Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 03.03.1995, Qupperneq 32
32 FÖSTUDAGUR 3. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ________ SVAVA JÓHANNESDÓTTIR + Svava Jóhannes- dóttir var fædd á Herjólfsstöðum í Alftaveri 14. janúar 1926. Hún lést á Landspítalanum að- faranótt 20. febrúar síðastliðins. Foreldr- ar hennar voru hjón- in Þuríður Pálsdóttir og Jóhannes Guð- mundsson bóndi á Heijólfsstöðum. Systkini Svövu voru: Eggert Páll fæddur 1912 (látinn), Kjart- an fæddur 1913 (lát- inn), Guðmundur fæddur 1914 (látinn), Einar fæddur 1915, Páll fæddur 1917, Loftur fæddur 1920 (látinn), Lára fædd 1923, Gissur fæddur 1928, Hulda fædd 1931 og Lára sem dó kornung. Eftirlifandi eiginmaður Svövu er Gísli Jónsson frá Norðurlyá- leigu í Álftaveri, fæddur 7. des- ember 1921. Dætur þeirra eru: Eygló, fædd 1952, Þórunn, fædd 1954, og Guðlaug, fædd 1956. Bamabömin eru fimm: Gísli Páll Daviðsson, unnusta hans er Þórey Una Þorsteinsdóttir, dótt- ir þeirra Eygló Dís, Eygló Svava Gunnarsdóttir, unnusti hennar Jón Þorsteinn Oddleifsson, Loft- ur Þór Þómnnarson, Sigrún Ragna Hjartardóttir og Grétar Snær Hjartarson. Útför Svövu fer fram frá Lágafellskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þú sviptir burt sorg og hðrmum, sveipaðir mig í örmum. Með blíðu þú bættir sárin, bemsku þurrkaðir tárin. Þú vaktir um vetramætur, vermdir hendur og fætur. Þú fylgdir mér fyrstu sporin, er fuglamir sungu á vorin. Þú sagðir mér fagrar sögur, söngst við mig litlar bögur. Margt kvöld var þín kærleiksiðja, að kenna mér að biðja. Allt hið blíðasta og bezta er blessun veitir mesta, er endurskin ástar þinnar, þú engill bemsku minnar. (J.K.P.) Við þökkum þér elsku amma okk- ar fyrir allar góðu stundimar sem við áttum saman. Barnabörn. Það er komið að kveðjustund, við erum að kveðja hana elsku Svövu. Það er svo erfítt að kveðja, það er svo endanlegt þegar dauðinn skil- ur okkur að. Það er of fljótt, við viljum njóta samvista við ástvinu okkar lengur. Hún Svava var alltaf tilbúin að veita okkur álit sitt og upplýsingar, þegar okkur vanhagaði og það var svo gott að hlusta á hana og rök- ræða við hana. Svava var vel gefín kona og óhætt var að fara eftir því sem hún ráðlagði. Hún hafði létta lund og var miðpunktur fjölskyld- unnar, systkina og systkinabama, allir gátu leitað til Svövu. Hún var potturinn og pannan í ættarmót- unum og samdi við þau tækifæri skemmtilegar vísur sem ættarmóts- gestir sungu fullum hálsi, og er mér minnis- stæðastur „Heijólfs- staðahátíðarsöng- urinn“, sem var glett- inn söngur um systkin- in frá Heijólfsstöðum. í húsmæðraorlofínu naut hún sín og var allt í öllu og tók meðal ann- ars að sér að leika brúðguma, en Svava var grönn og smávaxin, var þá valin sem brúður sú fyrirferðar- mesta úr hópnum og varð þetta hið skrautlegasta par, og lék Svava hinn auma brúðguma listavel og víst er að hláturtaugarnar vom vel virkar. Ein ferð okkar Svövu er mér sér- staklega minnisstæð, hún var okkur erfíð, en við vomm að fara með tengdamóður mína, mágkonu henn- ar og vinkonu til dvalar að Ási í Hveragerði. Svara fór með, okkur til halds og trausts. Allt gekk að óskum, en þegar við lögðum af stað úr Hveragerði var farið að snjóa, við ákváðum að fara Þrengslin. Þeg- ar við vomm komnar nokkuð áleiðis neitaði bíllinn