Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
_____________________________________FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 25
LISTIR
Hver á sér fegra...
HILMIR Snær og Tinna
í Fávitanum, en allra síð-
asta sýning verður á
fimmtudag.
Aukasýn-
ingá
Fávitanum
AUKASÝNING á Fávitanum
eftir Dostojevskí var sunnudag-
inn 30. apríl sl. og komust færri
að en vildu.
Þjóðleikhúsið hefur því
ákveðið að bæta við einni sýn-
ingu enn, fimmtudaginn 4. maí
nk. Þetta er 25. sýning en vegna
þrengsla í húsinu er ekki hægt
að hafa sýningar fleiri þó að
full ástæða væri til, því uppselt
hefur verið á flestar þeirra.
Sýningin á fimmtudag verður
því sú allra síðasta.
Tónleikar í
Hafnarfirði
V ORTÓNLEIKAR strengja-
deildar Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar verða í kvöld kl. 20 í
Hafnarborg, þar sem bæði
yngri og eldri sveitir skólans
leika.
Fimmtudaginn 4. maí verða
síðan tónleikar söngdeildarinn-
ar og eru þeir líka í Hafnarborg
kl. 20.
Föstudaginn 5. maí eru síðan
vortónleikar forskólans í Hafn-
arborg. Þeir hefjast kl. 20 en á
tónleikunum verður m.a. flutt
verkið Mjallhvít og dvergarnir
sjö. Dagana 8.-12. maí verða
síðan fjölmargir aðrir vortón-
leikar á vegum skólans.
Rangæinga-
kórinn með
afmælistón-
leika
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Rangæingakórsins í Reykjavík
verða haldnir í Fella- og Hóla-
kirkju, fimmtudaginn 4. maí kl.
20.30; Stjórnandi kórsins er
Elín Ósk Oskarsdóttir. Á efnis-
skránni eru íslensk og erlend
sönglög.
Einsöngvarar eru Kjartan
Ólafsson og Elín Ósk Óskarsd-
ótir. Píanóleikari Hólmfnður
Sigurðardóttir og þverflautu-
leikari Maríanna Másdóttir.
Vorsveifla
Kvenna-
kórsins
KVENNAKÓR Reykjavíkur
heldur vortónleika í Langholts-
kirkju í kvöld kl. 20.30 og á
laugardag kl. 17.
Auk kórfélaga koma fram
smærri hópar, þ.m.t. Vox Fem-
inae og Gospelsystur ásamt
Signýju Sæmundsdóttur sópr-
an. Svana Víkingsdóttir leikur
undir á píanó. Einnig leikur tríó
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur
skipað Aðalheiði Þorsteinsdótt-
ur sem leikur á píanó, Gunnari
Hrafnssyni sem leikur á kontra-
bassa og Ásgeiri Óskarssyni á
slagverk.
Stjórnandi kórsins er Mar-
grét J. Pálmadóttir. Raddþjálf-
ari kórsins er Björk Jónsdóttir.
Á efnisskránni verða lög úr ís-
lenskum leikritum, negrasálm-
ar og auk þess lög úr óperum
og söngleikjum.
TONLIST
Laugarncskirkja
DRENGJAKÓR
LAUGARNESKIRKJU
Drengjakór Laugarneskirkju. Und-
irleikari: Ástríður Haraldsdóttir.
Stjórnandi: Friðrik S. Friðriksson.
Laugarneskirkja, mánudaginn 1.
maí, 1995.
DRENGJAKÓR Laugarneskirkju er
eini starfandi drengjakór landsins og
hefur hann þegar getið sér gott orð
fyrir góðan söng. Tónleikar kórsins
hófust á tveimur fallegum verkum
eftir Faure, Tantum ergo og Ave
verum, sem voru ágætlega sungin
og sömuleiðis Praise the King, eftir
Handel og Ave maris stella, eftir
Urieg. Raddlega var margt vel gert
hjá drengjunum, þó oft við mörk
bijósttónsins, sem þarf að virkja til
að auka styrk háraddarinnar. Þarna
er vandrataður meðalvegurinn en oft
gat að heyra hjá drengjunum sérlega
fallega hátónun, bæði á sópran og
alt sviðinu.
Einsöngvarar kórsins voru Hrafn
Davíðsson' er söng Behold a Virgin,
eftir Handel, Ólafur F. Magnússon,
er söng Che faro, úr Orfeusi eftir
Gluck og Jón E. Guðmundsson og
Ragnar Pétursson er fluttu Sólset-
ursljóðin eftir Bjarna Þorsteinsson.
Söngur drengjanna var framfærður
af öryggi en með nokkuð mismun-
andi raddtækni, þar sem stundum
bar um of á bijósttónun en í annan
stað gat aðeins að heyra tónveika
háröddina. Máríuvers Páls ísólfsson-
ar var failega sungið og erfiðustu
verkin á efnisskránni, tveir enskir
madrigalar, eftir Wilbye og Morley,
voru nokkuð vel sungnir.
Eftir hlé voru sungin ellefu ætt-
jarðarlög íslensk, byijað á ísland
farsælda Frón og endað á ísland,
ísland, eg vil syngja. Söngur drengj-
anna var nokkuð misjafn, aðallega
er varðar raddmótun og kröfur um
tónstyrk, sem oft gerir tónstöðuna
ótrygga og getur sært samhljómun-
ina. Minni hljómur, hreinni sam-
hljómur, er næstum regla og mikinn
raddstyrk verður að byggja á mjög
góðri þjálfun, því annars getur tónn-
inn orðið svolítið kvalinn. Hvað sem
þessu líður, var auðheyrt að vel hafði
verið æft og oft glampaði á hinn
fagra drengjakórshljóm.
Jón Ásgeirsson
15 milljónir endurgreiddar
ENDURSENDIST
meðupplýsingum um
nytt póstfang ef
viðtakandier fluttur.
__ SJ A
/T*X
S ÖC 5
'W*
iSUKD
1995
Nú um mánaðamótin fá fjölmargir STOFN-félagar hjá Sjóvá-Almennum
senda ávísun í pósti. Þennan glaðning hljóta þeir senr fullnægja skilyrðum
um endurgreiðslu og fá því hluta af iðgjöldum ársins 1994 endurgreiddan.
Endurgreiðslurnar nema alls 15 milljónum króna.
STOFN er hagkvæm lausn fyrir einstaklinga og fjölskyldur og felur t sér
verulegan afslátt og endurgreiðslu af tryggingaiðgjöldum. Flafðu samband
og fáðu upplýsingar um STOFN - það borgar sig.
STYRKIR STÖÐU Þ í N A
SiOVAairrALMENNAR
Sími 569 2500 • Grænt númer 800 5692