Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 30.04.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. APRÍL 1995 19 LISTIR Jörvagleði í Dölum væntingu eftir að heyra í finnska harmonikkusnillingnum Tatu Kan- toma, sem var mættur til leiks. Og áheyrendur urðu ekki fyrir von- brigðum. Tatu spilaði alls 16 lög, hvert öðru fallegra og lagavalið fjöl- breytt. Þessi maður hefur náð ótrú- legri leikni á harmonikkuna og svo sannarlega rétt að kalla hann snill- ing. Dagskrá kvöldsins lauk síðan með því að félagar úr Nikkólínu léku danstónlist til kl. 1.00. Föstudaginn 21. apríl frumsýndi Leikklúbbur Laxdæla leikritið Stundarfrið eftir Guðmund Steins- son í Dalabúð í leikstjórin Harðar Torfasonar. Húsfyllir var á sýning- unni, 250 áhorfendur. Sýningin tókst mjög vel og leikendur, leik- stjóri og höfundur ákaft hylltir í lok sýningar. Laugardaginn 22. apríl var blönduð dagskrá kl. 20.30 í Dala- búð. Dagskráin hófst með sveita- kynningu þar sem kynntur var Saurbæjarhreppur í umsjón Grétars Sæmundssonar. Sagði hann frá bæjum og staðháttum í hreppnum fyrr og nú í myndum og máli. Að því loknu sungu eldri félagar úr Karlakór Reykjavíkur nokkur lög undir stjórn Kjartans Sigurjónsson- ar. Að síðustu fór fram skáldakynn- ing, dagskrá í tali og tónum um skáldið Stefán frá Hvítadal. Kynn- inguna önnuðust sr. Ingiberg Jó- hannesson, Björg St. Guðmundsson og sönghópur úr Dalabyggð undir stjórn Halldórs Þórðarsonar. Jörva- gleði var þvínæst formlega slitið og við tók stórdansleikur með hljómsveit Geirmundar Valtýsson- ar. Skákmót voru haldin í tengslum við Jörvagleði. Laugardaginn 22. apríl var sveitakeppni þeirra sem lauk með sigri gestanna með 37 vinningum gegn 23 vinningum. * Arnesinga- kórinn ÁRNESINGAKÓRINN í Reykja- vík heldur sína árlegu vortón- leika í Langholtskirkju í dag, sunnudag, kl. 16. Efnisskrá tónleikanna er fjöl- breytt, innlend lög og erlend, kaflar úr söngleikjum o.fl. Stjórnandi kórsins er Sigurður Bragason, undirleikari Þóra Fríða Sæmundsdóttir og á þver- flautu leikur Jóhanna Þórisdótt- ir. Einsöngvarar með kórnum eru Þorgeir Andrésson, Jensína Waage, Stefán Bjarnason og Sig- ursteinn Hákonarson auk félaga úr kórnum. ÁRNESINGAKÓRINN í Reykjavík. Fjölbreytt dagskrá var á Jörvagleði Dala- manna eins og Mel- korka Benediktsdóttir lýsir menningar- og listahátíðinni JÖRVAGLEÐI", menningar- og listahátíð Dalamanna, var haldin dagana 19.-23. apríl með ijölbreyttri dag- skrá að vanda. Jörvagleði er annað hvert ár og hefur svo verið síðan 1977. Jörvagleði hin forna var aflögð árið 1707 að skipun Jóns Magnús- sonar sýslumanns, vegna lauslætis og spillingar, en Jörvagleði okkar daga er með öðrum hætti. Hátíðin hófst með unglingadansleik síðasta vetrardag. Þar lék fyrir dansi hljóm- sveitin CAPÓ, skipuð ungu tónlist- arfólki úr Dalabyggð. Sumardaginn fyrsta var fjölmenn guðsþjónusta í Stóra-Vatnshornskirkju þar sem sr. Óskar Ingi Ingason messaði og kirkjukór Hjarðarholtsprestakalls söng og fermingarbörn og nemend- ur Tónlistarskóla Dalasýslu aðstoð- uðu með lestri og tónlistarflutningi. Kl. 14.00 voru opnaðar sýningar í Grunnskólanum í Búðardal. Við opnunina fiutti Sigurður Þórólfsson ávarp og nemendur í Tónlistarskól- anum léku á klarinett, flautur og píanó. Anna Flosadóttir sýndi myndverk sín, en þetta er fysta einkasýning hennar. Anna var bú- sett í Búðardal í 18 ár, hefur stund- að nám í myndlist og útskrifaðist frá málaradeild Myndlista- og hand- íðaskóla íslands árið 1991 og hefur starfað sem myndlistarkennari síð- an. Handverkshópur Dalasýslu sýndi handunna muni, mjög fjöl- breytta. Að lokum skal geta sýning- ar á skjölum úr Héraðsskjalasafni Dalasýslu í umsjá Einars Kristjáns- sonar fv. skólastjóra. Einar hefur unnið ómetanlegt starf í þágu Dala- manna við söfnun og varðveislu gamalla skjala og heimilda um fyrri tíð í sýslunni. Við þetta tækifæri afhenti Björg