Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Gallerí Borg Teppa- og málverka- uppboð GALLERÍ Borg - antík heldur teppauppboð, þriðjudaginn 2. maí. Uppboðið fer fram í húsnæði versl- unarinnar í Faxafeni 5 kl. 20.30. Um 60 handofin teppi og mottur verða á uppboðinu af ýmsum stærð- um og gerðum og er verðmatið allt frá 15.000 uppí 350.000. Teppauppboð eru þekkt víða er- lendis, en þetta er í fyrsta sinn sem slíkt uppboð fer fram hérlendis. Á uppboðinu verða einnig nokkrir antíkmunir, notuð húsögn, postulín og kristall. Uppboðsmunirnir verða sýndir í dag, sunnudag, á morgun og á þriðjudag frá kl. 12-18. Um 80 verk á uppboðinu Gallerí Borg heldur málverka- uppboð á fimmtudag kl. 20.30. Um 80 verk verða á uppboðinu, flest eftir gömlu meistaranna. Þar má nefna nokkur verk eftir Jóhannes S. Kjarval, Þingvallamynd eftir Jón Stefánsson, Húsafellsmynd eftir Ásgrím Jónsson og einnig eldri uppstillingu frá því um 1910 eftir Ásgrím Jónsson. Þá eru myndir eftir Svavar Guðnason, Þorvald Skúlason, Gunnlaug Scheving, Kristínu Jónsdóttur, Nínu Tryggva- dóttur, Jón Engilberts og fleiri. Einnig verður boðin upp stór mynd eftir Freymóð Jóhannsson, sem er máluð eftir Kristlíkneski Torvaldsen. Uppboðsverkin verða sýnd í dag, sunnudag, á morgun, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag kl. 12-18 í Gallerí Borg við Austurvöll. „Bær í byrjun aldaru BYGGÐASAFN Hafnarfjarðar opn- ar sýninguna „Bær í byijun aldar“ i Smiðjunni, Strandgötu 50, í dag, sunnudag kl. 16. Á sýningunni er fjöldi muna er voru notaðir við dagleg störf fólks- ins í Firðinum um aldamótin síðustu og er leitast við að varpa ljósi á hvernig lífi þetta fólk lifði. Á sýn- ingunni eru einnig ljósmyndir frá Hafnarfirði er teknar voru í lok síð- ustu aldar og á fyrrihluta þessarar og sýna þær glöggt þá breytingu sem orðið hefur á bænum, frá því að vera 374 manna sjávarpláss árið 1900, til þess sem hann er í dag. Sýningin stendur til 26. júní. Dúettar í Vest- mannaeyjum TVÆR söngkonur, þær Ágústa Sigrún Ágústsdóttir og Harpa Harðardóttir, halda tónleika í Safn- aðarheimilinu í Vestmannaeyjum á morgun, mánudag 1. maí, kl. 20.30. Þær luku söngkennaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík sl. vor. Meðleikari þeirra á tónleikunum er Kolbrún Sæmundsdóttir. Efnisskráin samanstendur að mestu leyti af dúettum. Á fyrri hluta tónleikanna eru dúettar eftir Purcell, Brahms, Schumann og ljóðaflokkur fyrir tvær raddir eftir Britten. Á síðari hlutanum eru svo dúettar og einsöngslög í léttari kantinum eftir t.a.m. Satie, Delib- es, Karl O. Runólfsson, Pál ísólfs- son, Ágúst Pétursson og Oddgeir Kristjánsson. Haipa hefur á síðustu árum sungið í Kór Langholtskirkju og Kór íslensku óperunnar ásamt því að koma fram sem einsöngvari. Ágústa Sigrún hefur sungið með Mótettukór Hallgrímskirkju og Kór íslensku óperunnar ásamt því að taka þátt í tveimur uppfærslum óperusmiðjunnar. LISTIR „Hin þríeina gyðja“ MYNPLIST Nýlistasafnið BLEIUGAS OG STRIGI INGIBJÖRG HAUKSDÓTTIR Opið alla daga frá 14-18. Til 7. maí. Aðgangur ókeypis. FYRIR ári héldu tvær listakonur sjálfstæðar og aðgreindar sýningar í sölum Listmunahússins í Hafnar- húsinu, sem báðar