Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ __________________________________FRÉTTIR___________________ Verkalýðsfélag Húsavíkur telur forsendur kjarasamninga brostnar Skorað á félög að segja upp samningum „Þjófstart að gera ályktanir um þetta núna,“ segir forseti ASI VERKALÝÐSFÉLAG Húsavíkur tel- ur að samningsforsendur kjarasamn- inganna sem undirritaðir voru 21. febrúar síðastliðinn séu brostnar. Á aðaifundi verkalýðsfélagsins sl. fimmtudag var samþykkt áskorun á samtök launafólks um að segja upp núgildandi kjarasamningi, þannig að hann verði laus um næstu áramót. Betri samningar einstakra hópa í ályktun aðalfundar Verkalýðs- félags Húsavíkur segir að ljóst sé að markmið verkalýðshreyfingarinn- ar að rétta við kjör þeirra lægst laun- uðu hafi mistekist. „Þeir hópar launafólks sem gengið hafa frá samningum undanfarið hafa náð mun betri samningum en landsam- bönd innan ASÍ. Bilið milli þeirra tekjuhærri og tekjulægri hefur auk- ist, þrátt fyrir að markmiðið hafi verið að rétta við hag þeirra lægst launuðu. Aðalfundurinn telur að færa þurfi þeim sem eru á lægstu töxtunum raunverulega leiðréttingu á sínum kjörum. Samfara því þarf að endur- skoða launamál kvenna, með það í huga að fullur jöfnuður ríki miili kynja,“ segir í ályktuninni. „Það.var mjög mikil óánægja á fundinum með nýgerða kjarasamn- inga og mikill baráttuhugur í fólki,“ sagði Aðalsteinn Baldursson, for- maður Verkalýðsfélagsins. Forsendum samninga hefur ekki verið raskað Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, sagðist ekki vita á hvaða forsendum þessi ályktun byggðist og gæti því ekki tjáð sig um hana sem slíka. Aðspurður sagðist Benedikt ekki telja að það sem fram væri komið um samninga annarra hópa raskaði forsendum kjarasamninga lands- sambanda innan ASÍ frá í febrúar. „Það er að vísu ekki allt komið upp á borðið og það verður skoðað á sín- um tíma hvemig þróunin hefur verið með tilliti til þeirra forsendna sem gengið var út frá en ég held að það væri þjófstart að gera ályktanir um þetta í dag,“ sagði hann. Kjarasamningar landssambanda ASÍ og samtaka atvinnurekenda gera ráð fyrir að sérstök launanefnd samningsaðila starfí á samningstím- anum og fylgist með framvindu efnahags-, atvinnu- og verðlags- mála. Er hvorum aðila um sig heim- ilt að segja samningum lausum frá og með næstu áramótum með minnst mánaðar fýrirvara ef mark- tæk frávik hafa orðið á samningsfor- sendum. Arbæjar- safn eign- ast fágæt landbún- aðartæki ÁRBÆJARSAFNI hafa verið gefnir tveir hestvagnar, herfi, plógur og handverkfæri frá búskapartíð í Vatnsmýrinni. Helgi Sigurðsson, safnvörður, segir gjöfina sérstaklega ánægjulega því sams konar tæki og stærri tækin hafi ekki verið til á safninu. Helgi segir að um dæmigerð millistríðsára landbúnaðartæki sé að ræða. Vonast er til að hægt verði að nota tækin á hey- skapardögum í Árbæjarsafni í sumar. Iðngreinin ekki lengur til Helgi segir gaman að finna hestvagna enn í borginni. Þó þeir hafi fyllt götur Reylg'avík- ur á millistríðsárunum hafi þeir ekki komið í hendur hans á sex ára starfsferli hjá safninu. Hann segir vagnana ekki síst merka fyrir það að þeir hafi verið smíðaðir í Vagnasmiðju Kristins Guðnasonar. Smiðjan hafi notið mikillar virðingar um árabil hér á landi. Nú sé iðngreinin hins vegar ekki lengur til. Vagnarnir á Árbæjarsafni eru, eins og áður sagði, tveir. Annar er með tveimur hjólum og hinn með fjórum. Þeir voru settir saman fyrir notkun og fylgja hinum fyrri bæði grind til að flytja hey og skúffa til að flytja annan varning. Annar hluti gjafarinnar er hestaherfi fyrir einn eða tvo hesta. Helgi segir að fjöldi hesta fyrir herfið hafi farið eftir því hvort áður hefði verið unnið í jarðveginum. Herfin voru mikið notuð á millistríðsárunum. Eftir stríð tóku hins vegar við stærri herfi fyrir dráttarvélar. Herfið á Árbæjarsafni er þýskt. Helgi sagði að komið gæti til greina að fá unglinga til að mála herfið og koma því fyrir utan dyra í safninu. Fjórði stóri hluturinn er plógur. Aðrir hlut- ir eru smærri. Morgunblaðið/Kristinn KRISTINN Gunnarsson, smiður, og Helgi Sigurðsson, safnvörður á Árbæjarsafni, með nokkur tækjanna og handverkfæri. Helgi segir að tækin verði lagfærð og