að fara nema hálfa leið upp aflíðandi brekku og þar sem nokkuð hátt var til beggja hliða við veginn treystum við okkur ekki til að snúa við og tókum á það ráð að bakka, alla leið að Þorlákshafnar- vegamótum. Þaðan komumst við klakklaust til Hveragerðis. Við þurf- um að skilja bílinn eftir og athuga hvar við gætum tekið rútuna til Reykjavíkur. Við fengum góðar upp- lýsingar hvar hún stansaði og hve- nær og vomm svo heppnar að von var á henni innan skamms. Við örk- uðum að Hótel Ljósbrá en þá sjáum við að rútan er að koma svo við tök- um til fótanna og náum henni og töldum okkur aldeilis heppnar að hafa náð í tæka tíð, en það runnu á okkur tvær grímur þegar rútan tekur stefnu austur en þá kemur í ljós að við vomm á leið á Selfoss. Við bámm upp vandræði okkar og var hleypt út og var sagt að standa nú réttu megin á götunni. Við kom- umst til Reykjavíkur á endanum. Kannski vomm við ósköp klaufaleg- ar og fljótfærar konur, en oft hlógum við að þessari ferð okkar sem farin var aðeins til Hveragerðis en var okkur þó nokkur svaðilför. Já, margs er að minnast og minningarnar eig- um við, enginn tekur þær frá okkur. Við Svava hittumst ekki eins oft nú síðari ár, og kom þar ýmislegt til, þar á meðal breyttir hagir okk- ar. Bamabömum hennar fjölgaði og áttu þau öll gott athvarf hjá ömmu og afa í Markholtinu, alltaf var þar nóg pláss og amma vafði þau sínum umhyggjuörmum. Þau vom henni svo mikils virði. Lítill sólargeisli leit svo-dagsins ljós í byijun ársins, lítið langömmubam. Mínir hagir breyttust, frá því að vera heimavinnandi húsmóðir í mörg ár, tók vinnumarkaðurinn við, full t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBJÖRN JÓN JÓNSSON skipstjóri, Hlfð 2, fsafirði, verður jarðsunginn frá ísafjaröarkapellu laugardaginn 4. mars 1995 kl. 10.30. Jónas Guðbjörnsson, Arnheiður Símonardóttir, Gunnar Guðbjörnsson, Aðalheiður Guðbjörnsdóttir, Viktor Guðbjörnsson, Guðríður Pálsdóttir, Guðbjörg Guðbjörnsdóttir, Valdimar Jónsson, Sigurvin Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. MINIMINGAR vinna og stórt heimili tók sinn tíma, en síminn var við höndina og var hann notaður óspart. Að tala við hana Svövu var svo gaman, ein klukkustund jafnvel tvær og þá var enn margt ósagt. Svava átti við mikla vanheilsu að stríða síðustu árin, en dómurinn féll síðla árs 1994^ þá vissu allir að hveiju stefndi. Eg var ósátt við þann dóm, vildi halda í vonina, gat ekki hugsað mér hana Svövu svona mikið veika, samt vildi ég svo gjarnan láta hana vita hvers virði hún var mér og mínum. Svo var það orðið of seint. Okkar síðasta samtal var skömmu áður en hún fékk að vita hve veik- indi hennar voru alvarleg. Þá spjöll- uðum við um alla heima og geima og áður en við vissum af vorum við búnar að tala í símann á aðra klukkustund. Hjá dætrunum og barnabömun- um var hún síðustu mánuðina, þar sem þau önnuðust hana af stakri alúð og umhyggju og síðasta daginn sem hún lifði komst hún heim í Markholt. Þá var skyndilega klippt á lífsstrenginn og lést hún á Land- spítalanum þá nótt. Elsku Svava mín, þakka þér fyrir mig, þakka þér fyrir að taka mér eins og við værum tengdar blóðbönd- um, þakka þér fyrir allar samveru- stundimar í gleði og erfíðleikum, þakka þér fyrir allar samræðumar og góðu ráðin, þakka þér traustið og vináttuna, þakka þér