Morgunblaðið - 06.05.1995, Page 4
4 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samkomulag Islands o g Færeyja um síldarkvóta
Hrygningarstofn síldarinnar
mun vaxa um milljón tonn
Á ÞRIÐJA tug íslenzkra skipa var á veiðum í Síldarsmugunni
í gær eða á leiðinni þangað.
ísland og Færeyjar
hafa ákveðið að taka
sér 250.000 tonna
síldarkvóta. Þótt sá
kvóti bætist við veiðar
Noregs og Rússlands
mun hrygningarstofn
sfldarinnar stækka.
Islenzkir ráðherrar
segja Norðmenn ekki
komast upp með að líta
á norsk-íslenzka
sfldarstofninn sem
norska eign.
ISLENZK og færeysk stjórn-
völd luku í fyrrinótt gerð
samkomulags um að löndin
tvö setji sér einhliða síld-
veiðikvóta í eigin lögsögu og Sfldar-
smugunni, eftir að slitnaði upp úr
viðræðum um fískveiðistjórnun og
kvótaskiptingu við Norðmenn og
Rússa í fyrradag. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra og Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
segja óheppilegt að til þessara að-
gerða hafí þurft að grípa, en þær
muni ekki ganga á hrygningarstofn
síldarinnar.
Viðræður um sanngjarna
skiptingu
Samningur íslands og Færeyja
kveður á um að skip frá löndunum
tveimur megi veiða samtals allt að
250.000 tonn af sfld. Veiðarnar eru
heimilar í lögsögu hvors lands um
sig. Þannig mega íslendingar veiða
í færeyskri lögsögu, ef síldin er
veiðanleg þar, og öfugt. Að sögn
Þorsteins Pálssonar sjávarútvegs-
ráðherra er miðað við að ná sem
mestu af kvótanum innan lögsögu,
ef færi er á, til þess að vetja megi
síldarstofninn ágangi annarra
þjóða er fram í sækir. Jafnframt
er ieyfílegt að veiða kvótann í Síld-
arsmugunni.
Ekki er kveðið á um nákvæma
skiptingu kvótans á milli landanna.
Veiðar eru fijálsar, þar til 125.000
tonn af kvótanum hafa náðst. Teiji
stjórnvöld í öðru hvoru landinu að
skiptingin á þeim afla sé ósann-
gjörn, verða teknar upp viðræður
til að tryggja sanngjama skiptingu.
JAN Henry T. Olsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, fordæmdi
í gær harðlega einhliða ákvörð-
un íslands og Færeyja um síldar-
kvóta í Síldarsmugunni. Norges
Fiskarlag, heildarsamtök
norska sjávarútvegsins, bregð-
ast einnig hart við.
„ Að ákveða kvóta þegar engin
síld er í íslenzkri lögsögu er al-
gerlega óskiljanlegt og Iíffræði-
lega óábyrgt," segir Jan Henry
T. Olsen. „Löndin axla enga
ábyrgð, heldur hugsa eingöngu
um skammsýna eiginhagsmuni."
Olsen segir að Island og Fær-
eyjar hafi sýnt lítinn samnings-
vilja í viðræðunum við Noreg
og Rússland í Reykjavík.
Norsk stjórnvöld telja að af-
Ábyrg stjórn veiðanna
Þorsteinn Pálsson segir að með
þessu samkomulagi sýni íslending-
ar og Færeyingar að þeir vilji
stjóma veiðunum með mjög ábyrg-
um hætti. „Þessi tala rúmast innan
þeirrar fískveiðiráðgjafar, sem fyrir
liggur frá Alþjóðahafrannsókn-
aráðinu, þannig að það er ekki
verið að ganga á svig við hana,“
segir Þorsteinn.
Veiðist kvóti Færeyja og íslands
allur og sömuleiðis 650.000 tonna
kvóti Norðmanna og Rússa, verður
heildarveiðin úr norsk-íslenzka síld-
arstofninum um 900.000 tohn.
