Morgunblaðið - 06.05.1995, Blaðsíða 43
1
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995 43
FRETTIR
Opið hús
í Tjarn-
arskóla
UM þessar mundir eru liðin 10
ár frá stofnun Tjarnarskóla,
einkaskólans við Tjörnina í
Reykjavík.
Sunnudaginn 7. maí verður
efnt til kynningar á starfsemi
skólans í húsnæði hans í Lækjar-
götu 14b sem er við hliðina á
gamla Iðnó. Kennslan fer fram
í þremur árgöngum, 8. bekk, 9.
bekk og 10. bekk grunnskólans,
og er ein bekkjadeild í hverjum
áfanga.
Á kynningunni gefst áhuga-
sömum nemendum sem hyggja á
nám við skólann næsta skólaár
að skoða skólann og kynna sér
starfsemina ásamt foreldrum eða
forráðamönnum sínum. Kennar-
ar og nokkrir nemendur verða á
staðnum og veita allar upplýs-
ingar. Umsóknarfrestur um
skólavist næsta skólaár rennur
út lí. maí nk. Ennþá eru nokkur
sæti laus í 8. og 9. bekk.
Kynningin stendur yfir frá kl.
14-17 sunnudaginn 7. maí og
eru allir velkomnir.
Kaffisöludag-
ur Kvenfélags
Grensáskirkju
HIN árlega kaffisala Kvenfélags
Grensássóknar hefst sunnudag-
inn 7. mai kl. 14.30 og verður
hún að venju í safnaðarheimilinu
við Háaleitisbraut. Messa dags-
ins er kl. 11 og þar með hefst
sumartími kirkjunnar.
Nú fer að hefjast mikilvægur
áfangi við kirkjubygginguna,
verið er að ljúka við sjálft kirkju-
skipið og tengingu við safnaðar-
heimilið. Konurnar í kvenfélag-
inu hafa stutt bygginguna rausn-
arlega og kaffisalan er mikilvæg-
ur þáttur í fjáröflun félagsins.
Langur
laugardagur á
Laugaveginum
LANGUR laugardagur verður í
dag, laugardaginn 6. maí. Versl-
anir við Laugaveg og nágrenni
verða opnar frá kl. 10-17. Sú
venja hefur skapast að bjóða við-
skiptavinum ýmislegt til skemmt-
unar og alls kyns leikir og tilboð
hafa verið þessa vinsælu laugar-
daga.
Að venju bjóða fjölmargar
verslanir vörur á tilboðsverði.
Landsbankinn og Umferðarlög-
reglan standa fýrir árlegri hjóla-
skoðun við Landsbankann,
Laugavegi 77. Mókollur, en hann
er umferðarálfur og sparibaukur
í Barnaklúbbi Landsbankans og
auk þess tákn heimsmeistara-
keppninnar í handknattleik, gef-
ur blöðrur og hjálpar umferðar-
lögreglunni við að skoða hjólin.
Slökkvilið Reykjavíkur verður
með kynningu á starfsemi sinni
á sama tíma og sýnir m.a. vel
útbúinn slökkvibíl. Um kl. 15.30
mun Mókollur ganga niður
Laugaveginn að Landsbankanum
í Bankastræti. Kynningin fer
fram milli kl. 13- 15.30.
í fréttatilkynningu segir að
verslunareigendur við Laugaveg
og borgaryfirvöld hafi átt gott
samstarf varðandi bílastæðamál
en þau hafi nú fengið farsælan
endi. Þrátt fyrir gjaldskyldu á
stöðumælum verður frítt í bíla-
stæðahúsin á laugardögum.
Messu- og
kaffidagur
Fáskrúðsfirð-
ingafélagsins
FÁSKRÚÐSFIRÐINGAFÉLAG-
IÐ í Reykjavík heldur kaffídag
sinn í Bústaðakirkju á morgun,
sunnudaginn 7. maí. Hefst hann
með messu í kirkjunni kl. 14.
Sr. Pálmi Matthíasson þjónar
fyrir altari og sr. Jóna Kristín
Þorvaldsdóttir predikar. Barn
verður borið til skírnar og Fá-
skrúðsfirðingar lesa úr ritning-
unni.
Að messu lokinni verða seldar
kaffiveitingar í safnaðarheimili
kirkjunnar. Allir velunnarar fé-
lagsins og Fáskrúðsfjarðar eru
velkomnir en þarna gefst gott
tækifæri til að hitta gamla félaga
að austan og treysta samheldn-
ina.
■ KVINNUHRING URINN
heldur sína árlegu kaffisölu í
Færeyska sjómannaheimilinu,
Brautarholti 29, sunnudaginn
7. maí milli kl. 15 og 18. Auk
hlaðborðs með tertum og brauði
verður seldur heimabakaður dryl.
Allur ágóði af kaffisölunni fer í
að kaupa innanstokksmuni í sjó-
mannaheimilið.
■ AÐALFUNDUR Náttúru-
lækningafélags Reykjavíkur
verður haldinn í dag, laugardag-
inn 6. maí, að Laugavegi 20b.
