Morgunblaðið - 19.03.1995, Page 32
32 SUNNUDAGUR 19. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Bróðir okkar og frændi,
EYJÓLFUR ÁGÚSTÍNUSSON,
Steinskoti,
Eyrarbakka,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands, miðvikudaginn 15. mars.
Bjarndís K. Guðjónsdóttir, Daníel Ágústínusson,
Erlendur Daníelsson.
t
Móðir okkar tengdamóðir og amma,
KRISTÍN INGIMUNDARDÓTTIR,
Vesturbergi 78,
Reykjavík,
andaðist þann 11. mars í Vífilsstaðaspítala.
Útförin ferfram þann 21. mars kl. 13.30frá Fella- og Hólakirkju.
Börn hinnar látnu.
t
Elsku litli drengurinn okkar og bróðir,
AUÐUNN ÖRN AUÐUNSSON,
Djúpavogi 12,
Höfnum,
lést 4. mars sl. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum öllum fyrir auðsýnda samúð.
Þórey Eyjólfsdóttir, Auðunn Almarsson,
Kristinn Örn, Gunnar Örn, Ævar Örn.
t
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SÖRU MAGNÚSDÓTTUR,
fer fram frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 21. mars kl. 13.30.
Erla Elfasdóttir, Jón Ragnar Einarsson,
Sigríður Guðrún Elíasdóttir,
Magnús Elíasson, Erna Jóhannsdóttir,
Elías Fells Elíasson, Anna M. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín og amma okkar,
ÓLÖF GUÐFINNA JAKOBSDÓTTIR,
vistheimilinu Seljahlíð,
verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 20. mars kl. 13.30.
Jakobina G. Finnbogadóttir,
Nanna D. Björnsdóttir,
Ólöf G. Björnsdóttir, Vigfús Árnason,
Sveinbjörn E. Björnsson, Ase Gunn Björnsson,
Helga Lilja Björnsdóttir, Tryggvi Agnarsson,
Guðrún Þ. Björnsdóttir, Halldór R.Á. Reynisson.
t
Systir mín og mágkona,
AÐALHEIÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Hjúkrunarheimilinu Sólvangi,
áður Austurgötu 26,
Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði, fimmtudaginn 23. mars kl.
13.30.
Guðmann Pálsson,
Guðmunda Sigurðardóttir,
Sigurborg Valdimarsdóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN SVEINSSON
frá Siglufirði,
áðurtil heimilis
i Norðurtúni, Álftanesi,
verður jarðsunginn frá Bessastaða-
kirkju þriðjudaginn 21. mars kl. 13.30.
Jóhanna S. Guðjónsdóttir,
Erlendur Pálsson,
Ragnheiður Guðlaugsdóttir,
Stine Helen Ottersen,
Björgvin Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Pétur R. Jónsson,
Elsa Jónsdóttir,
Þorsteinn Jónsson,
Karl H. Jónsson,
Katrín N. Jónsdóttir,
Sigrún Ó. Jónsdóttir,
Jóna S. Jónsdóttir,
OLOF GUÐFINNA
JAKOBSDÓTTIR
+ Ólöf Guðfinna
Jakobsdóttir
fæddist á Felli í
Mýrdal 28. júlí
1908. Hún lést á
Borgarspítalanum
13. mars síðastlið-
inn. Foreldrar Ólaf-
ar voru Jakob
Björnsson smiður
og Guðríður Pét-
ursdóttir og fluttist
hún eins árs gömul
með þeim til Víkur
í Mýrdal. Hún
missti föður sinn í
sjóslysi tveggja ára
gömul og móður sína um ferm-
ingu. Systkinin voru tíu talsins,
sjö drengir og þrjár stúlkur.
Eftirlifandi er nú yngsta systir-
ELSKU langamma er dáin. Hennar
verður sárt saknað af stórri fjöl-
skyldu. Með fáeinum orðum langar
okkur að minnast hennar Ólöfu
ömmu eins og við kölluðum hana
alltaf. Ólöf amma var fædd á bæn-
um Felli árið 1908 en ólst upp með
6 systkinum í Vík í Mýrdal. Foreldr-
ar hennar létust báðir ungir að
árum og annaðist Ólöf amma þau
eftir systur sína Bínu, sem er nú
ein eftirlifandi af systkinunum.
