Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 56

Morgunblaðið - 04.05.1995, Page 56
Afl þegar þörf krofurl RISC System / 6000 cO> NÝHERJI m HEWLETT PACKARD HP Á ÍSLANDI H F Höfðabakka 9, Reykjavík, sími (91) 671000 Frá möguleika til veruleika MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 4. MAÍ 1995 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Merkið mál- að á Höllina HEIMSMEISTARAKEPPNIN í handknattleik hefst á íslandi á sunnudaginn en úrslitin ráðast í 88. og síðasta leik keppninnar 21. maí. Leikirnir fara fram á Akureyri, í Kópavogi, Hafnar- firði og Reykjavík. Islenska landsliðið leikur alla leiki sína í Laugardalshöllinni og er hún hin glæsilegasta eftir gagngerar breytingar. í gær var byrjað á að mála merki keppninnar á hið geysistóra hvolfþak hallarinnar. Augu íþróttaáhugamanna um heim allan munu beinast að þessu húsi næstu vikurnar. Samningaviðræður um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum Talsvert mikíð ber enn í milli Morgunblaðið/Árni Sæberg HELGI Ágústsson, formaður íslensku sendinefndarinnar, og Stein Owe, formaður þeirrar norsku. LAUSN í viðræðum íslendinga, Norðmanna, Rússa og Færeyinga um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum var ekki í sjónmáli í gærkvöldi þegar fundi lauk í Borg- artúni 6 eftir langa setu. Bar þá enn mikið í milli. Hvorki Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra né Hall- dór Asgrímsson utanríkisráðherra Morgunblaðið/Kristinn vildu í gærkvöldi tjá sig um viðræð- urnar efnislega. Viðræðunum verð- ur haldið áfram í dag og hefjast þær kl. 9. Þorsteinn sagði að unnið væri að því að gera bráðabirgðasamkomu- lag um fyrirkomulag veiða það sem eftir lifði þessa árs en meginefni viðræðna við Noreg yrði á síðara stigi að ræða skiptinguna og sam- eiginlega stjórnun. Aðspurðir um hvaða áhrif það hefði á viðræðurnar ef íslensk skip hæfu veiðar í Síldar- smugunni í dag sögðust bæði Þor- steinn og Halldór treysta því að orðið yrði við tilmælum stjórnvalda og veiðar hæfust ekki fyrr en að viðræðum loknum. Kvótaúthlutun ófrágengin Þorsteinn sagði að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvernig kvóta yrði úthlutað hér innanlands ef sam- komulag næst. Líklegt má þó telja að um síldarkvóta þann, sem úthlut- að kann að verða, muni gilda ákvæði 8. greinar laganna um stjórn fisk- veiða. Þar segir að sé ekki fyrir hendi samfelld veiðireynsla á við- komandi tegund skuli sjávarútvegs- ráðherra ákveða aflahlutdeild ein- stakra skipa. „Getur hann við þá ákvörðun tekið mið af fyrri veiðum, stærð eða gerð skips. Getur ráðherra bundið úthlutun samkvæmt þessari málsgrein því skilyrði að skip afsali sér heimildum til veiða á öðrum teg- undum,“ segir í lögunum. Viðræðunum verður haldið áfram í dag og sagði Þorsteinn að væntan- lega kæmi í ljós fyrir hádegi hvort einhver möguleiki væri á að ná samningum. ■ Síldin veiðist/6 Borgarspítali 30 lágu á göngum RÚMLEGA 30 sjúklingar þurftu að liggja á göngum Borgarspítalans dag einn fyr- ir skömmu. Sama dag vant- aði 54 vaktir hjúkrunarfræð- inga. Rekstur spítalans er á öryggismörkum að sögn Sig- ríðar Snæbjörnsdóttur hjúkr- unarforstjóra. Fagstjórnendur Borgar- spítalans gera heilbrigðisráð- herra grein fyrir vaxandi vinnuálagi á spítalanum og óviðunandi starfsumhverfí í dag. 130 milljóna niðurskurður Spítalanum var gert að skera rekstrarkostnað niður um 180 milljónir á árinu. Fyrir um mánuði