Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 04.05.1995, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 29 einnig algjörlega þeirri hugmynd að stytta vinnuvikuna og sagði slíkar aðgerðir ekki bæta við neinum störf- um nema hjá hinu opinbera. Hann fordæmdi það kerfi er sætti sig við atvinnuleysi. „Það verður að eiga sér stað kerfisbreyting. Það er skynsam- legra að borga fólki fyrir vinnu en að greiða bætur handa atvinnulaus- um,“ sagði Chirac. Vill stytta kjörtímabil forseta Frambjóðendurnir voru heldur ekki sammála um hvaða breytingar væri nauðsynlegt að gera á frönsku stjórn- skipulagi. Jospin ítrekaði þá skoðun sína að hann teldi rétt að stytta kjör- tímabil forseta úr sjö árum í fimm. Næði hann kjöri hygðist hann efna til þingkosninga og skömmu síðar þjóðaratkvæðagreiðslu um styttingu kjörtímabilsins. Þar með myndi fimm ára reglan einnig ná til hans sjálfs, yrði hún samþykkt af þjóðinni. Hann sagði hvergi annars staðar í hinum lýðræðislega heimi tíðkast að kjör- tímabil í æðsta embætti þjóðarinnar væri þetta langt, ekki síst þar sem forsetinn mætti einnig sækjast eftir endurkjöri. „Ég tel að það sé betra að Jospin stjórni í fimm ár en Chirac í sjö,“ sagði frambjóðandi sósíalista. Chirac á hinn bóginn sagðist ekki telja æskilegt að setja þetta mál á dagskrá. Mörg brýnni málefni krefð- ust úrlausnar og því gæti reynst hættulegt að efna til klofnings og harðvítugrar umræðu um stjórnskipu- legar breytingar. Hann væri þeirrra skoðunar að stofnanir fimmta lýðveld- isins hefðu sannað sig vel. Hins vegar mætti deila um hvernig þær hefðu verið notaðar í raun. Að hans mati væri nauðsynlegt að endurskoða vald- svið forseta og takmarka það. Ekki mætti gleyma því, að Frakkland ætti að vera þingræðisríki en ekki forseta- ræðisríki. Ríkisstjórn Frakklands ætti að stjórna og forsetinn mætti ekki verða að eins konar „ofur-forsætisráð- herra“. Vísaði hann til eigin reynslu í þeim efnum. Það sem hvað mesta athygli hefur vakið er hve lítið fór fyrir umræðu um mörg af hörðustu deilumálunum í Frakklandi i dag. Besta dæmið er líklega innflytjendamál, en fá málefni vekja upp jafnsterkar tilfinningar meðal Frakka. Má nefna sem dæmi að 15% þjóðarinnar kusu í fyrri um- ferðinni frambjóðanda flokks sem nánast setur samasemmerki á milli innflytjenda og glæpamanna. Jospin og Chirac forðuðust deilur um innflytj- endamál í umræðunum, og lýstu ein- ungis yfir almennum áhyggjum af ástandinu. Þá fór lítið fyrir umræðum um Evr- ópumál og stefnumörkum Frakka í þeim, t.d. varðandi hinn sameiginlega gjaldmiðil ESB-ríkjanna, sem til stend- ur að taka upp fyrir aldamót. Þrátt fyrir að það mál eigi eftir að setja rík- an svip á mótun efnahagsstefnu Frakka á næsta kjörtímabili fór lítið fyrir skoðunum þeirra þegar málið barst í tal. Enda hefur gætt andstöðu í báðum fýlkingum við Evrópuþróunina (á ólíkum forsendum þó) og þess má geta að einn nánasti stuðningsmaður Chiracs, Philippe Seguin, var leiðtogi andstæðinga Maastricht-sáttmálans fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um hann árið 1993. Ekki var heldur hægt að ráða í stefnu þeirra varðandi ríkjar- áðstefnu Evrópusambandsins á næsta ári, fjölgun aðildarríkja og alþjóðavæð- ingu heimsviðskipta. Margir fréttaskýrendur hafa lýst yfir furðu sinni á því að í tveggja tíma umræðum, aðallega um efnahagsmál og félagsleg málefni, hafi frambjóð- endurnir aldrei sett umræðuna í „evr- ópskt“ samhengi. Fréttaskýrandi Le Monde segir að líklega hafi þeir vilj- að, vafalaust ósjálfrátt, viðhalda goð- sögninni um að framtíðarforseti Frakklands verði sjálfráður í þessum málaflokkum. í ljósi þess að stór hluti þjóðarinnar hafi kosið öfgaöfl til vinstri og hægri hafi þeir viljað forð- ast að nefna það að framtíð Frakk- lands ræðst ekki lengur