Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 41 Ný frímerki 5. maí FRÍMERKI Noróurlanda- frímerki og Evrópu- frtmcrki ÚTLITSBREYTING á tílkynningum Pósts og síma. í BYRJUN næsta mánaðar verður mikið um að vera meðal íslenzkra frímerkjasafnara. Föstudaginn 5. maí koma út fjögur ný frímerki, en þann sama dag hefst frímerkjasýningin Frímsýn 95, sem þegar hefur verið sagt frá í sérstökum þætti. Eins og áður hefur komið fram í þáttum mínum, hafa póststjórnir Norðurlanda ákveðið að gefa út frí- merki annað hvert ár,_ sem minna á norræna samvinnu. íslenzka póst- stjómin gefur að þessu sinni út tvö frímerki, sem minna annars vegar á torfbæina íslenzku, sem settu svipmót sitt á íslenzka byggingarlist um aldir, og svo hins vegar á stórbrotna ís- lenzka náttúra. Á lægra verðgildinu, 30 krónum, er mynd af gamla bænum í Laufási, sem er kirkjustaður og prestssetur við austanverðan Eyjafjörð. Sr. Bjöm Halldórsson, sem þar var prestur frá 1853 til dauðadags 1882, iét reisa bæinn á árunum 1866-1870. Elzta bæjarhúsið er þó frá 1840. Bærinn þykir mjög stílhreinn burstabær, og er hann nú að sjálfsögðu friðlýstur og í umsjá þjóðminjavarðar. Kirkjan í Laufási var einnig reist að hvötum sr. Bjöms árið 1865, en yfirsmiður við hana var hinn kunni athafnamað- ur Tryggvi Gunnarsson. Á hærra verðgildinu, 35 krónum, er mynd af Fjallsjökli í Öræfum. Er hann annar af tveimur skriðjöklum, sem falla úr Öræfajökli og ídofna um svonefnt Æríjall. Mun hann einnig nefnast Ærfjallsjökull. Fjallsárlón er viðjökul- inn, sem sést að hluta til á frímerk- inu. Úr því kemur Fjallsá, sem var oft erfitt vatnsfall á leiðinni yfir Breiðamerkursand. Frímerki þessi eru gerð eftir ljós- myndum Rafns Hafnfjörð og prentuð sem oft áður með offset-litógrafískri aðferð hjá Joh. Enschede en Zonen í Hollandi. Ekki neita ég því, að mér finnast bæði þessi frímerki anzi dökk og túnið í Laufási grænna en ég held, að almennt gerist um tún á ísiandi. Sama dag og Norðurlandafrímerk- in koma út verða enn fremur gefín út tvö Evrópufrímerki. Sameiginlegt þema þessarar Evrópuútgáfu er að þessu sinni „Friður og frelsi". Er það í tilefni þess, að liðin eru 50 ár frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar. Póststjórn okkar hefur valið sama myndefni á bæði merki sín, högg- myndina „Úr álögum“ eftir Einar Jónsson myndhöggvara. Þessi tvö frí- merki eru einnig prentuð með fyrr- greindri aðferð hjá sömu prentsmiðju í Hollandi og Norðurlandamerkin. Vafalaust hafa menn tekið eftir því, að útliti tilkynninga Pósts og síma hefur verið verulega breytt að þessu sinni og að mínum dómi sízt til bóta. Má vera, að hér ráði spamaðarráð- stafanir einhveiju um, og sízt skulu þær lastaðar. En fyrir bragðið verður allt útlit fátæklegra. Svo tel ég ós- mekklegt, ef ekki beinlínis niðurlægj- andi fyrir íslenzka tungu, að fella niður af forsíðunni titilinn NÝ FRÍ- MERKI og setja nú annars vegar NORDEN 1995 og hins vegar EUROPA 1995. Slíkt er með öllu þarflaust, og vil ég í allri vinsemd mælast til þess, að yfirmenn póstsins kippi þessu aftur í fyrri lið. Þá má deila um uppsetningu mynda af frí- merkjunum. Ég álít fara miklu betur, að takkamir sjáist greinilega, svo sem venja hefur verið. Þá verður auðvitað að gæta þess, ef um tvö eða fleiri frímerki er að ræða, að lægra verð- gildi komi á undan hærra verðgildi. Hér hefur þetta ruglazt í tilkynningu Evrópumerkjanna og er tæplega afs- akanlegt. Þá nær engri átt að hætta að tölusetja tilkynningamar, svo sem gert hefur verið um langan tíma, enda einungis til óhagræðis og enginn