Morgunblaðið - 06.05.1995, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Excel námskeið
ÍDAG
94029
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuskólí Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • © 68 80 90
Minningarsjóður
Heiðar Baldursdóttur
Stjóm Minningarsjóðs Heiðar Baldursdóttur auglýsir hér með
eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum.
Markmið sjóðsins er að styrkja rannsóknir á sviði
sérkennslu, blöndun fatlaðra og ófatlaðra barna og
boðskipta.
í umsókn skulu koma fram eftirfarandi upplýsingar:
1. Greinargóð lýsing á verkefninu, markmiðum þess og
áætlaðri framkvæmd.
2. Áætlun um upphaf og lok verkefnis og/eða áfanga.
3. Sundurliðuð kostnaðaráætlun.
4. Aðrar upplýsingar, s.s fyrirhuguð kynning og nýting á
niðurstöðum.
Greinargerð skilist til sjóðsstjórnar að loknu verkefni.
Umsóknir skulu berast stjórn sjóðsins fyrir 20. maí og sendist
formanni stjórnar, Þóru Kristinsdóttur, Kennaraháskóla íslands,
Stakkahlíð, 105 Reykjavík.
Styrkupphæð til úthlutunar árið 1995 er allt að kr.100.000
og fer úthlutun fram 31. maí.
ORÐSENDING
frá Lífeyrissjóði
Verkfræðingafélags
íslands
Til sjóðfélaga
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands hefur
sent sjóðsfélögum sínum yfirlit yfir móttekin
iðgjöld á tímabilinu 1. júlí—31. desember 1994.
Hafi einhver ekki fengið yfirlit, en dregið hafi verið
af launum hans í Lífeyrissjóð Verkfræðingafélags
íslands, eða ef yfirlitið er ekki í samræmi við frá-
drátt á launaseðlum, þá vinsamlegast hafið sam-
band við skrifstofu sjóðsins nú þegar og eigi síðar
en 31. maí nk.
Verði vanskil á greiðslum iðgjalda til lífeyrissjóðsins
geta dýrmæt réttindi glatast.
GÆTTU RÉTTAR ÞÍNS
í lögum um ábyrgðarsjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar
ábyrgðarsjóðs launa vegna gjaldþrota skulu
launþegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits
ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til viðkom-
andi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal
launþegi innan sömu tímamarka leggja lífeyrissjóði
til afrit launaseðla fyrir það tímabil sem er í van-
skilum. Komi athugasemd ekki fram frá launþega
er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir
réttindum á grundvelli iðgjalda þessara að því
marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyris-
sjóðnum ekki verið kunnugt um iðgjaldakröfuna.
Lífeyrissjóður Verkfræðingafélags íslands,
Engjateigi 9,105 Reykjavík,
sími 568 8504,
fax 568 8834.
- kjarni málsins!
Sjábu hlutina í víbara samhengi!
SKAK
Umsjön Margcir
Pctursson
■ b c d e t
Svartur leikur og vinnur
Staðan kom upp í úrslita-
skákinni á atskákmóti PCA
og Intel í Moskvu um síðustu
helgi. Teflt var um rúmar
þijár milljónir króna. Ind-
veijinn Vyswanathan An-
and (2.715) var með hvítt,
en Vasílí ívantsjúk (2.725)
frá Úkraínu var með svart
og átti leik. Anand lék síðast
57. Kf3-e4? Svarið
kom að bragði: 57. —
He2+ 58. Kf4 - Hxe5!
59. Kxe5 — al=D+ 60.
Hxal - Bf6+ 61. Kf4
— Bxal 62. Kg5 — Bb2
63. h4 - Bcl+ 64.
Kxh5 — Kf6 og hvítur
gafst upp. Eftir 65.
Kg4 - Bd2 66. Kh5
má svartur alls ekki
leika 66. - Kxf5??
patt, en hann vinnur
auðveidlega með 66. —
Bel 67. Kg4 - Bxh4!
68. Kxh4 - Kxf5 og
svarta peðið verður að
drottriingu. Ivantsjúk sigraði
því á mótinu.
Maíhraðskákmót TR fer
fram að Faxafeni 12,
sunnudaginn 7. maí kl. 20.
COSPER
BRIDS
Umsjón Guómundur Páll
Arnarson
MÖRG pör létu bútinn duga,
nokkur reyndu þijú grönd
og a.m.k. eitt par freistaði
gæfunnar í sex tíglum. Þetta
er spil 57 í úrslitum Islands-
mótsins í tvímenningi.
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ Á982
▼ Á983
♦ 1063
4 D9
Vestur Austur
4 KDG743 4 65
4 G72 IIIIH 4 KDI05
♦ 752 111111 ♦ K4
48 4 G6432
Suður
4 10
▼ 64
♦ ÁDG98
4 ÁK1075
NS eiga minnst tíu slagi
í grandi, svo það gaf góða
skor að segja þijú grönd.
Margir þeirra sem spiluðu
bút í tígli fengu aðeins tíu
slagi eftir hjartakónginn út.
Sagnhafí drap á ás, svínaði
tígli einu sinni og fór svo í
laufið. En vestur stakk lauf-
ásinn og trompaði út. Austur
fékk því síðbúinn slag á lauf-
gosa.
Þórður Björnsson og
Murat Serdar renndu sér í
sex tígla, sem Þórður spilaði
suður:
Vestur Norður Austur Suður
- Pass Pass 1 tígull
2 spaðar Dobl* Pass 5 lauf
Pass 6 tígiar Allir pass
* neikvætt
Útspilið var spaðakóngur,
sem Þórður drap og tók
þrisvar tromp með svíningu.
