Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 1

Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 1
88 SIÐUR B/C/D 101. TBL. 83.ÁRG. LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Lionel Jospin talinn saxa á forskot Jacques Chiracs Líkur á hnífjöfnum kosningum París. Morgunblaðið, The Daily Telegraph. JACQUES Chirac, frambjóðandi hægrimanna, og sósíalistinn Lionel Josp- in héldu í gær síðustu baráttufundi sína fyrir frönsku forsetakosningarnar á sunnudag. Mikil harka hefur færst í kosningabaráttuna síðustu tvo daga enda er talið að Jospin hafi saxað á forskot Chiracs og kosningam- ar verði hnífjafnar. Chirac lauk kosningabaráttu sinni í Lyon, næst stærstu borg Frakk- lands. Hann ávarpaði þúsundir stuðningsmanna sinna á fundi með Raymond Barre, fyrrverandi forsæt- isráðherra, sem var einn forystu- manna franskra hægrimanna er vildu ekki gefa upp afstöðu sína fyrir fyrri umferð kosninganna. Hægrimenn hafa lagt mikla áherslu á samstöðu undanfama daga og hafa flestir helstu stuðningsmenn Edouards Balladurs ítrekað stuðning við Chirac, auk þjóðernissinnans Phillipe de Villiers og þeirra miðju- manna, sem gengu til liðs við Mitt- errand og tóku sæti í stjórn hans árið 1988. Jospin hélt fundi í þrem borgum í gær og lagði áherslu á að ná til óákveðinna kjósenda. Talið er að hann hafi fengið byr vegna morðs snoðinkolla á Marokkómanni eftir fund hægriöfgamanna á mánudag og umdeildrar yfirlýsingar Chiracs um að hann ætli að krefjast þjóðar- atkvæðis um breytingar innan Evr- ópusambandsins eftir ríkjaráðstefn- una á næsta ári. Mikil óvissa Bannað er að birta skoðanakann- anir í Frakklandi síðustu vikuna fyr- ir kosningar en þær sem gerðar hafa verið voru birtar í Sviss og á Spáni. Samkvæmt þeim er Chirac enn með nokkurt forskot á Jospin. Mestur er fylgismunurinn 54-46%, en minnstur 51-49%. Allar kannan- irnar benda hins vegar til þess að Jospin hafi saxað á forskotið. 20% kjósendanna höfðu þó ekki gert upp hug sinn, þannig að óvissaa er mikil. Stjómmálin vora þó ekki efst í hugum allra Frakka í gær, tveimur dögum fyrir kosningar. Fyrsta frétt í öllum aðalfréttatímum var einstök veðurblíða undanfarinna daga, en hitinn hefur ekki mælst hærri víða í Frakklandi í byijun maí í tæpa tvo áratugi. Báðir frambjóðendurnir ótt- ast að margir Frakkar freistist til þess að njóta veðurblíðunnar úti í náttúrunni og mæti ekki á kjörstað. Reuter STUÐNINGSMENN frönsku forsetaframbjóðendanna halda á myndum af Jacques Chirac og Lionel Jospin við stofnun fyrir heymleysingja í Lyon sem Chirac heimsótti í gær. Reuter Fangar í handbolta- höll UM 700 serbneskum stríðsföng- um, sem voru teknir í árás Króat- íuhers á Vestur-Slavoníu, er nú haldið í handboltahöll í borginni Bjelovar. Þeir sögðust ekki hafa sætt iliri meðferð Króata og ve- fengdu frásagnir embættismanna Sameinuðu þjóðanna um að króat- ískir hermenn hefðu látið greipar sópa um heimili Serba eftir að þeir gáfust upp. Stjórn Króatíu og eftirlitsmenn Evrópusam- bandsins vísuðu þessu á bug. ■ Harðir bardagar í Bosníu/ 21 Breski Ihaldsflokkurinn geldur afhroð í kosningum Sjávarborð mælt á tveim árum John Major kveðst ekki segja af sér London. Reuter. JOHN Májor, forsætisráðherra Bretlands, kvaðst