Morgunblaðið - 19.03.1995, Page 22
22 SUNNUDAGUR 19. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
J
í
lyfjabúðin IÐunn
. stOFNSETT 1928
JOHANNA magnúsdóttir
JON ÞÖRARINSSON
KJARTAN GUNNARSSON
f&Ki i P -í E ’ Dtn li V $KSb
Lyfjabúðin Iðunn við Laugaveginn er eins og hún var fyrir nær 60 árum og jafn notalegt inn að
koma. Jóhanna Magnúsdóttir lét hanna viðarinnréttingar í nýju lyfjabúðina sína 1928 i Danmörku.
Ljósmyndir/Ingimundur Magnússon
Þrír lyfsalar hafa rekið Lyfjabúðina Iðunni frá því hún var stofn-
uð 1928. Kjartan Gunnarsson er nú að flytja á nýjan stað.
c
í
í
i
i
c
f
c
í 67 ár hefur Lyfjabúðin
Iðunn með notalegu við-
arinnréttingunum verið
fastur punktur í tilveru
Reykvíkinga. Nú er því
að ljúka. Lyfjabúðin er
að flytja í Domus
Medica, þar sem Kjart-
an Gunnarsson lyfsali
er að koma sér fyrir
með nútíma innrétting-
um frá Italíu og Dan-
-----------_-------------
mörku. „Eg byrjaði að
búa til pillur á pillu-
bretti og hefi gaman af
að Ijúka lífsstarfínu með
fullkomnasta apóteki
landsins“, varð honum
að orði við Elínu
Pálmadóttur.
Starfsfólk og eigendur í ágúst 1954. Fremri röð: Vilborg Ásgeirsdóttir, Herdís Þórðardóttir, Ósk-
ar Einarsson læknir, óþekkt, Jón Þórarinsson fyrrv. apótekari og Oddný Eyjólfsdóttir. Önnur röð:
Steinunn Ögmundsdóttir, Sigríður Helgadóttir, eigandinn Jóhanna Magnúsdóttir apótekari, Þóra
Óskarsdóttir, Ásmundur Eyjólfsson ojg Erla Kaldalóns. Þriðja röð: Guðbjörg Einardóttir, Ólafía
Erlendsdóttir, Guðrún Erlendsdóttir, Agústa Ólafsdóttir, Örn Markússon apótekari, Snæbjörn Kald-
alóns fv. apótekari og Steingrímur Krisljónsson apótekari.
MAÐUR horfir með sökn-
uði í kring um sig í lyfja-
búðinni við Laugaveg-
inn með gömlu, dönsku
innréttingunum, sem hefur verið
gengið um með virðingu og alúð.
Þegar á sínum tíma þurfti að gera
smá breytingar lét Kjartan Gunnars-
son lyfsali arkitekt hanna þær svo
þær féllu inn í og smíða úr sama
viði. Fyrsta spumingin, áður en við
göngum upp í skristofu hans á ann-
arri hæðinni, verður því hvað verði
um þessar innréttingar, sem þama
hafa verið allt frá 1928, þegar apó-
tekið var stofnað. Kjartan segir það
óráðið.
Innréttingin sé svo stór. Lyfja-
safnið úti á Seltjamamesi hafi ekki
rúm fyrir nema lítið brot af henni.
Hann kvaðst hai'a haft samband við
Árbæjarsafn, datt í hug að þeir vildu
setja upp lyfjabúð í einhveiju gamla
húsinu, en safnið telur sig ekki geta
hýst hana.„Ef ekki tekst að finna
innréttingunni stað gæti svo farið
að hún yrði að fara á haugana,“
segir Kjartan. En bætir við að hann
mundi vilja stuðla að því að henni
yrði þá pakkað og komið í geymslu
þar til hún fengi samastað. Að inn-
réttingin yrði geymd en ekki gleymd.
Hann segir að hún sé að vísu ekki
úr harðviði, en úr viði samt. Var
sérsmíðuð í Danmörku og flutt til
landsins.
Eina breytingin frá upphafí var
þegar aðgreina þurfti vinnusvæðið
frá búðinni. Áður voru lyfín löguð
fyrir allra augum. En einkum með
aukningu símalyfseðla þurfti að
tryggja að ekki heyrðist það sem
sagt er í síma. „Þagmælska var þið
fyrsta sem ég lærði í þessu fagi.
