Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 35
geislandi brosi og glettni í augum,
bauð Oddur mig velkomna til starfa
hjá Plastos hf., fyrir réttum 6 árum.
Björn yngri sonur Odds, sem hafði
starfað hjá fyrirtækinu í nokkur ár
var þá að flytjast búferlum ásamt
fjölskyldu sinni til starfa í Sviss.
Fyrirvarinn var skammur, og því
ekki laust við titring í hnjáliðum
hjá nýútskrifuðum viðskiptafræð-
ingi. Með styrkri handleiðslu og
stakri þolinmæði lauk hann upp
dyrum að hörðum og hröðum heimi
viðskiptanna. Oddur var alltaf með
púlsinn á fyrirtækinu uns yfir lauk.
Næmi hans og yfirsýn yfir rekstur
fyrirtækisins var með ólíkindum.
Með tilfinningunni einni saman, gat
hann komist að sömu niðurstöðu
og ég eftir þrotlausa útreikninga
úr alls kyns tölvulistum. Oddur
hafði mikla ánægju af að reka hvers
kyns banka- og tollaerindi víðs veg-
ar um bæinn. Ánægjan jókst um
helming ef leysa þurfti vandamál
eða redda einhveiju fljótt. Þá þaut
þrumufleygurinn af stað, og fyrr
en varði hringdi síminn; Oddur hér,
búinn að klarera þetta! Hann hafði
lúmskt gaman af undrun minni yfir
hversu fljótur hann var að greiða
úr erfiðustu flækjum. Uppgjöf eða
vonleysi voru ekki til í hans orða-
bók, þvert á móti leit hann á vanda-
mál og erfiðleika sem ögrun, sem
gaman væri að sigrast á. Þegar
gesti bar að garði í Plastos var
hápunktur heimsóknarinnar að
hlusta og horfa á Odd stoltan og
glaðan, segja sögu hverrar einustu
vélar og aldrei klikkaði minnið þeg-
ar verð vélanna í gömlum og nýjum
krónum bar á góma. Oft sátum við
saman síðla dags og ræddum mál-
in. Þá var stutt í ótæmandi sagna-
brunninn: harkið á stríðsárunum,
hvernig þeim tókst að halda Bretan-
um frá að taka blokkina eignar-
námi, sem þau voru um það bil að
flytja í, árin hjá Elding trading og
þegar hann handfjatlaði plastpoka
í fyrsta skipti. Hann hafði næman
skilning á nauðsyn þess að rækta
tengsl við starfsfólk og viðskiptaað-
ila, stóra og smáa. Fjórum árum
eftir stofnun Plastos, kom Sigurður
sonur Odds til starfa hjá fyrirtæk-
inu. í kjölfarið fylgdi endurskipu-
lagning og hagræðing í framleiðslu
og vöxturinn hófst fyrir alvöru. Það
hefur vakið óskipta aðdáun okkar
allra hjá Plastos, hvernig Sigurður
og Erla kona hans hafa staðið óbug-
uð, eins og klettar við bakið á for-
eldrum og tengdaforeldrum sínum,
í erfiðum veikindum sl. 2 ár
Náin samskipti og samvinna okk-
ar Odds hefur verið mér ómetanlega
mikils virði. Hann hefur kennt mér
mikið um lífið og léttleika tilverunn-
ar og ég sakna hans sárt. Lífs-
hiaupi Odds verður vart lýst á betri
hátt en er að finna í Bókinni um
veginn eftir Lao- Tse undir yfir-
skriftinni Aldrei algjör:
Þann mun ekki skorta viðfangsefni,
sem lætur sér finnast fátt um mestu
afrek sín. Þeim eru engin takmörk
sett, sem lætur sér ekki
nægja neina fyllingu.
Hann finnur, að ábóta er vant, þeg-
ar hann er réttlátastur
- að hann er misvitur, þótt hann
hafí ærna hyggni,
og að einu gildir, hvort hann er
orðsnjall eða staður í máli.
Starfsemi vinnur bug á kulda; hvíld
eyðir hita.
Rósemi og hreinleikur hjartans
veita hið rétta viðhorf.
í Guðs friði kveður starfsfólk
Plastos forstjóra sinn og kæran vin,
með djúpri virðingu og þökk. Ást-
kærri eiginkonu hans, Guðfinnu,
og aðstandendum öllum sendum við
innilegar samúðarkveðjur og biðjum
Guð að blessa minningu Odds Sig-
urðssonar.
Jenný Stefanía Jensdóttir.
BORGAREIGN
Fasteignasala
Suðurlandsbraut 14
®888 222
Skoðunargjald innifalið í söluþóknun
íf
FÉLAG || FASTEIGNASALA
K jartan Ragnars. hæslacéttarlögmaður.
lögg. lasteignasali.
Karl Gurinarsson, sölustjóri. hs. 670499.
Einbýli - raðhús
Iti sölu þetta glæsíl. einb. ca 300 fm.