Sjávarútvegsráðherra segir að með
þessu sé ef til vill teflt heldur lengra
en æskilegt væri miðað við lang-
tímamarkmið, en stofninum sé ekki
ógnað.
Halldór ÁsgHmsson utanríkis-
ráðherra tekur undir þetta sjónar-
mið Þorsteins og segir að veiðar
Færeyja og Rússlands gangi ekki
á hrygningarstofninn. „Hins vegar
hefði ég að sjálfsögðu viljað sjá
minni veiði úr þessum stofni. En
við höfum lengi krafízt þess að
Norðmenn hefðu samráð við okkur
um ákvörðun kvóta, sem þeir hafa
aldrei viljað gera, og það er ekki
hægt að reikna með að við höldum
okkur frá veiðum, sem strandríki
sem á mjög mikinn rétt í þessu
sambandi, bæði í sögulegu sam-
staða íslands og Færeyja komi
í veg fyrir að samningar náist
á þessu ári um stjórnun á
stofninum, sem Norðmenn kalla
„norsku vorgotssíldina" á al-
þjóðlegu hafsvæði.
Óábyrgfisk-
veiðistjómun
„Við verðum að hugsa það
vandlega hvemig við bregðumst
við. Það munum við gera í nánu
samráði við Rússa, sem em al-
gerlega sammála okkur í þessu
máli,“ segir pisen. Hann átti í
gær fund í Ósló með Vladímír
Korelskíj, rússneskum starfs-
bróður sinum.
Norges Fiskarlag telur að
kröfur íslands og Færeyja séu
hengi og að því er varðar út-
breiðslu stofnsins," segir Halldór.
Næstbezti kosturinn valinn
Alþjóðahafrannsóknaráðið lagði
til að veidd yrðu 520.000 tonn úr
síldarstofninum á þessu ári til að
tryggja sem hraðastan vöxt hrygn-
ingarstofnsins. Jakob Jakobsson,
forstjóri Hafrannsóknastofnunar,
segir að hrygningarstofninn sé nú
um 2,4 milljónir tonna. Með því að
veiða 650.000 tonn verði stofninn
3,7 milljónir tonna á næsta ári.
Þótt 250.000 tonn bætist við, muni
stofninn engu að síður vaxa um
meira en milljón tonn. Þessi aukn-
ing komi til vegna mjög góðs ár-
gangs frá 1991, sem verði kyn-
þroska á næsta ári. Árið 1997
bætist svo við 1992-árgangurinn,
sem er enn stærri.
Jakob segir að sjónarmið Al-
þjóðahafrannsóknaráðsins hafí ver-
ið að menn ættu að sjá hvemig
spáin um þróun hrygningarstofns-
ins reyndist og bíða með meiri veið-
ar þar til stóru árgangamir kæmu
inn í hrygningarstofninn. Segja
megi að íslendingar og Færeyingar
miði nú við þann kost, sem ráðið
hafí talið næstbeztan til að byggja
upp hrygningarstofninn.
Jakob segir að erfítt sé að segja
til um hvort síldin gangi inn í ís-
lenzka lögsögu í sumar. Kaldur sjór
við Norður- og Áusturland geri
merki um óábyrga fiskveiði-
stefnu landanna, og að stjórn-
völd hafi ekki raunsæjar hug-
myndir um stjórnun síldar-
stofnsins.
„íslenzk stjórnvöld verða að
tryggja að þau hafi nauðsynleg-
ar lagaheimildir og vijja til að
hafa eftirlit með eigin flota,“
segir í ályktun frá stjórn Norges
Fiskarlag.
Samtökin styðja heilshugar
ákvörðun norskra stjórnvalda
um að slíta viðræðum um fram-
tíðarstjórnun veiða úr síldar-
stofninum.
