Morgunblaðið - 06.05.1995, Side 18
18 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VERIÐ
FRÉTTIR: EVRÓPA
Forsætisráðherra ræðir síldarsamninga á aðalfundi SH
Santer heldur ræðu í London
Norðmenn sýndu Is-
lendingum óbilgimi
Forsætisráðherra er harðorður í garð
Norðmanna vegna síldarsamninganna, segir
að þeir hafi sýnt íslendingum óbilgirni.
Hann sagði í ræðu á aðalfundi SH að þeir
hafí í upphafí boðið 28 þúsund tonna kvóta.
Islendingar hafí verið tilbúnir að ganga langt
til móts við Norðmenn, en þó ekki að neinum
afarkostum. Hins vegar virtust Norðmenn
ekki hafa burði til að semja vegna brests
í norska stjómkerfínu.
„ÉG TEL að Norðmenn hafi glatað
mikilvægum tækifærum til sam-
starfs við okkur á undanfömum
árum,“ sagði Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra í hádegisverðarerindi á
aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrysti-
húsanna í gær. Hann sagðist hafa
ákveðinn skilning á fyrra dæminu,
þegar Norðmenn hafi glutrað niður
tækifærum til samstarfs við íslend-
inga varðandi Smuguna í Barents-
hafí. Þá hafí þeir verið að sigla inn
í Evrópusambandið og norsk stjóm-
völd viljað_tryggja stuðning í Norður-
Noregi. „Ég tel hins vegar að norsk-
um ráðamönnum ætti nú að vera ljóst
að ef þeir hefðu komið til móts við
óskir Islendinga af sanngimi þegar
í upphafi, hefðu náðst samningar
sem væru Norðmönnum mjög hag-
kvæmir út frá núverandi stöðu.
Kannski ekki eins hagkvæmir fyrir
okkur vegna þess að þá höfðum við
ekki náð þeirri veiðireynslu í Smug-
unni sem við síðar höfum fengið,"
sagði Davíð.
Brestur í norska stjórnkerfinu
„Mér er á hinn bóginn fyrirmunað
að skilja framgöngu þeirra í samræð-
um okkar um síldina," sagði Davíð.
„Þegar þeir hitta okkur að máli og
vilja eftir langa mæðu gangast við
beinum óskum okkar um viðræður
... þá ganga þeir út frá því að þeir
eigi ákvörðunarrétt um það hvað síld-
in þoli og síðan sé dregið frá það sem
þeir hafi skammtað sjálfum sér og
Rússum og eftir standi það sem þeir
geti látið okkur í té af vina- og
greiðasemi í þágu lítillar frændþjóð-
ar.“ Davíð sagði að Norðmenn hefðu
í upphafi boðið íslendingum að veiða
28 þúsund tonn á móti 700 þúsund
tonnum þeirra. Þeir hafi sett þessa
tölu fram með yfírvarpi vísindalegra
sjónarmiða. „Þessi tala var auðvitað
fráleit hvaðan sem á hana var horft
og umræðurnar sem síðar þróuðust
sýndu að ekkert stóð á bak við hana.
SH hélt í gær yfirlitssýningu á
nýjum pakkningum frá Sölumið-
stöðinni og dótturfyrirtækjum
hennar erlendis. Sýningin var á
Hótel Sögu í tengslum við aðal-
fund SH. Þarna voru sýndar um
100 nýlegar vörutegundir frá
íslendingar voru tilbúnir til þess að
ganga gegn ýtrustu kröfum eigin
manna, hagsmunaaðila í sjávarút-
vegi, til þess að ná stjórn á þessum
málum. Islensk yfírvöld voru tilbúin
til að ganga nokkuð langt í þeim
efnum, en þó ekki að neinum afar-
kostum." Davíð sagði að Norðmenn
hafí í þessum samningum fest sig í
ákveðnu fari sem þeir hafi ekki get-
að útskýrt. „Ég verð að segja það
eins og er að ég hef það á tilfínning-
unni að það sé einhver brestur í
norska stjórnkerfinu. Það séu erfiðar
deilur og átök milli ráðuneyta og það
geri það að verkum að Norðmenn
hafí ekki haft burði til að leysa þetta
mál og komi þess vegna fram með
svo óbilgjörnum hætti í okkar garð.
Ég tel að með framgöngu sinni í síld-
armálinu hafí þeir gert rök sín og
sjónarmið í hinni eiginlegu Smugu-
deilu afskaplega ótrúverðug. Það
lágu engar visindalegar eða físki-
fræðilegar röksemdir til grundvallar
því að þeir skyldu neita að ganga til
samninga við okkur, samninga sem
voru varfærnir, sem íslenskir stjórn-
málamenn hefðu ekki fengið hrós
fyrir að hafa gert hér heima fyrir,“
sagði hann.
fyrirtækjunum og komu þar
fram breytingar þar sem orðið
hafa á pakkningum allra síðustu
ár. Fundarmenn skoðuðu sýning-
una af mikilli athygli og fengu
síðan að bragða á réttunum á
eftir.
