Morgunblaðið - 19.04.1995, Qupperneq 54
54 MIÐVIKUDAGUR 19. APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Ferdinand
„Allt er gott“
er nýja heim-
spekin mín ...
' ALLIS
THAT'5 MY N
PHILOSOPHT
3-
Þar sem þú ert hundur, þá
býst ég ekki við að þú hafir
heimspeki, er það?
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Auðvelt fyrir Island
að standa við skuldbind-
ingar Ríó-samningsins
Frá David Butt:
EINS OG allir vita er koltvísýring-
ur hættulegur vegna gróðurhúsa-
áhrifanna. Bruninn á jarðefnum
eins og þeim sem unnin eru frá
olíulindum veldur mikilli mengun
og sú mengun getur umbylt þeim
lífsskilyrðum sem nú ríkja á jörð-
inni. Eins er það áhyggjuefni
margra að þessar auðlindir eru
tæmanlegar, þar sem það tekur
mjög langan tíma að mynda olíu
við ákveðnar aðstæður.
Við nýtum olíuna illa vegna
þess hve vélar með olíu- eða
bensínbrennara eru í raun frum-
stæð verkfæri sem sóa allt að
tveimur þriðju hlutum eldsneytis-
ins um leið og þessi sóun veldur
umhverfisspjöllum sem allir hljóta
að vilja stöðva.
Ríó-samningurinn skuldbindur
þjóðir heims til að draga úr meng-
un af völdum koltvísýrings og
Helmut Kohl kanslari Vestur-
Þýskalands hvatti í ræðu sinni í
Berlín um daginn iðnríki heims til
þess að standa við þessa skuld-
bindingu.
Ríkisstjórnin
hefur lítið sagt
Eins og stjórnir flestra landa
sem skrifað hafa undir þennan
samning hefur ríkisstjórnin á ís-
landi lítið gert í þeim efnum. Að
vísu var sett C02-nefnd til að
skoða ýmsar leiðir til þess að
minnka útblástur koltvísýrings og
liggur skýrslan ókynnt í umhverf-
isráðuneytinu. Gísli Einarsson og
Petrína Baldursdóttir fluttu þings-
ályktunartillögu um mengunarmál
bíla og skipa. Meðal annars kemur
fram í tillögunni að með notkun
svokallaðs brennsluhvata gæti ís-
lenska þjóðin staðið við skuldbind-
ingar Ríó-samningsins. Málið var
afgreitt úr umhverfisnefnd Al-
þingis þann 23. feb. og bíður af-
greiðslu í umhverfisráðuneytinu
og nýrrar ríkisstjómar.
Eina leiðin til þess að minnka
koltvísýringsmengun á íslandi er
að draga úr eldsneytisnotkun. Það
er einmitt sú tillaga sem þróunar-
ríki heims fluttu á umhverfísráð-
stefnu SÞ í Berlín og var illa tek-
ið af þeim löndum sem hafa svo
mikilla hagsmuna að gæta, svo
sem olíuframleiðslulöndum. Aftur
á móti vilja iðnríki heims hvetja
þróunarríki til að læra af reynslu
þeirra og nýta orkuna betur með
nýrri og betri tækni.
Hvarfakútar ekki
nothæfir
Brennsla á olíu og bensíni fram-
leiðir fleiri en eina tegund af efn-
um, sem hafa áhrif á loftslags-
breytingar. Nauðsynlegt er að
nota mengunarvarnabúnað sem
getur minnkað flestar tegundir af
útblástursmengun og minnka eld-
neytisnotkun. Búnaðurinn sem er
settur á alla bensínbíla í dag og
heitir hvarfakútur gerir það ekki
eins og flestir vita. Mörg fyrirtæki
eru að reyna að þróa mengunar-
varnabúnað fyrir díselvélar og skip
en erfitt er að finna búnað sem
dregur úr sótmengun og köfnunar-
efnismengun samtímis án þess að
auka eldsneytisnotkun.
Við sem framleiðum brennslu-
hvatann og sérstaklega hér á ís-
landi höfum reynt að kynna opin-
berum aðilum þessa nýju tækni til
að draga úr mengun frá skipum,
bílum og kötlum sem brenna olíu.
Reynslan sýnir að með nákvæmri
mælingu til samanburðar getur
tækið okkar dregið verulega úr
útblástursmengun og sparað um-
talsvert eldsneyti.
Lloyds Register of Shipping
hafa gert úttekt og mælt meng-
andi efni frá skipum í nokkur ár
og niðurstöður eru:
NOx=55 kg/tonn af eldsneyti
CO=10 kg/tonn
HC=3,4 kg/tonn
CO2=3,250 kg/tonn
Ef íslensk skip og verksmiðjur
brenna u.þ.b. 360.000 tonnum af
eldsneyti á ári eru mengandi efni
frá þeim u.þ.b.:
N0x=19.800 tonn
C0=3.600 tonn
HC=1.224 tonn
CO2=1.170 tonn
Með notkun brennsluhvatans og
samkvæmt samanburðarmælingu,
meðal annars Tæknideildar Fiski-
félags íslands og Vélskóla íslands,
getum við minnkað eldsneyti-
snotkun og mengun þannig:
NOx minnkar um 5.000 tonn
CO minnkar um 1.500 tonn
HC minnkar um 500 tonn
Eldsneytið minnkar um 20.000
tonn
HC eða óbrennt eldsneyti
minnkar í heild 3.240 tonn vegna
þess að Lloyds mældi HC-efni sem
gas en ekki sót, sem mundi hækka
3,4 kg/tonn í 9 kg/tonn sam-
kvæmt útreikningi þeirra.
300 milljóna kr.
sparnaður
Sparnaður fyrir útgerð og fisk-
vinnslustöðvar er í kringum
300.000.000 kr. miðað við 5%
minni eldsneytisnotkun og minna
óbrennt HC sem tækið minnkar
um 40%, auk þess er minni kostn-
aður vegna lækkunar á afgashita
og minni sótmyndunar.
Notkun brennsluhvatans getur
minnkað mengun og sparað elds-
neyti. íslensk fyrirtæki og
stofnanir hafa staðfest þetta.
Þannig að auðvelt er fyrir Island
að standa við skuldbindingar sam-
kvæmt Ríó-samningnum og leggja
fram tillögu til ályktunar fyrir
næstu umhverfisráðstefnu SÞ.
DAVID BUTT,
DEB-þjónustunni,
Jaðarsbraut 7, Akranesi.
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.