Morgunblaðið - 19.03.1995, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 19. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Halldór Blöndal mótmælir ummælum Jóns Baldvins
VIKAN 12.3 -18.3.
►HIÐ tölvuvædda upp-
boðskerfí islenskra fisk-
markaða varð alþjóðlegt á
fimmtudag þegar fyrirtæk-
ið Northcoast Seafood í
Boston i Bandaríkjunum
var tengt inn á íslenska
kerfið.
►HAGNAÐUR Búnaðar-
banka íslands á síðastliðnu
ári nam alls um 212 milljón-
um króna samanborið við
49 milljónir árið 1993.
Framlög á afskriftareikn-
ing drógust verulega sam-
an á árinu og námu 6.501
miHjón samanborið við
1.190 milijónir árið 1993.
►SJÓRINN fyrir norðan-
og austanverðu landinu
hefur ekki mælst kaldari í
30 ár og gæti sjávarkuldinn
haft áhrif á uppvaxtarskil-
yrði þorskstofnsins, að
sögn Svend-Aage Malm-
berg haffræðings.
►ARI Teitsson, ráðunaut-
ur hjá Búnaðarsambandi
Suður-Þingeyinga, var kos-
inn formaður Bændasam-
taka íslands, en það nafn
hefur verið valið nýjum,
sameinuðum samtökum
bænda.
►STARFSHÓPURsem
metið hefur árangur af út-
boðsstefnu ríkisins telur að
athuga þurfi hvort æski-
legt sé að taka upp þá reglu
að verktakar sem ekki
standa skil á opinberum
gjöldum verði útUokaðir
frá því að gera tilboð í
verkefni á vegum ríkisins.
Gagntilboði
hafnað
RÍKIÐ hafnaði á miðvikudag gagntil-
boði sem kennarasamtökin lögðu þá
fram í kjaradeilu kennara og ríkisins
sem staðið hefur í rúman mánuð. Að
mati forystumanna samninganefndar
ríkisins fól tilboð kennarafélaganna í
sér litla eða enga tilslökun frá upphaf-
legum kröfum kennara. Að mati
beggja samningsaðila felur tilboðið í
sér um 30% launahækkun ef hætt er
við áformaðar skipulagsbreytingar á
skólastarfi.
Manna leitað
austan Hofsjökuls
ÞRIGGJA manna á gönguskíðum var
saknað á fimmtudaginn austan Hof-
sjökuls eftir vikuferð um hálendið, en
þeir höfðu sent frá sér neyðarkall um
gervihnött. Mennirnir fundust heilir á
húfí á föstudag eftir víðtæka leit
björgunarsveita. Þeir höfðu í rúman
sólarhring barist við gegndarlausan
veðurofsa og gefist upp á að grafa
sig í fönn vegna kulda og mikillar
ofankomu.
Banaslys í
umferðinni
UNG kona, tveggja ára sonur hennar
og ófætt barn létust í bílslysi á Suður-
landsvegi fyrir ofan Skíðaskálann í
Hveradölum síðastliðinn sunnudag.
Eiginmaður konunnar slasaðist mikið
og var hann fluttur á slysadeild Borg-
arspítalans og síðan á gjörgæsludeild.
Þá lést 73 ára gömul kona í árekstri
tveggja bíla sem varð á Reykjanes-
brautinni skammt frá vegamótunum
að Vífílsstöðum á miðvikudaginn.
Ökumenn beggja bílanna slösuðust
miRið í árekstrinum.
w&mr- ERLENT
i
Kanadamenn lýsa yfir
sigri í grálúðustríði
KANADAMENN lýstu á fimmtudag
yfír sigri í deilunni við Evrópusam-
bandið um grálúðuveiðar spænskra
togara utan við kanadísku landhelg-
ina. Héldu togararnir sig utan við
grálúðumiðin seinni hluta vikunnar
en á þriðjudag höfðu spænskir útgerð-
armenn fyrirskipað togurunum að
hefja tafarlaust grálúðuveiðar að
nýju. Kanadísk yfírvöld slepptu á mið-
vikudag spænska togaranum Estai,
sem færður var tii hafnar í St. John’s
í síðstu viku. Það var gert eftir að
útgerð skipsins hafði greitt jafnvirði
23 milljóna í tryggingu. Kanadamenn
saka spænsku togárana um að stunda
smáfiskadráp. Þá fullyrða þeir að
möskvar trolls Estai séu undir .lág-
marksstærð, skipstjórinn hafí haldið
tvenns konar dagbækur yfir veiðarnar
til að fela rányrkjuna og að leynihólf
hafí fundist í skipinu þar sem fundust
tegundir sem veiðar eru ekki leyfðar á.
