Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 37
MORGUKtBLAÐIÐ
MINNINGAR
GUÐFINNA
JÓHANNESDÓTTIR
+ Guðfinna Jó-
hannesdóttir
fæddist 4. apríl
1902 að Engidal í
Skutulsfirði en ólst
upp að Seljalandi í
Skutulsfirði. Hún
lést á elliheimilinu
Grund 26. apríl sl.
Foreldrar hennar
voru hjónin Guð-
finna Sigurðardótt-
ir og Jóhannes Guð-
mundsson á Selja-
landi. Systkinin
voru þrjú. Karlína
Grein, Albert og
Guðfinna og systur-
sonur Jóhannesar ólst upp með
þeim. Albert drukknaði er tog-
arinn Leifur heppni fórst 1926,
Karlína lést 1979 og fósturbróð-
irinn Guðmundur Halldórsson
lést 1983. Guðfinna giftist Ste-
fáni Kristjánssyni frá Skeiði í
Svarfaðardal og bjuggu þau i
Seljalandi á Siglufirði til 1978
er þau fluttust til Hveragerðis.
Stefán lést 1981. Þau eignuðust
eina dóttur, Dórótheu, f. 25.
febrúar 1938. Guðfinna verður
jarðsungin frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag, 4. maí, og hefst
athöfnin kl. 13.30.
AÐ KVELDI 26. apríl barst mér sú
frétt að amma mín Guðfmna væri
látin. Það fyrsta sem kom upp í huga
minn voru allar þær góðu samveru-
stundir sem við höfum átt saman í
gegnum árin, ásamt frásögnunum
þínum af minnistæðum atburðum í
lífí þínu.
Á mínum barns- og unglingsárum
var það næstum því fastur liður að
koma til Siglufjarðar um sumar og
páska til að heimsækja þig og afa.
Eftir á að hyggja eru þetta einar af
mínum bestu minningum. Við afi
áttum mörg sameiginleg áhugamál,
meðal annars veiðiskap og skíða-
íþróttina. Við fórum í margar veiði-
ferðir, í Miklavatn, á árabát út á
fjörð, eða veiddum fisk á gömlu sfld-
arbryggjunum. Oft varst þú með í
þessum ævintýraferðum.
Um páska fylgdumst við afi með
skíðamótum sem haldin voru í Hvan-
neyrarskál, Sigluíjarðarskarði, eða á
Hóli. Alltaf beiðst þú með eitthvað
ljúffengt í gogginn þegar komið var
heim eftir skemmtilegan dag.
Ung að aldri tókst þú þá ákvörð-
un að fara ekki hefðbundnar slóðir
eins og ungar stúlkur gerðu í þá
daga. Þú horfðir upp á margar ung-
ar stúlkur byija lífið með því að
gifta sig og eignast börn, oft samf-
ara mikilli fátækt. Þú tókst þá
ákvörðun að sigla út í hinn stóra
heim áður en þú myndir binda þig.
Það var meira en að segja það að
ætla út í lönd á þeim tíma, en út
fórst þú eftir að hafa unnið fyrir
farinu með sveitarstörfum og fisk-
vinnu. Það var árið 1929 sem þú
sigldir til Þýskalands og lærðir garð-
yrkju þar, og bar garðurinn þinn
þess ávallt merki, þar sem hann var
öllum görðum fegurri.
Eftir á að líta fannst þér dvölin í
.frf
MHHBBEBG
"l|
Glæsilegur salur, góð þjónusta
og veglegt kattihlaðborð kr. 790-
ERHS
DRYKKÍAN
Þýskalandi mjög mikils
virði og gott veganesti
fyrir lífið. Enda varst
þú í engum vafa um að
ég væri að gera rétt,
þegar ég eitt sumar
ákvað að fara utan og
leita mér að sumar-
vinnu. Ég kom við hjá
þér til að kveðja þig og
spurði í leiðinni hvernig
þér litist á þessar áætl-
anir mínar. .„Þetta líst
mér vel á,“ sagðir þú.
„Máltækið segir að
heimskt sé heimaalið
barn og í því máltæki
er mikill sannleikur.“
Til Siglufjarðar komst þú, og
kynntist þar manninum þínum „afa“,
en svo einkennilega vildi til að ein-
mitt hann hafði verið beðinn um að
taka á móti þér og móður þinni við
komuna þangað.
Eins og flestir íslendingar fenguð
þið að kynnast náttúruöflunum sem
búa í landinu. Þegar mamma mín
var tæplega ársgömul, varð húsið
ykkar fyrir snjóflóði. Bamavagninn
sem mamma svaf í, var alltaf látinn
standa undir eldhúsglugganum, en
þú hafðir aldrei þessu vant flutt hann
frá glugganum í skjól við steinvegg,
rétt áður en þú fórst niður í kjallara
til þess að bæta eldiviði á miðstöðvar-
ketilinn. Það að færa barnavagninn
til, varð til þess að bjarga lífi
mömmu, er snjóflóð brast á og
hreinsaði með sér alla lausamuni úr
húsinu.