Norðurlandafrímerki Evrópufrímerki 1995 i CijiiliiiSí sparnaður fólginn í því. Loks get ég ekki orða bundizt yfir því, hversu skýringar myndefnis eru snautlegar að þessu sinni. Hér mátti að ósekju taka meira fram en gert er. Sparnað- urinn má ekki ganga alveg út í öfg- ar, svo sem hér hefur orðið. Jón Aðalsteinn Jónsson Morgunblaðið/Arnór G. Ragnarsson GUÐMUNDUR Pétursson og Ragnar Hermannsson spiluðu vel í úrslitakeppni Islandsmótsins í tvímenningi sem lauk sl. mánu- dag. Þeir enduðu í fjórða sæti með 126 stig yfir meðalskor en 32 pör tóku þátt I úrslitunum. RRIPS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Flj ótsdalshéraðs Firmakeppni Bridsfélags Fljótsdals- héraðs fór fram á dögunum með þátt- töku 29 fyrirtækja. Er þeim hér með öllum þökkuð þátttakan. Röð efstu fírma var eftirfarandi: Fellahreppur, Pálmi og Guttormur Birta, Böðvar og Þorbergur Egilsstaðaapótek, Guðmundur og Þorvaldur Prentverk Austurlands, Sigurður og Jón Bjarki Glókollur, Pálmi og Bemhard Bridsdeild Barð- strendingafélagsins Úrslit úr firmakeppni. Steypustöðin hf. 589 Þórarinn Amason, Gísli Viglundsson Smurstöðin, Geirsgötu 585 Friðjón Margeirsson, Valdimar Sveinsson Búnaðarbankinn 570 Óli Björn Gunnarsson, Jóhannes Laxdal Segullhf. 550 Olafur Ingvarsson, Jóhann Lúthersson Byggingameistari E.H. 547 Eðvarð Hallgrímsson, Jóhannes Guðmundsson GunnarGuðjónssonsf. 542 Óskar Karlsson, Guðlaugur Nielsen Seglagerðin Ægir hf. 534 Hallgrímur Kristjánsson, Magnús Halldórsson. Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni Fimmtudag 27. apríl ’95 spiluðu 20 pör í tveim riðlum: A-riðill ÞórarinnÁmason-BergurÞorvaldsson 134 lngunn Bernburg-Vigdís Guðjónsdóttir 123 Margrét Björnsson - Guðrún Guðjónsdóttir 116 B-riðill, 10 pör Bergljót Rafnar - Soffía Theodorsdóttir 123 Kristinn Gíslason - Margrét Jakobsdóttir 120 Sigurleifur Guðmundss. - Eysteinn Einarss. 112 Meðalskoríbáðumriðlum 108 Laugardaginn 19. apríl ’95 var spil- uð sveitakeppni milli Kópavogs og Reykjavíkur. 9 sveitir mættu frá hvoru félagi. Úrslit urðu þau að Reykjavík vann með 6 vinningum gegn 3,vinn- ingum Kópavogs. Sunnudag 30. apríl spiluðu 16 pör í einum riðli: Þorleifur Þórarinss. - Gunnþórunn Erlingsd. 252 Lárus Guðjónsson - Ásthildur Sigurgísladóttir 249 Sigurleifur Guðjónsson - Þorsteinn Erlingsson 238 Elín Jónsdóttir - Soffía Pétursdóttir 225 Meðalskor 210 Bridsfélag Breiðholts Eftir tvær lotur 1 vortvímenningi félagsins er staða efstu para þessi: Lilja Guðnadóttir - Magnús Oddsson 47 4 Valdimar Sveinsson - Gunnar B. Kjartansson 462 Friðrik Jónsson—Lúðvík Wdowiak 461 ÞórannaPálsdóttir-RagnaBriem 460 María Ásmundsd. - Steindór Ingimundarson 454 Hæstu skor kvöldsins hlutu: Valdimar Sveinsson - Gunnar B. Kjartansson 253 Guðmundur Þórðarson - Þorvaldur Þórðarson 238 FriðrikJónsson-LúðvíkWdowiak 236 Keppninni lýkur næsta þriðjudag. Norðurlandsmót eystra í parakeppni Norðurlandamót eystra í parakeppni verður haldið í starfsmannasal KEA í Sunnuhlíð sunnudaginn 7. maí og hefst kl. 10. Keppt verður um silfur- stig. Keppnisstjóri verður Páll H. Jóns- son. Páll H. Jónsson, hs. 96-21695, vs. 96-12500. Haukur Jónsson, hs. 96-25134, vs. 96-11710. Þátttökugjald er kr. 1.500 á spilara og greiðist á staðnum. Þetta mót gefur öllu bridsáhuga- fólki kjörið tækifæri til þess að æfa sig af krafti undir íslandsmótið í para- keppni helgina 13.