höfðu sitthvað til síns ágætis. Þó vöktu myndverk gerð í bleiu- gas sérstaka athygli mína, einkum við sérstakt skuggaspil og reyndist höfundurinn vera Ingibjörg Hauks- dóttir. Eftir aðfaranám í Banda- ríkjunum 1984-1987 hóf hún nám í MHÍ 1988 og útskrifaðist 1992, auk þess að hafa verið gestanemi við listaháskólann í Þrándheimi 1991. Voru fíngerð verkin í List- munahúsinu svo áleitin, að ég gerði mér endurteknar ferðir á staðinn og reyndist það farsælt ráp því þau unnu stöðugt á. Og nú er Ingibjörg á ferðinni aftur með sjálfstæða sýningu á Palli og í svonefndum SÚM-sal Nýlistasafnsins. Sýningin er hugsuð sem óður til Gyðjunnar, sem í fornum skáld- skap var gerð að listagyðju, upp- sprettu andagiftar skálda og söngvara og vísar á upphaf í me- sópótamískri menningu. „Gyðjan er enn til staðar í vestrænni nú- tímamenningu, ekki lengur sem guðdómlegur kraftur sem ræður lífí okkar frá vöggu til grafar, heldur sem dularfullt afl sem við þekkjum ekki og þorum mjög sjald- an að treysta. Tilvist hennar, hjúp- uð dulúð, hefur frá alda öðli verið einn stærsti leyndardómur lífsins." Á pallinum er einungis eitt stórt og nafnlaust málverk, sem er olía á dúk og afar flókin gerð og hug- vitsamleg. Dökkleitt gróðurformið í miðbik myndarinnar getur minnt á bakhlutann á sitjandi gyðju opna og upptendraða af fijósemi. Skír- skotunin er afar sterk og marg- ræð, og myndverkið kemur sömu- leiðis betur til skila við endurtekna skoðun. Þetta málverk, sem er lík- ast innsetningu í rýmið nýtur sín mjög vel og er með því ánægju- legra sem ég hef lengi séð í sýning- arsölum borgarinnar fyrir fersk og jarðbundin vinnubrögð. Og einmitt fyrir þá sök að ekki er verið að rembast við frumleikann, eða vera „in og sammó“ í nýlistinni, virkar myndin fersk og ný, sem er vita- skuld eðli frumleikans, sem er svo aftur tímalaus afrakstur rann- sókna á myndfleti. Á efri hæðinni ber mest á olíu- myndum, sem eru máluð á striga, sem er svo aftur á þrívíðu kodda- formi á vegg og gólfi og má það vera sýn listakonunnar á fjórðu víddinna. Myndefnið er svo fóstur, sem telst grunnþema sýningarinn- ar, og er áréttað með röð endurtek- inna rýmisforma eftir rúmlega hálfum endilöngum langvegg, sem vísa til frjósemi og þungunar. Hér er bleiugasið komið aftur, að vísu oflýst í salnum, en afar hreint og athyglisvert í framsetningu eins og sýningin öll. Án þess að verða endilega var við það strax, reynist öll framkvæmdin vera ein allsherj- ar innsetning með mjög sterka skírskotun til lífsins og lífgjafans. Minnir á meint hugsanaferli Ge- orgíu OKeeffe (1882-1986), sem málaði blóm er afhjúpuðu ríka þrá náttúrubamsins eftir afkvæmi og minntu sum á sköp kvenna. Kynlíf blómanna er eitt af undrum heims- ins, og þessi eðlisbundna kennd að búlka veiðarfærin eins og það er stundum orðað, fínnst jafnríku- lega í mannheimi sem gróandan- um. Að öllu samanlögðu skynjar maður djúpa þrá til lífsins, upp- runans og kraftbirtingar sköpun- arinnar í þessum verkum og fram- kvæmdinni allri. Á endavegg er svo aflangt málverk, og myndefnið er fl’æði hvítra blóma á djúpbláum grunni, líkast til áherslu og undir- strikunar á boðskap sýningarinnar, að tendra líf. BRÓDERAÐ bleiugas. EDWARD MANSFIELD í SETUSTOFU Nýlistasafnsins sýnir Fulbright styrkþeginn Edw- ard Mansfield nokkur verka sinna, sem hann nefnir samheitinu, „Fá- einar hugleiðingar á íslandi" (A few thoughts in Iceland). Er hér um nokkra smíðisgripi að ræða með mjög sterkri hug- myndafræðilegri skírskotun, en ekki veit ég hvernig listamaðurinn tengir hana landinu, því engar út- skýringar varð ég var við í ná- grenninu. Jafnframt er um ferli að ræða, sem er afar algengt í núlistum, en hins vegar eru for- sendurnar sem gerendurnir gefa sér frábrugðnar frá einu verki til annars. það er hins vegar mjög séríslenzkt að útskýra ekki í rituðu máli torráðin verk á myndlistar- sýningum og kann það að vera kjami hugmyndarinnar, og ef rétt er til getið hittir hún í mark. En þá eru framkvæmdirnar einungis lágvært hvísl á milli innvígðra. Það hlýtur þó að vera algjört frumskilyrði ef skoðandinn á að vera með á nótunum, að upplýsa hann um hugsunarferlið að baki verkunum og táknmerkingar ein- stakra smíðisgripa, en mér komu þeir svo fyrir sjónir í gerð sinni og uppsetningu, að vera hagleiksf- öndur og að veigurinn væri jafnvel að hafa þrátt fyrir allt sýnt á staðn- um. Með hliðsjón af því, að rýmið er nú notað til kynningar á ein- staka listamönnum, er væntanlega ekki til of mikils mælst að fram- kvæmdirnar séu skilvirkari og að komið sé á móts við sýningar- gesti, að öðrum kosti er afar hæp- ið að þær gefi tilefni til umfjöllun- ar- Bragi Ásgeirsson NEMENDUR skólalúðrasveitarinnar. PATRICK Huse við eitt verka sinna. Patrick Huse í Hafnarborg ÞAU LEIÐU mistök urðu við vinnslu menningarblaðs Morgun- blaðsins í gær, að röng mynd var birt með grein Jóhanns Hjálmars- sonar Lifandi og mennsk auðn um norska listmálarann Patrick Huse, sem nú sýnir landslagsmál- verk sín í Hafnarborg. Morgunblað- ið biðst velvirðingar á þessum mis- tökum og birtir hér rétta mynd af listmálaranum við eitt verka hans í Hafnarborg. Skólalúðrasveit og djass TVENNIR tónleikar verða haldnir í Hafnarborg á morgun mánudag 1. maí. Djasstónleikar verða haldnir á vegum Tónlistarskóla Hafnarfjarðar kl. 17 og vortón- leikar skólalúðrasveitar Tónlistar- skólans verða kl. 20. Á djasstónleikunum koma fram nokkrir kennarar við skólann og leika djass. Fyrstan skal nefna Carl Möller sem er hljómsveitar- stjóri bandsins og á tónleikunum verða flutt nokkur lög eftir hann. Aðrir hljóðfæraleikarar sem koma við sögu eru þeir Birgir Bragason bassaleikari, Guðmundur Stein- grímsson trommuleikari, Stefán Ömar Jakobsson básúnuleikari, Gunnar Gunnarsson flautuleikari, Einar Jónsson trompetleikari, Þórður Árnason gítarleikari og nokkrir strengjaleikarar. Tónleik- arnir standa yfir í um hálfa klukkustund og er aðgangur ókeypis. Seinni tónleikarnir hefjast eins og fyrr segir kl. 20. Á þeim tón- leikum koma fram bæði yngi og eldri sveitir skólans. AIls koma fram um 60 nemendur sem æft hafa ötullega í allan vetur. Stjórn- andi er Stefán Ómar Jakobsson. Að tónleikunum Ioknum mun foreldrafélag skólalúðrasveitar- innar halda lokapróf fyrir meðlimi sveitarinnar og velunnara hennar í Álfafelli, íþróttahúsinu við Strandgötu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.