Svo kom síldin, hvílíkt ævintýri,
hvílíkar minningar. Þú og afi unnuð
nótt sem dag. Afi vann sem „beykir“
á síldarplaninu hjá sjálfum sfld-
arkónginum Óskari Halldórsyni, og
þú vannst við síldarsöltunina.
En síldin var ekki bara ævintýri,
síldin var líka vinna. Það var staðið
við söltunarborðið þangað til allur
aflinn úr skipunum var unninn. Þá
þekkust engir kaffitímar. Það var
bara staðið og staðið, og saltað. Sjö
ára gömul færði mamma þér kaffi-
sopa, og var hann drukkinn stand-
andi án þess að tylla sér niður. Oft
stóðst þú við söltunarborðið sam-
fleytt sólarhringunum saman. þegar
heim var komið náðist oft ekki að
elda mat áður en ræst var út aftur.
í dag myndi þetta eflaust kallast
þrælahald, en í þá daga þekktist
ekkert annað en að taka þeirri vinnu
sem bauðst.
Árið 1969 komuð þið afi suður,
og unnuð í frystihúsi, þar sem at-
vinnuleysi var á Siglufirði. Einn var
sá siður sem þú kynntist hér fyrir
sunnan, en það var að taka reykpás-
ur í vinnutímanum. Reykpásurnar
sem áttu bara að vera 5 mínútur
urðu oft að 15-20 mínútum hjá fólk-
inu. Þú settir allt á annan endann í
frystihúsinu, þegar þú hélst áfram
að vinna í reykpásunum, þar sem
fullyrt var að ef ein manneskja gæti
haldið það út án þess að reykja, þá
yrðu reykpásumar bara aflagðar. Þú
stóðst hörð á þínu og sagðist engar
reykpásur þurfa, þar sem þú reyktir
ekki og fékkst þú þínu framgengt.
Nú er komið að vegamótum þar
sem vegir okkar liggja í sitthvora
áttina. Eg og Sigurlaug viljum þakka
þér fyrir allar góðu og ógleymanlegu
samverustundirnar.
Stefán Jónasson.
Góð kona hefir lokið lífshlaupi
sínu. Langur vinnudagur er að baki.
Þreyttum er hvíldin hæg og gott að
sofna vitandi það að hafa skilað sín-
um hlut og aldrei brugðist skyldu
sinni. Lífíð á ísafirði upp úr síðustu
aldamótum var engjnn dans á rósum,
allir urðu að vinna hörðum höndum
þegar vinnu var að hafa. Guðfinna
byijaði að vinna þegar aldur og kraft-
ar leyfðu. Fyrst þegar hún fór að
heiman vann hún á gistiheimili Hjálp-
ræðishersins á ísafirði, hún fór síðan
til Reykjavíkur og var í vist hjá
Krabbe vitamálastjóra en 1929 fór
hún til Þýskalands og var eitt ár hjá
Reginu Dinfe sem þá var að byggja
sitt ísland Haus á strönd Norðursjáv-
ar og lærði þar garðyrkju- og gróður-
störf enda var allur gróður hennar
líf og yndi. 1935 fór hún í síldar-
vinnu til Sigluijarðar og kynntist þar
Stefáni Kristjánssyni sem átti eftir
að verða lífsförunautur hennar. Þau
giftust 1937 og reistu sér strax hús
af litlum efnum en mikilli bjartsýni,
Seljaland, sem stendur á fallegum
stað hátt í hlíðinni neðan Hvanneyr-
arskálar. Þar var gerður fallegur
garður með blómum og græmeti.
Islenski reynirinn hennar Guðfinnu,
sem hlýtur að vera nálagt fimmtugu,
stendur undir stafninum á Seljalandi
og er lóðar- og bæjarprýði. Foreldrar
Guðfinnu fiuttust til þeirra hjóna og
létust bæði hjá þeim. Sá er þetta
ritar kynntist Guðfinnu Sigurðar-
dóttur en hún var einstaklega ljúf
og geðþekk kona og talaði vestfirsku
með gömlum framburði sem unun
var að heyra. Guðfinna og Stefán
unnu bæði hjá Óskari Halldórssyni
en eftir að síldin hvarf vann Guð-
finna lengi í niðurlagningarverk-
smiðjunni Sigló einnig starfaði hún
sem leiðbeinandi við skólagarða.