Ríkharðsdóttir, ekkja Péturs Þorsteinssonar sýslumanns, Héraðsskjalasafninu að gjöf Skarðsbók, sem var í eigu Péturs heitins. Einar Kristjánsson veitti bókinni viðtöku fyrir hönd safnsins og þakkaði Björgu þessa höfðing- legu gjöf. Þennan dag var einnig kvik- myndasýning og glæsilegt kaffí- hlaðborð í Dalabúð. Hátíðin var svo formlega sett í félagsheimilinu Ár- bliki kl. 20.30. Þar fó_r fram blönd- uð tónlistardagskrá. Árbliki var við þetta tækifæri afhent píanó að gjöf til minningar um Jökul Sigurðsson, bónda og kennara frá Vatni í Haukadal, en hann lést í febrúar á síðasta ári. Gefendur eru Hugrún B. Þorkelsdóttir, ekkja Jökuls heit- ins, börn þeirra, systkini hans og fjölskyldur. Þá söng Fríður Sigurð- ardóttir, systir Jökuls heitins, nokk- ur lög við undirleik Guðmundar Óskars Óskarssonar. Var þeim vel fagnað og vel við hæfi að taka þetta góða hljóðfæri í notkun með slíkum glæsibrag. Þetta kvöld léku nemendur og kennarar úr Tónlistarskóla Dala- sýslu nokkur lög á blásturshljóð- færi og píanó, félagar úr harmon- ikkuklúbbnum „Nikkólínu" léku nokkur létt lög og Þorrakórinn söng undir stjórn Halldórs Þórðarsonar, skólastjóra Tónlistarskólans. Margir höfðu beðið með' eftir- Island Island! Eg vil syngja TONLIST l a n g h o 11 s k i r k j a KARLAKÓR REYKJAVÍK- UR MINNIST SIGURÐAR ÞÓRÐARSONAR Einsöngvari: Sigrún Hjálmtýsdóttir Píanóleikari: Anna Guðný Guð- mundsdóttir Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson Langholtskirkja, mið- vikudaginn 26. apríl, 1995. ÞAÐ hefur ekki orðið mikil breyt- ing á efnisvali Karlakóranna, síðan Sigurður Þórðarson stofnaði Karla- kór Reykjavíkur fyrir 69 árum. ís- lensku lögin eru flest þau sömu svo og nokkur erlend lög, sem hafa ver- ið raddsett fyrir karlakór og karla- kórsþættir úr óperum. Aðalsmerki Karlakórs Reykjavíkur voru tónverk Sigurðar Þórðarsonar, sem enn eru þau iög sem best hljóma , lög eins og ísland, Sjá dagar koma og Þér landnemar og mörg fleiri ágæt lög, sem vert hefði verið að taka til með- ferðar þegar minnst er 100 ára fæð- ingaræfmælis þessa ágæta tón- skálds. Karl O. Runólfssor og Ami Thor- steinsson sömdu frábær karlakórs- lög, og voru tvö eftir Karl, Nú sigla svörtu skipin, Lullu.lullu bía og eitt eftir Árna, Sumarnótt, flutt að þessu sinni. Á Sprengisandi, eftir Sigvalda Kaldalóns, var sungið í raddsetningu sem venst illa og affærir þetta ágæta lag að nokkru. Söngvamarsinn eftir Julius Otto á ekki að syngja á al- mennilegum tónleikum og óttalegt að heyra þennan virðulega kór „burr- um bumba“, eins og þeir séu að syngja á „kabarett" skemmtun. Þitt lof, ó, Drottinn, eftir Beethov- en, Heyr, lúmnasmiður, eftir Þorkel Sigurbjörnsson voru ágætlega flutt og sömuleiðis þrír óperukórar, Her- mannakórinn úr Faust, sunginn við hræðilega leirburðarþýðingu, La Vergine degli angeli, úr Valdi örlag- anna og fangakórinn úr Nabucco. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng ein- söng með kórnum í Sjá dagar koma og Vonnorgun, sem bæði em eftir Sigurð Þórðarson og var söngur Sigrúnar í því fyrra aldeilis frábær. Sigrún söng einnig með í Lullu.lullu bía, eftir Karl O. Runólafsson og þar brá svo við að 1. tenor söng „undir tóni“ og virðist sem þeir eigi erfitt með styðja við, þegar sungið er „mezza voce“ á háu tónsviði. Þessa gætti ekki er þeir sungu í falsettu eða með fullum hljómi. Tónstaða er vandamál, þegar sungið er án undir- leiks, eins t.d. í Vorljóði eftir Dvor- ák. Síðustu lögin sem Sigrún söng vom La vergine degli angeli, eftir Verdi og Vókalísan eftir Chenoweth, er vom vel flutt af hálfu Sigrúnar. Anna Guðný Guðmundsdóttir lék á píanóið og gerði það af smekkvísi þó hún fengi fýrst að sýna leikni sína í aukalaginu La dansa, sem þær stöllur fluttu með „bravúr". Jón Ásgeirsson JÖRVAGLEÐINEFND 1995. Þorsteinn Jónsson, Steinunn H. Halldórsdóttir, María H. Einarsdóttir, Melkorka Benediktsdótt- ir, Ingveldur