Morgunblaðið - 06.05.1995, Síða 1
88 SIÐUR B/C/D
101. TBL. 83.ÁRG.
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Lionel Jospin talinn saxa á
forskot Jacques Chiracs
Líkur á
hnífjöfnum
kosningum
París. Morgunblaðið, The Daily Telegraph.
JACQUES Chirac, frambjóðandi hægrimanna, og sósíalistinn Lionel Josp-
in héldu í gær síðustu baráttufundi sína fyrir frönsku forsetakosningarnar
á sunnudag. Mikil harka hefur færst í kosningabaráttuna síðustu tvo
daga enda er talið að Jospin hafi saxað á forskot Chiracs og kosningam-
ar verði hnífjafnar.
Chirac lauk kosningabaráttu sinni
í Lyon, næst stærstu borg Frakk-
lands. Hann ávarpaði þúsundir
stuðningsmanna sinna á fundi með
Raymond Barre, fyrrverandi forsæt-
isráðherra, sem var einn forystu-
manna franskra hægrimanna er
vildu ekki gefa upp afstöðu sína
fyrir fyrri umferð kosninganna.
Hægrimenn hafa lagt mikla áherslu
á samstöðu undanfama daga og
hafa flestir helstu stuðningsmenn
Edouards Balladurs ítrekað stuðning
við Chirac, auk þjóðernissinnans
Phillipe de Villiers og þeirra miðju-
manna, sem gengu til liðs við Mitt-
errand og tóku sæti í stjórn hans
árið 1988.
Jospin hélt fundi í þrem borgum
í gær og lagði áherslu á að ná til
óákveðinna kjósenda. Talið er að
hann hafi fengið byr vegna morðs
snoðinkolla á Marokkómanni eftir
fund hægriöfgamanna á mánudag
og umdeildrar yfirlýsingar Chiracs
um að hann ætli að krefjast þjóðar-
atkvæðis um breytingar innan Evr-
ópusambandsins eftir ríkjaráðstefn-
una á næsta ári.
Mikil óvissa
Bannað er að birta skoðanakann-
anir í Frakklandi síðustu vikuna fyr-
ir kosningar en þær sem gerðar
hafa verið voru birtar í Sviss og á
Spáni. Samkvæmt þeim er Chirac
enn með nokkurt forskot á Jospin.
Mestur er fylgismunurinn 54-46%,
en minnstur 51-49%. Allar kannan-
irnar benda hins vegar til þess að
Jospin hafi saxað á forskotið. 20%
kjósendanna höfðu þó ekki gert upp
hug sinn, þannig að óvissaa er mikil.
Stjómmálin vora þó ekki efst í
hugum allra Frakka í gær, tveimur
dögum fyrir kosningar. Fyrsta frétt
í öllum aðalfréttatímum var einstök
veðurblíða undanfarinna daga, en
hitinn hefur ekki mælst hærri víða
í Frakklandi í byijun maí í tæpa tvo
áratugi. Báðir frambjóðendurnir ótt-
ast að margir Frakkar freistist til
þess að njóta veðurblíðunnar úti í
náttúrunni og mæti ekki á kjörstað.
Reuter
STUÐNINGSMENN frönsku forsetaframbjóðendanna halda á myndum af Jacques Chirac og
Lionel Jospin við stofnun fyrir heymleysingja í Lyon sem Chirac heimsótti í gær.
Reuter
Fangar í
handbolta-
höll
UM 700 serbneskum stríðsföng-
um, sem voru teknir í árás Króat-
íuhers á Vestur-Slavoníu, er nú
haldið í handboltahöll í borginni
Bjelovar. Þeir sögðust ekki hafa
sætt iliri meðferð Króata og ve-
fengdu frásagnir embættismanna
Sameinuðu þjóðanna um að króat-
ískir hermenn hefðu látið greipar
sópa um heimili Serba eftir að
þeir gáfust upp. Stjórn Króatíu
og eftirlitsmenn Evrópusam-
bandsins vísuðu þessu á bug.
■ Harðir bardagar í Bosníu/ 21
Breski Ihaldsflokkurinn geldur afhroð í kosningum
Sjávarborð mælt á tveim árum
John Major kveðst
ekki segja af sér
London. Reuter.