Fundurinn hefst kl. 13.30 og er
á 2. hæð í húsnæði félagsins.
Fundarefni eru venjuleg aðal-
fundarstörf og verða kaffiveit-
ingar í boði félagsins.
Hátíð
harmon-
ikunnar
í kvöld
HÁTIÐ harmonikunnar verður
haldin í Danshúsinu í Glæsibæ
v/Álfheima laugardagskvöldið
6. maí. Á fyrri hluta dagskrár-
innar eru tónleikar frá kl.
20.15 til 23. Að loknu stuttu
hléi hefst síðan harmonikuball-
ið og stendur til kl. 3.
Börn hefja tónleikana kl.
20.15. Frá kl. 21 til 23 koma
m.a fram eftirtaldar hljóm-
sveitir og einleikarar: Stór-
sveit Harmonikufélags Reykja-
víkur undir stjórn Karls Jónat-
anssonar, Ólafur Þ. Kristjáns-
son frá Harmonikufélagi
Reykjavíkur, hljómsveitin
Léttir tónar undir stjórn Grett-
is Björnssonar, Jóna Einars-
dóttir frá Harmonikufélagi
Reykjavíkur, Sveinn Rúnar
Björnsson frá Harmonikufé-
lagi Reykjavíkur, Kvartett frá
Harmonikufélagi Reykjavíkur,
Einar Guðmundssonar frá Fé-
lagi harmonikuunnenda í Eyja-
firði og hljómsveit frá Félagi
harmonikuunnenda í Eyjafirði
undir stjórn Atla Guðlaugsson-
ar.
Fyrir dansi leika m.a. dans-
hljómsveit undir sljórn Jónu
Einarsdóttur ásamt söngvur-
unum Birni Þorgeirssyni og
Kristrúnu Sigurðardóttur,
hljómsveitin Neistar, tvær
nafnlausar hijómsveitir úr röð-
um félagsmanna Harmoniku-
félags Reykjavíkur og Létt-
sveit Harmonukufélags
Reykjavíkur.
HARMONIKUFELAG Reykjavíkur.
Málþing um hlutverk
foreldra framtíðarinnar
KVENRÉTTINDAFÉLAG íslands
heldur málþing undir heitinu For-
eldrar framtíðarinnar - vilji og
væntingar, laugardaginn 6. maí
kl. 10.30-14 í Komhlöðunni við
Lækjarbrekku. Málþingið er haldið
í tilefni af Ári fjölskyldunnar 1994.
Jöfn foreldraábyrgð í reynd er
mikilvægt þjóðfélagslegt markmið
og ein meginforsenda þess að
hægt verði að koma á jafnri stöðu
kynja í þjóðfélaginu. Mikið skortir
enn á að svo sé. Málþinginu er
ætlað að varpa ljósi á hvort fræðslu
um foreldrahlutverkið, sem flestra
býður, er sinnt sem skyldi jafnt
fyrir konur sem karla, segir í
fréttatilkynningu.
Á málþinginu verða flutt fjöl-
mörg erindi. Sigríður Vilhjálms-
dóttir þjóðfélagsfræðingur flytur
inngangserindi og greinir frá að-
draganda málþingsins. Sigríður
Jónsdóttir námsstjóri ræðir um það
hvort foreldrafræðsla rúmist innan
skólans og nefnir erindi sitt „Hvað
ætlarðu að verða þegar þú verður
stór?“.
Þorvaldur Karl Helgason, for-
stöðumaður Fjölskylduþjónustu
kirkjunnar, fjallar um undirbúning
undir hjónabandið, og hvað kirkjan
gerir í þeim efnum. Erindi Sóleyjar
Bender lektors nefnist „Ákvörðun
um barneign", en í því mun hún
ræða um ástæður þess að íslend-
ingar eiga eins mörg börn og raun
ber vitni, hvort fólk tekur yfírveg-
aða ákvörðun um að eignast bam
og hvort báðir aðilar standa að
slíkri ákvörðun. Sólveig Þórðar-
dóttir, ljósmóðir og hjúkranarfræð-
ingur, segir frá fræðslu tengda
fæðingu barns og þá einkum
fræðslu til feðra, en hlutur þeirra
á þessum mikilvægu tímamótum
hefur oft þótt fyrir borð borinn.
Sigurður Snævarr, hagfræðingur,
talar af hálfu karlanefndar Jafn-
réttisráðs um viðhorf til feðra-
fræðslu og réttindamála karla, svo
sem fæðingarorlofs. Loks munu
Gígja Sigurðardóttir og Sveinn
Helgason lýsa stuttlega reynslu
sinni af að verða móðir og faðir.
Málþinginu stjórnar Gerður
Steinþórsdóttir kennari, en í lokin
verða umræður, sem Ingibjörg
Broddadóttir, deildarsérfræðingur,
stýrir.
