Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ L VIKAN 23/4 - 29/4 JMéKinnlent ►GERÐUR hefur verið kaupsamningur um kaup ráðandi meirihluti i ís- lenska útvarpsfélaginu á nær öllu hlutafé minni- hlutans fyrir rúmlega milljarð króna. Meirihlut- inn ræður nú yfir um 95% hlutafjár. Bandaríska fyr; irtækið Oppenheimer Inc. annast fjármögnun samn- ingsins. Framhaldsaðal- fundi ÍÚ var frestað á föstudag til 27. maí þar sem ekki var unnt að af- greiða ársreikninga vegna athugasemda minnihlutans. ►BOÐUÐU verkfalli Flugfreyja, sem standa átti frá 2.-5. maí og óttast var að raskaði samgöng- um til landsins vegna HM í handknattleik, var aflýst eftir að samninganefndir flugfreyja og Flugleiða samþykktu innanhússtil- lögu sáttasemjara aðfara- nótt fimmtudags. Flug- freyjur samþykktu samn- inginn á félagsfundi á fimmtudag. Samkvæmt honum hækka laun þeirra um 3.500 krónur og um 3% um áramót. Meginatr- iði samningsins er hins vegar að ábata af hagræð- ingu í störfum flugfreyja verður að hluta varið til að auka lífeyrisréttindi þeirra og lækka eftir- launaaldur í 63 ár. ► VERÐTRY GGÐIR útl- ánsvextir banka og spari- sjóða hækka á mánudag um 0,35-0,70% í kjölfar þeirrar liækkunar sem orðið hefur á ávöxtun- arkröfu spariskírteina í útboði í vikunni og á eftir- markaði. Viðskiptaráð- herra gagnrýnir vaxta- hækkunina en Sverrir Hermannsson bankasljóri Landsbanka segir ráð- herra tala eins og flón um vaxtamál. Slitnaði upp úr Smuguviðræðum FUNDI Noregs, Rússlands og Islands í Ósló um þorskveiðar íslenskra skipa í Smugunni í Barentshafi var slitið síðdegis á miðvikudag. Norðmenn og Rússar buðu Islendingum um það bil 10.000 tonna aflaheimildir á fundin- um og var langt á milli hugmynda þeirra annars vegar og íslendinga hins vegar. Jan Henry T. Olsen sjáv- arútvegsráðherra Noregs segir að auk þess að bjóða umtalsverðan kvóta hafi Norðmenn og Rússar viljað koma á fullri fiskveiðistjórnun á svæðinu með aðild íslands. Olsen segist ekki skilja ákvörðun íslendinga um við- ræðuslit. íslendingar og Norðmenn hafa einnig átt fundi um Síldarsmug- .una svonefndu. íslensk skip hafa fundið síld í Síldarsmugunni en ís- lensk stjómvöld mælast til þess að flotinn haldi sig í höfn fyrr en eftir fund- íslands, Noregs, Rússlands og Færeyja um stjóm veiða á svæðinu, sem haldinn verður í Reykjavík á þriðjudag. IS og SH bítast um Fiskiðjusamlagið STÓRU fisksölufyrirtækin tvö bítast um viðskipti við Fiskiðjusamlag Húsavíkur. Sölumiðstöð Hraðfrysti- húsanna hefur boðist til að kaupa hlutabréf í fyrirtækinu að nafnvirði 100 milljónir króna á genginu 1,25. íslenskar sjávarafurðir, sem nú selja afurðir Fiskiðjusamlagsins, hafa áður boðist til að kaupa 75 milljónir króna á genginu 1. Deilt er um málið innan bæjarstjómar Húsavíkur, en bærinn á 55% hlut í fyrirtækinu. Talið er að það ráðist á þriðjudag, á fundi stjóm- enda ÍS og Fiskiðjusamlagsins, hvort fyrirtækið verði áfram í viðskiptum við ÍS eða hvort SH verði falið að sjá um sölumálin. Talið er að meiri- hlutasamstarf framsóknar- og al- þýðubandalagsmanna í bæjarstjór- inni sé í hættu verði sölumálum fyrir- tækisins breytt. 