JOHN Májor, forsætisráðherra
Bretlands, kvaðst í gær ekki hafa
neinar skýringar á afhroði breska
íhaldsflokksins í sveitarstjórna-
kosningum í Engiandi og Wales á
fimmtudag, hinu mesta í sögu
flokksins. Hann hét því að halda
baráttunni áfram sem leiðtogi
flokksins til næstu kosninga.
„Ég hef aldrei gefist upp þegar
eitthvað hefur bjátað á og ætla
ekki að gera það núna,“ sagði Maj-
or. „Við höfum þurft að taka nokkr-
ar mjög erfiðar ákvarðanir. Ég
treysti mér til að verja þá stefnu
sem ég hef mótað."
íhaldsflokkurinn fékk aðeins 25%
atkvæðanna, tapaði næstum helm-
ingi sætanna sem hann hlaut í síð-
ustu kosningum og fékk aðeins
meirihluta í átta af 346 sveitar-
stjómum.
„Tímamót í breskum
stjórnmálum"
Verkamannaflokkurinn fékk 48%
atkvæðanna og Fijálslyndir demó-
kratar 23%. Tony Blair, leiðtogi
Verkamannaflokksins, lýsti úrslit-
unum sem „tímamótum í breskum
stjómmálum“. „íhaldsmenn hafa
ekkert nýtt fram að færa. Þeir era
stefnulausir og reikandi," sagði
hann.
Nokkrir frambjóðenda Ihalds-
flokksins sem töpuðu hvöttu til þess
að Major færi frá, en ekkert benti
til þess í gær að þingmenn flokks-
ins vildu knýja fram leiðtogaskipti.
Michael Howard innanríkisráðherra
sagði að Major væri „fullkomlega"
rétti maðurinn til að gegna embætt-
inu. „Hann er reyndur stjórnmála-
maður. Hann hefur sýnt að hann
hefur hugrekki til að taka erfiðar
ákvarðanir sem valda tímabundnum
óvinsældum," sagði Howard.
Ef úrslit þingkosninga yrðu svip-
uð og í sveitarstjómakosningunum
myndi Verkamannaflokkurinn fá
444 þingmenn, íhaldsflokkurinn
104 og Fijálslyndir demókratar 77.
„Ihaldsmenn eru ekki í klípu, þeir
eru í stómm sprengjugíg," sagði
Anthony King, prófessor í stjórn-
málafræði. „Þetta var feikilega dap-
urleg nótt fyrir íhaldsflokkinn.“
■ Hefðbundinn bakhjarl/29
Hækkaði meira en
á undanfarinni öld
Boston. Morgunblaðid.
GERVDHNATTAMÆLINGAR hafi og um leið á veðurfar um
sýna að yfirborð sjávar hefur á allan heim, og hins vegar til
siðustu tveim árum hækkað breytingar á loftslagi jarðar.
helmingi meira en mælst hefur E1 Nino breytir stefnu hlýrra
á jörðu á undanförnum hundrað Kyrrahafsstrauma og að sögn
árum. Samkvæmt grein, sem Nerems gæti það hafa leitt til
birtist í vísindaritinu Science í þess að sjór, sem venjulega er
gær, hækkaði yfirborð sjávar að kaldur, hafi hitnað og vatnsmól-
meðaltali um 3,9 millimetra árin ekúl þanist út á það stórum haf-
1993 og 1994. svæðum að greinst hafi í mæl-
Vísindamenn segja að þetta ingum.
geti verið visbending um hærri Bob Chaney, vísindamaður við
hita í loftslagi jarðar en hins stofnun, sem stundar haf- og
vegar þurfi að minnsta kosti nið- loftslagsrannsóknir (NOAA),
urstöður frá tíu ára tímabili til sagði að héldi þessi þróun áfram
að fullyrða um málið. næstu þijú til fimm árin yrði að
R. Steven Nerem, vísindamað- taka þetta alvarlega. Hann benti
ur við bandarísku geimvísinda- í samtali við fréttastofuna APá
stofnunina (NASA), segir fræði- það að nú flæddi yfir ýmis
menn næsta vissa um að þessa strandsvæði, sem eitt sinn hefðu
breytingu megi annars vegar verið þurr á háflæði, og þjóðir á
rekja til El Nifio, fyrirbæris sem borð við Hollendinga ættu í aukn-
hefur áhrif á strauma í Kyrra- um vanda vegna sjávarflóða.