fyrir glettn- ina og kátínuna. Hann Rútur minn þakkar þér allt sem þú varst honum, það var ekki að ástæðulausu að hann kallaði þig „Svövu mömmu". Þakka þér fyrir allt, allt. Elsku Gísli, Eygló, Þórann, Guð- laug og barnabörn. Guð veri með ykkur og gefí ykkur styrk. Geymið allar góðu minningarnar, þið eigið þær eftir. Enginn getur tekið þær frá ykkur. Minningin lifír. Bergljót Einarsdóttir. Mig langar með nokkram orðum að minnast föðursystur minnar Svövu. Svava var Skaftfellingur til hinstu stundar, þótt hún byggi ann- ars staðar og er því við hæfí að skyggnast til baka og litast um í Álftaveri, nánar tiltekið á Heijólfs- stöðum í upphafí kreppunnar. Þá bjuggu þar hjónin Þuríður Pálsdóttir og Jóhannes Guðmundsson, en þar hófu þau búskap árið 1919 eftir að ógnvaldurinn Katla hafði látið greipa sópa á býli þeirra Söndum, sem var á hólma í miðju Kúðafljóti. Þetta var fyrir daga bjargráðasjóðs og viðlaga- tryggingar og þegar náttúruhamfar- ir sem þessar dundu yfír var enga hjálp að fá úr opinberam sjóðum. Það þurfti að byija allt upp á nýtt. Við þessar aðstæður ólust systk- inin á Heijólfsstöðum upp. Eldri bræðumir fímm fæddir á Söndum fyrir Kötlugos auk lítillar stúlku, Láni; sem lést ársgömul, en yngri systkinin, tveir drengir og þijár stúlkur, fæddust á Heijólfsstöðum. Þau lærðu öll fljótt að taka til hend- inni og þau yngri minnast þess með hlýju, er eldri bræðumir fóra að vinna utan heimils og komu færandi hendi heim. Þau ólust upp við nýtni og nægjusemi en aldrei liðu þau skort. Það er helst þegar kemur að menntun sem manni fínnst að þau sakni þess að hafa ekki haft tæki- færi til að læra meir á bókina og era óþreytandi að hvetja afkomend- ur sína til mennta. Heijólfsstaðir voru í þjóðbraut og þar var mjög gestkvæmt. Jóhannes afi var mikill ferðamaður, átti góða vatnahesta og var einatt fylgdar- maður ferðalanga, einkum strand- manna. Þau era mörg börnin sem dvalið hafa um lengri eða skemmri tíma á Heijólfsstöðum. Vinnudagur Þuríðar ömmu var því oft Iangur, en ekki æðraðist hún. Það var oft glatt á hjalla hjá Heijólfsstaðasystk- inunum. Það var sungið og dansað og þau yngri komust á lag með að leika á hljóðfæri, bæði orgel og harmonikku. Skólinn, samkomuhús sveitarinnar, var á hlaðinu. Þar kom unga fólkið í sveitinni saman til að skemmta sér og bárast samkomurn- ar oftast inn á heimili afa og ömmu. Á þessum árum og í þessu um- hverfí kynntust þau Svava og Gísli Jónsson frá Norðurhjáleigu. Árið 1952 fluttu þau úr Álftaverinu með framburð sinn Eygló og áttu sér fyrst um sinn athvarf hjá Guðlaugu og Eggert á Skúlagötunni, sem reyndust þeim vel. Þau hófu svo búskap á Langholtsveginum, þar sem Þórann fæddist, en fluttu árið 1956 í Selásinn og voru þar ein af landnemunum. Þar fæddist yngsta dóttirin Guðlaug. Svava stofnaði ásamt fleiri framfarasinnum Fram- farafélags Seláss og Árbæjarbletta. Félagið hélt uppi margháttuðu menningarstarfi og beitti sér fyrir bættri þjónustu við íbúana. Árið 1971 tóku þau sig upp og gerðu stuttan stans á Laugarnesveginum og á Selfossi en fluttu svo í Mosfells- sveitina, þar sem þau hafa búið síð- ustu 20 árum. Fyrst í Stórateignum, þar sem dætumar bjuggu enn hjá þeim og þá voru barnabömin orðin tvö og voru eftirlæti ömmu sinnar og afa, sem hafa verið óþreytandi að taka þátt í gleði