Stefán og Guðfinna eignuðust eina
dóttur, Dórótheu, sem gift er Jónasi
Guðlaugssyni rafveitustjóra í Hafn-
arfirði og eiga þau synina Stefán,
sem er rafeindavirki og við verkfræð-
inám í Danmörku, Guðlaug, sem er
framleiðslustjóri á togaranum Guð-
björgu og býr í Hnífsdal, og Guð-
mund, nemanda í Flensborg. Barna-
böm Jónasar og Dórótheu eru þijú.
Stefán og Guðfinna fluttust til
Hveragerðis árið 1978 en þar lést
Stefán 1981. Guðfmna flutti svo á
elliheimilið Grund 1992. Þarundi hún
hag sínum vel og var hún og aðstand-
endur hennar þakklát því góða fólki
sem annaðist hana af hlýju og um-
hyggju síðustu æviárin. Sá er þetta
ritar og bræður hans nutu gestrisni
Stefáns og Guðfinnu oft og lengi og
mættu þar alltaf hlýju og vináttu,
sem hér er þökkuð þó seint sé. Guð
blessi minningu þeirra góðu hjóna
Stefáns og Guðfinnu í Seljalandi.
Hjalti Jónasson.
Veislusalur Lágmúla 4, sími 588-6040
+
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR GUÐJÓNSSON,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 5. ma'í kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Grafarvogskirkju.
Magnús Ásgeirsson, Rósamunda Guðmundsdóttir,
Sigríður, Anna og Benedikt Kristján.
LEGSTEINAR
MOSfllK H.F.
Hamarshöfða 4 — sími 871960
8
FIMMTUDAGUR 4. MAÍ1995 37
FRIÐJÓN
JÓHANNSSON
+Friðjón Jó-
hannsson var
fæddur á Skálum á
Langanesi, 11. júní
1910. Hann lést í
Reykjavík 22. apríl
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Jóhann Stefánsson
bóndi á Skálum og
Maria Friðriksdótt-
ir og áttu þau sautj-
án börn.
Friðjón kvæntist
Sigurveigu Gunn-
arsdóttur og áttu
þau fimm börn. Þau
eru: Haraldur, fráskilinn, á
hann tvö börn; Jóhann Gunnar,
kvæntur Ólafíu Egilsdóttur og
eiga þau fjögur
börn; Edda María,
gift Gunnari Gund-
ersen, og eiga þau
þrjú börn og þrjú
barnabörn; Sigurd-
ór Friðjónsson,
kvæntur Asu Arna-
dóttur og eiga þau
fjögur börn og sex
barnabörn; Tómas,
var kvæntur
Bryndísi Sigurðar-
dóttur sem er látin
og eiga þau fjögur
börn og eitt barna-
barn.
Útför Friðjóns fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
ELSKU AFI, við vissum alltaf að
sá tími mundi koma að þú færir frá
okkur en þó var okkur mjög brugð-
ið þegar sá tími kom og eigum við
erfitt með að trúa því að þú sért
farinn. Þú talaðir aldrei mikið um
tilfinningar þínar, þó vissum við að
þér þótti vænt um okkur, því að þú
sýndir okkur það með hegðun þinni.
Við þökkum fýrir þann tíma sem
við fengum að njóta með þér og
munum alltaf minnast þín og sakna.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðar kraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson).
Sigurveig og Helena
Sigurdórsdætur, Gyða Gunn-
arsdóttir, Særós Tómasdóttir,
Sigurður Tómasson.
+
Hjartkær eiginkona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR,
Hurðarbaki,
Reykholtsdal,
sem lést (Sjúkrahúsi Akraness 30. aprfl
sl., verður jarðsungin frá Reykholts-
kirkju laugardaginn 6. maí nk. kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Barnaspítala Hringsins.
Bjarni Þorsteinsson,
Gunnar Bjarnason, Ásthildur Thorsteinsson,
Þóra Bjarnadóttir, Einar Sigurjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför sonar okkar, bróður og vinar,
LEIFS EINARS LEÓPOLDSSONAR,
fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 5. maí kl. 15.00.
Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Olga, Leópold,
systkini, fjölskyldur
og vinir hins látna.
+
Bálför bróður okkar,
KÁRA GUÐBRANDSSONAR
vélstjóra,
Hjarðarhaga 40,
Reykjavik,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
5. maí kl. 13.30.
Bára Guðbrandsdóttir,
Berghildur Guðbrandsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Móðir okkar, dóttir, stjúpdóttir og systir,
ÞÓRDÍS
KRISTJÁNSDÓTTIR,
Trönuhjalla 1,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju
laugardaginn 6. maí kl. 14.00.
Valgerður Dís Valdimarsdóttir, Benedikt Karl Valdimarsson,
Valgerður Einarsdóttir, Haraldur Gíslason
og systkini.