Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.05.1995, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Rúnar Þór Mokfískur í fírðinum ÞEIR eru að fá þetta allt upp í fjögur tonn á dag, trillukarlarnir sem róa frá Sandgerðisbótinni á Akur- eyri en síðustu daga hefur verið einkar líflegt í bót- inni. Grétar Gíslason var í gær að mála bátinn sinn en þeir eru margir að dytta að bátunum, gera þá klára fyrir sumarið. Eymundur Lúthersson var nýkominn að landi með um 300 kíló af vænsta þorski sem hann fékk á línu úti á Eyjafirði. Hann sagði að netabátamir væru að gera það gott, menn mokuðu upp aflanum, sumir kæmu inn til að landa allt að þrisvar á dag, væm með allt að fjómm tonnum í allt yfir daginn. VOfi AHURE 50 ára afmæli Ólafsfjarðarbæjar íslandsmót í dorgveiði á Ólafsfjarðarvatnl 6.-7. maí Dorgveiðifélag (slands og Ferðamálaráð Ólafsfjarðar efna til íslandsmóts í dorgveiði á Ólafsfjarðarvatni 6.-7. maí nk. í tilefni 50 ára kaupstaðarafmælis Ólafsfjarðarbæjar. Dagskrá: Laugardagur 6. maí: Kl. 10.00 -11.00 Mæting keppenda á Hótel Ólafsfjörður. Kl. 11.00 Veiði fyrri dags hefst. Kl. 16.00 Veiði fyrri dags lýkur. Kl. 21.00 - 23.30 Veiðisögur og gaman. Sunnudagur 7. maí: Kl. 10.00 Veiði síðari dags hefst. Kl. 15.00 Veiði síðari dags lýkur. Kl. 16.00 Kaffihlaðborð og mótsslit á Hótel Ólafsfirði. Keppni fer fram í tveimur flokkum:, unglinga og fullorðinna. Þátttökugjald er kr. 1.000. Þrenn verðlaun eru veitt í hvorum flokki fyrir þyngsta afla og auk þess verðlaun fyrir stærsta fiskinn. Upplýsingar og skráning er á Hótel Ólafsfirði í síma 96-62272. Ferðamálaráð Ólafsfjarðar. Dorgveiðifélag íslands. Sjö sækja um að sljórna Giljaskóla SJÖ umsóknir bárust um stöðu skólastjóra við Giljaskóla, en skól- inn tekur til starfa næsta haust í Giljahverfi á Akureyri. Þeir sem sóttu um eru Andri Marteinsson, Hafnarfirði, Garðar Karlsson, Mývatnssveit, Halldóra Haraldsdóttir, Akureyri, Hólmfríð- ur Guðmundsdóttir, Þelamörk, Jón Einar Haraldsson, Eiðum, Rainer Lorenz Jessen, Akureyri, og Svein- björn M. Njálsson, Dalvík. Skólanefnd kemur saman í næstu viku og mun þá taka ákvörðun um með hverjum verður mælt, þá mun fræðslustióri fá umsóknir til um- fjöllunar en menntamálaráðherra ræður í stöðuna. Giljaskóli tekur til starfa í haust, til að byija með eða fyrstu tvö árin verður hann undir sama þaki og leikskólinn Kiðagil sem nú er í smíðum í Giljahverfi. Þar munu verða tveir bekkir, 1. og 2. bekkur, en eldri börn í hverfinu munu ganga í Glerárskóla eins og verið hefur síðustu ár. Gert er ráð fyrir að fyrsti áfangi Giljaskóla verði tilbúinn haustið 1997. Fjórar nýjar bensínstöðvar í burðarliðnum Um 1.400 íbúar um hverja stöð SÓTT hefur verið um lóðir eða aðstöðu til að setja upp þijár bensínstöðvar á Akureyri. Áð.ur hefur aðalskipulagi verið breytt til að hægt yrði að setja bensínstöð upp við Hlíðarbraiit þannig að inn- an tíðar gætu fjórar nýir bensín- sölustaðir risið í bænum og yrðu þeir þá ellefu alls. Hagkaup hefur sótt um leyfi til að setja upp bensínsölu á lóðinn við Furuvelli 17, þar sem verslun fyrirtækisins er og jafnframt var sótt um nýja aðkomu að lóðinni til móts við Fiskitanga fyrir bens- ínsöluna. Kaupfélag Eyfirðinga hefur sótt um heimild til að koma upp að- stöðu til sölu á bensíni og olíum á verslunarlóð félagsins við Óseyri 2, þar sem KEA Nettó er. Þá hefur Höldur hf., umboðsað- ili Esso á Akureyri, sótt um lóð við Viðjulund fyrir bensínstöð og skyldan rekstur. Skipulagsnefnd jákvæð Skipulagsnefnd hefur tekið já- kvætt í erindi þessara þriggja að- ila, enda starfsemin ekki í ósam- ræmi við þá landnotkun sem skil- greind