Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ INGA BIRNA PÉTURSDÓTTIR + Inga Birna Pétursdóttir fæddist á Akranesi 4. des- ember 1977. Hún lést á Sjúkra- húsi Akraness 19. apríl sl. og var jarðsungin frá Akranes- kirkju 27. apríl. SÚ HARMAFREGN barst okkur að morgni 19. apríl að Inga Birna væri dáin. Baráttunni var lokið. Við verðum að trúa því að henni hafi verið ætlað hlutverk annars staðar og það stórt hlutverk. Inga Birna heimsótti okkur til Húsavíkur um síðustu jól, þá mjög frísk og þá töldum við að hún væri komin yfír þessi erfiðu veikindi. Hún var mjög barngóð og urðum við strax vör við það eftir að Arnór fæddist. í hvert skipti sem við töluðum við hana, spurði hún um hann, og í hvert skipti sem hún hitti hann lék hún við hann. Minn- ingin um síðasta skipti sem þau hittust lifir, en það var í síðasta mánuði þegar Arnór fór til hennar á spítalann en þá vildi hún að sjálf- sögðu fá að halda á honum og knúsa hann, þó að hún væri rúm- liggjandi. Þetta verður honum sagt þegar hann verður eldri. Elsku Inga okkar. Hvíl þú í friði. Fjölskyldu Ingu Birnu og ætt- ingjum og vinum vottum við okkar dýpstu samúð. Guðný, Víðir og Arnór Elí. Englar drottins yfir þér vaki enginn svo þig skaði saki, verði þér ætíð vært og rótt. Sá er krossinn bar á baki, blessi þig og að sér taki. Guð gefi þér góða nótt. Harður og erfiður vetur er að baki og hafa miklar fórnir verið færðar bæði af landi og sjó. Til- ganginn skilur enginn að fullu og fjöldinn stendur vanmáttugur hjá og getur engum vörnum við komið hversu sterkur sem viljinn er. Vorið heldur innreið sína með birtu og yl og hjörtu mannanna fyllast gleði yfir tilverunni. En ský dregur skyndilega fyrir sólu og dapurleikinn hellist yfir þegar enn eitt lífsblómið sem rétt er að byija að blómstra leggur aft- ur augun í hinsta sinn og heldur í ferðina til fyrirheitna landsins, þangað sem ferð okkar allra er heitið fyrr eða síðar. Við komum heldur ekki núna nokkrum vörnum við. Það var snemma í vetur sem fjöl- skyldan kynntist ungu stúlkunni Ingu Birnu, sem nú hefur orðið að lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum vonda eftir hetjulega baráttu fram á seinustu mínútu. Hún sem var svo ung, lífsglöð og bjartsýn og í sál hennar bjó allt það fallega sem I okkur mönnunum lifir. Heldur finnst manni nú réttlæt- inu illa brugðið þegar ungt fólk langt fyrir aldur fram er hrifið burt úr þessu lífi. Hver er tilgangurinn með að leggja svo miklar þrautir á ungt fólk eins og lagðar voru á Ingu Birnu? Þessu er erfitt að svara en þá er eins gott að trúa, trúa á lífið og að dauðinn marki aðeins þátta- skil í lífinu í átt til meiri þroska. Ingu Birnu hefur verið ætiað mikil- vægt hlutverk annars staðar. Þó að við höfum aðeins þekkt Ingu Birnu í skamman tíma og á meðan hún háði veikindastríð sitt, þar sem skiptust á skin og skúrir, munum við ávallt geyma í hjörtum okkar mynd af henni þar sem hún er heilbrigð og hraust. Aðeins nokkrum dögum eftir að Inga Birna kvaddi þessa jarðvist hittist í Reykjavík hópur foreldra sem misst hafa börn úr krabba- meini og stofnaður var stuðnings- hópur. Eitt af því sem hópurinn tók sér fyrir hendur var að kveikja á kertum fyrir þau börn sem látin eru. Þar var líka kveikt ljós fyrir Ingu Birnu. í hljóðri bæn biðjum við og von- um að ljósið hafi lýst upp leiðina sem framundan er bæði fyrir Ingu Birnu og einnig alla þá sem eiga nú um sárt að binda vegna fráfalls hennar. Við vitum að missir ykkar er mikill og sorgin djúp. Við biðjum algóðan Guð um að gefa ykkur allan þann kraft sem fyrirfínnst til að axla þá byrði sem lögð hefur verið á hugi ykkar og hjörtu. Við biðjum góðan Guð um að gæta Ingu Birnu og varðveita. Augasteinn vorsins, lambagrasið litla, löngum í draumi sá ég þig í vetur. Guði sé lof, að líf þitt blómstrar aftur, líkt þeirri von, sem aldrei dáið getur. (Jóhannes úr Kötlum.) Jóhanna Guðbrandsdóttir, Eyjólfur og Amdís. Elsku Inga Birna mín. Þá er komið að leiðarlokum. Lík- amar