Jafnframt telur Norges Fisk-
arlag að veiðar íslenzra skipa í
Síldarsmugunni séu ögrun við
norska hagsmuni.
slíkt ólíklegra. í fyrra hafí síldin
komið mjög stutt inn í lögsöguna,
en síðan gengið .norður í lögsögu
Jan Mayen. Jakob segir að þess
vegna sé óheppilegt að ekki hafí
tekizt að semja við Noreg og Rúss-
land. Þannig hefði verið hægt að
fylgja sfldinni eftir inn á Jan May-
en-svæðið, og eftir því sem líði á
sumarið verði sfldin betri vara.
Framtíðarsamninga sem fyrst
Þorsteinn Pálsson segir að ís-
lendingar hefðu verið tilbúnir að
semja við Norðmenn og Rússa til
bráðabirgða um lægri hlut en þann
kvóta, sem nú hefur verið ákveðinn
með Færeyingum, hefði það orðið
til þess að allsheijarlausn allra eig-
enda síldarstofnsins hefði náðst.
„Norðmenn geta séð af því hversu
mikið við lögðum á okkur til að
reyna að ná slíkum samningi," seg-
ir hann.
Sjávarútvegsráðherra segir að
það, sem skipti máli varðandi
möguleika hinna fjögurra eigenda
stofnsins til að hindra veiðar skipa
frá öðrum ríkjum úr sídlarstofnin-
um, sé að koma sér saman sem
allra fyrst um framtíðarstjómun á
veiðum úr stofninum. „Þegar nýjar
hafréttarreglur taki gildi, hafi þess-
ir aðilar þannig komið sér saman
um stjómun," segir Þorsteinn.
„Dragist það hins vegar á langinn
og nýir aðilar em komnir inn í
veiðina, getur það veikt stöðu þess-
ara gömlu eigenda stofnsins til að
stjórna veiðunum einir eftir að nýj-
ar hafréttarreglur taka gildi. Það
er ekki sízt í því Ijósi, sem þvergirð-
ingur Norðmanna er algerlega
óskiljanlegur. Við voram tilbúnir
að gera samninga, sem vissulega
hefði verið mjög erfítt að fá menn
til að sættast á hér heima út frá
skammtímahagsmunum, í ljósi þess
að þessir langtímahagsmunir era í
húfi. En Norðmenn virtu það einsk-
is.“
íslendingar eru sameigendur
Hann segist telja æskilegast að
sett verði upp ný svæðisstofnun
landanna fjögurra til að stjórna
veiðum úr síldarstofninum. „Með
því móti gætu þau bezt varið sig
ágangi nýrra þjóða,“ segir sjáv-
arútvegsráðherra.
Þorsteinn segir að það sé alger-
lega ljóst að íslendingar geti aldrei
gengið til samninga á öðram for-
sendum en þeim að þeir séu, á
grandvelli gamallar reynslu, sam-
eigendur að síldarstofninum.
Jan Henry T. Olsen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, sagði í gær
að ákvörðun Færeyinga og íslend-
inga einkenndist af skammsýnum
eiginhagsmunum. Halldór Ás-
grímsson utanríkisráðherra segir
að um slíkt sé engan veginn að
ræða. „Ég tel að það hafí verið
skammsýnir eiginhagsmunir Norð-
manna sem urðu til þess að þessir
samningar eru fyrst að fara af stað
núna,“ segir hann. Hann segir að
þar sem Norðmenn hafí ekki viljað
stuðla að bráðabirgðasamkomu-
lagi, hafí íslendingum verið nauð-
ugur einn kostur að grípa til þess-
ara ráðstafana.
Halldór segist hins vegar hafa
miklar áhyggjur af framtíðar-
stjómun á veiðum úr síldarstofnin-
um. „Þessi niðurstaða er hörmuleg.