þeirra og sorg- um, sem og þeirra sem yngri era, en alls era barnabömin fimm. Og Svövu auðnaðist að gleðjast með fjöl- skyldu sinni er langömmubarnið fæddist í byijun árs. Ég dvaldi á heimili Svövu og Gísla í Selásnum, þegar ég var við nám í Reykjavík. Svava var fasti punktur- inn í tilveranni. Hún vakti okkur á morgnana, horfði á eftir okkur út í myrkrið og tók á móti okkur þegar við komum heim og hvort sem geng- ið hafði vel eða illa kenndi hún okk- ur að það ert aðeins þú sem skapar velferð þína og ef þú trúir ekki á sjálfan þig gera aðrir það ekki held- ur. Svava varð snemma læs og las mikið til hinstu stundar og þó hún gerði ekki víðreist um dagana var hún svo fróð um menningu og siði framandi þjóða að engu var líkara en hún hefði dvalið meðal þeirra. Svava starfaði innan veggja heimil- isins mestan hluta æfí sinnar, en þegar hún vann úti var það einkum saumaskapur sem hún fékkst við. Hún var mikil handavinnukona og er ég ekki sú eina sem hún saumaði á alklæðnað, buxur, kjól og kápu. Ótal margar lopapeysurnar sem hún pijónaði og seldi og hvort heldur hún pijónaði eða saumaði hannaði hún flíkurnar sjálf. Það var hennar að skapa en ekki að eftirapa. Að rækta samband við ættingja og vini var henni lagið. Hún var aðaldriffjöðrin þegar haldin voru ættarmót og í húsmæðraorlofum sem hún fór í um árabil var hún hrókur alls fagnaðar. Tækifærisvísumar og heilu ljóða- bálkarnir urðu til, en henni var létt að setja saman vísur sem fluttar vora við ýmis tækifæri. Kæra frænka, ljóðabréfin okkar verða ekki fleiri. Glaðværð og hjálpsemi vora ríkjandi þáttur í fari Svövu. Enginn kunni betur að taka þátt í gleði annarra og hún var óeigingjöm á eigin gleði og deildi henni óspart með öðrum. En lífið var ekki alltaf gleði. Svava gat ekki síður tekið þátt í sorg annarra og var oftar en ekki fyrst á vettvang er sorgin barði að dyram, tilbúin að axla byrðar með þeim sem um sárt áttu að binda. Þeir eru margir sem hafa notið hjálpsemi Svövu gegnum árin. Þeim er það mikils virði, þegar eitthvað bjátaði á hjá henni, þá var hún tilbú- in að þiggja hjálp annarra og leyfa þeim þannig að þakka fyrir sig. Ekki síst á þetta við um Gísla og dætum- ar, sem gerðu allt til þess að henni gæti liðið sem best og dvalið með fjölskyldunni allri síðustu ævidagana, þegar ljóst var að manninum með ljáinn varð ekki burt þokað. Það var sátt kona sem ég talaði við seinustu dagana. Hún var búin að fylgjast með dætrum sínum koma sér þægi- lega fyrir, byggja höll, Hamrahöll, þar sem hveijum og einum var ætlað rúm, þá hann vildi og þurfti. Hún tók þátt í gleði sinna nánustu fram á síðasta dag. Hún þáði hjálp, sem hún skildi ekki alveg hve ríkulega var veitt, en fyrir henni var að hjálpa svo sjálfsagt, að hún tók ekki eftir þegar sjóður hennar óx. Henni auðnaðist að komast aftur heim í Markholtið, þar sem þau Gísli áttu heimili síðustu árin og sjá hve vel hahn hafði búið um hana með hagleik sínum, eins og svo oft áður. Hvers annars getur nokkur óskað sér? Kæra frænka, þeir eru margir sem ( sakna þín í og ekki síst hún Lára, | en mestur er þó missir fjölskyldu þinnar sem þú hélst svo vel utan um alla tíð. Hafðu þökk fyrir allt. Sigurlaug Gissurardóttir. Svava hafði átt við erfiðan sjúk- dóm að stríða um nokkuð langt skeið, sem leiddi hana yfir landa- mæri lífs