er í aðalskipulagi. Árni Olafsson, skipulagsstjóri Akur- eyrarbæjar, sagði að umsækjend- um væri gert að skila inn deili- skipulagi af svæðinu, það yrði síð- an að auglýsa og að fengnu sam- þykki yrði hægt að hefjast handa við framkvæmdir. Á liðnu ári var aðalskipulagi Akureyrar breytt þannig að land- skiki, útivistarsvæði milli Hlíðar- brautar og Borgarbrautar, var gert að bensínstöðvarlóð. Sú breyting var gerð í kjölfar um- sóknar Olís sem sóttist eftir lóð í bænum undir slíka starfsemi. Framkvæmdir hafa tafist þar sem nágrannar lögðu fram skaðabó- takröfu, en bæjarlögmaður vinnur að lausn málsins. Ellefu sölustaðir Sæki Olís um að byggja bensín- stöð á umræddu svæði og áður- nefndir þrír aðilar hefjist einnig handa við að setja upp bensínað- stöðu geta Akureyringar keypt bensín á fjórum nýjum sölustöðum sem bætast við þá sjö sem fyrir eru. Því má gera ráð fyrir að inn- an tíðar geti bæjarbúar valið milli ellefu sölustaða og verður því ein stöð á hveija 1.400 íbúa. Nú eru um 2.100 íbúar um hveija stöð en sambærileg tala í Reykjavík er um 4.000 íbúar. Olafsfjarðarbær 50 ára * Islandsmót Ólafsfirði. Morgunblaðið. ÍSLANDSMÓT í dorgveiði verður haldið i Ólafsfjarðar- vatni helgina 6.-7. maí næst- komandi. Mótið er liður í hátíðahöldum vegna fimmtíu ára afmælis Ól- afsfjarðarkaupstaðar sem er á þessu ári. Mjög verður vandað til mótsins í tilefni af afmælinu. Keppt verður á laugardegi og sunnudegi í tveimur flokkum, unglinga og fullorðinna, og eru vegleg verðlaun í boði. Miðstöð mótsins verður Hótel Ólafsfjörður og þar er hægt að fá gistingu, allar veitingar og skemmtidagskrá verður á laug- ardagskvöldinu. Frá náttúrunnar hendi er í dorgveiði Ólafsfj arðarvatn merkilegt fyr- ir þær sakir að við botn þess er saltur sjór en ferskt vatn ofar. Sjávarfiskar eru í vatninu, koli, þorskur og jafnvel síld. Auk þess er mikil bleikja í vatn- inu og einnig lax. Veiði er þar jafnan góð. Hótel Ólafsfjörður þar sem miðstöð mótsins verður stendur á vatnsbakkanum. Séð verður um að feija þátttakendur út á vatnið en traustur og góður ís er nú á vatninu og aðstæður fyrir dorgveiðimót hinar bestu. Það er Ferðamálaráð Ólafs- fjarðar í samvinnu við Dorg- veiðifélag íslands sem stendur að mótinu. Kvennaskolaævintýrið vekur mikla lukku Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið. LEIKRIT Böðvars Guðmundsson- ar, Kvennaskólaævintýrið, sem sýnt hefur verið undanfarnar vikur í Freyvangsleikhúsinu, hefur feng- ið mjög góðar viðtökur hjá áhorf- endum og hefur verið uppselt á flestar sýningar. Um síðustu helgi voru fjórar sýningar, þar af ein miðnætursýn- ing á laugardagskvöldið. Uppselt var á þá sýningu eins og hinar þijár. Mikið er um að hópar fyrrver- andi námsmeyja við Húsmæðra- skólann á Laugalandi komi hvað- anæva að til að sjá sýninguna. Leikfólkið lætur hafa eftir sér að því fleiri sem fyrrverandi náms- meyjar séu á hverri sýningu því betri sé stemmningin í salnum. Fréttaritari hitti nokkrar náms- meyjar sem áttu 25 ára námsaf- mæli á Kvennaskólacafé sem sett var upp í tilefni sýningárinnar og luku þær miklu lofsorði á sýning- una og sögðu hana vekja upp margar góðar minningar frá þess- um árum. Engar sýningar verða um næstu helgi, en þráðurinn verður tekinn upp aftur helgina 12. og 13. maí næstkomandi. Sýningum fer síðan fækkandi, en vegna aðsóknar væri hægt að sýna allan maí og fram í júní. Fyrirspurnir frá gömlum stúdentum við MA um hvort hægt yrði að sýna leikritið í kringum þjóðhátíðardaginn 17. júní þegar þeir heimsækja gamla skólann, en óvíst er hvort því verði við komið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.