einungis í Frakklandi. Almennt hefur þeirri hógværð og kurteisi, sem einkenndi umræðurnar, verið fagnað og því verið lýst yfir að helsti sigurvegarinn hafi verið franskt lýðræði. Það má hins vegar velta því fyrir sér hversu hollt það sé, þegar 40% kjósenda lýsa yfir óánægju sinni með því að kjósa öfgaflokka, að forð- ast að horfast í augu við viðkvæ- mustu málefnin. Upplýsingamiðstöð myndlistar tekur til starfa hér á landi Morgunblaðið/Ámi Sæberg UNNENDUR myndlistar geta senn gengið að upplýsingum um Tolla og aðra íslenska myndlistarmenn vísum í Upplýsingamiðstöð myndlistar. Langþráður draumur myndlistarmanna rætist Upplýsingamiðstöð myndlistar hefar veríð sett á laggimar á íslandi og hefur verið auglýst eftir starfskrafti til að sinna dag- legrí framkvæmd verkefnisins. Sólveig Egg- ertsdóttir sem á sæti í verkefnisstjóm segist í samtali við Orra Pál Ormarsson binda miklar vonir við framtakið enda hafí upplýs- ingar um íslenska myndíist veríð óaðgengi- legar til þessa. SAMKVÆMT samstarfs- samningi um Upplýs- ingamiðstöð myndlistar sem menntamálaráðu- neytið, Samband íslenskra mynd- listarmanna og Myndstef hafa gert með sér er hlutverk miðstöðv- arinnar margþætt. Henni er ætlað að koma á fót gagnabanka sem hafi að geyma upplýsingar um ís- lenska myndhöfunda og verk þeirra; sýningartilboð, söfn og sýn- ingarsali hérlendis og erlendis; námsframboð, vinnuaðstöðu og styrki hérlendis og erlendis; mynd- listarviðburði og tryggingar og efnisframboð. Miðstöðin á jafn- framt að veita upplýsingar um ofangreind atriði. Upplýsingamiðstöð myndlistar er jafnframt ætlað að veita mynd- listarmönnum aðstoð við gerð um- sókna, samningsgerð við flutnings- fyrirtæki og aðstoð við gerð útboðs- gagna. Þá mun miðstöðin aðstoða við gerð útboðsgagna til dæmis vegna prentunar, smíði listaverka og fleira. Kynning á myndlist Innan verksviðs hennar verður ennfremur að stuðla að kynningu á íslenskri myndlist hérlendis og erlendis. Upplýsingamiðstöð mynd- listar skal veita Sýningarnefnd um íslenska myndlist erlendis og öðrum hlutaðeigandi aðilum þjónustu samkvæmt nánara samkomulagi þessara aðila í millum. Sólveig Eggertsdóttir formaður SIM á sæti í verkefnisstjóm upplýs- ingamiðstöðvarinnar ásamt þeim Knúti Bruun frá Myndstefi og Þór- unni J. Hafstein deildarstjóra í menntamálaráðuneytinu sem veitir stjórninni formennsku. Sólveig seg- ir að SÍM bindi miklar vonir við miðstöðina enda hafi upplýsingar um íslenska myndlist verið óað- gengilegar til þessa. Nú gefist loks tækifæri til að vista þær á einum aðgengilegum stað. Sólveig segir ennfremur að Upp- lýsingamiðstöð myndlistar geri það af verkum að unnt verði að vinna á mun markvissari hátt að kynning- armálum. Miðstöðin sé því öðrum þræði liður í þvi að koma íslenskri myndlist á framfæri á stöðum sem máli skipta. „Miðstöðin hefur alla möguleika á að verða það tæki sem íslensk myndlist þarf til að kynna sig hér heima og erlendis." Upplýsingamiðstöð myndlistar hefur, að sögn Sólveigar, verið í farvatninu í nokkur ár. Starfsemi SIM hefur að hluta snúist um upp- lýsingamiðlun frá stofnun samtak- anna árið 1981 og segir formaður- inn að upplýsingaþörfin fari stöð- ugt vaxandi. Brýnt hafi því verið að grípa í taumana. Árið 1993 var þyí efnt til umræðna milli stjórnar SÍM, menntamálaráðuneytisins, aðila frá listasöfnum og fleiri. Þörf á átaki í kjölfar þeirra umræðna var Tryggva Þórhallssyni falið að vinna forkönnunarskýrslu varðandi Upp- lýsingamiðstöð myndlistar og var sú skýrsla kynnt á vordögum 1994. Helstu niðurstöður hennar voru á þá leið að þörf væri á átaki í upplýs- inga- og kynningamálum myndlist- ar á íslandi og upplýsingamiðstöð gæti komið vel til móts við vænting- ar sem gerðar væru á þessu sviði. Þá var lagt til í skýrslunni að í samræmi við