okkar ijarlægjast hvor ann- an, en hugur okkar og hjörtu munu + Eyþór Einarsson fæddist í Hjarðarhaga í Aðaldal 19. apríl 1964. Hann lést á Húsavík 17. mars síðastliðinn. Útför hans var gerð frá Neskirkju í Aðaldal 25. mars sl. NÚ HEFUR Eyþór frændi kvatt þennan heim og við treystum því að hann sé nú í góðu yfírlæti hjá afa Jónsa. Þegar Eyþór yfirgefur okkur skyndilega, rifjar maður upp atburði og stundir tengdar Eyþóri sem verða fallegri og innilegri en maður gerið sér nokkurn tímann grein fyrir. Og þó það geti verið erfítt að eiga svona barn, fylgja því gjafir sem ekki er alltaf auðvelt að koma auga á. Okkur frændsystkin- unum úr Keflavík langar að minn- ast Eyþórs með nokkrum orðum. Eyþór var í sveitinni þar sem við systkinin dvöldum á sumrin og hjálpuðum til við bústörfin. Þó Ey- þór hafi oft verið fyrirferðarmikill og stöðugt hafi þurft að fylgjast með honum, sat hann oft löngum stundum á gólfínu og lét hökuna hvíla á öðru hnénu og spilaði kúlu- spil eða púslaði. Hann safnaði skrúijárnum og 'passaði þau vel undir koddanum sínum í rúminu. Eyþór vildi drekka kaffi eins og aðrir á heimilinu og var þá mjólkin hans hituð eilítið með nokkrum dropum af kaffi og varð hann yfir sig ánægður með það. Eitt af því skemmtilegra sem Eyþór gerði var að fara í bíltúr, eins og öllum litlum strákum finnst reyndar spennandi, og sat hann alltaf fram í og veifaði öllum bílum sem við mættum. Ef hann var skilinn eftir einn í bílnum var hann ekki lengi að læsa öllum hurðum svo enginn næði honum út. Eyþór fór reglulega með okkur út í íjárhús að ná í eggin og þó svo að hann þyrfti alltaf að fá að halda á tveimur eggjum man ég aldrei til þess að hann hafi brotið eggin á MINNINGAR ávallt slá saman, þar getur dauðinn engu ráðið um. Við höfum alltaf verið sem ein persóna, við ólumst upp saman, bæði í sveitinni minni og á Jaðarsbrautinni hjá ömmu og afa. Það voru ófá skiptin sem við eyddum á Jaðarsbrautinni og á Langasandi við leik. Þá, þegar við lékum okkur saman sem börn, höfðum við ekki áhyggjur af fram- tíðinni. Við vissum ekki betur en við ættum eftir að vaxa upp saman og eignast okkar eigin börn, það hvarflaði ekki að okkkur að þessi illi sjúkdómur ætti eftir að leggjast á þig á unglingsárum og draga þig til dauða. En þeir deyja ungir sem guðirnir elska og við það hugga ég mig. Þú hefur alltaf verið stoð mín og styrkur, þú hefur alltaf verið stór og góður hluti af lífi mínu, og ég þakka þér fyrir þessi yndislegu 17 ár sem þú gafst mér. í bljúgri bæn, og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mín. . Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Elsku Inga mín, ástarþakkir fyr- ir allt. Við vorum búin að skipu- leggja framtíðina saman, ég veit að hún mun rætast, en í öðru lífi, ég elska þig. Þín frænka, leið heim. Þegar fjósatími var hékk Eyþór iðulega í loftrörunum fyrir mjaltakerfið og rólaði sér á slíkum hraða að maður beið eftir að hann missti takið og kastaðist langar leiðir, en ég minnist ekki að það hafi nokkurn tímann gerst. Hend- urnar á honum virtust hreinlega læstar utan um rörið. Fullorðnir geta mikið lært af börnum varðandi einlægni, hrein- skilni og nægjusemi. Eyþór var barn í rúm þrjátíu ár og benti manni gjarnan á heimtufrekjuna og ósann- girnina í sjálfum manni. Man ég (Guðbrandur) einu sinni að ég var að grenja og svekkja mig á því að ég mátti ekki keyra dráttarvélarn- ar, og varð mér þá hugsað til þess að Eyþór keyrði þær aldrei og myndi sennilega aldrei gera, þrátt fyrir að vera eldri en ég. Skammað- ist ég mín þá rækilega fyrir að vera að vola yfir svo litlu sem þessu. Sú fylling og gjafir sem börn og fullorðnir færa öðrum meðan þeirra nýtur við, verða fólki oft ekki ljósar fyrr en maður missir það sem mað- ur áður átti. Eyþór hafði greinilega mikil áhrif á líf okkar systkina og gaf okkur gjafir eins og hinum, og eigum við örugglega enn eftir að uppgötva einhveijar þeirra. Sú þolinmæði sem þurfti við stanslaust eftirlit og umönnun