Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 33 AÐSENDAR GREINAR Úthafsveiðar á Norður -Atlantshafi RAÐSTEFNA SÞ í New York um skipu- lag fiskveiða á úthaf- inu leystist upp án samkomulags, en ákveðið er að ganga frá þessum málum í ágústmánuði nk. Nauðsyn slíkra reglna sést hvað bezt af því, að Japanir hafa nú fengið bækistöð á ír- landi til veiða á N-Atl- antshafi og hafa ma. sótt um veiðar á tún- fiski í lögsögu íslands og fengið synjun. Eins og sakir standa nú er þegar augljóst, að óhjákvæmilegt er að settar verði almennar og ákveðnar reglur um veiðar á úthafinu. Þetta á alveg sérstaklega við ísland, því að hér hafa útgerðir fjárfest í alls konar óseljanlegum úthafsveiðiskipum og ekkert lát á því verður fyrr en þessar reglur komast á. Þá kemur líklega í ljós, að leggja verður mörgum af þessum skip- um, sem sennilega verður gert með úreldingu á kostnað alþjóðar, samkvæmt vinnuaðferðum ís- lenzku mafíunnar. Hún stendur framar öllum öðrum mafíum að því leyti, að ódæðin eru jafnan löggilt af Alþingi og afrek hennar teljast því ekki glæpaverk, eins þótt þjóðfélagið borgi brúsann. Þetta þekkja menn undir kurteis- legu málfari Vilmundar Gylfason- ar: „Löglegt en siðlaust.“ í fyrradag slitnaði upp úr við- ræðum við Norðmenn um veiðar í Smugunni eftir stuttan dags- fund. Til þessara viðræðna átti aldrei að stofna af hálfu íslend- inga, því að „Smugan" er í raun- inni ekki til, heldur er þetta að- eins tilbúningur Norðmanna, einskonar síðbúin nýlendustefna á úthafinu. Smugan verður til með þeim hætti, að Norðmenn draga 200 mílna heimildarlausa veiðilögsögu kringum Svalbarða, sem þeir kasta eign sinni á, og nefna „vern'darsvæði Noregs“. Sama gera þeir við Jan Mayen I •> Önundur Ásgeirsson og Síldarsmugan verður þar til með þeim sama hætti. í dag berast fréttir af því, að mjög mikið magn af norsk- íslenska síldarstofn- inum sé í Síldar- smugunni og þó eink- um innan 200 míln- anna við Jan Mayen á leiðinni th íslands. Hagsmúnir íslands á öllu norðurhafssvæð- inu eru augljósir. Fiskilögsaga í N or ður- Atlantshafi fatnaður ábörnin 1 Frábær sumarföt I Skór - gallaföt FIDRILDID BORGARKRINGUNNI - Sími 68 95 25. I I l_ Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu -kjarni málsins! Eðli sínu sam- kvæmt er fiskilögsaga sett vegna hagsmuna íbúa tiltekins lands til veiða, en 200 mílna fiskilögsga hefir verið viðurkennd síðan 1975 af SÞ sem alþjóðaregla. Forsenda fiskilögsögu er, að veiðar séu stundaðar af fólki búsettu í við- komandi landi. Þetta kemur einna greinilegast fram af því að gert er ráð fyrir að Rockall-svæðið njóti ekki lengur réttar til fiski- lögsögu og ganga íslenzkar út- gerðir út frá því að geta hafið þar veiðar innan tíðar. Sama regla á að gilda um allt Norður-Atlants- hafið. Jan Mayen, Bjarnarey, Svalbarði og Franz Jósefs-land hafa því enga fiskilögsögu sam- kvæmt núgildandi alþjóðalögum. Sama mætti e.t.v. gilda um Novaja Zemlja, því að þaðan eru Úthafsveiðar á Norður- Atlantshafí eiga að lúta sameiginlegri stjórn umlykjandi ríkja, • • • A segir Onundur As- geirsson. Ekki á að gera sérsamninga við Noreg um skipan slíkra veiða samkvæmt nú- verandi hugmyndum um alþjóðarétt. ekki stundaðar fiskveiðar og land- ið víst að mestu