menningarpólitísk markmið ætti að stefna að því að fá sem flesta til samvinnu um stofnun og rekstur slíkrar upplýsingamið- stöðvar. Voru söfn, samtök listamanna og höfundarréttarsamtök nefnd sérstaklega í því samhengi. „Sjálfseign- arstofnun virðist vera hentugasta sjálfstæða rekstrarformið. Einnig væri hægt að ná ein- hveijum af þeim mark- miðum sem stefnt er að með því að styrkja skrifstofu Sambands íslenskra myndlistar- manna svo hún geti tekist á við fleiri verkefni," segir í skýrslunni. Ennfremur komst Tryggvi að þeirri niðurstöðu að stefna bæri að því að upplýsingamiðstöðin gæti nýtt sér nýjustu upplýsinga- og samskiptatækni til þess að ná markmiðum sínum. Er þá einkum rætt um myndgagnagrunn, lista- mannatal og tengsl við erlenda gagnabanka. Sólveig segir að þessi hugmynd sé áhugaverð og sterk- lega komi til greina að miðstöðin tengist upplýsinganetinu Internet sem yrði aðalburðarleið fyrir gögn til og frá henni. Hún bætir þó við að hugmyndinni verði ekki nánari gaumur gefinn fyrr en miðstöðin verði komin á rekspöl. „Þetta ræðst allt af viðtökunum og því hvernig tekst til við að koma þessu í kring.“ Sameiginlegir hagsmunir Verkefnisstjómin mun kosta kapps um að hafa samstarf við listasöfn, bókasöfn, skóla og aðrar fræðistofnanir á sviði myndlistar. „Listasöfnin hafa komið sér upp gagnasöfnum og ég vonast til að miðstöðin fái aðgang að þeim enda er um sameiginlega hagsmuni allra að ræða,“ segir Sólveig. SÍM sótti formlega um fjárveit- ingu úr ríkissjóði til Fjárlaganefnd- ar Alþingis síðastliðið haust. í bréfi stjórnar sambandsins kom meðal annars fram að hún teldi skynsam- legt að miðstöðin yrði sett á lag- girnar í áföngum. í fyrsta áfanga yrði lögð höfuðáhersla á að ráða starfskraft til gagnasöfnunar. Það varð síðan eitt af síðustu embættis- verkum Olafs G. Einarssonar sem menntamálaráðherra að afgreiða umsóknina í vor. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður mum veija níu og hálfri milljón króna til Upplýsingamiðstöðv- ar myndlistar á næstu fjórum árum. Þegar hefur verið auglýst eftir starfsmanni í 60% starf og er honum ætlað að sinna dag- legri framkvæmd verkefnisins. Að sögn Sólveigar verður gagnasöfnun fyrsta verkefni starfsmanns- ins en jafnframt sé gert ráð fyrir að hann Sólveig taki virkan þátt í Eggertsdóttir stefnumótun og upp- byggingu miðstöðvar- innar. Umsóknarfrestur er til 10. maí en ráðgert er að viðkomandi taki til starfa um næstu mánaða- mót. Forðast yfirbyggingu Sólveig segir að lögð verði áhersla á að reka upplýsingamið- stöðina á einfaldan hátt og að forð- ast mikla yfirbyggingu. Hún segir ennfremur að draumurinn sé að starfsemi miðstöðvarinnar, SÍM og Myndstefs verði undir sama þaki í framtíðinni. Formaður SÍM fer ekki í laun- kofa með aðdáun sína á íslenskri tónverkamiðstöð sem hann segir að hafi verið mikill hvati. Starfið sem unnið hafi verið þar á bæ hafi skilað miklum árangri. „Ég vona að Upplýsingamiðstöð myndlistar fá jafnmiklu áorkað.“ Samstarfssamningurinn um Upplýsingamiðstöð myndlistar gildir til ársloka 1998. Að samn- ingstíma loknum skulu eignir, þar með talinn hugbúnaður sem verður til vegna starfa verkefnisstjórnar- innar, teljast eign menntamála- ráðuneytisins sem tekur ákvörðun um hvernig eignum verði varið til eflingar íslensku myndlistarlífi. Ef báðir aðilar eru sammála er samn- ingurinn uppsegjanlegur á samn- ingstímanum með sex mánaða fyr- irvara. Sólveig segir að eðlilegt sé að samningurinn verði endurskoðaður að fjórum árum liðnum enda sé stórt verkefni á ferð. Hún er bjart- sýn á framhaldið og er fullviss um að Upplýsingamiðstöð myndlistar eigi framtíð fyrir sér á íslandi. „Vonandi verður miðstöðin orðin ómissandi liður í íslenskri menn- ingu eftir fjögur ár.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.