Norðmenn verða að átta sig á því
að hér er um stofn að ræða, sem
við eigum mikinn rétt til að veiða
úr sem strandríki. Þeir hafa í samn-
ingaviðræðunum endurtekið talað
um stofninn sem norskan stofn, og
það vekur ugg í bijósti okkar um
hvað þeir ætlast fyrir,“ segir utan-
ríkisráðherra.
Forseti ASÍ um bréf
fiskvinnslustöðva
Firra sig
ábyrgð á
afleiðingum
verkfalls
BENEDIKT Davíðsson forseti Al-
þýðusambands íslands segir að
bréf Samtaka fískvinnslustöðva til
fyrirtækja innan sambandsins með
tilmælum um undirbúning vegna
yfírvofandi sjómannaverkfalls „sé
óþarfa spil til þess að fírra sig
ábyrgð".
Benedikt segir að bréfíð sé ekki
rétta aðferðin fyrir fískvinnslu-
stöðvar til þess að „firra sig
ábyrgð vegna verkfallsins“. „í lög-
um nr. 19 frá 1979 era nægar
forsendur til þess að bregðast við,“
segir hann.
„Mér sýnist að sé verið að gera
eitthvað annað en það sem í bréf-
inu segir. Kannski er verið að
reyna að vekja upp ótta eða hafa
áhrif á þessa deilu. Það er auðvit-
að slæmt ef utanaðkomandi aðilar
era að leika svoleiðis millileiki í
deilu annarra aðila.
Mér fínnst þetta einnig vera til
þess að reyna að koma inn ótta
hjá fískvinnslufólki í landi, hóta
því að það muni verða látið gjalda
og kannski verið að reyna að koma
upp úlfúð milli sjómanna og land-
verkafólks," segir Benedikt.
------» ♦ ♦
1,90 króna
hækkun
á bensíni
BENSÍNLÍfRINN hækkaði um
1,90 kr. í gær. Hækkunin fylgir
hækkun á heimsmarkaðsverði á
olíu. Frá lokum Persaflóastríðsins
árið 1991 hefur olíuverð hækkað
reglubundið á vorin og náð lág-
marki í lok ársins, samkvæmt
fréttaskeyti Reuters.
Esso og Olís riðu á vaðið og
hækkuðu verð í morgunsárið. Hjá
Esso hækkaði 92 oktana bensín
úr 65,80 kr. í 67,70 kr., 95 oktana
bensín hækkaði úr 68,60 kr. í
70,50 kr. og 98 oktana bensín úr
72,30 kr. í 74,20 kr. Olís hækkaði
92 oktana bensín úr 65,90 kr. í
67.80 kr., 95 oktana bensín úr
68.80 kr. í 70,70 kr. og 98 oktana
bensín úr 72,20 kr. í 74,10 kr.
Um kaffileytið fylgdi Skeljung-
ur í kjölfarið. Verð á 92 oktana
bensíni hækkaði úr 65,70 kr. í
67,60 kr., verð á 95 oktana bens-
íni hækkaði úr 68,70 kr. í 70,60
kr. og verð á 98 oktana bensíni
72,20 kr. í 74,10 kr.
— ♦ ♦ ♦---------
Afmæli styrjaldarloka
Vigdís við-
stödd athöfn
í París
VIGDÍS Finnbogadóttir forseti ís-
lands verður viðstödd athöfn í
París á mánudaginn til minningar
um að hálf öld er liðin frá lokum
heimstyijaldarinnar síðari í Evr-
ópu.
Sama dag, 8. maí, verður Hall-
dór Asgrímsson utanríkisráðherra
viðstaddur athöfn í Osló af sama
tilefni.
Þá fer Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra til Moskvu og tekur þar
þátt í athöfn þriðjudaginn 9. maí,
vegna afmælis styijaldarlokanna.
Hörð viðbrögð í Noregi
Ósló. Morgunblaðið.
I
|
I
I
I
I
I
I
»
I
I
I
I
»
I
I
|
I
t
í
I
I
.
1