Húsið er nýtt og afh. fullinnr. Áhv.
6,0 millj.
Hratnhólar 2 — Rvik. Góð ca.
112 fm 5 herb. íb. á 1. hæð. 4 svefnherb.
nýl. parket. nýtt bað. Verð 7,8 millj.
Blikahóiar 4 - frábaart
verö. Tii sölu ca 100 fm 4ra herb.
ib. Laus strax. Verð aðeins 6,5 millj.
Álfheimar 46 — Rvík. Ca 100 fm
íb. á 3. hæð. Laus strax. Verð 7,3 millj.
Breiðvangur 32 — Hf. Góð ca
110 fm endaíb. Góð stofa, suðvestursv.
Gott útsýni. 3 góð svefnh. Sérþvottah. í íb.
Verð 7,8 millj.
Hafnarfjörður - verð
aðeina 7,5 m. Snoturt einb.
á tveimur hæðum ca 120 fm í mjög
góðu éstandl. Áhv. ca 4 millj.
Mýrarsel. Ca 220 fm hús ásamt 50
fm bílsk. Sór 2ja herb. íb. í kj. Verð 14,9 millj.
Fossvogur. Gott ca 300 fm einb. á
tveimur hæðum v. Vogaland. Eign sem býð-
ur upp á mikla mögul.
Lyngbre Gott ca 15 hæðum m. satn. Verð kka 1S 3 fm par <j. Bílskrél ,7 millj. J - Kóp. íús á tveímur tur. Góð stað-
Fífusel ' raðh. ca 24 5-6 herb. fb herb. íb. Ve io, tva 0 fm. Á og t k| e rð 11,9 ir er fb. Enda- sfri hæðum er r rúmg. sér 3ja Hlj.
Safamýri. Vorum að fá í sölu 91 fm íb.
á jarðh. Góð stofa, 2 svefnh. Sérinng. Góð
eign á vinsælum stað. Áhv. ca 3,0 millj.
Verð 7,4 millj.
Barmahlíd |||Rvík. Vorum
að fá í sölu bjarta 3ja herb. ib. í kj.
Áhv. veðd. 2,6 millj. Verð 5,5 mlllj.
Melsel — Rvík. Ca 250 fm parh. á
þremur hæöum auk tvöf. bílsk. V. 13,8 m.
Sérlega glæsíl. raðh. ca 160 fm. Sjón
er sögu ríkarl, Vönduð elgn. Áhv.
allt að 6,5 millj. Verð 12,8 mHlj.
Frostafold 25
Vorum að fá i sölu glæsil ca 100 fm
3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð. Bllsk.
Tóppeign. Áhv. 3,6 millj. Verð 8,9
mlltj.
Hæðir
Hátröð 3 - Kóp.
Vorum að fá f sölu neðrí hæðina i
þessu vinalega húsi sem er ca 95 fm
3ja hurb. ib. Stör bíisk. ca 72 fm,
failegui garður. Áhv. ca 1500 þús.
Vurð 8,5 rnillj :
Hamraborg 36 — Kóp. Falleg
3ja herb. ca 72 fm íb. á 2. hæð. Áhv. ca.
1,7 millj. Verð 5,9 millj.
Víkurás 2 — Rvik. Góð ca 73 fm íb.
á 1. hæð. Bilskýli. Áhv. ca 3 millj. Verð 6,9
miltj.
Inn V. Sund. Ca 75 fm ib. á 1. hæð.
Verð 7,3 millj.
Efstihjalli 5 — Kóp. Góð ca 80 fm
ib. á 1. hæð í tveggja hæða fjölb. Góð
stofa. Suðursv. Gott ástand á sameign og
húsi. Verð 6,6 millj.
Bjartahlíð 9—13 — Mos. 3ja-4ra
herb. fullb. íb. ca 106 fm. Verö 7,5 mlllj.
Hrfsrimi 1. Lúxus 3ja herb, íb. ca 91
fm á 3. hæð. Verð tilboð.
Hjallabraut 35, Hf. Góð ca 90 fm
íb. á 3. hæð. Suðursv. Verð 6,8 millj.
Álftamýri 46
Mávahlíð 6 - Rvík. Til sölu efri
hæð og ris ca 160 fm. Mögul. á sór 2ja-
3ja herb. íb. í risi. Verð 10,5 millj.
Drápuhlfð 43. Góð efri sérh. ca 110
fm. Góð stofa, 3-4 svefnherb. Suðursv.
Verð 9,2 millj.
Skipasund. Ca 100 fm hæð ásamt
bílsk. Verð 9,5 millj.
Hringbraut 71, Rvík. Falleg ca
80 fm sérhæð. Verð 7,4 millj.
4ra herb.
Háaleitisbraut 18. Góöcal07fm
íb. á 4. hæð. Bílskúr. Verð 8,3 millj.
Góö ca 70 fm endaíb. á 3. hæð. Suðursv.
