Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 56
póst gíró
Ármúla 6 • 150 Reykjavík
© 550 7472
varða
víðtæk
fjármálaþjönusta
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLADIB, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 669 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR MEÐ VSK
A
Atök á aðalfundi Lyfjaverslunarinnar
Rekstur hefst í
Litháen í sumar
STEFNT er að því að ný dreypilyfjaverksmiðja í Litháen í meirihluta-
eigu íslenskra aðila hefji starfsemi í júlí í sumar. Stofnkostnaður verk-
smiðjunnar er áætlaður 650 milljónir króna en hlutaféð er 208 milljón-
ir. Þar af eiga Lyfjaverslun Íslands hf. og íslenska heilsufélagið hf. um
tvo þriðju hluta en annað hlutafé er í eigu litháískra og sænskra aðila.
annarsvegar um að ræða fjóra af
fimm fulltrúum sem ríkið skipaði
í stjórnina á síðasta ári ásamt ein-
um starfsmanni og hinsvegar fimm
manns undir forystu Jóns Þorsteins
Gunnarssonar. Talningu atkvæða
var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun í gær.
Jón Þorsteinn gagnrýndi fráfar-
andi stjóm harðlega í ávarpi sínu
á fundinum og sagði hana vilja
hindra það að nýir hluthafar fengju
fulltrúa í stjórn félagsins. Þá sagði
hann fráfarandi stjórn síður en svo
hafa unnið nein afrek í þágu fé-
lagsins. Hún hefði látið hjá líða
að hefja skipulega vinnu við
stefnumótun fyrirtækisins. Af
hálfu stuðningsmanna fráfarandi
stjórnar var m.a. lögð áhersla að
ekki mætti raska stöðugleikanum
í félaginu og góðu samstarfí stjórn-
ar og starfsmanna.
Hlutafjárframlag Lyfjaverslun-
arinnar hefur að stórum hluta fal-
ist í tækniaðstoð og hafa t.d. sex
sérfræðingar frá Litháen dvalið hér
á landi að undanförnu í starfsþjálf-
un hjá fyrirtækinu. Einnig hafa
verið ráðnir tveir íslenskir stjórn-
endur til fyrirtækisins.
Á árinu 1994 var unnið við að
reisa vöruhús og þjónustubygg-
ingu verksmiðjunnar í Litháen og
hafa framkvæmdir gengið sam-
kvæmt áætlun en þær eru í hönd-
um íslenskra aðalverktaka. Þetta
kom fram á aðalfundi Lyfjaversl-
unar Islands í gær sem tæplega
300 hluthafar með 56,68% at-
kvæðamagn sátu.
Fylkingar hluthafa
Ellefu manns buðu sig fram í
stjórnarkjöri á fundinum og tókust
á tvær fýlkingar hluthafa. Þar var
Þjóðskjala-
safn fær sal
í Safnahúsi
ÞJÓÐSKJALASAFNIÐ mun á
næstunni taka í notkun lestrarsal-
inn í Safnahúsinu við Hverfísgötu
fyrir gesti safnsins, og að sögn
Olafs Asgeirssonar þjóðskjalavarð-
ar er sennilegt að safnið hafí salinn
til umráða næstu 3-5 ár.
I safnahúsinu er auk annarrar
aðstöðu þegar fyrir hendi lestrar-
salur Þjóðskjalasafnsins sem tekur
17 manns í sæti, og í stóra lestrar-
salnum er aðstaða fyrir 36 gesti.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Penninn víkur
fyrir tölvunni
HÓPI nemenda, sem eru að
ljúka stúdentsprófi frá Verzlun-
arskóla íslands, var í gærmorg-
un leyft að taka ritgerðarpróf
sín í íslensku á tölvur.
Að sögn Guðrúnar Egilson,
deildarstjóra í íslensku við
Verzlunarskólann, er þetta í
fyrsta skipti sem nemendur fá
að skrifa prófritgerðir inn á
tölvur, en forsenda þess var sú
að nemendurnir væru vanir
tölvum og gætu skrifað textann
beint inn.
„Það var 70-80 manna hópur
sem nýtti sér þetta. Þarna er
um algera tilraunastarfsemi að
ræða sem gekk mjög vel. Upp-
setningin var stöðluð og voru
allar ritgerðimar prentaðar út
í lokin þar sem kennarinn tók
við þeim,“ sagði Guðrún.
Lést
í bílveltu
TVÍTUGUR maður úr Þorlákshöfn
beið bana í bílveltu á Þorlákshafnar-
vegi á föstudagskvöld.
Slysið varð um 200 metrum sunn-
an við mót Þorlákshafnarvegar og
Ölfusvegar. Maðurinn, sem var einn
á ferð, missti bíl sinn út í kant og
kastaðist út þegar bíllinn valt. Hann
var talinn látinn þegar að var kom-
ið örskömmu síðar.
Ekki er unnt að greina frá nafni
hans að svo stöddu.
--------------
Mokveiði
krókabáta
AFLABRÖGÐ krókabáta á Snæ-
fellsnesi hafa verið góð undanfarna
daga. Þrír bátar í Olafsvík komu í
vikunni með 2,7 tonn eftir daginn
sem er óvenjulega góð veiði.
Grundfirskir bátar fengu mok-
veiði í Kolgrafarfírði, stóran og góð-
an þorsk. Trillur fengu þar allt upp
í 2 tonn.
