Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ VERIÐ FRÉTTIR: EVRÓPA Morgunblaðið/Helgi Bjarnason BIRGIR Albertsson vinnur við fóðrun þorsks á Stöðvarfirði næstu tvö árin. Gætum sameinast um að dreifa afbeitunni „ÞAÐ er bara af hinu góða að hafa þessa firði lokaða sem mest. Það er afar slæmt þegar verið er að veiða hrygningarfiskinn í snurvoð rétt fyr- ir hrygningu eins og við höfum séð. Það er hægt að hreinsa heilu firðina af físki á stuttum tíma,“ segir Birg- ir Albertsson trillukarl á Stöðvar- fírði. Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að loka Stöðvarfirði fyrir veiðum svo Hafrannsóknastofnun geti gert tilraunir með fóðrun þorsks í fírðinum. Birgir er einmitt braut- ryðjandi í þorskeldi, hefur ásamt félaga sínum alið smáþorsk í kví í Stöðvarfirði, oft með góðum ár- angri. Síðasta tilraun hans var þó endaslepp. Birgir safnaði 3.000 smá- þorskum á trillu sinni í fyrrasumar og setti í kví. í óveðri í desember Trillukarlar ánægðir með lokun Stöðvarfjarðar slapp hins vegar stór hluti aliþorsks- ins og út úr slátrum í vetur komu aðeins 3 tonn af þeim 9 sem áttu að vera í kvínni. „Þetta var afar fallegur þorskur og leiðinlegt að missa svona mikið af honum," segir Birgir. Telur hann þó að tilraunir sínar undanfarin ár sýni að það sé góð ávöxtun af aliþorskinum og seg- ist undrandi á þvi að fleiri skuli ekki hafa prófað. Sækir í fóðrið Frá júníbyrjun verður Birgir í vinnu með bát sinn, Mardísi SU 64, við tilraunaverkefni Hafrannsókna- stofnunar sem Björn Björnsson fiski- fræðingur stjórnar. Býst hann við að vera við þetta út næsta ár. Þús- undir þorska á firðinum verða mæld- ir, vigtaðir og merktir, einnig fískur úr öðrum fjörðum tii samanburðar. Er það gert til að sjá hvað skilar sér þegar byijað verður að fóðra þorsk í firðinum. Birgir hefur trú á þessu verkefni þó bíða verði með yfirlýsingar þar til niðurstöður fáist. Segir að svo virðist sem þorskurinn sé í stað- bundnum stofnum sem skili sér allt- af aftur til hrygningar, á svipaðan hátt og kindurnar hjá bændunum. Þá bendir hann á að þegar gerðar voru tilraunir með fóðrun í firðinum á síðasta ári hafi þorskurinn strax farið að taka fóðrið og jafnvel elt bátinn þó ekkert hafi verið gefið. Þetta segir Birgir að staðfesti það sem margir sjómenn viti, fiskurinn sæki í ætið. Nefnir hann í þessu sambandi að þegar afbeitu sé hent í sjóinn safnist fiskur strax að, jafn- vel upp í flæðarmálið þegar beitu er hent í fjöruborðið. „Ef tilraunirnar sýna að hægt er að safna upp físki með gjöf opnast ýmsir möguleikar. Ég tel til dæmis að smábátasjómenn gætu tekið sig saman um að dreifa afgangsbeitunni og ýmsu öðru sem til fellur á ákveðna staði, til dæmis á leiðinni út. Einnig væri hægt að kaupa loðnu á þeim tíma sem hún er ódýrust. Þá hændist að fískur sem annars væri ekki veið- anlegur. Síðan yrði afrakstrinum skipt upp,“ segir Birgir. ------♦ ♦ ♦------ Aðalfundur SH Nýjar afurð- ir kynntar AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna verður haldinn í dag og á morgun. Samhliða fundin- um verður haldin vörukynning á afurðum íslenzkra frystihúsa, sem aðild eiga að SH og dótturfyrirtækja SH í Bandaríkjunum og Bretlandi. Fundurinn hefst í Háskólabíói klukkan 14. síðdegis á morgun en að loknu hléi síðar um daginn verður fundinum framhaldið á föstudag. Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa eru á dragskrá fundarins kynning á afurðum SH, frystihúsa innan vé- banda þess og dótturfyrirtækja er- lendis, farið yfir ástand helztu nytja- stofna heims og stöðu sölumála á öllum helztu sölusvæðum SH. í hádeginu á föstudag ávarpar forsætisráðherra fundarmenn yfir hádegisverði. Þar verður borinn fram fiskur, sem unninn hefur verið í frystihúsum hérlendis og verksmiðj- um sölusamtakanna erlendis. YNGRA UTLIT A BDÖGUM 30 AGE MANAGEMENT INTENSIVES er mjög kröftugt AHA ávaxtasýrukerfi. Það er nýtt - það er framtíöin Það tekur við þar sem önnur AHA-kerfi hætta að virka.* Skyndilega 'er skaðinn, sem þú hélst að væri varanlegur, á bak og burt. 20% KYNNINGAR- AFSIÁTTUR AGE MANAGEMENTINTENSIFIED SERUM 30 ml...kr. 9.890 AGE MANAGEMENTINTENSIFIED EMULSION 50 ml ...kr. 6.950 AGE MANAGEMENT LINEINHIBITOR 15 ml.......kr. 6.950 * AÐVÖRUN: Ekki er ráðlegt aö nota AGE MANAGEMENT INTENSIVES nema að undangengnum venjulegum AHA-ávaxtasýrukúr. SWiTZERLAND H Y G E A u n y r t i v ö r uvervlun Kynning í dag, fimmtudag 4. maí kl. 14-18 í HYGEU í Kringlunni og fimmtudag 18. maí kl. 12-17 í HYGEU í Austurstræti Framkvæmdastjórn ESB setur póli- tísk skilyrði fyrir aðild A-Evrópuríkja Sum ríki tilbúin fyrir árið 2000 Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópu- sambandsins samþykkti í gær hinn pólitíska hluta „hvítbókar" um skii- yrði þau, sem Austur- og Mið-Evr- ópuríki verða að uppfylla til að geta fengið aðild að sambandinu. Mario Monti, sem fer með málefni innri markaðarins í framkvæmdastjórn- inni, og Hans van den Broek, sem er ábyrgur fyrir utanríkismálum, sögðust á blaðamannafundi í gær telja að sum ríkin gætu uppfyllt öll skilyrðin fyrir árið 2000. Flest ríki Austur- og Mið-Evrópu hafa látið í ljós áhuga á aðild að Evrópusambandinu. Hvítbók fram- kyæmdastjórnarinnar er beint til ríkjanna sex, sem þegar hafa gert aukaaðildarsamninga, eða svokall- aða Evrópusamninga, við ESB. í þeim samningum er kveðið á um aðlögun að innri markaðnum og jafnframt að stefnt sé að ESB-aðild ríkjanna, sem eru Tékkland, Slóvak- ía, Pólland, Ungverjaland, Búlgaría og Rúmenía. Mun riá til Ey strasaltsr íkj a og Slóveníu Van den Broek tók fram á blaða- mannafundinum að skilyrði hvítbók- arinnar myndu jafnframt eiga við um Eystrasaltsríkin þrjú þegar þau hefðu lokið gerð Evrópusamninga, en það gæti orðið í júní næstkom- andi. Þá hyggst ESB hefja viðræður við Slóveníu um Evrópusamning inn- an skamms og van den Broek greindi frá því að um mitt ár myndi hann ieggja tillögur fyrir ráðherraráð sambandsins um að hefja viðræður við_ Albaníu um aukaaðild. í hvítbókinni, sem lögð verður fyrir leiðtogafund Evrópusambands- ins í Cannes í júní til endanlegrar Marío Hans van Monti den Broek staðfestingar, er kveðið á um ýmis lykilákvæði, sem verða að vera fyrir hendi í löggjöf ríkjanna til þess að þau geti fengið inngöngu í ESB. í henni eru jafnframt tillögur um það hvernig raða skuli