Mannskæð átök
múslima í Tyrklandi
ÓKYRRÐ var víða í Tyrklandi í vik-
unni en átök brutust út á milli minni-
hlutahóps alavíta, hófsamra múslima,
og bókstafstrúarmanna í Istanbúl sl.
sunnudag. Óeirðirnar hófust er
óþekktir menn skutu á fólk á kaffi-
húsi í hverfi aiavíta. Var götum að
hverfinu lokað og útgöngubann sett.
Að minnsta kosti 15 manns hafa látið
lífið : átökunum og tugir slasast.
Fjöldi fólks hefur mótmælt aðferðum
lögreglunnar í Istanbúl við að bæla
niður átökin og greip hún þá til þess
ráðs að skjóta á mótmælendurna.
► L AMBERTO Dini, for-
sætisráðherra Italíu, hélt
velli á fimmtudag þegar
tillaga um traustsyfirlýs-
ingu á stjórn hans var tek-
in til atkvæða í neðri deild
þingsins og aukafjárlögin
samþykkt. Tókst Dini að
knýja fjárlögin í gegn þrátt
fyrir andstöðu Silvios Ber-
lusconis, forvera hans.
►YASHUSHI Akashi,
sendifulltrúa Sameinuðu
þjóðanna í Bosníu, tókst
ekki í vikunni að koma á
fundi stríðandi fylkinga í
landinu. Sagði hann hætt
við að stríðið brytist út að
nýju.
►SAMSKIPTI bandarískra
og breskra stjórnvalda eru
óvenju stirð vegna óánægju
Breta með þá ákvörðun
Bills Clintons Bandaríkja-
forseta að leyfa Sinn Fein,
sljórnmálaarmi IRA, að
opna skrifstofu í Washing-
ton. Vakti það athygli að
John Major, forsætisráð-
herra Bretlands, svaraði
ekki ítrekuðum símtölum
Clintons í tæpa viku.
►SKOÐANAKANNANIR
benda til þess að Jacques
Chirac, fyrrum forsætis-
ráðherra, muni vinna auð-
veldan sigur á Lionel Josp-
in, frambjóðanda sósíalista
og Edouard Balladur for-
sætisráðherra í frönsku
forsetakosningunum sem
fram fara eftir 6 vikur.
Hef enga tillögxi flutt um
að þrefalda matarverð
HALLDÓR Blöndal landbúnaðar-
ráðherra vísar á bug orðum Jóns
Baldvins Hannibalssonar, formanns
Alþýðuflokksins og utanríkisráð-
herra, sem hann viðhafði á blaða-
mannafundi í fyrradag, að matar-
karfa sem nú kostar 4.000 kr.
myndi kosta 11.840 ef tillögur land-
búnaðarráðherra um tolla á matvör-
ur næði fram að ganga.
„Ég átta mig ekki á því hvað
vakir fyrir Jóni Baldvin með þess-
ari uppsetningu. Hann veit jafn vel
og ég að ég hef enga tillögu flutt
um að þrefalda matarverð. Hitt er
rétt að tilboð okkar hjá GATT var
samþykkt í ríkisstjóminni og borið
fram af starfsmönnum utanríkis-
ráðherra," segir Halldór.
Skýrslu skilað á bakvið
landbúnaðarráðuneytið
„í janúarmánuði skilaði Hag-
fræðistofnun Háskóla íslands
skýrslu til ráðuneyta utanríkis, iðn-
aðar og viðskipta, á bakvið landbún-
aðarráðuneytið um svokallaðar „sex
matarkörfur," þar sem heimsmark-
aðsverð er borið saman við íslenskt
verð og GATT-tilboð okkar en eng-
in greinargerð fylgir um það hvem-
ig heimsmarkaðsverðið er fundið.
Þær tölur sem utanríkisráðherra
var með á blaðamannafundinum em
ekki nákvæmlega samhljóða tölum
Hagfræðistofnunar en bera það með
sér að þær era eigi að síður lagðar
til grandvallar og rétt til þess að
sýna vinnubrögðin þá er gert ráð
fyrir því að heildsölu- og smásöluá-
lagning á innfluttu lambalæri sé 80
krónur en 657 krónur í þeirri körfu
sem hann kallar mitt verð og mínar
tillögur," sagði landbúnaðarráðherra.
Halldór benti á að í Þýskalandi
væri landbúnaðarverð lægra en al-
mennt gerðist í nálægari Evrópu-
sambandsríkjum. „Ég hef nýlegar
tölur þaðan. Nýsjálenskt lambakjöt
kostar 647 krónur, ferskt lambakjöt
999 krónur en 796 krónur í Hag-
kaup. Það er því ekki allt sem sýn-
ist í þeim efnum. Það er nauðsyn-
legt að fram komi að sú lækkun á
matvörum sem menn bjuggust við
að yrði í Svíþjóð við inngöngu lands-
ins í Evrópusambandið hefur ekki
komist til skila,“ sagði hann.