í gær ekki hafa neinar skýringar á afhroði breska íhaldsflokksins í sveitarstjórna- kosningum í Engiandi og Wales á fimmtudag, hinu mesta í sögu flokksins. Hann hét því að halda baráttunni áfram sem leiðtogi flokksins til næstu kosninga. „Ég hef aldrei gefist upp þegar eitthvað hefur bjátað á og ætla ekki að gera það núna,“ sagði Maj- or. „Við höfum þurft að taka nokkr- ar mjög erfiðar ákvarðanir. Ég treysti mér til að verja þá stefnu sem ég hef mótað." íhaldsflokkurinn fékk aðeins 25% atkvæðanna, tapaði næstum helm- ingi sætanna sem hann hlaut í síð- ustu kosningum og fékk aðeins meirihluta í átta af 346 sveitar- stjómum. „Tímamót í breskum stjórnmálum" Verkamannaflokkurinn fékk 48% atkvæðanna og Fijálslyndir demó- kratar 23%. Tony Blair, leiðtogi Verkamannaflokksins, lýsti úrslit- unum sem „tímamótum í breskum stjómmálum“. „íhaldsmenn hafa ekkert nýtt fram að færa. Þeir era stefnulausir og reikandi," sagði hann. Nokkrir frambjóðenda Ihalds- flokksins sem töpuðu hvöttu til þess að Major færi frá, en ekkert benti til þess í gær að þingmenn flokks- ins vildu knýja fram leiðtogaskipti. Michael Howard innanríkisráðherra sagði að Major væri „fullkomlega" rétti maðurinn til að gegna embætt- inu. „Hann er reyndur stjórnmála- maður. Hann hefur sýnt að hann hefur hugrekki til að taka erfiðar ákvarðanir sem valda tímabundnum óvinsældum," sagði Howard. Ef úrslit þingkosninga yrðu svip- uð og í sveitarstjómakosningunum myndi Verkamannaflokkurinn fá 444 þingmenn, íhaldsflokkurinn 104 og Fijálslyndir demókratar 77. „Ihaldsmenn eru ekki í klípu, þeir eru í stómm sprengjugíg," sagði Anthony King, prófessor í stjórn- málafræði. „Þetta var feikilega dap- urleg nótt fyrir íhaldsflokkinn.“ ■ Hefðbundinn bakhjarl/29 Hækkaði meira en á undanfarinni öld Boston. Morgunblaðid. GERVDHNATTAMÆLINGAR hafi og um leið á veðurfar um sýna að yfirborð sjávar hefur á allan heim, og hins vegar til siðustu tveim árum hækkað breytingar á loftslagi jarðar. helmingi meira en mælst hefur E1 Nino breytir stefnu hlýrra á jörðu á undanförnum hundrað Kyrrahafsstrauma og að sögn árum. Samkvæmt grein, sem Nerems gæti það hafa leitt til birtist í vísindaritinu Science í þess að sjór, sem venjulega er gær, hækkaði yfirborð sjávar að kaldur, hafi hitnað og vatnsmól- meðaltali um 3,9 millimetra árin ekúl þanist út á það stórum haf- 1993 og 1994. svæðum að greinst hafi í mæl- Vísindamenn segja að þetta ingum. geti verið visbending um hærri Bob Chaney, vísindamaður við hita í loftslagi jarðar en hins stofnun, sem stundar haf- og vegar þurfi að minnsta kosti nið- loftslagsrannsóknir (NOAA), urstöður frá tíu ára tímabili til sagði að héldi þessi þróun áfram að fullyrða um málið. næstu þijú til fimm árin yrði að R. Steven Nerem, vísindamað- taka þetta alvarlega. Hann benti ur við bandarísku geimvísinda- í samtali við fréttastofuna APá stofnunina (NASA), segir fræði- það að nú flæddi yfir ýmis menn næsta vissa um að þessa strandsvæði, sem eitt sinn hefðu breytingu megi annars vegar verið þurr á háflæði, og þjóðir á rekja til El Nifio, fyrirbæris sem borð við Hollendinga ættu í aukn- hefur áhrif á strauma í Kyrra- um vanda vegna sjávarflóða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.