á Eyþóri er ekki hveijum manni gef- in. Eyþór var heppinn að því leyti að í fjölskyldu hans var og er til, að er virðist endalaus þolinmæði og kærleikur. Eydís, Einar, Hrönn, Kristján, Jónas og Baddi, ykkur mun verða launað ríkulega fyrir ykkar endalausu umhyggju og það með meiri hamingju og kærleik en til er hér á meðal okkar. Elsku Eyþór, blessuð sé minning þín. Kveðja frá pabba og mömmu. Guðbrandur, Matti og Friðrika. + Móðir okkar, ANNA JÓIMSDÓTTIR, Hörðalandi 6, Reykjavík, lést þann 28. apríl 1995. Hún verður kvödd í Bústaðakirkju á morgun, föstudaginn 5. maí 1995, kl. 15.00. Þeir, sem vilja minnast hennar, láti Styrktarfélag vangefinna njóta þess. Börnin. Sunna Björk. EYÞÓR EINARSSON FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 39 SNÆÞOR KRISTINN KRISTINSSON Það var alltaf svo yndislegt að koma keyrandi útí Hvamm með for- _ eldrum sínum og systrum og vita að Snæþór var útfrá hjá ömmu og afa. Það munaði þrem árum á mér og Snæþóri en þegar við hittumst töluðum við alltaf mikið saman og við sögðum hvort öðru allt sem okk- ur langaði að segja þannig að við deildum leyndarmálum okkar sam- an. Eg treysti honum fullkomlega því Snæþór var frændi sem ég elsk- aði mjög heitt og vissi vel að það væri hægt að treysta honum fyrir öllu. Síðast hitti ég Snæþór í Reykja- vík 18. mars síðastliðinn. Þátöluðum við mikið saman og það var alltaf svo yndislegt að hitta hann. Snæþór var þá fyrir sunnan til þess að hvetja framhaldskólann í Austur-Skafta- fellssýslu í spurningakeppni fram- haldsskólanema. En þeir deyja ungir sem guðirnir elska. Elsku frændi, ég mun aldrei gleyma þér. Minningin um elsku frænda minn mun lifa með mér. Góði Guð, styrktu elsku Erlu frænku, Helga, Stebbu og Elí og alla þá sem eiga um sárt að binda í þessari miklu sorg. Hafdís Rut Pálsdóttir. t Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát litla sonar okkar, DAGS FREYS GUÐMUNDARSONAR. Anna Hildur Guðmundsdóttir, Guðmundur Birgir Heiðarsson. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓREYJAR JÓNSDÓTTUR frá Hnappavöllum, Öræfasveit, Vesturgötu 113, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks E-deildar Sjúkrahúss Akraness fyrir frábæra umönnun í hennar löngu sjúkralegu. Fyrir hönd annarra vandamanna, Erla Guðmundsdóttir, Gisli S. Sigurðsson. + Snæþór Kristinn Kristins- son fæddist 30. apríl 1974. Hann lést 30. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Kolfreyjustaðarkirkju 7. apríl. ÉG HRINGDI í móður míná um há- degi 30. mars 1995 og þegar hún svaraði heyrði ég að eitthvað var að og ég spurði, þá fékk ég þær sorgar- fréttir að elsku Snæþór frændi væri látinn, aðeins 21 árs að aldri. Ég spurði sjálfa mig: Af hveiju hann, svona ungur og elskulegur frændi? Snæþór eða Kiddi eins og hann var oft kallaður bjó á Höfn í Horna- fírði áamt móður sinni Erlu Oddsdótt- ur frá Hvammi í Fáskrúðsfirði, fóst- urföður sínum Helga Heiðari Georgs- syni frá Vestmannaeyjum og tveimur yngri systkinum, Bjamheiði Stefaníu Helgadóttur, 11 ára, og Þórarni Elí Helgasyni, níu ára. Snæþór var mikið hjá Stebbu ömmu, Oddi afa og Bjarti frænda í Hvammi og ólst því mikið upp í sveit- inni. Oft vorum við frændsystkinin eins og alvöru systkin þegar við kom- um út í Hvamm til að leika okkur saman. Þegar verið var að heyja gerðum við okkur hús eða göng úr böggunum og lékum okkur mikið þar. + Innilegar þakkir fyrir samhug og vináttu við fráfall og jarðarför systur og frænku okkar, ÁSU HJALTESTED, Austurbrún 6, Reykjavík. Birna Hjaltested, Guðríður B. Hjaltested, Anna L. Hjaltested og frændsystkini. Lokað Vegna útfarar GUNNARS ARNARS WILLIAMS- SONAR verða skrifstofur okkar lokaðar föstudag- inn 5. maí frá kl. 13.00. GUÐMUNDUR JÓNASSON HF., Borgartúni 34, Reykjavík. Lokað Skrifstofur vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar verða lokaðar í dag, fimmtudaginn 4. maí, frá kl. 12.00, vegna jarðarfarar HÖNNU ÞORLAKS- DÓTTUR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.