og dauða. Það er köllun sem engin kemst undan en oft er ( hún þó þeim kærkömin sem heyja ^ stríð við erfíða sjúkdóma, þótt alltaf fylgi því söknuður og tregi hjá eftir- lifandi ástvinum hins látna. Foreldrar Svövu vora mikil dugn- aðar hjón, komust vel af með sinn stóra bamahóp. Þau bjuggu á Sönd- um í Meðallandi frá 1910-1919. Örlaganóttina, 12. oktober 1918, þegar Katla gaus var Þuríður ein heima með fímm börnin þeirra hjóna á aldrinum 1-6 ára og þurfti yfir | austur fljótið að fara til þess að forða | sér og bömunum frá þeim háska sem þessum náttúrahamföram fylgdu. Það tókst giftusamlega en leiða má hugann að því hvað það hefur verið mikil reynslustund. Jóhannes var mikill ferðagarpur enda átti hann mjög duglega hesta. Honum var það oft falið að flytja strandmenn úr Meðallandi til Reykjavíkur á hestum og sagði Jó- hannes mér sjálfur að þær ferðir | hafí oft verið mjög erfiðar að vetrar- j lagi. Þetta nefni ég hér til þess að benda á þá hörðu lífsbaráttu sem fólk bjó við fyrstu áratugi þessarar aldar. Að alast upp í þessu um- hverfi gat oft á tíðum verið harður skóli en hollur og áreiðanlega hefur sá skóli haft mikil áhrif á mótun einstaklinga og skaphöfn þeirra. Systkinin á Heijólfsstöðum voru öll þeirrar gæfu njótandi að fá í vöggugjöf góða greind og lærdóms- ( hæfíleika. Svava heitin var að því leyti ekki síst þeirra systkina. Við ' vorum á sama ári í barnaskóla. Allt- af hlaut hún hæstu einkunn í skólan- um. Ég minnist þess líka þegar við gengum til spurninga hjá séra Val- geiri Helgasyni, fímm fermingar- systkin að ég öfundaði Svövu af því hvað hún vissi allt sem presturinn spurði um. Ég fór samt leynt með það því ég vissi að það var synd. ^ Séra Valgeir gaf okkur umsögn í ( einkunn og umsögnin hennar Svövu var eitthvað á þá leið að hún væri ' stórgreind stúlka. Svava las alla tíð mikið, nánast allt sem húri komst yfír og var hún því mjög fróð kona. Hún var mjög vel hagmælt og orti við tækifæri mjög liðleg ljóð sem leiftraðu af húmor og hnyttni á góðri stund. Ég vil leyfa mér að láta fylgja eitt ljóð sem Svava orti fyrir ættar- mót þeirra Brynjólfs Eiríkssonar og ( Málfríðar Ögmundsdóttur, sem hald- | ið var í Sveinsbyrginu fyrir sunnan Klaustur 18.-19. júní 1985. ' Heilir frændur á fapaðarstund léttum fargi hins daglega kífs, unum glaðir á álftverskri grund, vekjum eldgömul kynni til lífs. Æskan björt, ellin há, arfur lífsins af feðranna rót. Fagna hér, heið á brá. Heilir velkomnir ættar á mót. | Þetta er vel kveðið, djúpstæð | hugsun sem segir margt í fáum orð- | um. Ég vona að það varðveitist sem mest af ljóðunum hennar Svövu. Þau eru sérstök í minningu liðins tíma. Svava var hógvær kona og lét lítið yfir þessum hæfileikum sínum, sem voru miklu meiri en flesta grunaði. Hún var sérstakur persónuleiki, fór sínar eigin leiðir í skoðunum og lét þær einarðlega í ljós við hvern sem var og talaði fallegt mál. Aldrei heyrði ég hana kvarta undan sínu i hlutskipti í lífinu. Blessuð sé minning hennar. Yertu sæl Svava. Ég og fjölskylda mín þökkum samfylgdina og vottum eftirlifandi eiginmanni, Gísla bróður mínum og fjölskyldu hans svo og öllum ættingj- um og vinum dýpstu samúð. Sigurður Jónsson. • Fleiri minningargreinar um Svövu Jóhannesdóttur bíða birt- ingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.