Amma Ólöf fluttist til Reykjavíkur
og eignaðist sína einkadóttur Jak-
obínu. Amma Bíbí eignaðist 5 böm
og langömmuböm Ólafar nú orðin
17 talsins. Ólöf amma hafði mikið
yndi af þessum hóp og var stolt af
þessari stóm fjölskyldu. Alltaf tók
hún öllum opnum örmum og fyllti
maga af frægum pönnukökum,
kandís eða rúsínum.
Langömmu var margt til lista
lagt. Hún var alveg frábær lista--
kona, allt sem hún tók sér fyrir
hendur varð að ómetanlegum dýr-
gripum. Hún starfaði lengst af sem
saumakona í Bólstaðarhlíðinni.
Bamaböm og langömmubörn nutu
þess vel, amma saumaði upphluti,
kjóla, úlpur og fallegustu brúðar-
kjóla. Hún var rómuð fyrir vandaða
vinnu og fallegan frágang. Amma
sat aldrei auðum höndum og síð-
in, Jakobína Guð-
ríður.
Ólöf var tvígift.
Fyrri maður henn-
ar var Ólafur
Ingvason en þau
slitu samvistum.
Seinni maður henn-
ar var Ólafur Lár-
usson málarameist-
ari. Ólöf eignaðist
eina dóttur með
Finnboga Eyjólfs-
syni bílstjóra, Jak-
obínu. Barnabörnin
eru fimm og bama-
barnabörnin sautj-
án.
Útför Ólafar fer fram frá
Neskirkju á morgun og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
ustu árin hefur hún unnið marga
muni sem prýða heimili íjölskyld-
unnar. Hekluð rúmteppi, útskornir
lampar, útsaumaðar myndir, hekl-
aðar peysur, leirtau, tekatlar, skart-
gripir og ekki má gleyma öllum
fíngravettlingunum og hosunum
sem voru í stöðugri eftirspurn hjá
langömmubömunum.
Ölöf amma var mikil félagsvera
og leið best í kringum fólk. Hún
sótti í mörg ár starf aldraðra í
Lönguhlíð og þar eignaðist hún
marga dýrmæta vini. Seinna flutti
hún vestur á Boðagranda en lét það
ekki aftra sér frá félagslífinu og tók
vagninn í Lönguhlíðina hvern dag.
Amma spilaði oft félagsvist með
Skaftfellingafélaginu og kom í ljós
að hún hafði oftar en ekki vinnings-
hönd. Það var alltaf nóg að gera í
kringum ömmu og fór hún í ferðir,
meðal annars með öldruðum, tií
dæmis á Hjalteyri og í Fljótin. Hún
dvaldi hjá okkur í Hrísey um sumar
og naut sín vel í sveitaloftinu og
vildi helst ekkert fara aftur í borg-
arysinn. Minnisstætt er 85 ára af-
mæli ömmu á fallegum sumardegi,
þegar öll fjölskyldan hittist og átti
saman góðan dag. Hún átti skilið
að fá fína veislu því hún hafði allt-
af á hreinu hvenær hver ætti af-
mæli og gaf gjafír sem hún hafði
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
ÞORGERÐUR
ÞÓRÐARDÓTTIR,
Túngötu 16,
Húsavík,
verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju
miðvikudaginn 22. mars kl. 14.00.
Hildigunnur Halldórsdóttir, Páll Þórhallsson,
Þórður Adamsson, Þuríður Hallgrímsdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og
afi,
GEORGÁRNASON
leigubílstjóri,
Efstalandi 18,
andaðist 13. mars sl.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju
þriðjudaginn 21. mars kl. 13.30.
Margrét Kristjánsdóttir,
Ólafur H. Georgsson, María Inga Hannesdóttir,
Auðunn Georg Ólafsson, Selma Víðisdóttir,
Kári Pétur Ólafsson.
t
Þökkum auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför
KRISTÍNAR EGGERTSDÓTTUR,
Snorrabraut 73.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar B-6, Borgarspítala.
