! Fermingarkjólaxnir eru komnir!
Ticoline gleraugu eru úr titanium efni og
vega aðeins 3 grömm. Einföld, glæsileg
og fást í öllum regnbogans litum.
GLERAUGNAMIÐSTOÐIN Laugavegi 24, símar 20800 og 22702.