Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR > Fegurðarsamkeppni Islands verður 24. maí „ Morgunblaðið/Halldór STULKURNAR brugðu sér á Lækjarbrekku um helgina ásamt þeim Þórunni Lárusdóttur, Helenu Jónsdóttur og Katrínu Hafsteinsdóttur, sem annast þjálfun þeirra. 18 stúlkur keppa um titilinn FEGURÐARSAMKEPPNI |slands 1995 verður haldin á Hótel íslandi miðvikudaginn 24. maí nk. 18 stúlkur taka þátt í keppninni og koma þær víðs vegar af iandinu. Keppnin verður með nokkuð öðru sniði en áður. Keppnin mun styðja baráttuna gegn alnæmi með fjárframlögum. Stúlkurnar fá fyr- irlestra varðandi þennan vágest og geta því fjallað um veiruna á erlendri grund og þar með vakið athygli á sjúkdómnum víðar. Gest- ir á Fegurðarsamkeppni íslands leggja málefninu einnig lið því að 500 kr. af andvirði hvers miða renna til forvarnastarfs vegna al- næmis. Reynt verður að gera keppnis- kvöldið sjálft glæsilegt að vanda en léttleiki á samt sem áður að einkenna það. Gestir munu upp- lifa tímabilið frá 1945-1960. Kjól- arnir sem stúlkurnar verða í eru allir í anda þess tíma og sérhann- aðir og saumaðir á þær. Stúlkurn- ar koma einnig fram í tískufatn- aði, pelsum og sundfötum. Dans- arar Battú-dansflokksins skemmta gestum. Matseðillinn samanstendur af sælkera-humargratíni í koníakss- ósu með fersku salati, Marie Briz- ard melónusorbeti, villikryddaðri lambakórónu með rauðvínssósu, sveppum og gljáðu grænmetissal- ati o g Sheridans-frauði í súkkul- aðikörfu á rauðri aldinsósu. Stúlkurnar 18 Stúlkurnar sem taka þátt í keppninni eru: Aðalheiður Kon- ráðsdóttir, 18 ára frá Árnesi, Anna María Ragnarsdóttir, 19 ára frá Reykjavík, Ása Brypja Reynis- dóttir, 20 ára frá Bolungarvík, Berglind Laxdal, 18 ára frá Mos- fellsbæ, Berglind Ólafsdóttir, 17 ára frá Hafnarfirði, Berglind Sig- þórsdóttir, 18 ára frá Njarðvík, Bryndís Einarsdóttir, 18 ára frá Vestmannaeyjum, Brynja Björk Harðardóttir, 20 ára frá Njarðvík, Guðlaug Harpa Gunnarsdóttir, 23 ára frá Reykjavík, Guðný Sif Jak- obsdóttir, 19 ára frá Akureyri, Helena María Jónsdóttir, 21 árs frá Hafnarfirði, Hrafnhildur Haf- steinsdóttir, 19 ára frá Reykjavík, Ingibjörg Kristín Ferdinandsdótt- ir, 20 ára frá Reykjavík, Katrín Brynja Hermannsdóttir, 23 ára frá Reykjavík, María Lovísa Árna- dóttir, 20 ára frá Reykjavík, Rósa Júlía Steinþórsdóttir, 19 ára frá Höfn í Hornafirði, Sigríður Ósk Kristinsdóttir, 18 ára frá Akur- eyri og Valdís Kvaran, 19 ára frá Akranesi. 3. LANDSÞING ^ LANDSBJARGAR Kópavogi S.-6. maí 1995 landsbjörg * ' Landssaniband bjiirgimarsvella STÓRÁFALLAVIÐBÚNAÐUR í tilefni 3. Landsþings Landsbjargar, landssambands björgunarsveita, mun Josef Hopf, forstöðumaður rannsókna- stofnunar í snjóflóðum og skriðuföllum í Týról í Austurríki, flytja fyrirlestur um stóráfallaviðbúnað. Fyrirlesturinn verður fluttur í Félagsheimili Kópavogs, Fannborg 2, föstudaginn 5. maí klukkan 13:30. Allir áhugasamir boðnir velkomnir. Að honum loknum fara fram pallborðsumræður undir stjóm Sigmundar Emis Rúnarssonar, fréttamanns. Þátttakendur verða: Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttamaður Josef Hopf, forstöðumaður Dr. Ólafur Proppé, Kristbjörn Óli formaður Guðmundsson, ritari Landsbjargar Slysavarnafélags Islands Böðvar Bragason, Vilborg Jngólfsdóttir, lögreglustjóri yfirhjúkrunarfræðingur í Reykjavík Landlækniscmbættisins Séra Kristján Kristján l»ór Júlíusson, Björnsson, bæjarstjóri á ísafirði sóknarprestur Hvammstanga Krýsuvíkursamtökin með söfnun Vantar fimm milljónir fyrir borholu Snorri Welding Hitaveita Krýsuvíkurskóla hefur verið biluð hátt á annað ár, vegna þess að líftími borholu sem áður sá starfseminni fyrir heitu vatni er liðinn, og ekki tekist að tryggja ijár- magn til þess að bora nýja holu. Til þess að starf í Krýsuvík geti haldið áfram með sama hætti hafa Krýsuvíkursamtökin ákveðið að gangast fyrir söfnun í dag á Rás 2 til að standa straum af kostn- aði við orkuöflun fyrir framtíðina. „Söfnunin er geysilega mikilvæg því hitaveitan okkar er alger grundvöllur fyrir því að við getum lifað af þarna. Við framleiðum eigið rafmagn og fáum enga þjón- ustu inn á svæðið þannig að ef við fáum ekki hitaveitu getum við ekki verið þarna. Allar byggingar okkar eru nú kyntar upp með dís- elolíu á einu mesta háhitasvæði landsins, sem auðvitað er út í hött. Við höfum aðgang að ókeyp- is orku sem er töluvert mikil en holan er orðin 25 ára gömul og við verðum að bora nýja.