Morgunblaðið/kristinn
100 nýjar pakkningar
Sátt náist um að út-
vegur búi við öryggi
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði að umræður og óvissa um það
hvernig laga eigi sveiflur í sjávarút-
veginum að tilveru annarra atvinnu-
greina í landinu hafí valdið óróleika
í þjóðfélaginu. Hann sagði á aðal-
fundi SH að mikilvægt væri að mæta
þessu af festu en jafnframt sanngimi
og taldi að sæmileg sátt ætti að geta
náðst um það að sjávarútvegurinn búi
við öryggi til lengri tíma.
Davíð Oddsson sagði að þrátt fyr-
ir að það væri lægð hér í nokkrum
mikilvægum fiskistofnum hefði örlað
nokkuð á því gamla skapferli í íslend-
ingum, að vilja gleypa góðærið hrátt
en vilja ekki búa lengur að því. Af
þessu tilefni sagði hann mikilvægt
að menn missi ekki tökin þegar vott-
aði fyrir lausung af þessu tagi.
„En sjávarútvegurinn í uppsveiflu
hefur verið ríkjandi vandamál. Segja
má að það vandamál sé inntakið í
þeim deilum um skipan sjávarútvegs-
mála sem mjög hafa verið ofarlega
í umræðu að undanfömu, það er að
segja með hvaða hætti er hægt að
laga tilveru sjávarútvegsins og sveifl-
ur í þeirri miklu gfrein að tilveru
annars atvinnulífs í landinu. Nú er
það svo að sumir mætir fræðimenn
tala með nokkru yfírlæti urn þessa
þætti og þykjast einn sannleik hafa
fundið í því efni og enginn annar
komi til álita. Ég er ekki þeirrar
skoðunar að sá sannleikur sé fundinn
og reyndar vanti heilmikið upp á að
þau rök öll gangi upp. En hinu verða
menn að átta sig á að það hefur
tekist að skapa nokkurn óróleika í
þjóðfélaginu vegna óvissu um þessa
þætti. Það er afar mikilvægt að
menn mæti þessum óróleika af festu
en jafnframt af sanngirni því ella
getur farið illa. Ég hygg að um það
ætti að geta náðst sæmileg sátt í
landinu að megin atvinnugreinin,
sjávarútvegurinn, búi við öryggi til
lengri tíma horft. Nógu sveiflugjarn
er þessi atvinnuvegur þó að honum
sé ekki búin óregla og sveifla af
mannanna völdum.
Festa mikilvæg
Það er afar mikilvægt að festa sé
sköpuð. Við sjáum þegar að með
þeirri festu sem þó hefur verið hefur
þessari atvinnugrein tekist að laga
sig að þeim áföllum sem við höfum
orðið fyrir, með þeim hætti að sjávar-
útvegurinn hefur komist frá þessum
áföllum réttum megin við strikið þrjú
ár í röð. Má segja að það séu merki-
leg og ánægjuleg tíðindi fyrir þjóðfé-
lagið allt. Menn hljóta því, þegar
leggja á mat á kosti í stjórnun í þess-
ari grein, að gæta þess að hag-
kvæmni í greininni raskist ekki,“
sagði Davíð.
Hættulegl að gera
of stífar kröfur
London. Reuter.
JAQUES Santer, forseti
framkvæmdastjómar
Evrópusambandsins,
varar Breta við að gera
of stífar kröfur í þágu
sérhagsmuna sinna inn-
an ESB. Slíkt geti leitt
til þess að stál verði í
stál og ríki hindri fram-
gang eigin markmiða.
Þetta kom fram í ræðu,
sem Santer hélt í fyrstu
heimsókn sinni til Bret-
lands í forsetaembætti.
Bretar hafa löngum þótt
einna tregastir í taumi á
leið til aukins Evrópus-
amruna.
„Ekkert aðildarríki
getur búizt við að hafa
allt sitt fram í uppáhaldsmálaflokk-
um sínum og hindra alla aðra í þeirra
málum. Slíkt leiðir til þess að pólitísk
kergja hleypur í málin," sagði Santer
í ræðu á fundi Corporation of Lond-
on. „Aðildarríkin em fímmtán og
þess vegna er samvinna nauðsynleg,
ef framfarir eiga að verða.“
Verðið líka að hlusta
Santer sagði að Bretland hefði
lagt margt af mörkum á vettvangi
ESB, til dæmis varðandi innri mark-
aðinn, nálægðarregluna, aukið frjáls-
ræði í viðskiptum og einkavæðingu.
Hins vegar virtust Bretar oft ekki
skilja að bandamenn þeirra í ESB
hefðu sjálfir sín pólitísku forgangs-
mál.
Santer tók sem dæmi félagsmála-
stefnu ESB, sem Bret-
land hefur verið undan-
þegið. „Það verður að
finna jafnvægi og raun-
verulegar umræður
verða að eiga sér stað.
En það mega ekki vera
samræður heyrnar-
lausra. Þeir, sem tala,
verða líka að hlusta,"
sagði hann.