Vildi lækka verðið hraðar en
Alþýðuflokkurinn
„GATT-tilboð okkar er lagt fram
með sama hætti og hjá öllum öðrum
ríkjum. Við íslendingar áskiljum
okkur rétt til þeirra tollígilda sem
heimilaðar era af því að við teljum
það öraggara upp á seinni tíma.
Við höfum það hins vegar í okkar
valdi hvort við viljum nýta það til-
boð til fullnustu og mér finnst það
ekki trúverðugt hjá utanríkisráð-
herra að gefa í skyn að einhvern
tíma hafí staðið til að nýta heimild-
irnar til fulls. Maður fer auðvitað
að rifja það upp fyrir sér eftir þenn-
an blaðamannafund hvernig sam-
starfið hefur verið við Alþýðuflokk-
inn þessi síðustu fjögur ár um land-
búnaðarmálin og þá kemur undir
eins upp í hugann að ég vildi fara
hraðar með tollalækkanir á rekstr-
arvöram til landbúnaðarins en Al-
þýðuflokkurinn. Ég vildi með öðram
orðum lækka verðið hraðar og
meira en Alþýðuflokkurinn, enda
hefur það skilað sér í vöraverðinu,"
sagði Halldór Blöndal.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞÓTT óþægindi Reykvíkinga af
veðrahamnum undanfarna daga
séu ekki mikil á mælikvarða
landsbyggðarinnar hefur fín-
gerður sjávarúðinn í andrúms-
loftinu gert mörgum skráveifu.
Bíleigendur við sjávarsíðuna
fara ekki varhluta af seltunni og
Saltrok
stöðugur straumur af fólki á
þvottastöðvum.
Verst úti verða þó verslunar-
eigendur sem eiga lifibrauð sitt
undir því að fólk geti skoðað
varninginn í búðagluggunum.
„Veðráttan hefur verið þannig
að ég hef þurft að þvo gluggana
daglega um langt skeið,“ segir
Helga Ragnarsdóttir sem rekur
verslun að Laugavegi 41 ásamt
manni sínum Gunnari Malmberg
gullsmiði.
Einleikarapróf
íListasafni
STEFÁN Ragnar Höskuldsson lýk-
ur síðari hluta einleikaraprófs frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík með
tónleikum sem haldnir verða 21.
mars í Listasafni íslands kl. 20.30.
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
leikur með á
píanó en á efnis-
skrá tónleikanna
era Svíta í c-
moll fyrir flautu
og píanó eftir
Jóhann Sebast-
ian Bach, Joue-
urs de Flute eftir Stefán Ragnar
Albert Roussel, Höskuidsson
Sónata eftir Hindemith, Grande
Fantaisie um stef úr „Mignon“
Ambrose Thomas eftir Paul Taffan-
el, Romance eftir Saint Saéns og
Chant de Linos eftir André Jolivet.
Aðgangur er ókeypis.
Forseti bæjarstjórnar Bolungarvíkur
Ummælin um bæjarstjórn
byggjast á misskilningi
AGUST Oddsson, forseti bæjar-
stjórnar Bolungarvíkur, segir að
þau ummæli Matthíasar Bjarna-
sonar, stjórnarformanns Bygg:ða-
stofnunar, að framkoma bæjar-
stjórnar Bolungarvíkur varðandi
sölu á hlutabréfum bæjarins í Os-
vör hf. sé stórvítaverð,_ hljóti að
byggjast á misskilningi. Ágúst seg-
ir að engin sölusamningur hafi
verið gerður vegna hlutabréfa
bæjarins í Ósvör hf., heldur hafi
verið skrifað undir kauptilboð frá
Bakka hf. Tilboðið sé háð sé
ákveðnum skilmálum, og það sé
ekki í verkahring bæjarstjórnar að
uppfylla þau heldur Bakka hf.
„Lán Byggðastofnunar er með
bæjarábyrgð og það hefur ekki
borist neitt formlegt erindi til
stofnunarinnar fyrst og fremst
vegna þess að kauptilboð þarf að
liggja fyrir og síðan þarf að vinna
að því að uppfylla forsendur þess.
Það er hins vegar ekki rétt að
Byggðastofnun sé ekki kunnugt
um þetta mál, einfaldlega vegna
þess að við höfum rætt við emb-
ættismenn Byggðastofnunar
vegna tæknilegra atriða um hvort
vissir hlutir séu gerlegir eða ekki.
Það er ein af forsendum kaupand-
ans að annaðhvort verði láninu
breytt í víkjandi lán eða að skilmál-
um þess verði breytt, og það er
hans hlutverk að ganga frá bví
máli við Byggðastofnun," sagði
Ágúst.