Allt sem fram fer í apóteki er leynd-
armál. Engu má anda út og það
lærir allt starfsfólk á svona stað,“
segir Kjartan. Hann bætir við að í
Danmörku séu símalyfseðlar orðnir
svo til óþekktir af þessari ástæðu.
Þar fari öll samskipti fram um tölv-
ur milii lækna og lyfsala, sem sé
miklu tryggara. Danir séu þar
tæknilega séð komnir skrefi á undan
íslenskum lyfsölum. Að öðru leyti
standi þeir þeim dönsku síst að baki.
Kjartan kvaðst hafa farið utan og
skoðað lyfjabúðir í Danmörku þegar
hann fór að huga að nýju lyfjabúð-
inni og sá að þar ríkir nú sama plast-
öldin sem hér. Allar innréttingar .
orðnar úr plasti og þá búið að fleygja
þessum gömlu. Við komum okkur fs
saman um að þegar sú tískusveifla m
verður eins og aðrar gengin yfír, þá *
sé slæmt ef allt það gamla sé glat-
að. Innréttingamar í Iðunnarapóteki
séu orðnar alveg einstakar.
Fyrsti kvenlyfjafræðingurinn
Lyfjabúðin Iðunn er því búin að
vera þarna með sama yfírbragði á
Laugavegi 40a í 67 ár og aðeins
rekin af þremur lyfsölum. Jóhanna
Magnúsdóttir lyfjafræðingur lét sér-
hanna innréttingar og smíða í Dan- m
mörku fyrir þessa lyfjabúð. Jóhanna *
var fyrsti kveniyfjafræðingur lands-
ins. Hún var dóttir Magnúsar Torfa-
sonar sýslumanns á Isafirði og hafði
byijað að læra í lyfjabúðinni þar
áður en hún fór utan til náms í
Danmörku. Hún hafði svo unnið ein-
hvern tíma í apótekum hér heima
áður en hún fékk leyfí fyrir apóteki
við Laugaveginn. Þá voru fyrir tvær ('
lyfjabúðir í Reykjavík, báðar reknar f
af karlmönnum, Reykjavíkurapótek m
og Laugavegsapótek, sem var til- ™
tölulega nýstofnað. Sagt er að menn
hafi ekkert verið alltof hrifnir af að
fá hana þarna, en Jóhanna lét sig
ekki. Sjálf bjó hún alltaf í mjög
glæsilegri íbúð á þriðju hæð sama
húss og átti feykilega fallegt mál-
verkasafn. Eftir að hún giftist Ósk-
ari Einarssyni lækni bjuggu þau
þarna með dóttur sinni, Þóru Cam- %
illu, sem er nú eigandi hússins. Á f
annarri hæðinni bjó síðast faðir Jó- m
hönnu, auk þess sem skrifstofan var . ™
þar. Og er enn.
Jón Þórarinsson lyfsali leigði
áfram þegar hann tók við Lyfjabúð-
inni Iðunni og líka Kjartan Gunnars-
son sem tók við fyrir 19 árum, í
október 1976. Og hefur rekið lyfja-
búðina síðan með einni konu til að-
stoðar, í skrifstofunni hér við hlið-
ina, eins og hann orðar það.
Skrifstofuhaldið ein kona
Svava Ágústsdóttir hefur unnið H
þar í 40 ár, byijaði hjá Jóhönnu
Magnúsdóttur. Hún hefur bókhaldið
og er jafnframt gjaldkeri. Svava var
ekki þar þegar viðtalið fór fram.
Hún var flutt á nýja staðinn upp í
Domus Medica, fyrst allra. Þegar
spurt var hvort hún ætlaði að halda
áfram í nýju umhverfi, sagði Kjartan
að sjálfsögðu. Svava hefði verið svo-
lítið rög þegar tölvuöldin gekk í gj
garð hér sem annars staðar, en svo !!
drifíð sig í umskiptin. Hann kveðst 1
hafa lagt áherslu á að fá hana með
í flutningana á nýja staðinn og þau
umskipti sem eru að verða. „Ég lagði
áherslu á að allir flyttu með okkur
á nýja staðinn. Við höfum ávallt
reynt að halda í fólk með reynslu,
enda eru sumir búnir að vera hér í
áratugi," segirKjartan. Hann kveðst
hafa haldið uppi starfseminni í 19 |
ár með lyfjafræðingum og lyfja- m
tæknum, sem sé einstaklega góður ®
vinnukraftur, gefist áreiðanlega ekki f
betri í veröldinni. Lyfjatæknarnir