-14 maí. Matur og matgerð * Islenskir tómatar Kristín Gestsdóttir óskar lesendum sínum gleðilegs sumars, en í síðasta þætti - Vor- koma, minntist hún á fuglana sem glöddu hana með söng sínum á pálmasunnudag. FÁTT er öruggt í þessum heimi, allra síst koma sumarsins á Is- landi, en veður um sumarmálin minnti okkur rækilega áþað. Þeir sem brugðu sér til annarra landa um páskana töluðu um fegurð nýútsprunginna vorblóma, runna og tijáa, en komu svo heim í gráa kalda vorið og síðbúna páskahret- ið, sem skagfirska bóndakonan sem spáði í kindagarnir hafði séð fyrir. En við eigum bara vorið eftir, það kemur þótt því miði hægt. Flestir muna líklega árviss- an kulda á sumardaginn fyrsta, þegar börnin fara kappklædd í skrúðgöngu, samt segjum við brosandi „gleðilegt sumar“. Farfuglarnir sem eru komnir til landsins finna _ líklega vel fyrir kuldanum. Ég gladdist þegar ég sá fjóra hrossa- gauka, stelk og nokkrar lóur um daginn, en skyldi þeim ekki vera kalt. Hæðin yfir Græn- landi tefur för far- fugla en þeir þurfa meðbyr yfir hafið, en brátt kemur krían, hún hefur vit á að koma ekki fyrr en í maí. Gaman er að sjá hana þegar hún flýgur yfir Garðaholtið, fyrst koma bara fáar, en eftir smá stund er holtið þakið kríum og hver efast þá um að vorið sé endan- lega komið? Ég hlakka alltaf til, þegar íslenskir tóm- atar koma í búðir, þeir eru líka vor- boði, og þótt þeir séu dýrir, kaupi ég þá og borða mikið af þeim, mig hungrar beinlínis í þá. Vlð getum þó varla leyft okk- ur að bruðla með þá núna og sjóða þá í rétti, en ferskir bragðast þeir vel með ýmsu öðru græn- meti, fiski og jafnvel kjöti. Tómatar með avokado og osti 5 meðalstórir tómatar 1 meðalstórt örlítið mjúkt ___________gvokodo____________ _____200 g Mosarellaostur_____ % dl ólífuolía frekar þunnar sneiðar. Skerið ost- inn í þunnar sneiðar. 4. Raðið avokadosneiðum, ost- sneiðum og tómatsneiðum á víxl á litla diska (einn á mann). 5. Hellið sósunni varlega yfir með skeið, klippið basilikublöðin og stráið yfir. Malið pipar yfir. 6. Setjið 5 róspiparkorn yfir hvern disk. Athugið: Ef þið fáið ekki ferska basilíku, er betra að setja þá þurrkuðu með í hristiglasið. Hörpudiskur með tómötum 1 kg hörpudiskur, ferskur eða frosinn 2 dl matarolía % dl sítrónusafi %dl rauðvínsedik 1 tsk fljótandi hunang T4 tsk salt nokkur fersk basilikulauf eóa 1/2 tsk þurrkuó nýmalaður pipar nokkur rósapiparkorn til skrauts (mó sleppa) 1. Setjið ólífuolíu, rauðvínsed- ik, hunang og salt í hristiglas og hristið saman þar til þetta þykkn- ar, einnig má þeyta það lauslega með þeytara. 2. Skerið avokadoið í tvennt langsum og þrýstið frá steininum, afhýðið (oft er hægt að fletta hýðinu af), skerið síðan í rif langs- um. 3. Þvoið tómatana og skerið í 2 meðalstórir hvitlauksgeirar 2 tsk salt nýmalaður pipar fersk steinselja 10 meóalstórir tómatar 2 litlar sítrónur nokkur graslauksstrá 1. Þíðið hörpudiskinn í kæli- skáp ef hann er frosinn. Setjið síðan á sigti og látið renna vel af honum. 2. Afhýðiðogmerjiðhvítlauks- geirann, klippið steinseljuna, setj- ið ásamt matarolíu, sítrónusafa, salti og pipar f hristiglas. 3. Setjið hörpudiskinn í skál, hellið leginum yfir og látið þekja vel. Látið standa í kæliskáp í 2 tíma eða lengur en á eldhúsborð- inu í 1 klst. 4. Hitið glóðarristina á bakara- ofninum eða stillið hitann í 220 gráður á C. Setjið hörpudiskinn í ofninn og bakið í 7-10 mínútur. Fylgist vel með. 5. Skerið tómatana í frekar þunna báta og skerið sítrónuna í báta. 6. Skiptið tómötunum á smá- diska, setjið í sítrónubát á hvern disk. Takið hörpudiskinn úr ofnin- um og skiptið á diskana. Berið strax á borð. 7. Klippið graslauk yfir. Athugið: Hörpudiskinn má þræða upp á grillprjóna og setja á útigrill.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.