Myndlista- og handíðaskóli íslands
Athugasemd
frá skólastjórn
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá skólastjórn Mynd-
lista; og handíðaskóla íslands:
„Á skólastjórnarfundi Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
þriðjudaginn 25. apríl 1995 var
fjallað um skrif myndlistargagn-
íýnanda Morgunblaðsins Braga
Ásgeirssonar um skólann og eftir-
farandi samþykkt gerð:
í tilefni af endurteknum skrifum
Braga Ásgeirssonar, myndlistar-
gagnrýnanda og kennara við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands, þar sem fram kemur hörð
gagnrýni á skólann, starfsfólk,
kennara og nemendur, vill skóla-
stjórn taka fram eftirfarandi:
1. Skólastjórn harmar aðdrótt-
anir Braga í garð samstarfsfólks
Fyrirlestra-
röð um
áfalla-
sálfræði
ENDURMENNTUNARSTOFN-
UN Háskóla íslands og Sálfræð-
ingafélag íslandst standa fyrir fyr-
irlestraröð um áfallasálfræði í
maímánuði.
Áfalla- og stórslysasálfræði er
sérstök grein innan sálfræðinnar
og fjallar um áhrif og afleiðingar
válegra atburða og hvemig hægt
er að draga úr mennlegum þján-
ingum í kjölfar þeirra. Fyrirlesarar
era allir sálfræðingar og þrír þeirra
unnu við áfallahjálp eftir snjóflóðin
í Súðavík.
Fimmtudaginn 11. maí kl. 17-
18.30 flytur Sigríður Lóa Jónsdótt-
ir fyrirlestur sem hún nefnir: Jarð-
skjálftar og tilfinningalegir eftir-
skjálftar. Fimmtudaginn 18. maí
kl. 17-18.30 flytja Einar Hjörleifs-
son og Ingibjörg Harðardóttir
fyrirlestur undir yfirskriftinni:
Áfallahjálp og áfallasálfræði.
Þriðja og síðasta fyrirlesturinn í
röðinni, Áfallastreita og meðferð
hennar, flytja Margrét Amljóts-
dóttir og Margrét Ólafsdótitr
mánudaginn 29. maí kl. 17-18.30.
Aðgangur er öllum opinn, bæði
áhugafólki og fagfólki, t.d. sál-
fræðingum, hjúkrunarfræðingum,
þjörgunarfólki, félagsráðgjöfum,
prestum, kennuram og aðstand-
endum.
Fyrirlestrarnir verða haldnir í
stofu 101 í Lögbergi og er að-
gangseyrir 500 krónur að hveijum
um sig. Nánari upplýsingar fást á
skrifstofu Endurmenntunarstofn-
unar.
síns í skólanum og álítur Braga
ekki samboðið að nota aðstöðu
sína við Morgunblaðið og þaðan
af síður Sjónmenntavettvang þess
til að vega að samstarfsfólki sínu
og nemendum. Bragi Ásgeirsson
er einn af elstu kennurum skól-
ans. Hann veit mætavel sjálfur að
hann hefur tækifæri eins og aðrir
starfsmenn skólans til að kynna
sér og hafa áhrif á innra skipulag
hans.
2. Undanfarin ár hefur Mynd-
lista- og handíðaskóli íslands tekið
gagngerðum breytingum. Við
skólann er nú notað einingakerfí
sem er sambærilegt við eininga-
kerfí Háskóla íslands og Kenn-
araháskóla íslands, þ.e.a.s. þriggja
ára lánshæft nám í sérdeildum
skólans er metið til 90 námsein-
inga, 30 einingar fyrir hvert náms-
ár. Éinstök námskeið og hver lota
í náminu eru metin til eininga. Til
þess að geta lokið misseri þarf
nemandi að hafa lokið minnst 11
einingum af 15 sem völ er á hveiju
sinni. Engum nemanda hefur verið
vísað Trá námi í einstökum nám-
skeiðum eða frá skólanum á þessu
skólaári. Nemandi sem ekki lýkur
námskeiði á misseri verður að
endurtaka viðkomandi námskeið
næst þegar það er haldið ef hann
ætlar að útskrifast. Þetta felur í
sér að nemandi sem ekki sinni
námi sínu samkvæmt þeim kröfum
sem skólinn setur útskrifar sig
einfaldlega sjálfur frá námi enda
má ætla að hann hafí kynnt sér
þær námskröfur sem gerðar eru
til hans. Námseiningakerfi Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands er
í samræmi við einingakerfí há-
skólastigsins á íslandi og úthlut-
unarreglur Lánasjóðs íslenskra
námsmanna.
3. Menntun nemenda skólans
verður best metin í framgangi
þeirra sjálfra, í framhaldsnámi og
starfi. Myndlista- og handíðaskóli
íslands nýtur viðurkenningar
virtra listaháskóla í Evrópu og
Bandaríkjunum. Sem dæmi má
nefna að skólinn er í samstarfi við
um fimmtíu erlendar háskóla-
stofnanir, m.a. vegna nemenda-
og kennaraskipta."
♦ ♦ ♦
Vatnslita-
myndir
Asgríms
SÝNINGU á úrvali vatnslitamyndí
eftir Ásgrím Jónsson lýkur nú un
helgina. Safn Ásgríms er opið un
helgar kl. 13.30-16. Aðgangur e
ókeypis.