Línubátar frá Ólafsvík hafa einn-
ig verið í góðri veiði og komið með
allt að fímm tonn af steinbít. Drag-
nótarbátar hafa fengið minna.
♦ ♦ ♦----
A
Ognaði
með byssu
MAÐUR var handtekinn og færður
í fangageymslur lögreglunnar í
Reykjavík í fyrrinótt eftir að skot
hafði hlaupið úr byssu sem hann
ógnaði manni með.
Lögregla var kvödd að húsi við
Nökkvavog á fjórða tímanum um
morguninn. Þar hafði tveimur mönn-
um lent saman og annar að sögn
ógnað hinum með byssu.
Skot hljóp úr byssunni í sama
mund og sá sem ógnað var bægði
frá sér hlaupinu. Skotið lenti í vegg
og hlaust ekki teljandi skaði að.
Byssumaðurinn var færður í
fangageymslur og til yfirheyrslu hjá
RLR síðdegis í gær.
Erfiðleikar gætu orðið á sjúkrahúsum á landsbyggðinni eftir mánuð
Um 200 hjúkrunarfræðing-
ar hóta að hætta störfum
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Hvítbláinn
fannst
íkjallara
EINTAK af hvítblánum, gömlum
íslenskum fána, fannst í kjallara
Laufásvegar 43, húsnæði sem
Reykjavíkurborg keypti með öllu
innbúi af erfingjum Vigfúsar
Guðmundssonar frá Engey. Hef-
ur Árbæjarsafn í hyggju að gera
húsið að safni.
Að sögn Hrefnu Róbertsdóttur
borgarminjavarðar er hér um
merkilegan fund að ræða, þar
•sem enginn hvítbláinn er til í
eigu Árbæjarsafns.
Einar Benediktsson vildi gera
hann að þjóðfána og var hann
fyrstur dreginn að húni 1897, en
þríliti fáninn Ieysti hann af hólmi
árið 1915, fyrst sem sérfáni en
varð þjóðfáni 1918.
B Nær óbreytt heimili/B34-35
UM 200 hjúkrunarfræðingar sem
starfa við sjúkrahús á landsbyggð-
inni hóta að hætta störfum 1. júní
nk. Ástæðan er sú að sérsamningi
við þá um staðaruppbót hefur verið
sagt upp.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra sagði í vikunni að hún
hefði áhyggjur af stöðu mála. Hún
segist ekki hafa haft tíma til að
skoða alla þætti málsins. Það sé
eitt af mörgum sem bíði ákvarðana-
töku í heilbrigðisráðuneytinu, en
verði tekið föstum tökum á næstu
dögum og vikum.
Óll sjúkrahús á landsbyggðinni
sögðu upp sérsamningum við hjúkr-
unarfræðinga nema sjúkrahúsin á
Akureyri og Akranesi. Hjúkrunar-
fræðingar, sem vinna hjá Sjúkra-
húsi Isafjarðar, líta svo á að bréf
um uppsögn á staðaruppbót hafi
borist of seint og því taki það ekki
gildi fyrr en 1. júlí.
Uppsagnir sérsamninganna eru
tilkomnar að frumkvæði heilbrigðis-
ráðuneytisins. Með þeim fyrirhugar
ráðuneytið að samræma staðarupp-
bætur hjúkrunarfræðinga sem
starfa á landsbyggðinni. Tillögur
ráðuneytisins gera ráð fyrir að
sjúkrahúsunum verði skipt í þrjá
flokka. í einum flokknum verði eng-
ar bætur greiddar, í öðrum verði
hjúkrunarfræðingum í fullu starfi
greiddar 12.000 krónur á mánuði
og í þriðja fái hjúkrunarfræðingar
18.000 krónur.
Málssókn ekki útilokuð
Sigríður Jóhannsdóttir, trúnaðar-
maður hjúkrunarfræðinga á Sjúkra-
húsi Selfoss, sagði að hjúkrunar-
fræðingar litu á uppsögn sérsamn-
ings um staðaruppbót sem uppsögn
úr starfi. Staðaruppbótin væri hluti
af ráðningarkjörum hjúkrunarfræð-
inga og ekki væri hægt að segja
upp hluta af kjörum hjúkrunarfræð-
inga.
Hún sagði að hjúkrunarfræðingar
hefðu sent sjúkrahússtjórninni bréf
þar sem þessi afstaða væri ítrekuð.
Sigríður sagði að sjúkrahússtjórnin
hefði lýst því yfir að viðbrögð henn-
ar myndu skýrast í byrjun maí.
Félag íslenskra hjúkrunarfræð-
inga hefur ekki komið að þessu
máli með beinum hætti. Vigdís Jóns-
dóttir, hagfræðingur félagsins,
sagði að þar sem um væri að ræða
ráðningarsamninga við hvern og
einn hjúkrunarfræðing yrði viðkom-
andi hjúkrunarfræðingur sjálfur að
taka ákvörðun um hvort hann gengi
út 1. júní.
Félagið hefur Iátið vinna lög-
fræðiálit um stöðu hjúkrunarfræð-
inganna á landsbyggðinni og Vigdís
sagði ekki útilokað að leitað yrði til
dómstóla ef samkomulag tækist
ekki um málið.