Spilaði svo hjarta á níuna.
Austur átti þann slag og
spilað spaða um hæl. Þórður
trompaði, spilaði laufi á
drottingu og svínaði tíunni í
bakaleiðinni. Tók svo síðasta
trompið og þvingaði austur
í hjarta og laufi. Tólf slagir
og hreinn toppur.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Á einhver
Xtrablaðið?
FJÓLA hringdi til að
biðja þann sem á 1., 2.
og 3. tbl. tónlistarblaðs-
ins Xtrablaðið og getur
hugsað sér að láta það
til hennar, að hringja í
síma 657276.
Budda tapaðist
BUDDA úr selskinni
tapaðist á Laugavegin-
um á milli kl. 17 og 18
á leiðinni frá Máli og
menningu og upp í Hag-
kaup sl. miðvikudag.
Hafí einhver fundið
budduna er hann vin-
samlega beðinn að láta
vita í síma 25128.
Sunddót tapaðist
SVARTUR Adidas-poki
sem í er handklæði með
myndum og blá sund-
skýla tapaðist á leið frá
Sundhöllinni og inn á
Langholtsveg sl. laug-
ardag. Finnandi vin-
samlega hringi í síma
686143.
í óskiium í
Njarðvík
LÆÐA af norsku
skógarkattakyni er í
óskilum á Tunguvegi 6
í Njarðvík. Upplýsingar
í síma 92-12936.
Kettlingar
ÞRÍR fallegir átta vikna
kassavanir kettlingar
fást gefins á góð heim-
ili. Upplýsingar í síma
889473.
Köttur fæst gefins
GULUR fallegur fjög-
urra ára gamall geltur
högni fæst gefins.
Ýmislegt kattadót getur
fylgt honum. Upplýs-
ingar í síma 39623.
HÖGNIHREKKVÍSI
„ HVENÆie FÓR HANN AE? NOTA APANN ?"
Víkveiji skrífar...
VÍKVERJI skrifaði fyrir
skemmstu um verðlag á létt-
um áfengum drykkjum hér á landi
og hvemig það er að sliga fjárhag
fjölskyldna, sem hafa tekið upp al-
þjóðlegar og' um leið hófsamar
neyzluvenjur í mat og drykk. Nýleg
frétt í brezka blaðinu Thelndepend-
ent setur málið í athyglisvert ljós.
Þar kemur fram að samtök brugg-
verksmiðja og ölkráa hafí lýst mikl-
um áhyggjum af því að brezkir
ferðamenn flytji árlega heim með
sér sem samsvarar einni milljón
bjórkolla (pints) frá meginlandinu,
þar sem verð á bjór er mun lægra
en í Bretlandi. Samtökin segja
þennan innflutning stofna rekstrar-
grundvelli brezkra brugghúsa og
kráa í hættu og kvarta forráðamenn
þeirra undan skattlagningu brezkra
yfírvalda á bjór, sem þeir segja hina
hæstu í Evrópu. Þar hefur greini-
lega eitthvað farið framhjá tals-
mönnum bjórframleiðenda og -selj-
enda, því að þótt bjór sé miklu dýr-
ari í Bretlandi en á meginlandinu,
má fá þrjár kollur af öli á krá í
Englandi fyrir verð einnar á ís-
lenzkri knæpu. Og þar er svo sann-
arlega fyrst og fremst skattlagn- •
ingu íslenzkra stjórnvalda, sem
byggist á úreltri „áfengisvarna-
stefnu“, um að kenna. En kannski
telst ísland, með hina arfavitlausu
stefnu sína í áfengismálum, ekki
til Evrópu í vínmenningarlegu til-
liti(?!).
xxx
KUNNINGI Víkverja sem bú-
settur er í Garðastræti sá sér
til skelfíngar í vikunni að komið
hafði verið upp gjaldmælum í göt-
unni. Hann minntist þess að nokkr-
um mánuðum fyrr hafði borgar-
verkfræðingur sent honum bréf þar
sem sagt var frá því að hugmyndir
væru uppi um slíka gjaldtöku og
var kunninginn, ásamt öðrum íbú-
um götunnar, beðinn um að senda
borgarverkfræðingi bréf, hefði
hann eitthvað við þetta að athuga.
Það gerði kunninginn enda sá hann
gjaldtökunni ýmislegt til foráttu,
t.d. það að á horni Garðastrætis og
Vesturgötu er bílastæðahús þar
sem yfrið nóg er af stæðum. Þá
finnst kunningjanum það sárgræti-
legt að þurfa að greiða sérstaklega
fyrir bílastæði við heimili sitt þegar
hann hefur greitt sömu gjöld til.
borgarinnar og íbúar annarra
hverfa.
xxx
SÍÐAN leið og beið og ekkert
gerðist. Taldi kunninginn lík-
legast að málinu hefði verið frestað
þar sem ekkert heyrðist frá borgar-
yfirvöldum. Þegar gjaldmælar og
skilti voru svo skrúfuð á sinn stað
í byijun vikunnar brá honum því
heldur í brún. Kunninginn er sár-
reiður vegna þessarar uppákomu
og bíður eftir bréfi frá borginni þar
sem málið verður útskýrt fyrir hon-
um. Finnst kunningjanum það eng-
in ofrausn að borgin sendi honum
slíkt bréf þar sem honum verður
sagt hvernig hann á að leysa stöðu-
mælavandann í götunni hans, sem
er ekki aðeins vandamál á virkum
dögum, heldur einnig laugardaga.