óbyggilegt. Norð- menn hafa hins vegar dregið 200 mílna línur um öll þessi lönd og þannig búið til bæði Smuguna og Síldarsmuguna, í algjörri and- stöðu við ríkjandi samþykktir SÞ sem gildandi alþjóðalög. Þessu eiga Islendingar að mótmæla og krefjast réttar síns til sameigin- legrar stjórnunar á veiðum í öllu Norður-Atlantshafi. Yfirgangur Norðmanna kemur greinilega fram á yfirlitskorti, sem birt var í Morgunblaðimu fimmtudaginn 27. april, en gild fiskilögsaga Norðmanna og Rússa er aðeins undan heimalöndum þeirra, þaðan sem fiskveiðar eru stundaðar. Allt annað er opið haf, þar sem veiðar eru heimilar öllum umlykj- andi veiðiþjóðum, þ.e. Rússum, Norðmönnum, Færeyingum og íslendingum, sem saman eiga að stjórna veiðunum. Þetta kom greinilega fram á ráðstefnu SÞ í New York á sl. ári, þar sem ríkj- andi stefna var sú, að veiðar á slíkum „innhöfum" tilheyri um- lykjandi ríkjum. Aðild Grænlands kemur tæplega til greina, þar sem sá hluti Grænlands, sem liggur að Norður-Atlantshafinu er óbyggilegt land til fiskveiða, svip- að og Franz Jósefs-land og senni- lega Novaja Zemlja. Varla getur leikið á tveim tungum um að ís- lendingar eiga „sögulegan rétt“ til fiskveiða við Bjarnarey, en þar hafa íslenzkir togarar stundað veiðar frá því um 1930? eða svo, þótt veiðitækni væri þá skammt á veg komin. Reglan um að umlykjandi lönd eigi rétt til veiða á innhöfum ligg- ur til grundvallar skipulagningar á veiðum á úthöfunum um allan heim og því verða íslendingar að standa fast um að sú regla gildi einnig á Norður-Atlantshafi. Þótt íslendingar hafi gert sérsamning við Norðmenn um loðnuveiðar á Jan Mayen-svæðinu hljóta þeir samningar að víkja nú fyrir nýjum alþjóðalögum, sem væntanlega komast á í næsta ágústmánuði. Þannig verður framþróunin til. Sic transit gloria mundi. Nauðsyn á þessari reglu er nú augljós í sambandi við veiðar á norsk- íslenzka síldarstofninum. Þar á að ríkja samstjórn aðliggjandi ríkja, en Danir, írar og aðrar þjóð- ir eiga þar engan rétt til veiða. Þetta mál er aðkallandi nú. Höfundur er fyrrverandi forstjóri OLÍS. ISLANDSBANKI Áfengisvamaráð m OSIAOG SMjÖRSALANSE Tryggingafélag bindindismanna Vímulaus æska - foreldrasamtök STYRKJGM ÆSKGNA I "AÐ NÁ TÖKCIM Á TILVERCimr VIMUVARNARDAGUR LIONS Laugardaginn 6. maí ganga sjálfboðaliðar Lions-hreyfingarinnar í hús og bjóða til sölu barmmerki. Vinsamlegast takið vel á móti þeim og styrkið gott málefni. í Grillinu - margrétta ævintyri fyrir ungt fólk á öllum aldri föstudaginn 5. maí 1995 Nú er tækifarið komið að bregða sér í Grillið á Sögu og upplifo spennandi sælkerakvölci. Sígurður Hall verður á staðnum og spjallar við gesti en hann ásamt Ragnari Wessman annast matseldina. í boði er fjöguna rétta máltíð ásamt fordiykkfyriraðeins 2.900 kf. Komið og upplifið ævintýralegt kvöld í Grillinu! Fotdrykkur Gljáður hörpudiskur og spergilkálsiuiappar í papriku- og gráðostasósu eða Tært tómatseyði kiyddað basilíkulaufúm Gufúsoðinn lax Mouginoise, framteiddur með steiktu söli ogSautemessósu eða Grillaðar nautalundir, ffamreiddar með villisveppum í rauðvínssafa, kartöflu- og spínatmauki og skaiotlauks œnfit Nougat ístum með hindberjasósu Pantanir í síma 552 5033 -þín saga!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.