Þj óðareinkennin
ekki í hættu
Forsetinn sagðist
ekki hafa neinar
áhyggjur af að þjóða-
reinkenni Breta myndu
bíða skaða af Evrópu-
sambandsaðild. Enginn
tryði því að slíkt gæti gerzt. Hann
fullvissaöi íbúa Bretlands jafnframt
um að þeir mættu áfram drekka bjór
í pintum, borða rækjusnakk og ferð-
ast með rauðum strætisvögnum, þótt
brezku blöðin héldu stundum öðru
fram. Flestar fréttir um að tilskipan-
ir ESB væru að útrýma hefðbundn-
um, brezkum lífsháttum væru hrein-
ar og klárar Gróusögur. Santer bætti
því við að skrifstofa framkvæmda-
stjórnar ESB í London hefði hrakið
120 sögur af þessu tagi síðastliðin
tvö ár.
Hann lagði áherzlu á samræmingu
efnahags- og gjaldmiðilsstefnu og
hvatti fjármálamenn í London til að
ræða málið. Bretar myndu hagnast á
þeirri kostnaðarlækkun, sem sameig-
inlegur gjaldmiðill hefði í fór með sér.
Jacques
Santer
Sættir landbánaðar
og umhverfis?
Brussel. Reuter.
FRANZ Fischler, sem fer með land-
búnaðarmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, segir að að-
gerðir í umhverfis-
málum, sem séu
orðnar hluti af
sameiginlegri
landbúnaðar-
stefnu ESB eftir
síðustu endur-
skoðun hennar,
séu fyrsti vísir að
sögulegum sáttum
landbúnaðar- og
umhverfissjón-
armiða.
I ræðu á ráðstefnu um landbúnað
og umhverfisvernd í Evrópu, sem
haldin var í Brussel i gær, sagði Fisc-
hler að umbætumar á landbúnaðar-
stefnunni hefðu blásið nýju lífi í
umhverfisvemd og sköpuðu ný tæki-
færi fyrir bændur.
Fé til nýrra nota
„Við dælum ekki lengur peningum
í landbúnaðinn til að fá sem mesta
framleiðni, heldur gerum við nú ráð
fyrir ýmiss konar starfsemi til hjálp-
ar umhverfínu,“ sagði Fischler og
bætti við að tengsl landbúnaðar og
umhverfisverndar væru ekki aðeins
mál hvers ríkis fyrir sig, heldur yrði
að leysa þau með samstarfi yfir
landamæri.
Fischler sagðist vonast til að fé,
sem hingað til hefði verið notað til
að kaupa upp umframframleiðslu á
landbúnaðarafurðum, yrði notað til
annarra hluta. Þróun lífrænnar rækt-
unar og aukinnar fjölbreytni í land-
búnaði myndi færa bændum ný
markaðstækifæri.
Þá hvatti framkvæmdastjórinn til
þess að samstarf stjómardeilda ESB,
sem fara með landbúnaðarmál, um-
hverfísmál og rannsóknir, yrði aukið.
Tenging greiðslna við
umgengni
Grant Lawrence, fulltrúi stjórn-
ardeildar XI, sem fer með umhverf-
ismál, sagði í ræðu sinni á ráðstefn-
unni að sú aðgerð að taka land úr
ræktun hefði haft gífurlegar jákvæð-
ar afleiðingar fyrir umhverfið, þótt
hún hefði alls ekki verið hugsuð
þannig í upphafi. Skoða yrði frekari
möguleika á slíku.
I máli Lawrence kom fram að
verkefni á sviði umhverfísverndar í
landbúnaði nytu nú aðeins 3% af
heildarframlögum til landbúnaðar-
geirans. Hann benti á að greiðslur
til búa tækju tillit til framleiðslu-
magns eingöngu, en tengja þyrtti
þær við það hversu góö umgengni
bænda væri við landið.
Franz
Fischler
• „HU GLEIÐIN G ARHÓPUR-
INN“ svokallaði, sem á að leggja
tillögur að endurskoðun á Róm-
arsáttmálanum fyrir ríkjaráð-
stefnu ESB á næsta ári, hyggst
halda a.m.k. fjórtán fundi á tíma-
bilinu frá júníbyijun til ársloka.
Fyrsti fundurinn verður í Taorm-
ina á Ítalíu 3. júní. Flest aðildar-
ríkin hafa tilnefnt fulltrúa sína.
Finnland tilnefndi sinn í gær,
Ingvar Melin fyrrverandi varnar-
málaráðherra. Aðeins Frakkland
og Belgía eiga þá eftir að velja
fulltrúa.
9 NEFND Evrópuþingsins um
stofnanamálefni hefur samþyidd
ályktunartillögu vegna ríkjaráð-
stefnunnar. Nefndin leggur með-
al annars til að fleiri ákvarðanir
ráðherraráðsins verði teknar
með auknum meirihluta, í stað
samhljóða samþykkis, og að
þingið fái aukið ákvörðunarvald.
Evrópuþingið ákveður 17. maí
hvort ályktunartillagan verður
samþykkt sem framlag þess til
undirbúnings ríkjaráðstefnunn-
ar.