Guðmundsdóttir og Þorgrímur E. Guðbjartsson. UNGIR hljóðfæraleikarar á Jörvagleði; Gróa B. Baldvinsdóttir, Jenný Halla Lárusdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Auður Ingi- marsdóttir. í baksýn sjást tvö verk á myndlistarsýningu Önnu Flosadóttur. Hraðskákmót var síðan sunnudag- inn 23. apríl þar sem keppendur vom 20 talsins. Sigurvegari var Gísli Gunnlaugsson með 6 vinninga af 7 mögulegum, í 2. sæti var Sig- urður Áss Grétarsson, einnig með 6 vinninga og í 3. sæti var Bene- dikt Egilsson með 5 vinninga. Listi Schindlers KVIKMYNPm Stjörnubíó ÓDAUÐLEGÁST („Immortal Beloved") ★ ★ ★ Leiksljóri og handritshöfundur Beraard Rose. Framleiðandi Bruce Davey. Tónlistarlegur ráðunautur Sir George Solti. Aðalleikendur Gary Oldman, Jeroen Krabbé, Isabella Rosselini, Valeria Golinio, Johanna Ter Steege. Bandarisk. Columbia Pictures 1994. í SKJÖLUM sem snillingurinn, tónskáldið Ludwig van Beethoven, skildi eftir sig, var eldheitt ástar- bréf, An die unsterbliche Gejiebte (Til hinnar ódauðlegu ástar), sem engin vissi hverjum var ætlað. Leik- stjórinn og handritshöfundurinn Bernard Rose gerir þetta sögufræga plagg að hornsteini myndar sinnar um meistarann, lætur það koma í hlut vinar og ritara hans, Antons Schindlers (Jeroen Krabbé), að hafa uppá hinum dularfulla viðtakanda - sem jafnframt átti að verða aðalerf- ingi Beethovens. Það er ekki fráleit hugmynd, þar sem Schindler var nánasti samstarfsmaður Beethovens og samdi ævisögu hans. Schindler gerir lista yfir hugsanlegar „ódauð- legar ástir“ fyrrum húsbónda síns, leitar þær uppi, m.a. greifynjurnar Juliu Giucciardi (Valeria Golino) og hina ungversku Önnu Maríu Erdödy (Isabella Rosselini). Þær rija upp kynnin af snillingnum. Þannig rekur Rose lífshlaup Beet- hovens og gengur þessi gamalkunni frásagnarmáti ekkert of vel framan af. Þá kemur tónskáldið furðu lítið við sögu, einkar fráhrindandi manni, fullum haturs og mannfyrirlitningar bregður fyrir. En er á líður myndina verður persóna Beethovens gleggri og Rose getur í hinar sögulegu eyð- ur, en hingað til hefur yfírleitt verið talið að ódauðlega ástin hans Beetho- vens hafí verið Erdödy greifynja. Lausnin hans Rose er snjöll og hádramatísk, því kjörið myndefni. Annars er handritið ekkert ýkja merkilegt, samtölin stuttaraleg, sem og persónurnar. Oldman ieikur Beet- hoven samkvæmt gömlu kenning- unni að snillingar séu skrýtnir fugl- ar, og víst er að Beethoven átti við skapgerðargalla að stríða sem ágerð- ust mjög síðustu árin - eftir að hann missti heyrnina. Það er líka talið víst að skáldinu hafí tekist að virkja sinn ótemjuhátt með slíkum árangri að þangað hafi hann sótt snilligáfuna. Oldman er Oldman, ekki mikill mun- ur á hvort hann er að fást við Beet- hoven, dópþræl í New York eða Drakúla greifa. Alltaf sami gassa- gangurinn. Krabbé fer myndarlega með heldur innantómt hlutverk Schindlers en kvennablóminn heldur slakur, enda síst kunnur af afrekum á leiklistarsviðinu. Enn er ógetið sjálfrar tónlistarinn- ar, aðalstyrks myndarinnar, sálar og merps. Stjórnun hennar og val er unnið af fágaðri smekkvísi af Sir George Solti sem sækir tónsmíðarnar einkum til þriðja og síðasta tímabils Beethovens. Brotin skapa unaðslegt tónaflóð sem fær örugglega flesta áheyrendur til að hungra í meira. Búningar og sviðsetningar eru óað- fmnanlegar, minnisstæðastur frum- flutningurinn á Níundu sinfóníunni, tónlistin fagra, Óðurinn til gleðinnar', allur ramnúnn, skissan sem Oldman dregur upp á þjáningum hins heyrn- arlausa tónjöfurs á sviðinu. Fyrir þessa þætti verður Ódauðleg ást eft- irminnileg mynd sem oft rís af flatn- eskju í upphæðir. Rose gerir margt gott og metnaðarfullt úr frábæru efni sem honum er greinilega hug- stætt. Jafnframt dylst það ekki ailtaf að hann á aðeins tvær, og það frem- ur ómerkilegar myndir að baki. Sæbjörn Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.