“ - Hvað þurfíð þið háa fjárhæð fyrir framkvæmdina? „Framkvæmdir við borunina, undirbúningur framkvæmdanna og viðgerð á hitaveitumannvirkj- unum áætlum við að kosti um það bil sex milljónir. Við myndum spara hátt í tvær milljónir á ári, sem annars færu í olíukaup, með þessu. Búnaðarbankinn hefur lof- að að styðja okkur með einni milljón króna, ef okkur tekst að trygg)’a það sem upp á vantar." - Hvenær byrjar söfnunin? „Hún byrjar í dag klukkan níu og verður allan daginn á Rás 2, að minnsta kosti til klukkan fjög- ur og að fréttum undanskildum verður dagskráin helguð söfnun- inni. Meðal annars verða viðtöl við mikið af fólki sem tengist samtökunum, uppbyggingu þeirra og starfi. Við höfum leitað til margra stórfyrirtækja og beðið um að styðja okkur. Þetta er geysilega mikilvægt því við höfum ekki nema þennan dag og verðum að klára framkvæmdirnar í maí. Það er ekki hægt að vinna þetta á veturna og einnig þarf að tryggja að tæki séu ekki upptek- in. Við getum ekki farið inn í annan vetur hitaveitu- lausir. Það er útilok- að.“ - Fáið þið ekkert heitt vatn núna? „Við höfðum smá- vegis til skamms tíma en holan er búin að blása sitt síð- asta. Nú kyndum við skólann upp með olíu en öll efri byggðin, rækt- un og annað sem við erum að fást við situr á hakanum. Lífræna ræktunin og gróðurhúsin sem við erum að byggja upp þarna eru grundvöllur vinnu fyrir vistmenn- ina og þess vegna er svo mikil- vægt að við getum lagfært hita- veituna og komið henni í gott horf fyrir framtíðina. Sem ekki hefst nema með borun nýrrar holu og við þurfum þetta fjár- magn til þess að ijúka því.“ - Myndi ný hola sinna orku- þörf ykkar algerlega? „Já. Þetta þýðir að ef við fáum jafn mikla orku og gamla holan gaf, 2,5 megavött sem er eins og ► SNORRI Welding fæddist 16. apríl 1947. Hann varð stúd- ent frá Menntaskólanum i Reykjavík árið 1968 og stund- aði einnig nám við viðskipta- og lögfræðideild Háskóla ís- lands. Hvarf hann síðan frá námi og varð formaður Krýsu- víkursamtakanna árið 1987. Sem stendur er Snorri skráður í nám í sálfræði í félagsvísinda- deild Háskóla íslands með starfinu. borhola við Kröflu, getum við hit- að upp framtíðarbyggðarlag í Krýsuvík. Á endanum yrði hægt að framleiða rafmagn með gufu- hverflum.“ - Liggur vinna vistmanna þá niðri að hluta? „Það má segja að hún sé alls ekki með þeim hætti sem hún gæti verið. Við höfum auðvitað fullt af öðrum verkefnum en líf- ræna ræktunin er geysilega mik- ilvæg vegna þess að þar erum við að tala um matvæli og fram- leiðslu sem við getum selt. Á staðnum er mikið af húsnæði sem við getum nýtt undir gróðurhús." - Hvað eru margir vistmenn hjá ykkur núna? „Þeir eru 15. Við höfum starfs- leyfi frá heiibrigðisráðherra til að reka vist- og meðferðarheimili fyrir allt að 15 manns. Hjá okkur eru einstaklingar sem farið hafa í margar meðferðir; eiga mjög erfitt, hafa verið i mikilli bland- aðri neyslu og þurfa Iangtíma- meðferð, frá 3-6 mán- uðum eða lengur. Hjá okkur er alltaf fullskip- að og fólk á biðlistum. Einnig þurfum við að byggja upp deild fyrir konur og það er næsta verkefni á eftir hitaveitunni. Soroptimistar í Hafnarfirði og Garðabæ ætla að hjálpa okkur við það en það yrði sérstakt átak.“ - Hvað kostar að reka heimilið á hverju ári? „Ef miðað er við fullt umfang og þær starfsskyldur sem nauð- synlegar eru kostar það 24 millj- ónir. Við fáum 12 milljónir á ijár- lögum og höfum komist af með því að vera með færri starfsmenn en við þyrftum. Einnig höfum við minnkað umfang þjónustunnar. Félagar í Krýsuvíkursamtökunum eru 6.000 og borga 1.700 krónur á ári í félagsgjöld en þeir peningar eiga að nýtast í uppbyggingu mannvirkja í Krýsuvík en ekki til að niðurgreiða rekstur fyrir ríkið.“ Útíhöttað kynda með díselolíu á háhitasvæði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.