málum í for- gangsröð og lýsing á því hvernig haga verði stjórnsýslu og tæknilegri útfærslu laga og reglna til þess að það teljist tryggt að lögum sé fram- fyigt. Umbótum verður að halda áfram Engu að síður lagði Monti áherzlu á að ekki væri kveðið á um nákvæma útfærslu löggjafar, það yrði á hendi ríkjanna sjálfra. Van den Broek tók jafnframt fram að þótt aðlögun að innri markaðnum samkvæmt skil- yrðum hvítbókarinnar myndi greiða fyrir aðild Austur-Evrópuríkja, kæmu fleiri þættir til athugunar. Van den Broek sagði að því miður virtist hafa hægt á efnahagslegum og pólitískum umbótum í ýmsum ríkjum í austurhluta Evrópu að und- anförnu. Þetta hefði meðal annars gerzt að loknum kosningum, þar sem kommúnistar eða arftakar þeirra hefðu. náð völdum að nýju. „Boð- skapur okkar er sá að umbótum verði að halda áfram,“ sagði van den Broek. Meirihluti Svisslend- inga vill ESB-aðild ZUrich. Reuter. MEIRIHLUTI Svisslendinga vill ganga í Evrópusambandið, sam- kvæmt könnun sem birt er í viku- blaðinu Cash. Alls sögðust 52% svarenda hlynntir aðild, 37% voru andvígir og afgangurinn óákveðinn. Úrtakið var 1.000 manns. Svisslendingar höfnuðu aðild að Evrópska efnahagssvæðinu, og þar með lögfestingu um 65% laga og reglna Evrópusambandsins, í þjóð- aratkvæðagreiðslu árið 1992. Tæp- ur meirihluti, eða 50,3%, greiddi þá atkvæði gegn EES-aðild. Undanfarið hefur þróunin hins vegar verið sú að fleiri og fleiri verða hlynntir ESB-aðild Sviss. Nýleg könnun Link-fyrirtækisins sýndi að 20% þeirra, sem greiddu atkvæði gegn EES-aðildinni myndu nú samþykkja aðild. Áhyggjur af atvinnulífi Þegar spurt var um ástæður þess að menn skiptu um skoðun, sögðu 23% að efnahagslegar ástæður lægju að baki. Talsmenn atvinnu- lífsins í Sviss hafa kvartað sáran yfir því að vera utan ESB. Hins vegar gáfu 57% upp ástæðuna „ekkert" eða „eitthvað annað“ fyrir því að þeir hefðu skipt um skoðun. Brittan sakar Kanada um „fallbyssubátadiplómatí“ • JEAN Chrétien aflýsti í gær fyrirhuguðum fundi sínum með Sir Leon Brittan, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, vegna ummæla þess síðarnefnda um að Kanada hefði beitt „fallbyssu- bátadiplómatí" í fiskveiðideilunni við ESB. • BRITTAN, sem staddur er í Kanada vegna fyrirhugaðs fund- ar ESB, Kanada, Bandaríkjanna og Japan, lýsti hins vegar jákvæð- um áhuga ESB á hugmyndum Chrétiens um fríverzlunarsamn- ing milli NAFTA og ESB. Brittan sagði að málið væri afar flókið, en ESB vildi skoða möguleikann gaumgæfilega. • GÓRAN Persson, fjármálaráð- herra Svíþjóðar, sagði í ræðu í Brussel á þriðjudag að hann væri bjartsýnn á að Svíþjóð gæti upp- fyllt skilyrði Maastricht-sáttmál- ans fyrir þátttöku í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU). Það er einkum gríðarlegur fjár- lagahalli, sem stendur Svíum þar fyrir þrifum. • ESB og Mexíkó hafa undirritað yfirlýsingu um nánari pólitísk, efnahagsleg og viðskiptaleg tengsl. „Við vonum að Evrópa verði mikilvægur bandamaður í þróun Mexíkó," sagi utanríkisráð- herra Mexíkó við undirritun yfir- lýsingarinnar. U- i l. 0 0 t: { t t i L 1 i r i t i i 6 t i í i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.