0 Ovæntur sigur Jospins Jospin LIONEL Jospin, frambjóðandi sós- íalista, sigraði óvænt í fyrri um- ferð frönsku for- setakosninganna og hlaut 23,3% atkvæða. Næstur kom gaullistinn Jacques Chirac, borgarstjóri í Par- ís og fyrrverandi forsætisráðherra, með 20,8%. Munu þeir tveir keppa um embættið í seinni umferðinni sem verður á sunnudag. Flokksbróðir Chiracs, Edouard Balladur forsætisráðherra, sem varð þriðji, lýsti yfir stuðningi við Chirac er úrslitin voru ljós en um hríð virtist þó sem Chirac myndi ekki takast að tryggja sér fullan stuðning flokksins. Kannanir gefa tii kynna að Chirac sigri á sunnudag. Ottast frekari átök í Bosníu VOPNAHLE, sem samið var um í desember, rennur út í Bosníu um mánaðamótin og óttast talsmenn Sameinuðu þjóðanna að allsherjar- stríð hefjist á ný þar sem deiluaðilar eru sannfærðir um að andstæðing- amir notfæri sér hléð til að styrkja stöðu sína. Margir telja að ásakanir stríðsglæpadómstólsins í Haag á hendur Radovan Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba, og fleiri serbneskum leiðtogum um aðild að stríðsglæpum muni draga úr friðarlíkum. ► LEITARMENN í Okla- homaborg höfðu fundið um 117 Hk í rústum stjórn- sýsluhússins í gær en ótt- ast er að um 200 hafí far- ist í sprengjutilræðinu. Timothy McVeigh, sem er I haldi grunaður um aðild að tilræðinu, neitar enn að tjá sig við lögreglu. ►MOSKVUSTJORNIN boðaði á fímmtudag ein- hliða vopnahlé í Tsjetsjníju fram til 12. maí vegna hátíðarhaldanna í tilefni þess að 50 ár eru liðin frá sigrinum yfir nas- istum. ►FULLTRÚAR SÞ for- dæmdu á mánudag fjölda- morð hermanna Rúanda- stjórnar á fíóttafólki af hútú-þjóðerni fyrir helg- ina. Óljóst er hve margir létu lífið í flóttamanna- búðunum. ►TYRKIR ákváðu á þriðjudag að kalla heim 20.000 afalls 33.000 manna liði sínu í norður- hluta íraks en aðgerðir Tyrkja gegn kúrdískum skæruliðum sæta vaxandi gagnrýni. ►ÞESS var minnst í Úkraínu á miðvikudag að níu ár voru liðin frá Tsjernobýl-slysinu. Talið er að rekja megi þúsundir dauðsfalla beint til slyss- ins, milljónir manna að auki urðu fyrir geislun og um 160.000 urðu að flytja búferlum. FRETTIR Vídalínskirkja vígð í Garðabæ VÍDALÍNSKIRKJA í Garðabæ verður vígð við hátíðlega athöfn í dag, sunnudag, klukkan 14. Ólafur Skúlason, biskup íslands, vigir kirkjuna, en auk hans þjóna við athöfnina séra Bragi Frið- riksson, sóknarprestur, séra Bjarni Þór Bjarnason, héraðs- prestur, og séra Orn Bárður Jónsson, fræðslustjóri. Kór kirkj- unnar og skólakór Garðabæjar syngja við athöfnina. Skúli H. Norðdahl er arkitekt kirkjunnar. Framkvæmdir við byggingu hennar hófust árið 1991. Beinþynning er vaxandi heilbrigðisvandamál BEINÞYNNING er vaxandi heil- brigðisvandamál, m.a. vegna ijolg- unar aldraðra, en afleiðingar bein- þynningar koma einkum fram í beinbrotum hjá fullorðnu fólki, aðallega konum. Nokkrir læknar hafa tekið saman rit um beinþynn- ingu, um orsakir hennar, grein- ingu og meðferð. Efnt var til fund- ar með fulltrúum fjölmiðla hjá Landlæknisembættinu á föstudag þar sem fjallað var um beinþynn- ingu. Við beinþynningu verður rýrnun á beinvef. Við það minnkar styrk- ur beinsins og hætta á brotum eykst. Bein gisna með aldrinum, bein kvenna mun meira en karla. Brot af völdum beinþynningar verða því einkum á efri árum og mun oftar meðal kvenna en karla. Áætla má að árlega verði hériend- is 1.200-1.500 brot vegna bein- þynningar, þar af um 200 mjaðm- arbrot. Sextug kona hefur um 25-40% líkur á að hljóta beinbrot síðar á ævinni (þar af 15% líkur á mjaðmarbroti) og stuðlar bein- þynning að meirihluta brotanna, sem mörg hver verða við óveruleg- an áverka. tíðahvörf kemur í veg fyrir þá hröðu gisnun sem hér hefur verið