væntanlega notuð á heyskapar- dögum í safninu í sumar. Sjávarútvegsfyrirtækin á Sauðárkróki sameinuð Áform um að hefja karfavinnslu á ný SKAGFIRÐINGUR hf., Fiskiðja Sauðárkróks hf. og Djúphaf hf. hafa verið sameinuð í eitt fyrir- tæki. Einar Svansson hefur stýrt fyrirtækjunum og verður fram- kvæmdastjóri hins nýja fyrirtækis. Fyrirtækið verður rekið undir nafn- inu Fiskiðjan Skagfirðingur og eru starfsmenn um 250. Um 100 manns starfa við útgerð og 150 í fiskvinnslunni. Einar sagði að áform væru uppi um að hefja karfavinnslu á ný á Sauðárkróki eftir sex til sjö ára hlé og yrði ákvörðun tekin um það á næstunni. Einar sagði að hluthafarnir hefðu verið sammála um að fyrirtæki þyrftu að vera af ákveðinni stærð til að standast samkeppni á sviði sjávarútvegs. „Menn telja, og ég er sammála því, að stærð sameinast fyrirtækis ætti að duga í þv(,“ sagði Einar. Hann sagði að fyrirtækið þyldi betur sveiflur með stærri heild- arkvóta, þ.e. um 6.000 þorskígildi. Samanlögð velta fyrirtækjanna var um tveir milljarðar í fyrra. Skagfirð- ingur hf. gerir út togarana Hegra- nes, Skafta og Skagfirðing og var velta fyrirtækisins rúmar 800 millj- ónir í fyrra. Fiskiðja Sauðárkróks hf. sem rekur frystihús og saltfisk- verkun á Sauðárkróki og frystihús á Hofsósi velti tæplega 1.100 millj- ónum og Djúphaf hf. sem gerir út togarann Sjóla velti á bilinu 80 til 100 milljónum á þremur mánuðum í fyrra. Einar sagði að árið 1989 við stofn- un Skagfirðings hefði verið ákveðið að vera með sameiginlegt stjórn- kerfi fyrir stóru félögin. Síðan hefði Skjöldur verið sameinaður Skagfirð- ingi í ársbyrjun í fyrra. Djúphaf hefði svo bæst í hópinn í fyrra. Rúmlega 8.000 tonna karfakvóti Hann sagði að með um 4.000 tonna karfakvóta og 4.000 tonna úthafskarfakvóta með Sjóla kæmi til greina að hefja karfavinnslu að nýju eftir sex til sjö ára hlé. Hann bjóst við að ákvörðun lægi fyrir síð- ar í mánuðinum. Síðan lægi fyrir að kaupa vélbúnað fyrir sumarið. Beiðni um uppgröft hafnað SÝSLUMAÐURINN á Höfn hefur hafnað beiðni lögfræð- ings um að grafnar verði upp líkamsleifar manns, til að færa sönnur á hveijir lögerfingjar hans séu. í málinu er tekist á um hvort hinn látni hafí verið faðir tiltek- innar konu og þar með afí bama hennar, sem nú gera til- kall til arfs eftir hann. Amma barnanna, sem kveðst vera bamsmóðir mannsins, hefur höfðað barnfaðernismál að manninum látnum, til að sýna fram á að hann hafí átt lögerf- ingja. Til að skera úr um að svo væri var farið fram á DNA- rannsókn á hinum látna, til að bera saman við erfðaefni meintra erfíngja hans. Páll Bjömsson, sýslumaður á Höfn, hafnaði beiðni lög- mannsins á þriðjudag. Hann telur embætti sýslumanns ekki hafa vald til að úrskurða um að líkamsleifar skuli grafnar upp. Tvær konur í stjórn þin g- fiokks GEIR H. Haarde var í gær endurkjörinn formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins. Sigríður Anna Þórðardóttir var kosin varaformaður og Sólveig Pétursdóttir var kosin ritari þingflokksins. „Það var samstaða um nýja stjóm þingflokksins og allir kjömir samhljóða," ságði Geir H. Haarde. Á síðasta þingi var Björn Bjarnason varáformaður þingflokksins og Sigríður Anna Þórðardóttir ritari. Ákvörðun um formennsku í nefndum þingsins var frestað. Óuppgert er milli stjórnarflokk- anna hvor þeirra fær for- mennsku í fjárlaganefnd og er áformað að formenn þeirra hittist í dag til að taka ákvörð- un í því máli. Kvennaráðstefna SÞ í Kína Forseti ís- lands flytur ávarp FORSETI íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, verður við- stödd upphaf kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Peking, sem hefst 4. september næst- komandi. Frú Vigdís mun flytja ræðu við setningu ráðstefnunnar, en á ráðstefnunni verður jafn- framt lögð fram skýrsla sem hún flutti á kvennaráðstefnu Evrópuráðsins i febrúar síðast- liðnum og verður hún framlag Evrópuráðsins á ráðstefnunni. Alþingi sett 16. maí FORSETI ísland hefur að til- logu forsætisráðherra stefnt Alþingi saman til fundar þriðju- daginn 16. maí næstkomandi. Athöfnin hefst að venju með guðsþjónustu í Dómkirkjunni nefndan dag kl. 13.30 og verð- ur Alþingi settaðhenni lokinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.