Systkini hinnar látnu
og Emilía Guðmundsdóttir.
sjálf gert. Þessar gjafír eiga alltaf
eftir að vera fyrir okkur sem dýr-
gripir.
Við biðjum Guð að blessa ömmu
Bíbí sem hefur misst eiginmann og
móður á tveimur vikum og biðjum
hann um að styrkja hana. Við vitum
að nú líður langömmu vel og að
hún á eftir að fylgjast umhyggju-
söm með öllum börnunum sínum
um ókomna framtíð. Við kveðjum
hana með ljóði sem bróðir hennar
Magnús Þorberg Jakobsson samdi:
Elsku besta amma mín
ég uni vel hjá þér,
þú ert svo góð og yndisfín
og ætíð hjálpar mér.
Ef eitthvað amar að
allt þú skilur það,
með blíðu þinni elsku amma
allt þú bætir það.
Þorbjörg Helga, Árni
Björn og Heiðbjört.
Með söknuði kveð ég elskulega
langömmu mína, Ólöfu G. Jakobs-
dóttur. Er pabbi minn hringdi á
mánudagsmorgun, 13. mars, og bar
mér fréttir um andlát ömmu fylltist
hugur minn trega. Þó amma hafí
verið mikið veik er ég kvaddi hana
fyrir viku gerði ég mér ekki í hugar-
lund að svo stutt væri í að hún
færi. Amma var sterk kona og hafði
áður náð sér vel eftir veikindi.
Er ég hugsa til ömmu sé ég dug-
mikla konu sem alltaf hafði eitthvað
spennandi fyrir stafni. Amma var
gædd mikilli lífsorku og athafna-
semi og aldrei sá ég hana sitja með
hendur í skauti. Hún var mikil fé-
lagsvera og sótti alltaf þangað sem
mikið var um að vera, það átti ekki
við hana að stija heima við eirðar-
laus.
Af ömmu fór gott orð fyrir fal-
legt og vandað handverk og dugn-
að, en ófáir eru munirnir sem hún
bjó til handa fjölskyldunni og eru
hrein listaverk og verða vel geymd-
ir. Hún pijónaði fjöldann allan af
útpijónuðum hönskum, vettlingum
og hosum á okkur bamabarnbömin,
að ógleymdum ofurfallegum hekl-
uðum rúmteppum sem hún gerði
fyrir bamabörn sín og var það sein-
asta klárað fyrir fáum mánuðum
síðan.
Ömmu þótti fjölskyldan oft og
tíðum ansi slök við heimsóknir og
kvartaði oft sáran yfír að enginn
kæmi í heimsókn, en þó var það
nú svo að heimili hennar var oftast
fullt af gestum er ég kom í heim-
sókn, ef hún var þá á annað borð
heima. Amma elskaði að hafa allt
fullt af fólki í kringum sig og ávallt
átti hún deig í pönnukökur handa
gestum og gangandi. Ef einhver
kom óvænt í heimsókn og ekki var
til deig í pönsur var sá hinn sami
vinsamlegast beðinn um að gera
boð á undan sér næst, því ómögu-
legt væri að fá gesti án þess að
hafa eitthvað að bjóða þeim.
Amma var mjög hjartahlý,
yngstu langömmubörnunum þótti
ætíð mjög spennandi að heimsækja
ömmu. Auðséð var að það voru
ekki bara bömin sem nutu samvist-
anna heldur lifnaði yfír henni sjálfri
að fá litlu englana sína í heimsókn
og aldrei þreyttist hún á að tala
um þau. Amma fylgdist líka vel
með hvað var að gerast í lífi eldri
langömmubarnanna, fjölskyldan
átti hug hennar og hjarta og talaði
hún stolt um sína nánustu.
Elsku amma, ég þakka þér fyrir
þá ást og visku sem þú hefur gefíð
mér og bið góðan Guð að geyma þig.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Blessuð sé minning þín.
Erla Björk.