Verð 6,5 millj.
Vi5 Skólavörduholt. Ca 75 fm
3ja herb. íb. á 2. hæð við Barónsstíg. Verð
5,5 millj.
Ástúi 14- K«f ip. Fal eg ca 76
fm ib. 3. bæð. C iott úts ýni. Laus
strax. V erð 6,9 mlt )•
Marfubakki 22 - Rvík. -
fráb. verö. Faileg 4ra herb. ib.
á 1. hæð + aukaherb. í kj. Áhv. góð
lán ca 4,6 millj. Verð aðeins 6,6 mlllj.
Frostafold 12. Góð 5 herb. ca 115
fm íb. á jarðh. Sérsuðurgarður. BNskúr.
Verð 9,9 millj.
Asparfell 12. Ca 130 fm 5 herb. ib.
+ bílsk. Verð 8,9 millj.
Hvassaleiti 155. 100 fm (b. á 1.
hæð. Verð 7,9 millj.
Kleppsvegur 28. Sem ný4ra herb.
ib. Verð 6,8 millj.
Garðhús 10 — Grafarv. Vorum
að fé í sölu mjög góða ca 120 fm 4-5 herb.
íb. á 2. hæð. Bílskúr. Áhv. veðd. 5,2 millj.
Verð 10,5 millj.
2ja herb.
Vantar 2ja-3ja
fbúöir á skrá.
Góð eftirspurn.
herb.
Opið hús í dag, sunnudag frá kl. 14-17
Hjallavegur 46, Reykjavík
l. hæðm i þussu húsi asamt 38 fm bilsk. Hœðin skiptist i stofu og 3 herb. Alll nýtt,
m. a. nýjar Innr., gólfefní, lagnir o.fi. Glæsll. eign. Áhv. ca 6,1 mlllj. Verð 9,5 miHj.
Ástvaldur og Marte sýna eignina í dag kl, 14-1?.
Völvufell 22
Endaraðhús ca 116 fm á einnl hæð ásamt bfisk. m.a. góð stofa, 3-4 svefnh. Suður-
garður (veðursæll staður). Áhv. ca 5,8 millj. Verð 9,8 miilj. Eignaskipti mögul. á 6-7
mlllj. kr. eign. Hörður og Elsabet sýna eign sína I dag kl. 14-17.
Garðhús 29
Raðhús 145 fm é tveimur hæðum + bilsk. m.a. góð stofa, 3-4 svefnh. Áhv. allt að
6,5 millj. i góðum lánum. Verð 10,9 míllj. Eignaskipti á 4ra herb. fb. Guðrún og Krist-
ján sýna eignina í dag milli kl. 14 og 17.
Suðurhlíðar Kópavogs
Vlð Bakkahjalla 1-15 er til sölu vel staðsett ca 200 fm parh. á tveimur hæðum.
Húsin standa neðan til við götu i lokuðum botnlanga ( jaðri útivistarsvæðis. Afh.
fullb. að utan, fokh. að innan. Verð 9,5 millj. Byggíngaraðlfi Hjörtur P. Krístjánsson
verður é staðnum í dag með teikningar, sýningahús að Bakkahjalla 15.
Furugrund 40, Kóp. Góð ca 70
fm ib. á 1. hæð. Gott skipul. Ib. fylgir auka-
herb. í kj. Leigutekjur af herb. 15 þús. á
mán. Verð 6,0 millj.
Sléttahraun 27 — Hf. Gdð 2ja
herb. íb. á 1. hæð. Suðursv. Laus strax.
Verð 5,3 millj.
Þangbakki. Til sölu 2ja herb. ca 63
fm ib. Verð 5,7 miilj.
Trönuhjalli. Glæsil. ca 60 fm ib. á 1.
hæð. Tilb. óskast.
Laufrimi 35 og 37, Rvík
Raðhús á einni hæð ca 140 fm. Afh. fullfrág. að utan, máiað og búið að tyrfa lóð.
Að innan fokholt. Teikn. á skrifst. Verð 7,7 millj.
Háaleitisbraut. Til sölu góð
2ja herb. ib. á jaröh. m.a. nýl. innr. i
eldh. og é baði. Verð 5,1 mlllj.
Asparfell 4 - lítll útb.
Sórl. glæsil. 2ja herb. ib. á 4. hæð i
lyftuh. Ahv. byggsj. 3,4 mlllj. Verð
5,2 millj.
Vesturbær. Snotur 2ja herb. risíb. við
Nesveg 66. Verð 4,2 m.
Miðbær - Rvík. Einstaklíb. við
Snorrabraut 48,1. hæð. Verð 2,7 m. Laus.
Atvinnuhúsnæði
Artúnshöfði. Ca 100 fm iðnhúsn. á
tveimur hæðum. Góð aðkoma og stórar
innkdyr. Verð 3,0 millj.
Vantar allar gerðir eigna á skrá - Opið í dag frá kl. 12-15