Morgunblaðið - 04.05.1995, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ
Ellefti reyklausi
dagurinn er í dag
Barátta
gegn reyk-
ingimi
unglinga
ELLEFTI reyklausi dagurinn á
vegum Tóbaksvarnarnefndar er í
dag, 4. maí. Ragnhildur Zoéga,
fræðslufulltrúi Krabbameinsfé-
lags Reykjavíkur, segir þema
dagsins af hveiju unglingar byrji
að reykja. Tveir unglingar byija
að reykja á hveijum degi að með-
altali.
Ragnhildur sagði að reykinga-
fólk væri hvatt til að komast að
því hvernig lífið væri án reyks
með því að láta af reykingum einn
dag. Oft yrði sú reynsla kveikjan
að því að leggja reykingar endan-
lega á hilluna. Hún sagði að fimm
mínútna reglan hefði reynst nokk-
uð vel í baráttunni gegn reyking-
um. „Að láta 5 mínútur líða frá
því löngunin eftir reyk kemur yfir
reykingamanninn,“ sagði hún.
Bréf til unglinga
og foreldra
Hún sagði að þema dagins
væri valið með tillit til aukinnar
tóbaksneyslu unglinga, reykinga
og notkunar á fínkoma neftóbaki.
Tólf og þrettán ára unglingum og
foreldrum þeirra hefur verið sent
bréf í pósti í tengslum við reyk-
lausa daginn. Fjórtán til sautján
ára unglingar hafa fengið sent
heim blað. Minnt verður á daginn
í útvarpi og sjónvarpi. Auglýsing-
ar og greinar birtast í blöðum og
tímaritum.
Árangursríkt
Fyrsti reyklausi dagurinn hér á
landi var haldinn árið 1979 og frá
árinu 1987 hefur reyklaus dagur
verið haldinn á hveiju ári hér á
landi.
Ragnhildur sagði að reyklausu
dagarnir hefðu borið árangur og
nefndi sérstaklega reyklausan dag
helgaður vinnustöðum árið 1992.
Allt frá þeim degi hefði reyklaus-
um vinnustöðum farið fjölgandi
jafnt og þétt og væru nú komnir
upp í um 1.000 talsins.
Þá segir, „Gerð er tillaga um þtjú
ný embætti til viðbótar nokkrum nýj-
um embættum sem R-listinn hefur
þegar samþykkt, M.a. er ráðgert að
setja á embætti framkvæmdastjóra
menningar- og félagsmála, sem ekki
hefur verið sýnt fram á að þörf sé
fyrir. Auk þess er embættið illa skil-
greint og tengsl þess við nefndir og
forstöðumenn þeirra óljós og boðleiðir
milli aðila óljósar. Þetta embætti virð-
ist sett á fót til að auðvelda pólitíska
úthlutun embætta innibyrðis á milli
vinstri flokkanna í R-listanum.“
Loks segir að brýnt sé að R-listinn
komist sem fyrst til botns í stöðugum
vangaveltum og skýrslugerðum um
stjómkerfi borgarinnar og ljúki þar
með því óvissuástandi sem fjölmargir
strafsmenn borgarinnar hafa þurft
að búa við síðastliðið ár.
Skýrari ábyrgð
í bókun borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlistans segir að megin-
markmið tillögunnar sé að gera
ábyrgð á einstökum verkþáttum í
skipulagi borgarkerfisins skýrari og
styrkja stjórnkerfið þar sem það hef-
ur verið veikast fyrir vegna breyttra
aðstæðna og aukinna verkefna. Fram
kemur að fyrrverandi borgarstjóri
hafi lýst því yfir að stjórnsýsla borg-
arinnar yrði að vera til sífelldrar
endurskoðunar og réði m.a. Ingu
Jónu Þórðardóttur í slíkt verk.
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 11
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRfMSSON
GOTT FÓLK