fékkst hins vegar 50 milljón króna fjár- veiting svo niðurskurðurinn verður 130 milljónir. ■ Rekstur spítalans/6 Sjómenn á fiskiskipum boða verkfall frá 25. maí Meginkrafa sjómanna er breytt verðmyndun á fiski SJÓMANNASAMBAND íslands og Farmanna- og fískimannasamband íslands hafa boðað til verkfalls frá og með miðnætti aðfaranótt 25. maí. Vélstjórafélag íslands hefur boðað til verkfalls frá hádegi 25. maí. Verkfallið nær til sjómanna á öllum fískiskipaflotanum utan Vest- fjarða. Að sögn Sævars Gunnarssonar, formanns Sjómannasambandsins, er meginkrafa sjómanna að verðmynd- un á fiski verði breytt. _ Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir ótrúlegt að verkfallinu verði afstýrt í samningaviðræðum enda virðist kröfum sjómanna fyrst og fremst beint að ríkisvaldinu og ætlað að hafa áhrif á það hvaða mál verði til umfjöllunar á vorþinginu. Vilja að verðmyndun á fiski verði breytt Ákvörðun Sjómannasambandsins kemur í kjölfar árangurslauss fundar með útvegsmönnum í fyrradag. Kröfunum fyrst og fremst beint að ríkisvaldinu segir formaður LÍÚ Sævar sagði að á þeim fundi hefði komið berlega í ljós að útvegsmenn vildu í engu koma til móts við kröf- ur sjómanna. „Við viljum fá ákvæði í okkar samninga um ráðstöfun aflans og það verð sem borgað er fyrir hann. Við erum að beijast fyrir því að verðmyndunin eigi sér stað með þeim hætti að sjómenn geti unað við hana. Við þekkjum dæmi þess að það er verið að greiða allt niður í 20 krón- ur fyrir kílóið af þorskinum, sem á fijálsum markaði selst á 100-120 krónur. Fiskverðsákvörðun er í dag einhliða ákvörðun útgerðarmanns sem jafnframt er fiskverkandi. Það er ekki hægt að líða það öllu lengur." Sævar sagði að Sjómannasam- bandið hefði bent á þá leið til lausn- ar að allur fiskur færi á fiskmarkað, en það væri jafnframt tilbúið til að skoða fleiri lausnir. „Ég hef oft tekið við verkfallsboði en hef aldrei orðið jafnhissa og í dag,“ sagði Kristján Ragnarsson, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að verðlagsráð sjávarút- vegsins hefði á sínum tíma verið lagt niður að ósk sjómannaforyst- unnar en ef sjómannaforystan væri nú spurð hvort hún vildi endurvekja verðlagsráðið svaraði einn játandi en annar neitandi. Skýr ákvæði um ráðstöfun aflans „Þegar þeir eru spurðir hvort þeir vilji setja allan físk á markað er svar- ið að þeir geri sér grein fyrir að það geti ekki gerst á þessari stundu. Þegar við spyijum hvernig megi leysa þetta þá hljóðar krafan sem við stönd- um frammi fyrir þegar verkfall er boðað á þá leið að skýr ákvæði verði í kjarasamningi varðandi samskipti sjómanna og útvegsmanna um ráð- stöfun aflans og það fískverð sem greitt er til sjómanna. Þegar við spyq'um hvað þetta merki þá eigum við að finna út úr því fyrir þá.“ Kristján sagði að ljóst virtist að kröfum sjómanna væri beint að ríkis- valdinu en ekki að útgerðarmönnum. í verkefnaskrá sjávarútvegsráðu- neytis eftir myndun ríksstjórnarinn- ar komi fram að taka eigi verðmynd- un á sjávarafla til endurskoðunar og meta m.a. hvaða leiðir séu færar til að leiðrétta það misgengi sem orðið hafí innbyrðis á kjörum sjó- manna. „Nú telur sjómannaforystan að það þurfí að boða verkfall til að ná athygli Alþingis í maí til að þrýsta á að þetta mál nái framgangi á vor- þingi,“ sagði Kristján og sagði að þetta hefði samningamönnum út- vegsmanna verið sagt berum orðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.