lýst. Þessu til viðbótar eru nokkrir aðrir áhættuþættir sem geta stuðl- að að beinþynningu. Á síðari árum hafa rutt sér til rúms nákvæmar mælingar á bein- þéttni. Mest reynsla er komin á mælingar á framhandleggsbeinum og reynast þær hafa allgott for- spárgildi um áhættu beinbrota á hefðbundnum brotsstöðum. Hreyfing og mataræði hafa áhrif Meðferð við beinþynningu á brotastigi er árangurslítil og beina menn því sjónum sínum aðallega að forvörnum. Annars vegar er þar um að ræða almennar aðgerð- ir sem miða að því að hafa áhrif á lífsvenjur, hins vegar sértæka lyfjameðferð, fyrst og fremst hormónameðferð eftir tíðahvörf til þess að draga úr líkum á beinþynn- ingu. Hreyfmg og mataræði skipta miklu máli til að draga úr líkum á beinþynningu. Almenn þjálfun styrkir og þéttir bein, bætir jafn- vægi og dregur úr dettni. Nauð- synlegt er að tryggja næga kalk- neyslu og D-vítamín er nauðsyn- legt fyrir eðlilega nýtingu kalks úr fæðu. Þá er mikilvægt að huga að slysagildrum í heimahúsum, vömum gegn hálkuslysum og draga úr notkun svefnlyfja, áfeng- is og annarra sljóvgandi efna. Höfundar ritsins um beinþynn- ingu eru Ari Jóhannesson, dr. Jens A. Guðmundsson og Katrín Fjeldsted í samvinnu við dr. Gunn- ar Sigurðsson, dr. Brynjólf Mog- ensen, Jón Þ. Hallgrímsson, Þór Halldórsson og dr. Ingvar Teits- son. Beinþynning hefst um miðjan aldur Beinstyrkur er að miklu leyti erfðabundinn, en aðrir áhrifaþætt- ir eru aldur við fyrstu tíðir hjá konum, kalkneysla og iðkun íþrótta. Um eða rétt fyrir miðjan aldur hefst síðan gisnun á beinvef sem heldur áfram til æviloka. Samkvæmt íslenskum rann- sóknum á beinþéttni í framhand- legg og hryggjarliðbolum kvenna, verður hratt beintap á fyrsta ára- tug eftir tíðahvörf (15-20%) og síðan hægara línulegt beintap (um 1% á ári). Þannig hafa íslenskar konur um sjötugt að meðaltali tap- að um 30% af þeim beinmassa sem þær höfðu um tíðahvörf. Karlar tapa hins vegar um 0,5% á ári eftir miðjan aldur. Kvenhormón vernda beinvef Ljóst er að kvenhormón vernda beinvef gegn niðurbroti beint eða óbeint og gjöf þeirra við og eftir Starfsmannafélag Hafnarfjarðar Félagsmenn sæki hátíðahöld í öðrum bæjarfélögum STJÓRN Starfsmannafélags Hafnarfjarðar, STH, hefur hvatt félagsmenn sína til að taka þátt í 1. maí-hátíðahöldum í öðrum bæj- arfélögum þar sem félaginu hafí „fyrirvaralaust verið hent út úr samstarfi verkalýðsfélaganna'1 í Hafnarfirði, eins og segir í yfirlýs- ingu frá félaginu. I yfirlýsingunni segir að á um- liðnum árum hafi STH ásamt full- trúaráði verkalýðsfélaganna í Hafnarfirði staðið sameiginlega að skipulagningu og framkvæmd 1. maí-hátíðahaldanna í bænum. Nú sé greinilegt að STH-fólk sé ekki æskilegir þátttakendur í hátíða- höldum ASÍ-fólks á þessum degi, þar sem STH hafi fyrirvaralaust verið hent út úr þessu samstarfi verkalýðsfélaganna. Vegna skamms fyrirvara hafi STH ekki tekist að skipuleggja sérstök hátíðahöld, og þess í stað hvetji stjórn STH til að taka þátt í hátíðahöldum dagsins í öðrum bæjarfélögum. Aðspurður sagði Sigurður T. Sigurðsson, formaður Verkamann- afélagsins Hlífar i Hafnarfirði, að ástæðan fyrir því að STH væri ekki með í hátíðahöldunum að þessu sinni væri sú að félagið hefði ekki staðið skil á greiðslum vegna þátttöku sinnar í hátíðahöldunum undanfarin ár. Að öðru leyti sagð- ist hann ekki vilja tjá sig um þetta mál.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.